Dagur - 05.10.1988, Page 16
wssm
Akureyri, miðvikudagur 5. október 1988
TEKJUBREF• KJARABRÉF
FJÁRMÁL ÞÍN - SÉRGREIN OKKAR
TJARFESTINGARFEIAGIÐ
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Verkmenntaskólinn á Akureyri:
Týndu milljónirnar
konrnar í leitimar
Verkmenntaskólinn á Akur-
eyri fékk 16 milljóna króna
aukatjárveitingu á síðasta degi
Jóns Baldvins Hannibalssonar
í fjármálaráðuneytinu og má
þar með segja að hinar marg-
frægu týndu milljónir séu loks
komnar í leitirnar. Skólinn
mun fá þessa peninga greidda í
samræmi við framkvæmda-
hraða, en framkvæmdir við
Húnavatnssýslur:
Fjámáms-
beiðnum fer
íjölgandi
Á undanförnum árum hefur
fjárnámsbeiðnum fjölgað mjög
mikið í kjölfar rekstrarörðug-
leika fyrirtækja. Það sem af er
þessu ári hafa sýslumanni
Húnavatnssýslu borist 150
fjárnámsbeiðnir en þær voru
99 á sama tíma á sl. ári en voru
þá í árslok orðnar 135.
Að sögn Jóns ísberg, sýslu-
manns, er stærsti liluti þessara
fjárnámsbeiðna á mjög fáa aðila
sem sumir eru þegar orðnir gjald-
þrota. Þessar tölur segja því ekki
að staða almennings og fyrir-
tækja í héraðinu hafi versnað
svona mikið.
Hins vegar er ljóst að þróunin
hefur verið í þá átt að fjárnáms-
beiðnum hefur farið fjölgandi á
undanförnum árum. fh
miðálmuna voru að stöðvast
vegna fjárskorts.
„Jú, ég er auðvitað í sjöunda
himni yfir því að þetta skuli hafa
gengið. Það er vitað mál að næsti
árgangur sem kemur inn í fram-
haldsskóla er allt að því jafn stór
og sá sem kom inn núna og þess
vegna er full þörf á þessari fjár-
veitingu," sagði Baldvin Bjarna-
son, settur skólameistari.
Upphaflega stóð til að taka í
notkun fimm nýjar kennslustofur
um áramótin, í bókasafnsálmu,
en eins og málin þróuðust var
ekki einu sinni víst hvort skólinn
myndi ná því marki fyrir næsta
haust. Baldvin sagði að þessi
aukafjárveiting þýddi það að
skólinn myndi fá aukið húsnæði
um mitt sumar og ástandið yrði
því betra á næsta skólaári.
Húsnæðismál Verkmennta-
skólans og Háskólans á Akureyri
hafa sem kunnugt er skarast
nokkuð og sagði Baldvin að nú
væri útlit fyrir að VMA gæti rýmt
lítilsháttar fyrir Háskólanum
næsta haust, ef nemendafjöldinn
leyfði það á annað borð. SS
Hausthreingerning á flugvél Flugfélags Norðurlands.
Mynd: GB
Blönduós:
Mildl
slátursala
hjáSAH
- veruleg aukning
miðað við undanfarin ár
Hjá SAH á Blönduósi hcfur
sala á slátri verið mun meiri í
haust en undanfarin ár. Það er
greinileg aukning í sláturkaup-
um hjá ungu fólki.
Hvað það er sem veldur þess-
ari aukningu er ekki gott að segja
en slátur er eins og allir vita
bæði hollur og ódýr matur.
Ástæða þess að fólk kaupir nú
meira af slátri en áður gæti verið
sú að það hafi minna af pening-
um til matarkaupa en oft áður.
Þetta gæti líka verið ein breyting-
in á neysluvenjum fólks.
Að sögn Stefáns Hafsteinsson-
ar verkstjóra hjá SAH liggja ekki
fyrir neinar tölur varðandi aukn-
ingu í slátursölunni. Hann sagði
að það hefði strax í upphafi slát-
urtíðar verið mikil sala í slátrinu
og það væri óvenjulegt, því
venjulega hefði verið lítil sala
fram um mánaðamótin sept.-okt.
Hann sagði að aukningin væri
greinilega umtalsverð miðað við
sl. ár. fh
Samdráttur hjá bflaleigum í sumar:
Timbuimeim eftir bflafyllerí Þorstefais
- ríku túristunum fækkar og kostnaður innanlands eykst
Nokkurs samdráttar hefur orð-
ið vart í rekstri bílaleiga á land-
inu og hafa aðilar sem að þess-
um rekstri standa á Akureyri
Jarðgöngin í Ólafsfjarðarmúla:
Líður að fyrstu
sprengmgunni
- undirbúningsvinnu að ljúka
Fyrsta sprengingin fyrir jarð-
göngum í Ólafsfjarðarmúla
verður scinnipartinn í þessari
viku, ef allt gengur að óskum.
Undirbúningsvinnu við munn-
ann er að mestu lokið, búið er
að sprengja um 50 metra langa
rennu inn í fjallið og næsta
verk er að styrkja bergið ofan
jarðganganna með þar til
gerðum bergboltum.
Vinna við Múlagöngin hefur
staðið í nokkrar vikur og gengur
hún samkvæmt áætlun. A milli 20
og 30 manns verða við vinnu í
vetur og er unnið í 20 tíma á sól-
arhring á tvískiptum vöktum frá
kl. 6 á morgnana til kl. 2 á næt-
urnar.
