Dagur - 01.11.1988, Síða 4

Dagur - 01.11.1988, Síða 4
4 - DAGUR - 1. nóvember 1988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (iþróttir), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, FRI'MANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Óorðheldni Bandaríkjastjómar Bandaríkjastjórn hefur orðið uppvís að grófu broti á samkomulagi því sem ísland og Bandaríkin gerðu með sér vegna hvalveiða íslendinga í vísindaskyni. Staðfestar fregnir hafa borist af því að háttsettur bandarískur embættismaður hafi í fullu umboði viðskipta- ráðherra Bandaríkjanna lagt hart að Japönum að hætta að kaupa hvalkjöt af íslendingum. í staðinn hét hann þeim ákveðnum fríðindum af hálfu Bandaríkjastjórnar. Japanir sýndu drenglyndi er þeir höfnuðu þessu tilboði þeg- ar í stað en létu utanríkisráðuneytið hér á landi vita af því sem þarna hafði farið fram. Þessar fréttir bárust hingað til lands aðeins örfáum dögum eftir að George Schultz, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna fullvissaði Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra íslands, um að Bandaríkin myndu í einu og öllu starfa samkvæmt því samkomulagi sem ríkin gerðu með sér vegna hvalveiða íslend- inga í vísindaskyni. Það er því full ástæða til að bregðast harkalega við þessum tvískinn- ungshætti bandarískra stjórnvalda. íslenska utanríkisráðuneytið lítur þannig á mál þetta, að bandarísk stjórnvöld séu að teyma íslensk stjórnvöld á asnaeyrunum, enda er vandséð að hægt sé að túlka þetta á annan veg. Framkomu Bandaríkjastjórnar var þegar mótmælt harðlega og Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, ítrekaði mótmæli sín með því að aflýsa fundi sem hann hafði ætlað að sitja með helstu ráða- mönnum varnarliðsins í Keflavík. Utanríkis- ráðherra skýrði sendiherra Bandaríkjanna hér á landi frá því að fundinum hefði verið aflýst gagngert til þess að koma þeim skilaboðum ótvírætt til skila að íslendingar kynnu því illa að vera hafðir að fíflum í viðræðum æðstu ráðamanna landanna. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráð- herra, hefur gengið vasklega fram í máli þessu. Bandaríkjastjórn hefur ekki einungis brotið gróflega það samkomulag sem ríkin tvö gerðu með sér vegna hvalveiða okkar, heldur einnig þær reglur sem Bandaríkja- stjórn segist almennt fylgja í milliríkjavið- skiptum. Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra hefur látið hafa eftir sér að Banda- ríkjastjórn skuldi íslendingum afsökun vegna þessa. Það er síst orðum aukið. BB. viðtal dagsins Margrét Skúladóttir, kaupkona á Blönduósi. Það hlýtur að vera þægilegra og ódýrara að versla í sirnii heimabyggð - segir Margrét Skúladóttir kaupkona sem rekur tískufataverslun á Blönduósi Það er Margrét Skúladóttir sem er í viðtali dagsins að þessu sinni. Hún rekur tísku- fataverslunina „Búðin sér- verslun“, á Blönduósi. Dagur heimsótti Möggu Skúla, eins og hún er yfirleitt kölluð, til að fræðast um hvernig væri að reka sérhæfða verslun í svo litl- um bæ sem Blönduós er. „Pað gengur nú svona og svona vegna þess að í tískuvöruverslun þarf að vera til fatnaður á fólk frá tólf ára aldri til níræðs eða hundrað ára. Bæði fyrir karl- menn og konur þannig að vöru- úrvalið þarf að vera mikið ef vel á að siona þörfum viðskiptavin- anna því sumir þurfa stórar flíkur og aðrir litlar. Á svona litlum stað gengur ekki að selja tvær flíkur sem eru eins. Þú getur far- ið til Reykjavíkur og keypt þér fatnað án þess að þurfa að hugsa um að einhver annar hafi keypt eins föt. Það hverfur í svo stóru samfélagi en gengur ekki hér,“ sagði Magga. - En hvernig er hægt að bregðast við svona vandamáli? „Eg reyni að stíla upp á að kaupa aldrei inn tvær flíkur sem eru alveg eins en stundum er maður skikkaður af seljendum vörunnar til að taka meira og þá reynir maður að losna við það eitthvað í burtu. Þetta getur ver- ið erfitt en það er mjög gaman að standa í þessu.