Dagur - 05.11.1988, Side 7

Dagur - 05.11.1988, Side 7
5. nóvember 1988 - DAGUR -7 þar upp verulega góða aðstöðu í samvinnu við hestamannafélögin Funa í Eyjafirði og Þráin á Grenivík. Um 1980 fara menn að ræða um nauðsyn þess að eignast félagsheimili og fljótlega er farið að vinna að því máii. Við fengum lóð hjá bænum undir hús og kaupféiagið gaf okkur síðan hús sem átti að rífa niðri á Oddeyri. Húsið var á tveimur hæðum, en við skiptum því í tvennt, hirtum efri hæðina og hentum þeirri neðri. Efri hæðina fluttum við uppeftir, byggðum við hana for- stofu og byggðum allt upp. Ég býst við að fáir þekki húsið aftur frá því að það stóð á Tanganum, enda er flest nýtt í því nema stoð- irnar. Öll vinna við það var unnin í sjálfboðavinnu utan örlítillar nauðsynlegrar fagvinnu. Kvenna- deildin okkar hefur sannarlega verið betri en engin í þessu, en í Létti starfar öflug kvennadeild. Við rekum líka íþróttadeild, en þessar deildir eru með sér stjórn og sér fjárhag og eru því sjálf- stæðar undirdeildir í félaginu. Bæði íþróttadeildin og félagið hafa á stefnuskrá sinni mikla unglingastarfsemi og við sjáum fram á það að með tilkomu húss- ins mun það og svæðið umhverfis gjörbreyta öllu námskeiðahaldi. Geysileg stemmning á fyrsta fjórðungsmótinu Nú, konurnar hafa skaffað geysi- lega mikið til þessa húss og gáfu okkur m.a. allt efni í eldhúsinn- réttinguna. Þá gáfu þær allt í eld- húsið, bolla, pönnur og allt sem því tilheyrir, allt fyrir glugga, efni í gólfið og á það og öli hreinlætis- tæki á snyrtingar svo þær hafa lagt mikið af mörkum. Afgang- inn hefur félagið lagt til sjálft auk þess að fá til svolítið lánsfjár- magn. Við teljum okkur því ekki reisa okkur burðarás um öxl með því að hafa húsið ekki of stórt, en stærðin á því er um 100 fermetr- ar.“ Jón Ólafur hefur verið formað- ur Léttis frá 1984, en hann gekk fyrst í félagið 1969. Við spurðum hann eftir því, hvort nokkuð eitt væri honum sérlega minnisstætt frá þessum tíma. „Já, ég get ekki borið á móti því, en það eru bæði skemmtileg- ir og leiðinlegir atburðir ofarlega í liuga. Skemmtilegir atburðir eru t.d. þegar við erum að klára félagsheimilið, það er alveg ljóst. Þá var geysilega mikil stemmning í kringum það, þegar við héldum fyrsta fjórðungsmótið frammi á Melgerðismelum 1976, en þá vor- um við að vígja nýtt mótssvæði og um leið að sanna fyrir okkur og öðrum að bæði staðurinn og við gætum staðið undir því að halda svona mót. Ég hugsa e.t.v. að sú stund hafi verið einna skemmtilegust. Þá voru menn búnir að leggja gífurlega mikið á sig við að koma þessu á og allt lagt undir. Það var verulega skemmtilegt. Vonum að sættir náist Svo eru það leiðinlegir atburðir eins og deilurnar við stjórn Landssambands hestamannafé- laga sem voru engum fagnaðar- efni, a.m.k. ekki okkur sem stóð- um í hringiðunni. Það hefur ekk- ert gerst í þessu máli frá síðasta vetri svo framtíðin verður að sýna hvorl sættir nást, sem við vonum að verði. Um 1980 fengum við úthlutað frá bænum nýju framtíðarsvæði fyrir hestamenn í Lögmannshlíð, en Breiðholtshverfið er nú fullbyggt. Þar er unnið af fullum krafti o^ við höfum lokið við 350 metra langa hlaupabraut og erum að ljúka við 300 metra hringvöll. Þetta verður framtíðarsvæði og allir sem eru að byggja sér hest- hús núna, byggja þar en svæðið verður fyrir u.þ.b. 1000 hesta. Við ætlum að vera þar með hlaupabraut, hringvöll og koma upp sýningaraðstöðu. Vonandi tekst að koma þessu upp innan fárra ára en geysilega mikið verk er framundan. Landið er allt óunnið, þarna eru móar og rnýrar sem þurrka þarf upp og ræsta fram. Þarna þarf að gróðursetja skjólbelti og gera svæðið aðlað- andi fyrir áhorfendur, en svæðið býður upp á ýmislegt.