Dagur - 05.11.1988, Side 10

Dagur - 05.11.1988, Side 10
10 - DAGUR - 5. nóvember 1988 Fjöiskyldan í Moss, Sigríður Ingólfsdóttir, Gunnar og sonurinn Ingólfur Bragi. Gunnar Gíslason knattspymu- maður í Noregi sóttur heim ..HIvIMA ERBEST“ Hvað heitirðu? Ég heiti Gunnar Gíslason. Hvað ertu gamall? Ég er tólf ára. Ertu búinn að vera lengi í fimleikunum? Petta er þriðja árið mitt. Hefurðu gaman af þessu? Já, já. Síðan þetta birtist í Degi í janúar 1971 hefur mikið vatn runnið til sjávar. Fimleikarnir heyra nú sögunni til, aðrar íþróttagreinar hafa tekið við en við- mœlandinn er sá sami. Gunnar Gíslason. Gunnar Gíslason í knattspyrnuleik með KA áður en hann hélt suður. Fyrir þá sem fylgjast með íþrótt- um er óþarft að kynna Gunnar, hann lék um árabil með KA í knattspyrnu og handknattleik og er einn fárra íslendinga sem leik- ið hafa landsleiki í báðum þess- um greinum. Fjölskyldu Gunnars þekkja margir og er næsta víst að önnur eins íþróttafjölskylda er vandfundin. Eins og kunnugt er leikur Alfreð bróðir hans með íslenska handknattleikslandslið- inu, Hjörtur hefur verið í lands- liðinu bæði í lyftingum og frjáls- um íþróttum og tvíburabræöurn- ir Garðar og Gylfi eru kunnir kraftlyftingamenn. Það var bara slegist Fað lá því beinast við að spyrja Gunnar fyrst að því hvort það hefði verið eitthvað sérstakt sem einkenndi uppeldi þeirra bræðra, eitthvað sem varð þess valdandi að þeir náðu allir svo langt á íþróttabrautinni. „Nei, það held ég ekki. Við erum allir tiltölulega heilbrigðir frá náttúrunnar hendi og því lá bein- ast við að leggja íþróttirnar fyrir sig. Hver einasti krakki gerði slíkt hið sama. Kannski hefur það líka haft sitt að segja að mamma og pabbi höfðu bæði mikinn áhuga á íþróttum. Áhug- inn hjá okkur strákunum var ódrepandi og metnaðurinn gífur- legur. Það ríkti sífellt samkeppni á milli okkar, ef einhver okkar gerði það gott var markmiðið að reyna að gera betur. Pað gekk því mikið á heima, það var oft slegist og æfingarnar héldu áfram þegar heim var komið. Það var vinsælt að spila handbolta og fót- bolta á ganginum og stofuborðið var kjörið fyrir borðtennis. Pað kernur því ekki á óvart þó krist- alsvasar og glermunir ýmiss kon- ar hafi ekki verið til á þessu heimili. Ég man eftir því að eitt sinn fékk mamma forláta kristalsvasa að gjöf, stuttu seinna vorum við Alli að spila borðtennis í stofunni og þá skipti engum togum að Alli smassaði beint í vasann, eina hlutinn sem hægt var að brjóta í stofunni. Já það var ýmislegt sem fékk að fjúka, hurðir voru jafnvel brotnar því rifrildi voru ekki gerð upp með því að tala saman, það var bara slegist.'1 íþróttir og aftur íþróttir Var það tilviljun að þið bræðurn- ir völduð ykur mismunandi íþróttagreinar? „Upphaflega var það ég sem var mest í íþróttum og það má segja að ég hafi verið með í öllu því sem flokkaðist undir íþróttir. Fljótlega valdi ég þó handbolt- ann og fótboltann. Alli byrjaði mun seinna, kannski vantaði áhugann hjá honum en þegar hann byrjaði kom metnaðurinn honum áfram. Handboltinn pass- aði vel fyrir hann. Gági (Hjörtur) bróðir byrjaði í lyftingunum og tvíburarnir eltu hann þangað. Tvíburarnir fóru út í lyftingarnar til þess að styrkja sig, en þeir fæddust löngu fyrir tímann og vógu ekki nema um 4-5 merkur við fæðingu. Pað var raunar kraftaverk að þeir skyldu lifa. Á endanunt fór svo að þeir tóku lyftingarnar bókstaflega, svo ekki sé meira sagt. Fjölskyldan fór ekki varhluta af þessum krafta- körlum. Eitt sinn þegar pabba fannst nóg um lætin í þeim hótaði hann að flengja þá ef þeir höguðu sér ekki almennilega. Leikar fóru hins vegar þannig að þeir tóku hann upp, hentu honum út í snjóskafl og læstu húsinu. Spurn- ing hver réði heimilinu í þá daga!“ Gunnar á gelgjuskeiðinu. Hárið að sjálfsögðu niður á herðar. Léleg aðstaða Svo heldurðu til Laugarvatns og lýkur prófi frá íþróttakennara- skólanum 1982. Var þetta góður tírni? „Það var a.m.k. gaman eftir á en aðstaðan þarna var léleg. Hún hefur batnað til muna eftir að nýja íþróttahúsið kom. Námið var ekki erfitt og þó hef ég aldrei verið mikill námsmaður. Áhug- inn á íþróttum var þá fyrir hendi, það var nóg og mér gekk bara vel. Lífið þarna er ekkert nema íþróttir og aftur íþróttir. Mér finnst farið allt of hratt í gegnum íþróttagreinarnar á þessum tveimur árum. Þetta var mikið líkamlegt álag og í kjölfar þess var mikið um meiðsli hjá nem- endunum. Ég held að ég hafi haft mjög gott af þessum tíma, að fara að heim- an og bjarga mér sjálfur. Fyrri veturinn spilaði ég með KA í handboltanum og það útheimti endalaus ferðalög. Ég skipti svo yfir í KR síðari veturinn og það var erfiður vetur. Það var farið á æfingu þrisvar í viku og svo voru leikir um helgar. Ef færð var slæm tók ferðin til Reykjavíkur stundum 3-4 klukkustundir. Þetta var frekar leiðinlegur tími en ég náði þó eina titlinum sem ég hef fengið á íslandi þennan vetur, þegar við urðum bikar- meistarar. Það má því segja að þetta erfiði hafi skilað sér þrátt fyrir allt.“ Ekki sama hvar þú býrð Var ekki erfitt að yfirgefa KA á sínum tíma? „Það er alltaf erfitt að skipta um lið, því fylgir nýtt umhverfi og nýr vinahópur því æfingafélag- arnir eru vinir fyrir lífstíð, það er

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.