Dagur - 01.11.1988, Side 16
mmrn,
Akureyri, þriðjudagur 1. nóvember 1988
TRIDONf^
Vatnslásar og bensínsíur
í flesta bíla
ÞÓR5HAMAR HF.
Við Tryggvabraut ■ Akureyri ■ Sími 22700
Samvinnuferðir-Landsýn:
Afinælið var
í Luxembourg
Gátan leyst. Starfsfólk hjá
Samvinnuferðum-Landsýn
hélt upp á 10 ára afmæli ferða-
skrifstofunnar í Luxembourg
um helgina. Lengi vel var stað-
arákvörðun haldið leyndri,
starfsfólkið hélt við brottför að
það væri á leiðinni til Mall-
orka, en farþegar í vélinni
brugðu sér í hlutverk Hercule
Poirot og leystu gátuna.
„Þetta var meiriháttar. Nei,
við fundum engan Brekkuskóg.
Að vísu var mikill skógur í kring-
um flugvöllinn og þá var okkur
sagt að þetta væri Brekkuskógur.
Við erum alveg í skýjunum út af
þessu uppátæki,“ sagði ánægður
starfsmaður ferðaskrifstofunnar,
en eins og við greindum frá í
Helgarblaðinu var starfsfólk boð-
að til afmælisfagnaðar án þess að
fá nokkra vitneskju um það hvar
sá fagnaður ætti að fara fram. SS
- reiðhjól látið falla á bílinn úr mikilli hæð
Á sunnudagskvöld var unnið
skemmdarverk á kyrrstæðri
bifreið á Akureyri með sér-
kcnnilegum hætti. Reiðhjóli
var kastað af brekkubrúninni
við Gilsbakkaveg niður á bif-
reiö sem stóð bak við þvotta-
húsið Mjöll við Kaupangs-
stræti.
Skemmdarverkið var unnið
milli klukkan 18.20 og 21.35.
Gömlu reiðhjóli var kastað nið-
ur á bílinn sem er af gerðinni
Mitsubishi Tredia árgerð 1984,
ljósbrúnn að lit. Lenti reiðhjól-
ið af miklu afli á bílnum enda er
fallið tíu eða tólf metrar. Reið-
hjólið skemmdi vélarhlíf
bílsins, braut framrúðuna,
beyglaði vinstra frambretti auk
þess sem vinstri hurð og toppur-
inn skemmdust talsvert.
Rannsóknarlögreglan á
Akureyri lýsir eftir vitnum að
þessu skemmdarverki og biður
þá sem geta gefið upplýsingar
um atburðinn að hafa samband
hið fyrsta. Hér er um mikið tjón
að ræða fyrir eiganda bifreiðar-
innar. EHB
Gísli Jóhannsson, eigandi skemmda bílsins, sést hér benda á eina dældina
í frambrettinu eftir reiðhjólið. Mynd: gb
Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda:
Fiskveiðisteftian skilar
ekki tilætluðum árangri
- heildarafli smábáta hefur aukist um helming á íjórum árum
Smábátaeigendur telja það
torgangsverkefni nýrrar ríkis-
stjórnar að brjóta upp stjórn-
og úthlutunarkerfi sjávarút-
vegsins þar sem það beri ekki
nægan árangur. Þetta kom
fram á aðalfundi Landssam-
bands smábátaeigenda sem
haldinn var síðastliðinn föstu-
dag í Reykjavík.
„Fiskveiðistefna íslendinga
byggir á þeirri hugmynd að
geyma fiskinn í sjónum og láta
hann ávaxta sig líkt og fé í banka.
Arangurinn virðist vera rýrari
innstæða og seðlarnir orðnir að
Framkvæmdirnar við Víðilund:
Þjónustumiðstöð
fullhönnuð í vetur
Bjarni Reykjalín, arkitekt,
mun vinna að hönnun þjón-
ustumiðstöövar aldraðra við
Víðilund á Akureyri í vetur.
Bjarni teiknaði þjónustumið-
stöðina á sama tíma og hann
hannaði fjölbýlishús aldraðra,
og voru teikningarnar sam-
þykktar af byggingafulltrúa. í
vetur verður unnið að nánari
hönnun byggingarinnar og
teikningar unnar í stærri mæli-
kvarða.
Sigurður Ringsted, formaður
framkvæmdanefndar um íbúða-
byggingar aldraðra við Víðilund,
sagði að næsta stórverkefni á veg-
um bæjarins væri bygging þjón-
ustumiðstöðvar fyrir íbúa fjölbýl-
ishúsanna og aðra aldraða í
aðliggjandi hverfum. Þjónustu-
miðstöðin verður ekki byggð á
vegum framkvæmdanefndarinnar
heldur alfarið á vegum bæjarins.