“ - Hefði ekki verið nær að setja félagsheimilið upp þar? „Þar er gert ráð fyrir stærra og veglegra félagsheimili á skipu- lagi, en við látum nýja húsið duga næstu 20 árin og sjáum svo til. Þetta hús kostaði okkur ekki það mikið, svo nýtist það okkur sem hverfishús síðar.“ - Nú var miklu fé veitt til lagn- ingar reiðvega á svæðinu í fyrra, hefur aðstaðan í nágrenninu ekki batnað mikið hvað þetta snertir? „Við fengum umtalsvert fjár- magn frá Landssamtökunum 1986. Samtökin hafa yfir að ráða svokölluðum reiðvegasjóði og í lögum LH segir, að þangað sem haldin eru stórmót skuli stærstur hluti sjóðsins renna. Fjórðungs- mótið 1986 var haldið á Melgerð- ismelum svo þar af leiðandi kom mikið í þetta hérað. Það voru ekki einungis Léttismenn sem fengu fjármagn, því hin félögin fengu líka. Við notuðum okkar hlut til að byrja á reiðvegi sem á að liggja í gegnum bæjarlandið. Það er búið að skipuleggja reið- veg sunnan frá Brunná, upp og meðfram Kjarnaskógi og norður í Mýrarlón. Framkvæmdir við veginn eru hafnar og hann er nú kominn suður að Hamraborgum og kominn í tengsl við reiðskól- ann sem þar er rekinn, en við vonumst til að lagningu að Brunná Ijúki á þessu og næsta ári. Þá höldum við aftur af stað frá Breiðholtshverfi og norður. Þetta er nokkurra ára áætlun en við vonum að það taki ekki óskaplega langan tíma.“ Ekki ýkja dýrt áhugamál - Rekið þið reiðskóla? „Félagið rekur reiðskóla í sam- vinnu við Æskulýðsráð Akureyr- arbæjar og hefur gert í 25 ár. Það samstarf hefur gengið ákaf- lega vel og enginn kvartað yfir því. Ásókn í skólann hefur alltaf verið mikil og oftast komast ekki allir að sem vilja.“ - Ef einhverjum dytti nú í hug að fara út í hestamennsku, hvað myndi slíkt fyrirtæki kosta? „Það er teygjanlegt. Ef menn eru að hugsa um að kaupa sér þokkalega góðan reiðhest, ekk- ert of viljugan um 5-6 vetra gaml- an og reiðtygi með, gæti ég gisk- að á að það myndi kosta um 120- 150 þúsund krónur. Nú, þessi hestur getur dugað viðkomandi í um 15 ár svo kostnaður á hvert ár er ekki svo ýkja mikill. Þá þarf auðvitað að hýsa hann, hirða og fóðra en það kostar um 15 þús- und fyrir veturinn.“ Bakterían - Þið ætlið að halda veglega upp á afmælið, hvað verður gert? „í dag verður opið hús í nýja félagsheimilinu frá kl. 15.00 til 17.00 en þá verður húsið form- lega vígt og því gefið nafn. Kaffi- veitingar og afmælisrjómaterta verða á boðstólum og við bjóð- um alla velkomna. Síðan ætlum við að hafa afmælishóf í Alþýðu- húsinu í kvöld með veislumat, sem sagt formleg afmælisveisla. Það verður stanslaus veisla í dag og fram á nótt.“ - Að lokum, er hægt að losna við hestabakteríuna ef menn eru á annað borð komnir með hana? „Nei, ekki ef maður er illa haldinn af henni en það hefur ýms- um tekist að lækna sig af þessu, a.m.k. tímabundið. En ég hugsa að það sé auðvelt að fá hana. Ef um er að ræða fjölskyldumenn, þarf öll fjölskyldan helst að vera í þessu því það er bæði tímafrekt og bindandi að stunda hesta- mennsku. Eitt er víst, að hesta- mennskubakterían erekki liættu- leg.“ VG Aðstoð á tannlæknastofu Óska eftir að ráða klínikdömu á tannlæknastofu mína. Æskileg menntun stúdentspróf eöa sjúkraliða-/hjúkr- unarmenntun. Heiðarleiki og snyrtimennska áskilin. Reykingar ekki leyfðar á vinnustað. Vinsamlegast leggið umsóknir á afgreiðslu Dags merkt „Tannlæknastofa“ fyrir 18. nóvember. Kristján Víkingsson, tannlæknir. 615056 D0RA Xýttl 6 7935 6 emi Dömu- skór og kulda- skór í óreiíldiiiii 61^60 6 D0RA 61A616 6 7000 8 6ABI Vorumað fá þriggja fasa rafmótora frá Kína. Mótorarnir eru í I. E. C. malum, í flestum stærðum, 1400 og 2900 s/m. Sérlega hagstætt verð. Söluumboð: VÉLADEILD oseyri 2 Slml 229972/21400 30T1JIMIMF HÖfyÐABAKKA 9 REYKJAVÍK SIMI: 685656 og 84530

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.