Dagur - 01.11.1988, Side 5

Dagur - 01.11.1988, Side 5
1. nóvember 1988 - DAGUR - 5 Heilsugæslustöðin á Akureyri: Um tannvemdarstarf Vegna umfjöllunar um árangur tannverndarstarfs á Akureyri í Degi dagana 12., 13. og 14. þ.m. þykir okkur ástæða til að vekja athygli á fjölþættu tannverndar- starfi sem fram hefur farið á undanförnum árum á vegum Heilsugæslustöðvarinnar á Akur- eyri, en að engu er getið í fyrr- nefndum blaðagreinum. 1. í ungbarnaeftirliti fer fram fræðsla um tannvernd. Þegar barnið kemur í 7 mán. skoðun er rætt um tannhirðu og hollar mat- arvenjur. Mælt er með að börn- um séu gefnar fluortöflur allt frá 7 mán. aldri. Börn á aldrinum 7 mán. til 6 ára fá fluortöflur á Heilsugæslustöðinni endurgjalds- laust. A árunum 1981-’85 starfaði tannfræðingur við Heilsugæslu- stöðina sem annaðist fræðslu- starfið í ungbarnaeftirlitinu. 2. Við 4 ára skoðun er talað um tannhirðu og lögð áhersla á að foreldrar aðstoði börn sín við tannburstun. ítrekaðar eru ráð- leggingar um fluornotkun. l>á er foreldrum bent á að æskilegt sé að börnin fari í skoðun hjá tann- lækni hafi það ekki verið gert þá þegar. 3. Tannvernd er verulegur hluti í starfi skólahjúkrunarfræð- inga. Strax í 6 ára bekk er börn- um veitt fræðsla um mataræði og þá sem fyrr lögð áhersla á að börn á þessum aldri geta ekki burstað tennur án aðstoðar svo vel sé. Á aldrinum 7-13 er börn- unum leiðbeint við tannburstun þrisvar á vetri. Tennurnar eru þá burstaðar úr fluorlausn og einnig eru notaðar sérstakar litartöflur sem sýna hvar tannhirðunni er ábótavant. Haldið er áfram að fræða um hollar matarvenjur og fræðsluefni dreift. í vetur verður sú nýbreytni tekin upp í skólum á Akureyri að tennur verða skolað- ar úr fluorlausn á tveggja vikna fresti. Þá hafa skólahjúkrunar- Kostnaður sjúkrasaml. Ak. Heildarkostn. hins opinbera. 6-15 ára 0-5 ára 0-15 ára Árið 1981 1.411.514 244.752 3.067.780 Árið 1982 2.473.209 357.906 5.304.324 Árið 1983 3.887.065 698.873 8.473.003 Árið 1984 4.557.868 1.058.397 10.172.527 Árið 1985 6.293.010 1.210.424 13.796.444 Árið 1986 7.542.121 1.700.067 16.784.309 Árið 1987 12.351.601 2.220.956 26.924.160 Árið 1988 11.735.248 1.836.857 25.307.425 (1988 frá 01.01.-30.09.) Sjúkrasamlag greiðir 75% af tannlæknakostnaði 0-5 ára og 50% af kostnaði 6-15 ára og sveitarfélag greiðir 50% af kostn- aði 6-15 ára. sem vinnur að tannvernd hvort heldur er í ungbarnaeftirliti eða í heilsugæslu í skólum eru opin- berir starfsmenn. Petta verður að hafa í huga þegar dómur er felld- ur um það hvort fjárframlög hins opinbera til tannverndar hafi ver- ið „skorin við nögl" eins og fram hefur komið í áðurnefndri umfjöllun. Niðurlag Pað er að sjálfsögðu afar gleði- legt að tannheilsa barna á Akur- eyri virðist hafa batnað verulega á síðustu árum. Við viljum leggja áherslu á að til að sú þróun megi haldast þarf áfram að efla fjöl- þætt forvarnarstarf. Til að ná sem bestum árangri þarf samstarf og virkan áhuga jafnt heilbrigðisstarfsmanna, for- eldra og barna. Það getur verið hættulegt að ofmeta mikilvægi ákveðinna þátta í þessu starfi en gleyma öðru. Heilsugæslustöðinni á Akureyri, Björg Skarphéðinsdóttir, skólahj.fr. Guðfinna Gunnarsdóttir, skólahj.fr. Guðný Magnúsdóttir, skolahj.fr. Hjálmar Freysteinsson, yfirlæknir Katrín Friðriksdóttir, skólahj.fr. Konny Kristjánsdóttir, hjúkr.forstj. Magga Alda Magnúsdóttir, skólahj.fr. Margrét Ólafsdóttir, skólahj.fr. Rannveig lngvarsdóttir, skolahj.fr. Sesselja Bjarnadóttir, skólahj.fr. fræðingar aðstoðað við skipu- lagningu tannlæknaskoðana. Kostnaður hins opinbera vegna tannlækninga barna á Akureyri í meðfylgjandi töflu er að finna upplýsingar um greiðslur hins opinbera fyrir tannlækningar barna. Hér er ekki gerður grein- armunur á tannviðgerðum og fyrirbyggjandi aðgerðum. Þar eð tannskemmdir