Dagur - 05.11.1988, Blaðsíða 16
16 - DAGUR - 5. nóvember 1988
Jl poppsíðon
Umsjón: Valur Sæmundsson.
Alveg dúndurtónleikar
með Síðan skein sól
Að kvöldi föstudagsins sem kom
næst á undan þeim sem nú er nýlið-
inn, voru haldnir allmerkir tónleikar í
kjallara raunvísindahúss þeirrar
gömlu og grónu menntastofnunar,
Menntaskólans á Akureyri. Það var
kvartett að sunnan sem hélt uppi
stuðinu. Síðan skein sól kallar hann
sig.
Klukkan var rúmlega 21.00 þetta
kvöld, þegar ég fetaði mig í átt að
áðurnefndu raunvísindahúsi, sem
ég kalla héðan í frá Möðruvelli, til
einföldunar. Tónleikarnir áttu að
hefjast kl. 21.00 og því kom það
mér mjög á óvart að mæta fjölda
fólks sem stikaði BURT frá Möðru-
völlum (raunvísindahúsinu, þið
munið). Ég lét þetta ekkert á mig fá
og hélt mínu striki. En þegar ég kom
á staðinn var mér tjáð að
„heddpakkning" hefði „farið“ í öku-
tæki kvartettsins og tónleikunum
myndi því seinka til kl. 22.00. Þá átti
ég tvo kosti og taldi ég hvorugan
góðan. Að hanga á Möðruvöllum i
klukkutíma eða halda út í bruna-
gaddinn úti fyrir og hanga þar í
klukkutíma. Af tvennu illu valdi ég
óveðrið. Ég dæsti, hristi mig, ákvað
að taka þessu eins og hverju öðru
hundsbiti, hleypti í herðarnar og hélt
út í sortann. Segir svo ekkert
af ferðum mínum næsta
klukkutimann.
Laust eftir tíu mætti ég svo hress og
endurnærður f Möðró. Hljómsveitin
hafði þá nýhafið spileríið, þannig að
ég settist bara hljóðlega niður og
sperrti eyrun.
Það er sennilega skemmst frá því
að segja að ég hefi ekki í langan
tíma verið viðstaddur jafn góðan
konsert og þennan. Hljómsveitin er
geysilega þétt og hljóðfæra-
leikararnir afskaplega færir. Og
söngur, sviðsframkoma og textar
Helga Björnssonar eru afbragð.
Ef mönnum fellur við Helga, þá fell-
ur þeim við Síðan skein sól.
Ef mönnum fellur hins vegar miður
við Helga, þá ættu þeir ekki að
skipta sér af Síðan skein sól.
Ekki kannaðist maður við
fleiri en tvö lög, Bannað og Blautar
varir, sem flestum eru að góðu
kunn. Hljómsveitin flutti þessi lög í
töluvert rokkaðri útsetningu en
á tólftommunni. Enda orgaði fólk
næstum af hrifningu. Meðan ég
man, þá verð ég að hrósa gítarleik-
aranum fyrir snör handtök þegar
hann skipti um gítar í miðjum
Blautum vörum vegna þess að
gítarinn sem hann var með í hönd-
unum ákvað að gefa sig.
Rösklega gert.
Af öðrum lögum en þessum
tveim er það að frétta að allflest
voru þau í svipuðum gæðaflokki
og hin tvö áðurnefndu og nokkur
jafnvel enn betri. Það stefnir
greinilega í mikla veislu hjá tón-
listaráhugamönnum þegar breið-
skífa hljómsveitarinnar kemur út.
Hljómsveitin fékk enda afar góðar
viðtökur áheyrenda og var klöppuð
tvisvar upp. Síðasta lagið sem þeir
tóku var hápunkturtónleikanna, hið
alþekkta lag Should I stay or should
I go eftir Clash. Alveg hreint magn-
aður flutningur á þessu lagi og
dásamlegur endir á góðum
tónleikum.
Ég má líka til með að minnast á
sviðsframkomu hljómsveitar-
meðlima sem var vægast sagt frísk-
leg og einskorðaðist ekki við sviðið.
Það átti líka sinn þátt í hve hljóm-
sveitin náði góðu sambandi við
salinn, og hversu eftirminnilegirtón-
leikarnir eru. Það hefðu hins vegar
að ósekju mátt vera fleiri á þessum
tónleikum, þeir hefðu átt það skilið,
þeir ötulu menn í tónlistarfélögum
framhaldsskólanna sem stóðu fyrir
þessu. En það er þá bara um að
gera fyrir alla að drífa sig næst þeg-
ar boðið er upp á svona viðburð á
Akureyri. Það er nefnilega ekkert
allt of oft sem það kemur fyrir.
íslenski listinn
- vikuna 29/10-4/11 1988
Sæt Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (7) Dont worry, be happy .... Bobby McFerrin
2. (2.) (6) Cocomo Beach Boys
3. (7.) (4) Desire U2
4. (8.) (7) Where did i go wrong UB-40
5. (5.) (10) Foxtrot
6. (4.) (8) Frozen feelings Jan Bang
7. (6.) (7) One moment in time .. Whitney Houston
8. (9.) (5) Push it Salt’n'peppa
9. (3.) (7) Groovy kind of love Phil Collins
10. (24) (3) De smukke unge mennesker Kim Larsen
11. (33) (2) The harder I try Brother Beyond
12. (27) (2) I'm gonna be 500 miles Prodaimers
13. (13) (4) Working in a goldmine Aztec Camera
14. (12) (5) Thetwist Fat Boys
15. (10.) (8) The only way is up Yazz & The plastic population
16. (18) (8) I need you B.V.S.M.P.
