Dagur - 01.11.1988, Síða 14

Dagur - 01.11.1988, Síða 14
14 - DAGUR - 1. nóvember 1988 Matvöruverslanir KEA Tilboð vikunnar frá 31. október til 5. nóvember Viðmiðunarverð kr Viðmiðunarverð kr 45 g í dósum Kr Viðmiðunarverð kr í lofttæmdum umbúðum. kg. Viðmiðunarverð kr í lofttæmdum umbúðum. kg. Viðmiðunarverð kr ■■*] 1 mTí^l Aðalfundur Bridgefélags Sigluíjarðar: Níels útnefhdur heiðursfélagi Aðalfundur Bridgefélags Siglu- 2.-3. Birgir Björnsson - fjarðar var haldinn mánudaginn 10. okt. 1988 að Hótel Höfn Siglufirði. Á fundinum var kosin ný stjórn og hana skipa eftirtaldir menn: Bogi Sigurbjörnsson for- maður, Rögnvaldur Pórðarson ritari, Guðmundur Árnason gjaldkeri, Hafliði Hafliðason áhaldavörður og Þorleifur Har- aldsson meðstjórnandi. Á fundinum var Níels Frið- bjarnarson útnefndur heiðursfé- lagi bridgefélagsins fyrir mikil og góð störf í þágu félagsins. Þennan mánudag var spilað svonefnt Eggertsmót, sem er til minningar um Eggert Theódórs- son, er lengi var formaður félags- ins. Úrslit mótsins urðu þessi: 1. Anton Sigurbjörnsson - Bogi Sigurbjörnsson 2. -3. Sigfús Steingrímsson - Sigurður Hafliðason Stig 147 128 Þorsteinn Jóhannesson 128 4. Rögnvaldur Þórðarson - Þorsteinn Jóhannsson 123 5. Björn Þórðarson - Jóhann Möller 118 Mánudaginn 17. okt. sl. var spilaður svonefndur landství- menningur, en sömu spil voru spiluð um land allt. Úrslit urðu þessi: Stig 1. Ásgrímur Sigurbjörnsson - Jón Sigurbjörnsson 203 2. Sigfús Steingrímsson - Sigurður Hafliðason 188 3. Anton Sigurbjörnsson - Bogi Sigurbjörnsson 183 4. ísak Ólafsson - Viðar Jónsson 171 5. -6. Haraldur Árnason - Hinrik Aðalsteinsson 169 5.-6. Haukur Jónsson - Örn Þórarinsson 169 Fjöldi para er þátt tóku í mót- inu voru 14. Bæjakeppni í bridds á Siglufirði: Enn sigruðu Akureyringar Hin árlega bæjakeppni milli Akureyrar og Siglufjarðar í bridds, fór fram á Siglufirði 22. og 23. október sl. Fimm sveitir mættu til keppni frá hvorum aðila. Akureyringar fóru með sigur af hólmi, eftir jafna og spennandi keppni, hlutu 738 stig gegn 662 stigum Siglfirð- inga. Siglfirðingum virðist ganga afar illa að bera sigurorð af Akureyringum í þessari íþrótt þegar bæjakeppnin er annars vegar, þótt þeim sækist það prýðilega í öðrum mótum. Spilamennska hófst um hádegi á laugardag og voru spilaðir 8 spila leikir milli sveita. Síðari umferðin fór fram daginn eftir. Lokastaða efstu sveita varð þessi: 1. Sveit Péturs Guðjónssonar, Akureyri: 167 stig 2.-3. Sveit Soffíu Guðmunds- dóttur, Akureyri: 157 stig 2.-3. Sveit Viðars Jónssonar, Siglufirði: 157 stig 4. Sveit Steinars Jónssonar, Siglufirði: 156 stig 5. Sveit Birgis Björnssonar, Siglufirði: 150 stig 6. Sveit Gunnars Berg, Akureyri: 146 stig 7. Sveit Hellusteypunnar, Akureyri: 136 stig 8. Sveit Stefáns Vilhjálmssonar, Akureyri: 132 stig Mótttökur Siglfirðinga voru þeim til mikils sóma að vanda. Bæjakeppnin verður næst haldin á Ákureyri að ári og er ekki að efa að Siglfirðingar munu leggja kapp á að hafa bikarinn með sér heim að þeirri keppni lokinni. Sungið af krafti í Passíukómum Passíukórinn á Akureyri æfir nú af kappi fyrir aðventutónleika sem haldnir verða í desember nk. Viðfangsefni þessara tónleika eru tvö, upprunnin í Frakklandi og Þýskalandi: Messe de minuit eftir Marc Antoine Charpentier og Meine Seele erhebt den Herrn eftir Georg Philipp Telemann. Fyrra verkið er messa sem byggð er á gömlum frönskum jólalögum. Höfundurinn, Charp- entier var uppi á sautjándu öld. Verkið er skrifað fyrir blandaðan kór, einsöngvara, hljómsveit og orgel. Passíukórinn hefur áður flutt þessa messu og var þeim tónieikum útvarpað. Kórinn hef- ur að undanförnu flutt nokkur verka Telemanns og síðari hluti tónleikanna verður eitt þeirra, Magnificat, sem er fyrir kór, hljómsveit og fjóra einsöngvara. Verkið er einnig af kirkjulegum toga og er textinn lofsöngur Maríu meyjar, „Önd mín lofar Drottin". Passíukórinn hefur um árabil staðið fyrir tónlistarflutningi á Akureyri og heldur ótrauður áfram á sömu braut. Að jafnaði hefur hann haldið tvenna tón- leika árlega þar sem hljóðfæra- leikarar og einsöngvarar hafa með kórnum flutt mörg tónverk. Það er ánægjuleg þróun að á síð- ustu árum hefur að mestu leyti verið hægt að fá tónlistarfólkið hér á heimaslóðum, sem gerir tónleikahald auðveldara við- fangs. Áhugi á þátttöku í kór- og tónlistarstarfi fer nú vaxandi hér á Akureyri. í framhaldi af því má geta þess að Passíukórinn getur enn bætt við sig fólki í allar radd- ir og allir þeir sem áhuga hafa eru hvattir til að hafa samband við stjórn kórsins sem gefur fúslega allar nánari upplýsingar um kór- starfið, verkefni, æfingatíma og framtíðaráætlanir. Á aðalfundi Passíukórsins, sem haldinn var fyrir skömmu voru eftirtaldir kosnir í stjórn: Sólveig Hallgrímsdóttir (s. 26557), Amheiður Eyþórsdóttir (s. 24533), Auður Árnadóttir (s. 24812), Harpa Arnardóttir (s. 31112) og Jos Otten (s. 21232). Kórinn er nú á sínu sautjánda starfsári og hefur Roar Kvam stjórnað hon- um frá upphafi af fádæma elju- semi. Fréttatilk. frá Passíukórnum á Akureyri.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.