Dagur - 05.11.1988, Síða 2

Dagur - 05.11.1988, Síða 2
2 - DAGUR - 5. nóvember 1988 Nú æsist leikuriim Góðan daginn, ágætu lesend- ur. Meðan ég sit hér, sötra pilsner og innbyrði sígarettu- reyk, þá læðast að mér annar- legar hugsanir. T.d. hvort ég ætti að láta smíða fyrir mig bát í Danmörku, flytja hann til landsins fullan af smyglvarn- ingi og fá yfirvöld til að leyfa mér að halda bjór- og brenni- vínsveislu. Það eru a.m.k. fordæmi fyrir slíku. Einnig er ég að hugsa um að taka nagla- dekkin undan bílnum. Sam- viskubitið nagar mig eftir að hafa séð áróðursmyndina frá Reykjavíkurborg. Þar valda nagladekkin tugmilljóna tjóni á götunum og hver veit nema það sama gildi um götur Akur- eyrar. Ég ákvað þó að hrinda þessum þjóðfélagslegu hugsunum frá mér og gefa ykkur frekar kost á því að sjá meira af sögunni Ástarbríma í afdölum, sem hófst með látum í Helgarblað- inu 22. október. Þar sagði frá þeim Sigríði í Koti og Valtý á Felii, bernskuvinum og elskendum í leit að hjarta hvors annars. Sú leit hafði ekki borið fullnægjandi árangur og skyndilega virtist riddarinn á hvíta hestinum hafa skotið Valtý ref fyrir rass. Sjáum hvað sétur, Sigríður hnykkti höfðinu til og gullinbjart hárið þyrlaðist um rjóða vanga hennar. Hún gat þó ekki losnað við þær fram- andi kenndirsem ókunni mað- urinn vakti með henni. - Fyrirgefðu hafi ég verið ! framhleypinn, sagði glæsi- mennið. - Annars heiti ég Andrés, á íslenska vísu, en ég var skírður Andrew. Pabbi minn er lávarður og herra- garðseigandi í Skotlandi, en ég hef að mestu alist upp hjá móður minni á Akureyri. Hún er nýlátin, blessunin. Furðu lostin kynnti Sigríður Já, nú fer að draga til tíðinda hjá gullinhærðu vinkonu okkar, enda kemur sig. Hún hafði ekki búist við 1 Ijós að riddarinn á hvíta hestinum er aðalsborinn. -J heilsupósturinn 71 Umsjón: Siguröur Gestsson og Einar Guðmann t Hín hliðin á blómaín ókornum Svo virðist vera að blómafrjó- korn hafi verið sérstaklega mikið í sviðsljósinu hér á landi með til- heyrandi kraftaverkasögum. Söluaðilar birta auglýsingar með ummælum alls kyns sérfræðinga sem hæla blómafrjókornunum í alla staði og álit manna á blóma- frjókornum nálgast það að verða trúarbrögð svo mikið er álitið á áhrifamætti þeirra. En hversu mikið er til í þessu? Höfum við kannski einungis fengið að heyra hálfan sannleik- ann? Greinarhöfundur var á námskeiði síðastliðið sumar hjá Frederick C. Hatfield, Phd. og þar kom í ljós að hann vildi meina að til væri önnur hlið á málinu sem hefur verið minna auglýst. Hann vitnar í Tim Lark- in rithöfund hjá tímaritinu „Con- sumer“ (Neytandinn) í Banda- ríkjunum. Hann segir enga vís- indalega sönnun fyrir því að blómafrjókorn hafi einhver læknisfræðileg áhrif, og hann geti því ekki mælt með þeim sem næringaruppbót, þar sem þau geri ekkert gagn. „Blómafrjókorn eru markaðs- sett löglega sem matvara, en ekki sem lyf. Ef þeir sem selja blóma- frjókorn halda því fram að það lækni eða bæti einhvern sjúkdóm eða hafi læknisfræðileg áhrif, þá segja lögin til um það að þetta sé lyf, sem verði að standa frammi fyrir þeim vísindalegu kröfum sem gerðar eru til öryggis.“ Samt sem áður hafa framleiðendur haldið fram ýmsum staðhæfing- um. Eftirfarandi má sjá ýmsar af hinum mörgu staðhæfingum framleiðenda blómafrjókorna og niðurstöður sem benda til ann- ars. 1. Blómafrjókom auka frammi- stöðu íþróttamanna: Óstaðfest. Árið 1975 var gerð rannsókn á vegum Alþjóðasambands íþrótta- þjálfara (The National Associat- ion of Athletic Trainers) þar sem áhrifin voru rannsökuð á sund- menn. Helmingur sundmanna tók 10 töflur á dag í sex mánuði. Einn fjórði tók 10 gervitöflur og síðasti fjórðungurinn tók 5 blómafrjókornstöflur og 5 gervi- töflur. Það varð enginn mælan- legur munur á árangri sundmann- anna í öllum þremur hópunum. Seinni rannsókn á sundmönnum og hlaupurum leiddi rannsakend- urna að þeirri niðurstöðu að „blómafrjókorn virkuðu alls ekki á efnaskipti, æfingar eða frammi- stöðu“. 