Dagur - 01.11.1988, Side 3
1. nóvember 1988 - DAGUR - 3
Ferðakaupstefna á morgun:
tækifæri fyrir
ferðaþjónustu
Kjörið
aðfla í
Á morgun verður haldin ferða-
kaupstefna á Hótel KEA í
tengslum við ferðamálaráð-
stefnu Ferðamálaráðs sem sett
verður á sama stað fimmtudag-
inn 3. nóvember kl. 10.00. Til-
gangur kaupstefnunnar er að
gefa þeim aðilum sem bjóða
upp á ferðir, gistingu eða aðra
þætti sem þeir vilja koma á
framfæri tækifæri til að kynna
sínar vörur fyrir fulltrúum
ferðaskrifstofa.
í gær höfðu um 80 manns skráð
sig á ráðstefnuna, en reiknað er
með mun meiri fjölda. Pað verð-
ur Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra sem setur ráð-
stefnuna og að setningu lokinni,
verða flutt framsöguerindi.
Friðrik Eysteinsson rekstrarhag-
fræðingur flytur erindi um skatt-
lagningu ferðaþjónustunnar og
gengismál, um verðlagningu
Islandsferða og markaðsmál
flytja þau Unnur Georgsson og
Dieter W. Jóhannsson erindi, en
þau eru forstöðumenn ferðaskrif-
stofu Ferðamálaráðs í New York
og Frankfurt. Þá flytur Sigfús
Jónsson bæjarstjóri á Akureyri
erindi um stöðu ferðaþjónust-
unnar í þjóðarbúskap íslendinga.
I stað hefðbundinna nefndar-
starfa á ráðstefnum sem þessari,
verður gefinn rúmur tími til
umræðna um framsöguerindin.
Ráðstefnunni lýkur á föstudag
með hópferð um Eyjafjörð með
viðkomu í Hrísey.
Þátttaka á kaupstefnunni virð-
ist ætla að vera nokkuð góð, sér-
staklega meðal kaupenda, því
flestar ferðaskrifstofur í Reykja-
vík hafa verið skráðar til þátt-
töku. Þá eru á annan tug aðila á
Norðurlandi búnir að skrá sig til
þátttöku, en vonast er til þess að
enn fleiri láti sjá sig. „Margir
þessara aðila eru heildarsamtök
eins og Ferðamálafélag Húsavík-
ur og Ferðamálanefnd Stykkis-
hólms,“ sagði Porleifur Þór Jóns-
son starfsmaður Atvinnumála-
nefndar Akureyrarbæjar, en
hann sér um að skipuleggja kaup-
stefnuna. „Þá þykir mér leitt að
hafa ekki heyrt frá fleiri aðilum
sem hafa góðar hugmyndir á
takteinum og vilja koma þeim á
framfæri. Þessir menn ættu að
koma og spjalla við fólkið sem
sækir ráðstefnuna. Það hefur
vantað vettvang fyrir þetta og hér
er kjörið tækifæri án þess að
þurfa að leggja út í kostnað."
Kaupstefna sem þessi hefur
ekki verið haldin á Akureyri áður
en þótti kjörið að nýta tækifærið í
tengslum við ráðstefnuna.
„Við væntum þess fyrst og
fremst að hér fái aðilar sem eru
með einhvern rekstur í tengslum
við ferðaþjónustu tækifæri til að
hitta forsvarsmenn ferðaskrif-
stofa og koma sér á framfæri,"
sagði Þorleifur Þór að lokum.
VG
Pokaverksmiðjan Serkir á Blönduósi:
Hannar bréfpoka
eftir óskum kaupenda
Pappírspokaverksmiöjan
Serkir á Blönduósi hóf fram-
leiðslu á pokum af ýmsum
gerðum í ágústmánuði 1987.
Fram að þessu hefur verið
unnið að þróun framleiðslunn-
ar og markaðssetningu og má
segja að á vissan hátt sé fyrir-
tækið enn í mótun. Núverandi
framkvæmdastjóri er Víglund-
ur Gíslason en hann tók við því
starfi í marsmánuði á þessu ári.
Sölustofnun lagmetis:
ALDI stendur við
gerða samninga
Vestur-þýska fyrirtækið ALDI
GMBH hefur ákveðið að
halda gerða samninga við
Sölustofnun lagmetis um kaup
á íslenskum vörum þrátt fyrir
þrýsting frá samtökum
umhverfisverndunarsinna og
hvalfriðunarmanna.
í fréttatilkynningu frá Sölu-
stofnun lagmetis er því fagnað að
forráðamenn Aldi-samsteypunn-
ar skyldu taka þessa ákvörðun.
Þó er bent á að hinn almenni
neytandi muni hafa síðasta orðið
í þessu máli. Ekki beri að van-
meta áhrifamátt Greenpeace og
annarra álíka samtaka á skoðana-
myndun almennings í hvalamál-
inu.