Verið er að reisa steypustöð í
útjaðri Ólafsfjarðarbæjar og þá
hafa vinnubúðir risið á Brimnes-
túni sem einnig er í útjaðri bæjar-
ins. Öll efnisvinnsla fer fram á
Melshorni utan Dalvíkur, bæði
varðandi steypustöðina og einnig
í sambandi við slitlag á veginn að
göngunum. Vegagerð hefur verið
í fullum gangi, en leggja á nýjan
veg frá Olafsfirði og að munnan-
um sem verður um 1700 metra
langur og lagður bundnu slitlagi.
Göngin verða um 3100 metra
löng og liggja frá Kúhagagili
Ólafsfjarðarmegin að Hraunslæk
Dalvíkurmegin. Þetta verða
lengstu jarðgöng á landinu og
vinna við þau eitt stærsta verk-
efni sem ráðist verður í af hálfu
Vegagerðarinnar á næstunni.
Björn A. Harðarson staðar-
verkfræðingur Vegagerðarinnar
sagði að allar grundvallarmæling-
ar á stefnu jarðganganna væru
gerðar með leisergeisla og verður
senditæki fest við op ganganna
og verður geislanum fylgt eftir
þar til yfir lýkur. Leisergeisli hef-
ur aðeins einu sinni áður verið
notaður við verk sem þetta hér á
landi, en það var við fram-
kvæmdir í Blönduvirkjun. mþþ
ekki farið varhluta af honum.
Nú er t.d. hægt að fá keypta
ódýra bílaleigubíla á mjög hag-
stæðum kjörum hjá Höldi á
Akureyri, en þeir hyggjast
selja um 50 bíla af þeim 300
sem þeir eiga.
Ástæða þessa samdráttar er
fyrst og fremst fækkun erlendra
ferðamanna í sumar. „Þörfin fyr-
ir bílaleigubíla hefur snarminnk-
að,“ sagði Vilhelm Ágústsson hjá
Höldi. „Eftir bílafylleríið sem
Þorsteinn kom á, eiga allir
íslendingar bíla. Þá var treyst um
of á erlendu ferðamennina, en
það komu ekki nema um 70%
þeirra iniðað við í fyrra." Vilhelm
nefndi sem dæmi, að um verslun-
armannahelgina í sumar þegar
undir venjulegum kringumstæðum
er nær ómögulegt að fá bíla,
stóðu 19 bílar hjá þeim og ef
íslendingar þurfi að fara milli
Reykjavíkur og Akureyrar, sé
örugglega einhvers staðar frændi
sem getur lánað bíl því flestir eigi
nú tvo eða fleiri bíla. „Þá hefur
þungaskatturinn sem Jón Baldvin
kom á, kostað Höld um 4 millj-
ónir í ár. Tryggingarnar stór-
hækkuðu, samkeppnin er mikil
og hver nagar skóinn af öðrum
eins og taxtar sýna, en þeir hafa
ekki hækkað í tvö ár.“
Best hefur gengið að leigja
jeppa í sumar, þar sem skipu-
lagðar safaríferðir njóta mikilla
vinsælda hjá útlendingum, en
þetta tímabil varir aðeins í einn
og hálfan til tvo mánuði. Jeppana
gengur illa að leigja á veturna,
svo þeir eru teknir af skrá á
haustin og geymdir inni fram á
vor.
Varðandi fækkun ferðmanna
sagði Vilhelm að helst væri ríka
fólkið hætt að koma til landsins.
í sama streng tók Haraldur I.
Haraldsson hjá Bílaleigunni Erni
„Erlendir ferðamenn bera fyrir
sig dýrtíðina og uggvænlegast er
að þeir sem selja ferðir erlendis
virðast gera minna af því að
halda fram íslandsferðum."
Hann sagði það sömuleiðis hafa
skapað erfiðleika, að í vor hafi
verið búið að spá miklum ferða-
mannastraumi og því hafi aðilar í
ferðamannaþjónustu verið búnir
að undirbúa sig samkvæmt því.
„Við fjölguðum bílum í vor eins
og alltaf en ef við hefðum haft
grun um þetta, hefðum við ekki
keypt eins mikið. í vor hækkuð-
um við taxta um 20-25%, en það
dugði ekki til á móti þeim hækk-
unum sem orðið hafa t.d. á
bifreiðaiðgjöldum norðanlands.“
VG
Sláturtíðin:
ívið minni fall-
þungi en í fyrra
Slátrun er vel á veg komin víö-
ast hvar á Norðurlandi. Á Dal-
vík var áætlað að Ijúka slátrun
miðvikudaginn 5. október og
nokkrum dögum seinna á
Húsavík. Slátrun er einnig í
fullum gangi hjá Sláturhúsi
KEA á Akureyri en þar mun
hún standa lengur yfir.
Fallþungi dilka virðist vera ívið
minni en í fyrra. Á Húsavík er
meðalfallþunginn 13,8 kíló, en
var 14,6 kg þegar upp var staðið
frá síðustu sláturtíð. Á Húsavík
var áætlað að slátra 41 þúsund
fjár, sem er heldur meira en í
fyrra.
Ekki liggja fyrir tölur um fall-
þunga dilka í Sláturhúsi Kaup-
félags Eyfirðinga á Dalvík, en þó
töldu menn dilkana léttari en í
fyrra. Á Dalvík var áætlað að
slátra 8 þúsund fjár, sem er mun
rninna en í fyrra, en að sláturtíð-
inni lokinni verður að öllum lík-
indum tekið til við að farga riðufé
úr Svarfaðardal í sláturhúsinu.
Fallþunginn hjá Sláturhúsi
KEA á Akureyri er mjög svipað-
ur og á sama tíma í fyrra, eða
14,74 kg, að sögn Óla Valdimars-
sonar sláturhússtjóra. Þar var
áætlað að slátra 44 þúsund fjár og
ætti slátrun að vera lokið í kring-
um 20. október. SS