Dagur - 07.10.1988, Side 13
fí'SfctöiSÉiMSss - ÖJtólift - ft
„Lopi og band“
komið út
Lopi og band 3. tbl. ’88 er komið
út. Fjallað er um ýmsa þætti sem
tengjast fjölþættum áhugasviðum
kvenna og hefur blaðið jafnframt
tekið nokkrum stakkaskiptum.
Nýr þáttur „Að saunta sjálfur"
hefur göngu sína í þessu blaði,
enda hafa fjölmargir áskrifendur
og lesendur Lopa og bands óskað
eftir slíku efni. Þættinum fylgja
ítarlegar leiðbeiningar, ljós-
myndir og snið. Fatnaðurinn er
að þessu sinni fyrst og fremst
þægilegur en jafnframt fallegur
og hentugur við margvísleg tæki-
færi.
Sigrún Ólafsdóttir fatahönnuð-
ur í París fjallar um haust- og
vetrartískuna.
Snyrtivörukynning á vörum
jafnt fyrir húð sem hár er einnig á
síðum blaðsins og að auki
umfjöllun um nýjungar á sviði
ilmefna.
Lopi og band geymir að þessu
sinni einstakt úrval sérhannaðra
prjónauppskrifta ásamt tilheyr-
andi ljósmyndum. Flíkurnar eru
jafnt fyrir börn sern fullorðna og
er ástæða til að geta sérstaklega
um fjölskrúðugar og fljótprjón-
aðar barnapeysur.
Þá er þáttur um „Heilsufæði",
matargerð og neysluvenjur.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri, á
neðangreindum tíma:
Hafnarbraut 23, (Sólgaröur),
Dalvík talinn eigandi Frank
Róbertsson, miðvikudaginn 12.
okt. 1988, kl. 17.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Othar
Örn Petersen hrl., Ólafur Birgir
Árnason hdl., Gunnar Sólnes
hrl., Ólafur Gústafsson hrl.,
Veðdeild Landsbanka (slands
og Ólafur Garðarsson.
Laufásgötu 1, Akureyri, talinn
eigandi Jón Steindórsson, mið-
vikudaginn 12. okt. 1988, kl.
15.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjar-
sjóður Akureyrar, Tómas Þor-
valdsson hdl. og Ólafur Birgir
Árnason hdl.
Lerkilundi 9, Akureyri, þingl. eig-
andi Sveinbjörn Vigfússon, mið-
vikudaginn 12. okt. 1988, kl.
15.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Iðnað-
arbankl íslands hf. og Ásgeir
Thoroddsen hdl.
Lækjargötu 3, e.h. Akureyri,
þingl. eigandi Ragnheiður Páls-
dóttir, miðvikudaginn 12. okt.
1988, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjar-
sjóður Akureyrar, Gunnar
Sólnes hrl. og Veðdeild Lands-
banka íslands.
Móasíðu 2c, Akureyri, þingl.
eigandi Helgi Stefánsson, mið-
vikudaginn 12. okt. 1988, kl.
14.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Bæjar-
sjóður Akureyrar, Gunnar Sól-
nes hrl. og Veðdeild Landsbanka
íslands.
Sunnuhlíð 12, G-hl., Akureyri,
þingl. eigandi Huld sf., miðviku-
daginn 12. okt. 1988, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Iðnað-
arbanki íslands hf., innheimtu-
maður ríkissjóðs, Gísli Baldur
Garðarsson hrl. og Bæjarsjóður
Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaöurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Lifmdi orð
„Ekki þurfa heilbrigðir læknis
við, heldur þeir sem sjúkir
eru. “ „Ég er ekki kominn til að
kalla réttláta, heldur syndara. “
Matt. 9.12-13.
Lærisveinar Jesú voru
spurðir: „Hvers vegna etur
meistari yðar með tollheimtu-
mönnunum og bersyndug-
um?“ Jesús heyrði þetta og
sagði: „Ekki þurfa heilbrigðir
læknis við, heldur þeir sem
sjúkir eru.“ Rétt og enginn
maður er syndlaus frammi fyr-
ir honum. Jesús kom ekki til
þessarar jaröar að leita sér-
staklega að þeim vænlegustu
meðal manna, og láta hina
lakari afskiptalausa. Með
þessum ummælum vakti hann
athygli á því að Guð leggur
annað mat á það, hverjir séu
góðir eöa vondir meðal
manna.
Mein mannsins er hið synd-
uga eðli hans og Drottinn kom
til þess að lækna það mein.
Hann kallaði á þá sem fundu
hjá sér syndavitund og þörf á
frelsara. Hann kom til þess að
kalla á þá sem fúslega vildu
hlusta og beygja sig fyrir boð-
skap sannleikans frá Guði.
Hann sagði sjálfur: „Manns-
sonurinn er kominn að leita að
hinu týnda og frelsa það.“
Lúk. 19.10. Kall Krists gengur
út til allra þeirra, sem vilja
koma til hans og taka við hon-
um sem náðargjöf frá Guði.
Hann kom ekki til þess að
gera hina skástu eitthvað
skárri. Hann kom til þess að
skapa nýja menn með því að
veita þeim fyrirgefningu og
nýtt líf. „Ef einhver er í Kristi,
er hann skapaður á ný, hið
gamla varð að engu, sjá, nýtt
er orðið til." 2. Kor. 5.17.
Hin andlega lækning fólst í
því, að hann vildi sjálfur koma
og lítillækka sig og taka þátt í
mannlegum kjörum. Hann var
reiðubúinn að mæta hinum
almenna borgara og segja
honum allan sannleikann.
Lækningin felst enn í því aö
„þann sem þekkti ekki synd,
gjörði hann að synd vor
vegna, til þess að vér skyldum
verða réttlæti Guðs í honum“.
2. Kor. 5.20. Það er fyrir trúna
á Krist sem við mennirnir öðl-
umst verðleika fyrir Guði. Hinir
kristnu í Efesus voru minntir á
þetta: „Því að af náð eruð þér
hólpnir orðnir fyrir trú. Þetta er
ekki yður að þakka. Það er
Guðs gjöf. Ekki byggt á
verkum, enginn skal geta
miklast af því.“ Ef. 2.8-9.
Foreldrar!
Geymið öll hættuleg efni þar
sem börnin ná ekki til.
Vandað vörumerki, veit á gott
Glæsilegt úrval
afpeysum
Hugheilar þakkir til allra
sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum,
heillaóskum og aðstoð á
sjötugs afmælinu mínu 29. sept. sl.
og gerðu mér daginn svo skemmtilegan.
Alúðar kveðjur.
GUÐRÚN S. FRIÐRIKSDÓTTIR.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR ÁGÚSTSDÓTTIR,
frá Steðja,
Elnilundi 2 b, Akureyri,
sem andaðist að Dvalarheimilinu Hlíð þann 30. september
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 10. október
kl. 13.30.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinar-
hug við fráfall eiginmanns míns, föður og afa,
SKARPHÉÐINS ÁSGEIRSSONAR,
Helgamagrastræti 2,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við öllum þeim, er veittu honum
umönnun á liðnum árum í veikindum hans.
Laufey Vairós Tryggvadóttir,
Brynjar Hartmann Skarphéðinsson, Guðlaug Hermannsdóttir,
Birkir Skarphéðinsson, María Einarsdóttir,
Kristján Viðar Skarphéðinsson, Marta Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.