Dagur - 01.11.1988, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 1. nóvember 1988
íþróttir
Blak:
Léttur sigur hjá KA
KA átti í litlum erfíðleikum með
HSK-liðið í 1. deildinni í blaki.
KA sigraði með þremur hrinum
gegn engri í Gierárskóla á laug-
ardaginn og er nú efst í deildinni
með sex stig eftir þrjá leiki.
„Eg er nokkuð ánægður með
þennan leik,“ sagði Fei, hinn kín-
verski þjálfari KA, eftir leikinn.
„Það var einhver óróleiki í mönn-
um þarna í byrjun, en eftir að okk-
ur tókst að yfirvinna það var leikur-
inn góður. Vörnin gekk upp og við
náðum að yfirspila frekar slakt
HSK-liðið,“ sagði hinn geðþekki
kínverski þjálfari ánægður á svip.
Liðið hefur ekki spilað gegn
HSK á þessu keppnistímabili og
virtist KA-vélin eitthvað hiksta í
byrjun fyrstu hrinunnar. Einfalt
uppspil brást, uppgjafirnar fóru í
netið og varnarleikurinn var mjög
slakur. Afleiðingin var sú að HSK
náði forystu 7:3.
- gegn HSK 3:0
Fei þjálfara KA leist nú ekki á
blikuna og skipti sjálfum sér inn á
þegar hér var komið sögu. Pað var
ekki að sökum að spyrja að leikur-
inn snérist við og sigldu KA-menn
hægt og örugglega fram úr og sigr-
uðu 15:9:
Önnur hrinan var einstefna. Ekki
stóð steinn yfir steini hjá HSK-
drengjunum og labbaði KA-liðið
hreinlega yfir þá í þessari lotu.
Uppspilið var gott hjá Hauki og
einkum var það Stefán Jóhannsson
sem nýtti sér það vel og skoraði fal-
leg stig með smössum. Stefán, sem
lék með Víkingum í fyrra, styrkir
liðið mikið og verður gaman að sjá
til hans seinna í vetur þegar hann
hefur kynnst liðinu betur.
Til að gera langt mál stutt sigraði
KA örugglega 15:2 í frekar stuttri
hrinu.
Smá kæruleysi greip nú um sig í
KA-liðinu við þessa litlu mótspyrnu
og hresstust HSK-drengirnir örlítið
í þriðju hrinunni. Fallegar laum-
ur Sigurðar Arnar glöddu augu
áhorfenda og þegar staðan var 8:2
fengu varamenn KA að spreyta sig.
Ekki skipti það miklu máli fyrir úr-
slitin og voru lokatölurnar 15:5
fyrir KA.
KA-liðið kemur nú feiknasterkt
til leiks í blakinu. Kínverski þjálf-
arinn Fei styrkir liðið mikið og Stef-
án Jóhannsson er hávaxinn og
skemmtilegur leikmaður. „Görnlu"
brýnin Stefán Magnússon og Hauk-
ur Valtýsson standa alltaf fyrir sínu
og ef liðið nær að halda haus ætti
það að eiga góðan möguleika á að
vinna titil í vetur.
HSK er að mestu leyti skipað
leikmönnum úr íþróttakennara-
skólanum á Laugarvatni og vantar
því tilfinnanlega leikæfingu. Þeirra
besti maður var Jón Magnússon og
vakti feiknastökkkraftur hans
mikla athygli.
Knattspyrna:
Kátt á hjaJla
hjá Tindastól
Uppskeruhátíð yngri flokka
Tindastóls í knattspyrnu fór fram
í félagsaðstöðu Gagnfræðaskól-
ans síðasta sumardag. Það var
knattspyrnudeild félagsins sem
hafði veg og vanda af þeirri hátíð
og mættu um 100 ungmenni.
Áður en afhending verðlauna fór
fram fengu ungu knattspyrnu-
mennirnir að gæða sér á pizzum
og kók, eins og þeir gátu í sig
látið, og var það nýtt til hins
ýtrasta.
Það voru þjálfarar flokkanna
sem afhentu verðlaun og byrjað var
á 7. flokki. Þar voru hlutskarpastir
Ingi Elvar Árnason, Haukur Skúla-
son og Birgir Óli Sigmundsson. Ingi
var álitinn bestur, Birgir sá efnileg-
asti og Haukur var með bestu
ástundun. Þjálfari 7. flokks var
Bjarni Jóhannsson.
í 6. flokki var Davíð Rúnarsson
bestur, Jón Kort Snorrason sá efni-
legasti og Víðir Kristjánsson með
besta ástundun. Daníel Kristjáns-
son fékk verðlaun sem besti
leikmaður 5. flokks og auk þess var
hann markakóngur yngri flokk-
anna, skoraði 21 mark. Hilmar
Hilmarsson var efnilegastur í 5.
flokki og Þráinn Björnsson sýndi
bestu ástundum við æfingar í þeim
flokki. Þjálfari 6. og 5. flokks var
Árni Ólason.