hafa farið minnk- andi má ætla að vaxandi hluta af þessum upphæðum sé varið til fyrirbyggjandi aðgerða. Þá er þess að geta að það starfsfólk Athugasemd frá ritstjóra Ágætu bréfritarar. Það er greinilegt á bréfi ykkar að þið misskiljið tilgang þeirra skrifa sem birtust í Degi 12., 13. og 14. októbers.l. í Degi þann 12. októ- ber er í frétt greint frá niðurstöð- um rannsókna tannlækna á 11-12 ára skólabörnum á Akureyri, en samkvæmt þeim hefur tíðni tann- skemmda hjá þessum aldurshópi á Akureyri minnkað verulega á skömmum tíma. Haft er eftir tannlækni þeim, sem rannsókn- ina framkvæmdi, að þennan árangur megi að verulegu leyti þakka sérstöku átaki gegn tann- skemmdum barna, sem Tann- læknafélag Norðurlands hóf árið 1981. Daginn eftir er í annarri frétt greint nánar frá niðurstöðum fyrrnefndra rannsókna, sérstak- lega með tilliti til þess að nokkur munur var á tannskemmdum barna eftir skólahverfum. í Degi 14. október er loks vak- in athygli á þessum árangri í for- ystugrein. Ég ítreka það að þið hafið greinilega misskilið tilgang þess- ara skrifa. Tilgangurinn var alls ekki sá að gera viðamikla úttekt á því tannverndarstarfi sem unnið er á Akureyri, heldur fyrst og fremst að skýra frá þessu fram- taki Tannlæknafélags Norður- lands, en fyrrnefndar upplýsingar komu fram á aðalfundi þess félags laugardaginn 8. október. Dagur hefði á sama hátt skýrt frá því sem þið á Heilsugæslustöð- inni eruð að gera á sviði tann- verndar, ef sérstakt tilefni hefði gefist. Dagur hefði væntanlega einnig skýrt frá því tannverndar- starfi sem unnið er á ykkar vegum, ef ætlunin hefði verið að gera viðamikla úttekt á þeim málum. Þarna var hins vegar um fréttaflutning af einu afmörkuðu máli að ræða, þ.e. fyrrnefndri rannsókn Tannlæknafélagsins. í forystugrein Dags var því haldið fram að fjárveitingar til aðgerða, sem beinlínis miðuðu að því að koma í veg fyrir tann- skemmdir, væru jafnan skornar við nögl. Ég held að flestum sé ljóst að það er rétt, og þær ósundurliðuðu tölur sern birtar eru hér að ofan, hrekja í engu þá fullyrðingu. Þvert á móti sýna þær að full þörf er á að efla for- varnarstarfið til mikilla muna til að freista þess að draga úr kostn- aði vegna tannviðgerða. Að lokum þetta: Dagur hefur ævinlega verið boðinn og búinn að vekja athygli á því sem vel er gert. Hvað umfjöllun um tann- vernd varðar, dreg ég mjög í efa að aðrir fjölmiðlar hafi gert betur síðustu misserin. Vísa ég í því sambandi m.a. til opnugreinar um tannvernd, sem birtist í Degi 30. september 1987 svo og til nokkurra frétta um sama efni, þar sem m.a. var talað við tals- mann Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri um tannverndarað- gerðir í skólum Akureyrar. Það getur vissulega verið „hættulegt að ofmeta mikilvægi ákveðinna þátta í þessu starfi en gleyma öðru“, svo sem þið bend- ið á í bréfi ykkar. Af framan- sögðu ætti hins vegar að vera ljóst að Dagur hefur ekki fallið í þá gryfju. Ritstjóri. Nýkomið Barnapeysur Stærðir 120-170. Verð kr. 860,- Barnapeysur Stærðir 116-152. Verð kr. 995,- Barnasett, buxur + jakki Stærð 2-5. Verð kr. 1.495,- Barnagallasmekkbuxur Stærðir 2-5. Verð kr. 1.130,- Herragallabuxur Stærðir 29-35. Verð kr. 1.465,- Herraflauelsbuxur, snjóþvegnar Stærðir 46-56. Verð kr. 1.740,- Mikið úrvai af fallegum sokkum í öllum stærðum. 111EYFJÖRÐ Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275 ALAFOSS Yerksniiðjuiit sala Úrval af teppum, ullarfatnadi, gami, áldæði og ýmsu öðru. Verðið er alltaf jaíh ótrúlegt. Opið: Priðjud. til föstud. ld. 9.00-18.00. Laugardag ld. 10.00-16.00. Komlð og gerið góð kaup Verksmlðjuverslun Glerárej'rum, sími 21900. ■ ÁLAFOSS s ATH: Verslunin verður opin í vetur frá mánudegi til föstudags kl. 9.00-12.00 og 13.00-18.00.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.