“ - Nú eru það fleiri en Blönd- ósingar sem versla við þig. Ef flíkurnar eru eins getur þú þá ekki selt eina á Blönduós, aðra á Skagaströnd og þá þriðju á Hvammstanga? „Auðvitað, en þú sérð það sjálfur að ég get ekki sagt við Skagstrendinginn, getur þú ekki keypt þessa flík vegna þess að það er einn hér á Blönduósi búinn að kaupa aðra eins. Ég get heldur ekki sagt, þú ætt- ir ekki að kaupa þessa flík af því að hún Gunna er búin að kaupa aðra eins. Þetta er allt svolítið flókið og þess vegna reyni ég, þegar ég verð að kaupa fleiri en eina flík sem eru eins, að hafa þær a.m.k. ekki í sama lit. Þetta vandamál á auðvitað einungis við um tískufatnaðinn.“ - Hvenær byrjaðir þú að versla hérna? „Það var um síðustu áramót, en það var búin að vera hliðstæð verslun hér á staðnum áður. Þessar verslanir voru yfirleitt í fyrstu reknar í bílskúrum sem voru dálítið út úr og fólk fór ekki þangað nema það væri að leita að einhverju sérstöku. Fólk rakst ekki bara inn til að skoða hvað væri á boðstólum. Síðan þetta fluttist hingað í Alþýðubanka- húsið hefur verið vaxandi straumur af fólki. Þá getur fólk komið hér við án þess að taka á sig sérstakan krók. Það eiga svo margir leið hér um aðalgötuna í bænum. Aftur á móti þori ég að full- yrða að það eru að minnsta kosti 40% Blöndósinga sem ekki hafa svo mikið sem litið hérna inn. Þannig að það fólk hefur ekki hugmynd um hvað er boðið upp á hér nema það sem það hefur frétt hjá nágrannanum. Blöndósingar fara mikið í burtu til að versla og geta lent í því að koma heim með sams konar flíkur og ég er búin að selja hérna vegna þess að ég flyt vöruna ekki inn sjálf en kaupi hana af öðrum, heildsölum eða einkafyrirtækjum. Fólk getur lent í því að kaupa samskonar fatnað og ég hef selt hér heima, bæði í Reykjavík og á Akureyri og jafnvel á Selfossi. Fólki finnst bara allt annað að lenda í þessu ef flíkin er keypt annars staðar en ef ég er með tvær flíkur eins til sölu.“ - Verslar þú við marga heild- sala og fylgja þessu ekki mikil ferðalög vegna innkaupa? „Jú, ég kaupi inn frá nokkuð mörgum en ferðalögin eru ekki mjög mikil vegna þess að þeir sem ég versla við eru mjög almennilegir og senda mér stórar sendingar sem ég má velja úr það sem ég vil versla með og senda hitt til baka. Það eru daglegar ferðir héðan svo þetta er mjög þægilegt.“ - Eru viðskiptavinirnir fólk á öllum aldri? „Já, það finnst mér vera og ég reyni að eiga til föt á alla aldurs- hópa. Ég þarf að hafa mjög breitt svið. Ég verð að eiga til hvers- dagsfatnað og svo þegar verða einhverjar uppákomur verð ég að hafa sparifatnaðinn til. Fólk úti á landi gerir mjög miklar kröfur til fatnaðar og fylgist vel með og vill alltaf fá það sem er nýjast á markaðinum hverju sinni." - Ef þú fréttir af því að það eigi að fara að halda árshátíð eða þorrablót, ferð þú þá og gerir stór innkaup? „Þá er bara legið í símanum og hringt í allar áttir og allt sett í gang til að útvega það sem vantar." - Er ekki salan að stórum hluta bundin einhverjum sérstök- um viðburðum í skemmtanalíf- inu? „Jú, þessi sparilína er bundin árshátíðum og öðru slíku og í þeirri línu er markaðurinn hjá mér mestur yfir veturinn. En ég verð líka að hafa til peysur og gallabuxur og svoleiðis fatnað sem alltaf er gengið í en svo verð- ur allt vitlaust þegar eitthvað sérstakt er að um að vera. Þá vantar alla allt á sama degi.“ - Hvenær er Búðin opin? „Búðin er opin frá klukkan eitt til sex alla virka daga og frá eitt til fjögur á laugardögum. Ég er í annarri vinnu alla virka daga fyrir hádegi.“ - Er ekki slæmt fólk skuli ekki nýta betur þá þjónustu í verslun sem boðið er upp á hér heima? „Mér finnst skrítið að fólk skuli ekki kanna hvað það getur fengið í heimabyggðinni áður en það leitar annað því það hlýtur að vera bæði ódýrara og þægi- legra að versla heima heldur en að sækja þá þjónustu lengra til,“ segir Magga að lokum. fh

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.