Finnur Kristinsson ber titilinn
besti leikmaður 4. flokks í ár og sá
efnilegasti var kjörinn Smári
Björnsson. Hinrik Heiðar Gunn-
arsson var með bestu ástundun í 4.
flokki. Meðal stórafreka 4. flokks á
þessu ári má nefna ferð á Norway
cup í Ósló, þar sem strákarnir
stóðu sig prýðisvel. Þjálfari 4.
flokks var Páll Brynjarsson.
Það var erfitt hlutskipti þjálfara
3. flokks, Þórarins Thorlacíus, að
tilnefna verðlaunahafa síns flokks.
Margir stóðu sig vel í sumar en það
var Smári Eiríksson sem var kjör-
inn sá besti og Orri Hreinsson sá
efnilegasti og um leið iðnaðstur við
markaskorun, jafnt í 3. flokki sem
2. flokki. Þá fékk markvörður 3.
flokks, Stefán Vagn Stefánsson,
verðlaun fyrir ástundun við æfing-
ar, en Stefán stóð sig vel í sumar og
er framtíðarmarkvörður Tinda-
stóls.
Að lokum voru veitt verðlaun til
3. flokks kvenna, en það var í fyrsta
skiptið í sumar sem félagið sendi lið
til keppni í þeim flokki. Stelpurnar
stóðu sig með ágætum þar undir
stjórn Eysteins Kristinssonar þjálf-
ara liðsins. Besti leikmaður 3.
flokks kvenna var valin Berglind
Pálsdóttir, Arney Þórarinsdóttir
var sú markhæsta og efnilegasta og
mesta ástundun og framfarir sýndi
Heba Guðmundsdóttir.
Þá hlaut Árni Þóroddur Guð-
mundsson úr 6. flokki verðlaun fyr-
ir að sýna mestu framfarir í yngri
flokkum Tindastóls í sumar.
Kjötvinnsla KS gaf pizzur á upp-
skeruhátíðina og gosið kom frá
Magnúsi Svavarssyni, að vanda.
-bjb
Verðlaunahafar úr yngri flokkum Tindastóls í knattspyrnu samankomnir að lokinni uppskeruhátíð.
Kínverjinn Fei tekur hér á móti uppgjöf. Nafnarnir Stefán Jóhannsson og Stefán
Magnússon fylgjast spenntir með. Mynd: ehb
Evrópumót í knattspyrnu:
Guðjón og Sæmundur
í lögreglulandsKðinu
- sem keppti gegn Svíum og Irum
fyrir írum 3:1. Guðjón skoraði
mark íslendinga gegn Irum úr víta-
spyrnu en Karl Sæberg Júlíusson
skoraði markið gegn Svíum. Það
voru Svíar sem sigruðu í þessari
undankeppni og komast áfram í
keppninni.
Þess má geta að Guðjón hefur
samið við KA um áframhaldandi
þjálfun liðsins næsta sumar og eru
þá bæði Akureyrarliðin komin með
sín þjálfaramál á hreint.
Tveir liðsmenn lögreglunnar á
Akureyri kepptu með lögreglu-
landsliðinu í undankeppni Evrópu-
keppni lögreglulandsliða í knatt-
spymu sem fram fór í Svíþjóð
um helgina. Þetta voru þeir
Guðjón Þórðarson og Sæmund-
ur Sigfússon.
Andstæðingar íslendinga voru
írar og Svíar og töpuðum við báð-
um leikjunum, fyrir Svíum 4:1 og
Guðjón Þórðarson og Sæmundur Sigfússon galvaskir þrátt fyrir töpin. Guðjón
hefur nú gengið frá samningi við KA.
Skíði:
Mótaskrá SKÍ
1988 komin út
Mótaskrá Skíðasambands
Islands er komin út. Fyrstu
punktamót vetrarins verða hald-
in á Siglufírði dagana 28. og 29.
janúar, bæði í alpagreinum og
norrænum greinum fullorðinna.
Dagur mun fylgjast með skíða-
vertíðinni að vanda og munum við
fljótlega birta mótaskrána í heild
sinni. Þá munum við einnig ræða
við afreksfólkið sem nú er á fullu að
undirbúa tímabilið. Ekki má
gleyma yngri kynslóðinni, en nú er
stór fjöldi barna og unglinga sem
stundar skíðaæfingar af kappi um
allt Norðurland.
Ef þið lesendur kærir hafið ein-
hverjar hugmyndir um hvernig er
best að standa að þessum málum
værum við þakklát ef þið hefðuð
samband við íþróttadeild Dags og
skýrðuð frá hugmyndum ykkar.