Jafnframt vonast forsvarsmenn
sölustofnunarinnar eftir því að
stjórnvöldum takist að sannfæra
alla þá kaupendur sem hugleiða
að hætta eða hafa hætt kaupum á
vörum frá íslandi um að halda
áfram viðskiptum. Vegna stöðv-
unar viðskipta við Tengelmann
hafi íslenskar lagmetisverksmiðj-
ur þegar tapað tugum milljóna
króna og þó hafi aðeins verið um
að ræða stöðvun á sölu til eins
fyrirtækis af mörgum. Tengel-
mann-málið hafi því skaðað
markaðsstöðu Sölustofnunar lag-
metis í V.-Þýskalandi. EHB
Lögreglan á Akureyri:
í samtali við Dag sagðist Víg-
lundur vera bjartsýnn á að fyrir-
tækið ætti sér framtíð. Hann
sagði að fjármagnskostnaður
væri Serkjum þungur baggi eins
og öðrum fyrirtækjum um þessar
mundir. Fyrirtækið yrði að keppa
við innflutning og framleiðsla
Serkja væri ekki á neinn hátt
vernduð fyrir þeirri samkeppni.
Þar sem Serkir framleiða ein-
göngu vöru fyrir innanlands-
markað er fyrirtækið ekki inni í
því dæmi sem ríkisstjórnin er nú
að vinna að til að bjarga útflutn-
ingsatvinnuvegunum frá gjald-
þroti. Hitt er ljóst að með því að
flytja inn hráefnið og framleiða
pokana innanlands sparast tugir
milljóna í gjaldeyri.
Fastir kaupendur á framleiöslu
Serkja eru fóðurblöndunarstöðv-
arnar, Þörungavinnslan á Reyk-
hólum, og Mjólkurbú Flóamanna
og Mjólkurstöðin á Blönduósi
sem eru einu mjólkurstöðvarnar
hérlendis sem framleiða mjólkur-
duft.
Nokkuð hefur verið framleitt
af umbúðum undir fiskimjöl í 33
kg pakkningum og stefnt er að
framleiðslu á pokum undir lax-
eldisfóður.
Serkir sjá um hönnun og merk-
ingar á pokum eftir óskum kaup-
enda og eru margir möguleikar
opnir í því sambandi. Starfsmenn
Serkja eru nú sjö. fh
Stöðugt fleiri teknir
fyrir að kitla pinnann
„Það sást
til þín“
Þeim fjölgar stöðugt öku-
mönnunum sem kærðir eru
fyrir of hraöan akstur á Akur-
eyri. Fyrstu tíu mánuði ársins
voru 558 teknir fyrir of hraðan
akstur en á sama tíma í fyrra
höfðu 428 ökumenn verið
kærðir fyrir sama brot. Árið
1986 höfðu 302 ökumenn verið
kærðir fyrir sama brot 1. októ-
ber.
Tilkynningum til lögreglunnar
um árekstra hefur hins vegar
fækkað að mun sem kemur lík-
lega til vegna tjónaskýrslanna, en
nú gera sífellt fleiri ökumenn upp
málin sín á milli án milligöngu
lögreglu. Árið 1986 var alls til-
kynnt um 586 árekstra á Akur-
eyri fyrstu tíu mánuðina og árið á
eftir voru þeir 771 sem er tölu-
verð aukning. í ár var tilkynnt
um 513 árekstra til 1. október.
Á þessum fyrstu þremur árs-
fjórðungum hafa 92 ökumenn
verið teknir fyrir ölvunarakstur,
sem virðist álíka mikið og á sama
tíma í fyrra. VG
Fyrir skömmu var línu stolið úr
trillu í smábátahöfninni við
Slippstöðina á Akureyri.
Eigandi línunnar, Ingvi Árna-
son, sagði að sést hefði til manns-
ins sem þetta gerði og væri því
vitað hver hann væri. Manninum
væri gefinn kostur á að skila lín-
unni á sama stað, annars mætti
hann eiga von á heimsókn fljót-
lega. Línan var til þerris í
bátnum, með nýjum önglum og
taumum. EHB
SSK3S
Vinningstölur 29. október 1988
Heildarvinningsupphæð kr. 4.057.364,-
Þar sem enginn var með 5 réttar tölur síðastliðinn
laugardag flyst 1. vinningur sem var 1.867.421
yfir á 1. vinning á laugardaginn kemur.
Bónustala + fjórar tölur réttar kr. 324.544,-
Skiptist á 2 vinningshafa kr. 162.272,-
Fjórar tölur réttar kr. 559.774,-
Skiptist á 86 vinningshaga kr. 6.509,- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.306.125,-
Skiptist á 3225 vinningshafa kr. 405,- á mann.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
íslenskt atvinnulíf:
Hvaö veldur vandanum?
Fundur með dr. Þorvaldi Gylfasyni.
í dag þriðjudaginn 1. nóvemb-
er efnir Kaupþing Norðurlands
hf. til fundar með dr. Þorvaldi
Gylfasyni.
Þorvaldur mun m.a. ræða:
- stöðu efnahagsmála hér á
landi,
- hvað veldur vanda atvinnu-
lífsins
- og vænlegar leiðir til úrbóta.
Þátttaka er öllum opin sem vilja fylgjast
meö og taka þátt í umræöum um efna-
hagsmál.
Fundurinn verður í Alþýðuhúsinu 4. hæð og hefst
kl. 16.00.
Þátttaka tilkynnist til Kaupþings Norðurlands hf. í
síma 96-24700.
é4ll<AUPÞING_____________________
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 • Akureyri Sími 96-24700