17. (17) (4) You are the one A-ha
18. (14) (5) Bad medicine Bon Jovi
19. (34) (3) Domino Dancing Pet Shop Boys
20. (26) (3) Superstitious
Rás 2
- vikuna 28/10-4/11 1988
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (8) Groovy kind of love Phil Collins
2. (3.) (5) Don't worry, be happy ... Bobby McFerrin
3. (2.) (13) Foxtrot ... Bubbi Morthens
4. (4.) (8) Cocomo Beach Boys
5. (5.) (6) De smukke unge mennesker . Kim Larsen
6. (9.) (3) Desire U2
7. (8.) (5) Where did I go wrong UB-40
8. (6.) (8) Frozen feelings Jan Bang
9. (■) (1) I’m gonna be .. The Proclaimers
10. (10.) (3) Thetwist Chubby Checker & Fat Boys
11. (11.) (3) Domino dancing Pet Shop Boys
12. (7.) (7) When it's love Van Halen
13. (14.) (3) You are the one A-ha
14. (28.) (2) Wild wild West Escape Club
15. (-) (1) The harder I try .... Brother Beyond
16. (15.) (7) Working in a goldmine Aztec Camera
17. (25.) (2) Raw .... Spandau Ballet
18. (29.) (2) I don't want your love DuranDuran
19. (16.) (5) She wants to dance with me .. Rick Astley
20. (13.) (13) Im nin alu Ofra Haza
Molar og mylsna
Það er ýmsilegt á döfinni í hljóm-
plötuútgáfu eins og ævinlega þeg-
ar fæðingarhátíð frelsarans
nálgast. Af athyglisverðu íslensku
efni sem ég hef ekki getið um áður
má nefna 12 laga plötu frá Bítla-
vinafélaginu, 12 gömul og góð
íslensk bítlalög á einni plötu. Einn
Bítlavinanna notar einnig tækifær-
ið og sendir frá sér sólóplötu.
Þarna er ég að ræða um Eyjólf
Kristjánsson og platan hans á að
heita Dagar. Það er Eyþór Gunn-
arsson sem stjórnar upptökum á
plötunni og allir meðlimir Mezzo-
forte leika undir á henni.
Um daginn gat ég um safnplötur
ýmissa listamanna og nú hef ég
fengið fregnir af fleiri slíkum. Það
er í fyrsta lagi safnplata frá Fieet-
wood Mac, með bestu lögum
þeirra undanfarin 10 ár auk
tveggja nýrra laga.
Earth, Wind and Fire er að senda
frá sér annað bindi bestu laga
sinna. Ef ég man rétt þá seldist
fyrra bindið með ólíkindum mikið
hér á landi.
Ég er viss um að einhverjir
kannast við lagið Kiss með höfð-
ingjanum Prince. Þetta lag í flutn-
ingi Art of Noise nýtur nú mikilla
vinsælda í Bretlandi og er einnig
að finna á plötu með öllum bestu
lögum sveitarinnar í gegnum árin.
Þá er og væntanleg safnplata frá
Berlín, þar sem Take my breath
away og önnur góð lög þeirrar
hljómsveitar er að finna.
Tvær athyglisverðustu safn-
plöturnar eru þó eftir. Það er t.d.
að koma út 15 laga safnplata frá
Bryan Ferry og félögum í Roxy
Music. Öll þeirra bestu lög í einni
bendu auk úrvals af lögum sem
Bryan Ferry hefur gefið út í eigin
nafni. Þetta verður maður að eign-
ast.
Siðan er ekki síst er að koma út
safnplata sem heitir Eponymus.
Þetta er safnplata með öllum
bestu lögum öðlinganna i R.E.M.
Þessi plata er gefin út vegna þess
að R.E.M. hefur nú yfirgefið út-
gáfufyrirtækið I.R.S. og gert stór-
an samning við Warner Brothers.
Fyrsta platan frá þeim sem Warn-
er gefa út er á leiðinni eins og ég
hef greint frá og heitir hún Dreen.
Hér er svo smá bónus. I tilefni af
20 ára afmæli Jethro Tull hefur
verið gefin út tvöföld safnplata
með gömlu jöxlunum.
Ef við færum okkur aðeins í vin-
sældalistapoppið þá skal ég segja
ykkur að á leiðinni er ný plata frá
Tiffany, sem aðeins er nýorðin 17
ára en strax orðin geysivinsæl.
Platan hennar heitir Hold an old
friend’s hand. Þá er og á leiðinni
sólóplata frá Boy Oeorge sem heitir
Tense nervous headache Þess má
geta að fyrrum samstarfsmenn
Prince stjórna upptökum á þessari
plötu drengsins. Einnig má geta
um væntanlega plötu frá Austur-
ríkismanninum Falco. Sú heitir
Wiener Blut.
Þá skulum við færa okkur yfir í
„gáfumannadeildina". Súpergrúpp-
an Mike and the Mechanics með
Mike Rutherford, bassa- og gítar-
leikara Genesis í fararbroddi, er
að senda frá sér sína aðra plötu,
Ku hún bera nafnið Living years.
Aðrar góðar sem eru að færa
afurðir sínar á plast eru, ef við för-
um hratt yfir sögu, Waterboys, Fish-
bone, Eddie Brickell and the new
Bohemians og The Associates Þá
aru þeir piltar í Alarm að gefa út
iljómleikaplötu, sem áreiðanlega
/erður skratti gaman að hlusta á.
Að lokum er vert að geta um
hljómsveitina The travelling Wilbur-
ys, sem i eru m.a. Bob Dylan, Tom
Petty og George Harrison Það verð-
ur fróðlegt að fylgjast með því
bandi, sem og mörgum öðrum en
hér læt ég staðar numið í bili. (
næstu viku verður mikið um fréttir,
m.a. töluvert úr þungarokksheim-
inum. Þið skulið ekki fara langt.
Jethro Tull