Nefndin hefði þó beint því til
bæjarráðs að bæjarfélagið yrði
samstíga framkvæmdanefndinni
hvað varðaði framkvæmdir við
jarðvegsskipti vegna þjónustu-
miðstöðvarinnar til þess að ekki
kæmi til árekstra á því sviði eftir
að bygging síðara fjölbýlishússins
hefst.
„Við sendum erindi til bæjar-
ráðs um að fara að huga að þessu
því það er búið að skipta um
jarðveg fyrir síðara húsið. Það er
ekki heppilegt að skipta um jarð-
veg á sama tíma og staðið er í
byggingu þarna rétt hjá,“ sagði
Sigurður, en þjónustumiðstöðin
verður á milli fjölbýlishúsanna
tveggja. Innangengt verður úr
kjallara húsanna í þjónustumið-
stöðina.
Að sögn Sigurðar Ringsted er
ekki endanlega búið að skipu-
leggja þjónustumiðstöðina. Þó er
ljóst að þar verður stórt eldhús
því matur verður seldur í húsinu,
aðstaða til líkamsræktar eða leik-
fimi og þjónusta á ýmsum öðrum
sviðum. EHB
skiptimynt,“ segir í nefndaráliti
sjávarútvegsnefndar fundarins.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, ávarpaði fundinn
og ræddi m.a. um fiskveiðistjórn.
Hann sagði þörfina á stjórn í fisk-
veiðum afleiðingu þeirra tækni-
framfara sem orðið hafa í báta-
flotanum á síðustu árum. „Auð-
vitað eru sjómenn ósáttir að
draga úr sókn og taka á sig tekju-
skerðingar sem því eru samfara.
Það er andstætt þeirra eðli en tími
frjálsrar sóknar í fiskistofnana er
liðinn,“ sagði ráðherra.
í ræðu ráðherra kom fram að
afli smábáta hefur tvöfaldast á
sl. fjórum árum. Á síðasta ári
var heildarafli smábáta um 43
þúsund tonn og bráðabirgðatölur
þessa árs sýna að afli þessara báta
fyrstu níu mánuði ársins hafi ver-
ið heldur meiri en sömu mánuði í
fyrra þrátt fyrir samdrátt í heild-
arafla.
Nánar er fjallað um aðalfund-
inn í blaðinu í dag. JÓH
Þetta eru ekki fyrstu sfldartunnurnar sem hann Sveinn Sigurðsson á Vopna-
fírði handleikur um dagana. Mynd: tlv
Dagur og Dagsprent hf.:
Starfsfólki sagt upp vegna
hagræðingar í rekstri
- Búist við að flestir verði endurráðnir
Öllum starfsmönnum Dags og
Dagsprents hf. á Akureyri hef-
ur verið sagt upp störfum frá
og með 1. nóvember. Að sögn
Vals Arnþórssonar stjórnar-
formanns fyrirtækjanna er
Akureyri:
Skemmdarverk unnið
á kyrrstæðri bifreið
þetta gert í hagræðingarskyni,
en ætiunin er að ráða flesta að
nýju, en þá á breyttum for-
sendum.
„Erfiðleikar atvinnulífsins
útheimta hagræðingu. Þessir erf-
iðleikar bitna m.a. á blaðinu, t.d.
er auglýsingamagn minna en oft
áður. Þar að auki á Dagur að
sumu Ieyti við sömu erfiðleika að
stríða og atvinnulífið í heild,
þ.e.a.s. kostnaður hækkar meira
en tekjur og vaxtakostnaður er
hár. Það sama gildir um rekstur
Dagsprents hf. Þess vegna hefur
verið ákveðið að gera átak til að
hagræða og aðlaga sig að þeim
erfiðleikum sem eru í þjóðfélag-
inu. Til þess að allir sitji við sama
borð gagnvart því átaki sem
framundan er, er öllum störfum
sagt lausum en síðan verður ráð-
ið aftur að nýju, hugsanlega með
breyttu vinnufyrirkomulagi. Það
er t.d. mjög þýðingarmikið að
dregið verði úr yfirvinnu svo sem
frekast er kostur," sagði Valur
Arnþórsson ennfremur.
Starfsmenn fyrirtækjanna
tveggja eru rúmlega 30 talsins og
hafa flestir þriggja mánaða upp-
sagnarfrest. Ætlunin er að ganga
frá endurráðningum fyrir lok
þessa mánaðar og eins og fyrr
segir er búist við að flestir verði
endurráðnir. BB.