2. Blómafrjókorn eru örveru- drepandi þar sem örverur geta ekki þrífist íþeim: Vitleysa. Þeg- ar þau komast í snertingu við andrúmsloft verða blómafrjó- kornin fyrir árás örvera, sveppa og gerla (eins og aðrar fæðuteg- undir). 3. Blómafrjókorn eru fullkom- in fæða: í raun og veru eru þau einungis fullkomin fæða fyrir bý- flugur. 4. Blómafrjókorn seinka öldr- un, eins og sannast af langlífi íbúa í rússnesku Georgia fjöllun- um, sem eiga langlífið að þakka Hallfreður Örgumleiðason: þessari hreinskilni hjá rudda- lega riddaranum. Háðslegir andlitsdrættir hans höfðu vikið fyrir viðkvæmni og hlýju. Hún hlaut að hafa dæmt Ándrés ranglega í upphafi. - Sigríður, það er fallegt nafn, sagði Andrés og var hugsi um stund. - Gætir þú Sigríður, vís- að mér á lind þar sem ég get brynnt fola mínum? Við höf- um verið lengi á ferð. Sigríður sá að hvíti hesturinn var þreytulegur og Andrés ekki síður. Hún ákvað því að bjóða þeim upp á hressingu heima í Koti og þáði Andrés boðið með þökkum. Hann kleif liðlega upp í hnakkinn, þreif síðan um mitti Sigríðar og setti hana klofvega á hestinn. Glæsileg sveifla. Handtökin voru svo snör og sterk að Sigríður hafði ekki tíma til að mótmæla. Þegar þau riðu í hlaðið kom , móðir Sigríðar á móti þeim og sagði: - Sigríður. Hvar hefur þú eig- inlega verið stúlkukind? Þú vissir að ég var búin að bjóða Valtý á Felli í kaffi til okkar og það var ekki síst þín vegna. Þá hverfur þú og kemur aftur í fanginu á ókunnum manni. Hvað á þetta að þýða? Nú birtist Valtýr í bæjardyrun- um og var hann langt frá því að vera frýnilegur á svipinn er hann sá þau Sigríði og Andrés. Ljósrautt hárið blakti í golunni og freknurnar tútnuðu út af bældri reiði Valtýs. Hann strunsaði að hvíta hestinum, þrcif Sigríði af baki og murk- aði lífið úr Andrési með blá- köldu augnaráðinu. - Ég er greinilega ekki vel- kominn hér. Vertu blessuð Sigríður, sagði Andrés snúðugt. Hann leit með drambi og fyrirlitningu á Valtý, hrækti á fósturjörðina og gaf hestinum lausan taum- inn. Brátt var hann horfinn í rykmekki og hófataki. Sigríður trylltist. Þetta sak- lausa blóm sprakk út og stakk með nýfengnum þyrnum sínum. Hún bókstaflega orgaði af bræði og skömm. — Hvað hefur hlaupið í ykkur? Ég bauð örþreyttum ferðalangi upp á hressingu og þið flæmið hann í burtu með ókurteisi. Ég hélt að fólk í þessari sveit væri gestrisið en ekki eitthvurt skítapakk. Sigríður gafst upp, hljóp í burtu og gaf tárunum tækifæri. Nú myndi hún aldrei sjá Andrés framar. Eru blómafrjókorn aðeins sölubrella? blómafrjókornaríku mataræði: í raun og veru borðar þetta fólk nokkurs konar „Pritikin" fæðu sem er þannig saman sett að u.þ.b. 70% hitaeininganna eru fengin úr græn- meti. Þeir borða hunang, en þeir minntust ekki á blómafrjókorn í viðtölum við rannsakendurna. 5. Blómafrjókorn eru ríkasta uppspretta próteins sem vísindin þekkja: Rangt. Blómafrjókorn eru mest kolvetni og próteininni- hald er mismunandi eftir því hver uppsprettan er en er yfirleitt á bilinu 5-28%. 6. Blómafrjókorn minnka of- næmi, asma og heymæði: Eng- ar vísindalegar rannsóknir styðja þessa fullyrðingu. Þvert á móti telja vísindamenn að blómafrjó- korn séu sérstaklega hættuleg fyrir fólk með ofnæmi, asma eða heymæði. Af þessu má sjá að til eru tvær hliðar á hverju máli. Greinarhöf- undar leggja engan dóm á það sem sagt er um blómafrjókorn, en leggja hins vegar áherslu á að hver dæmi fyrir sig og geri það á óhlutdrægan máta. Vitað er að blómafrjókorn eru ágætis víta- míngjafi. Sumt fók trúir því að það sé eitthvert óuppgötvað efni í blómafrjókornum, en þar til það hefur sannað sig, þá er skynsam- legt að gleypa ekki við hvaða full- yrðingum sem er.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.