Dagur - 12.11.1988, Page 3
12. nóvember 1988 - DAGUR - 3
tónlist
i
Kammerhljómsveit Akureyrar:
Tónleikar í Akureyrarkirkju
Fyrstu tónleikar Kammer-
hljómsveitar Akureyrar á
þessu starfsári verða haldnir í
Akureyrarkirkju sunnudaginn
13. nóvember kl. 17. Á tón-
leikunum flytur hljómsveitin
Flugeldasvítuna eftir Hándel,
konsert fyrir tvo trompeta og
hljómsveit eftir Vivaldi,
hljómsveitarforleikinn Flóð og
fjöru í Hamborg eftir Tele-
mann og hljómsveitarsvítu nr.
3 eftir J.S. Bach.
Tónverkin tilheyra þeirri glæsi-
legu og skemmtilegu hljóm-
sveitatónlist sem samin var á síð-
asta hluta barokktímabilsins,
þ.e. um eða eftir aldamótin 1700
og þau eru samin af meisturum
þess tíma, sem hvað mestra vin-
sælda njóta meðal tónlistarunn-
enda í dag.
Tvíburarnir Sveinn og Hjálmar
Sigurbjörnssynir eru einleikarar
á trompet í konsertverki Vivald-
is. Þeir stunduðu nám við Tón-
listarskólann á Akureyri og síðar
við Tónlistarskólann í Reykjavík
og þaðan luku þeir prófi. Sveinn
og Hjálmar starfa báðir sem
kennarar og hljóðfæraleikarar á
Norðurlandi.
Kammerhljómsveitin fær líka
góða gesti að sunnan. Helga Ing-
ólfsdóttir leikur á sembal, Lárus
Sveinsson á piccolotrompet, Jos-
eph Ognibene á horn, Ólafur
Flosason og Sverrir Guðmunds-
son á óbó og Pórir Jóhannsson á
kontrabassa.
Áhugi fyrir sembalkaupum
Varðandi komu Helgu Ingólfs-
dóttur semballeikara má geta
þess að lengi hefur verið áhugi á
því meðal tónlistarfólks á Akur-
eyri að eignast sembal, en þetta
stórmerka hljóðfæri er ekki til í
bænum og hefur það verið flutt
frá Reykjavík með tilheyrandi
umstangi. Rætt hefur verið um
að stofna sjóð í því skyni að
kaupa sembal.
Víkjum þá aftur að tónleikum
Kammerhljómsveitar Akureyrar.
Konsertmeistari er Lilja Hjalta-
dóttir og stjórnandi hljómsveitar-
innar er Roar Kvam. Tónleikar
Kammerhljómsveitarinnar hafa
átt vaxandi vinsældum að fagna
og um eitt þúsund áheyrendur
sóttu tónleika hennar sl. vetur.
Þann 16. október var stofnað
áhugafélag um rekstur Kammer-
hljómsveitar Akureyrar og er
mikill áhugi ríkjandi fyrir því að
starf hljómsveitarinnar verði
bæði öflugt og áhrifaríkt. Bráða-
birgðastjórn félagsins skipa: Ein-
ar S. Bjarnason og Valgerður
Hrólfsdóttir fyrir hönd áhuga-
manna, Ólöf Jónsdóttir og
Örnólfur Kristjánsson fyrir hönd
hljómsveitarinnar og auk þess er
vænst að Akureyrarbær tilnefni
einn fulltrúa.
Unnt er að skrá sig sem stofn-
félaga á tónleikunum á sunnu-
daginn og aðgöngumiðar verða
seldir við innganginn. SS
Styrkir til háskólanáms
í Finnlandi og Noregi
1. Finnsk stjórnvöld bjóöa fram styrk handa íslendingum
til háskólanáms eöa rannsóknarstarfa í Finnlandi
námsáriö 1989-’90. Styrkurinn er veittur til níu mánaða
dvalar og styrkfjárhæðin er 2.200 finnsk mörk á mán-
uði.
2. Norsk stjórnvöld bjóöa fram styrk handa íslenskum
stúdent eöa kandídat til háskólanáms í Noregi námsár-
ið 1989-’90. Styrktímabiliö er níu mánuöir frá 1. sept-
ember 1989. Til greina kemur aö skipta styrknum ef
henta þykir. Styrkurinn nemur um 4.740 n.kr. á mánuði.
Umsækjendur skulu vera yngri en 35 ára og hafa
stundað háskólanám í a.m.k. tvö ár.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til
menntamálaráöuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Fteykjavík,
fyrir 31. desember nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar
fást, og fylgi staöfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytiö,
8. nóvember 1988.
leyndardóma
kvöldvorrósarolívuinar!
Indíánar Norður-Ameríku voru einna
fyrstir til að uppgötva undramátt kvöld-
vorrósarolíunnar. Þetta voru engin
hindurvitni því að vísindamenn hafa nú
staðfest að kvöldvorrósarolía býr ein-
mitt yfir hinni sjaldgæfu GLA, gamma-
línólensýru. Með hjálp línólsýru úr
fæðu gegnir hún mjög mikilvægu hlut-
verki í framleiðslu líkamans á prosta-
glandínum, en þau hafa áhrif á nær alla
þætti líkamsstarfseminnar.
Framleiðsla líkamans á GLA og þar
með á prostaglandínum getur raskast af
ýmsum orsökum, t.d. óæskilegu matar-
æði, ofhitun olíu eða feiti við mat-
reiðslu, áfengisneyslu, kvefi og streitu.
Allir þessir þættir geta skert hæfni lík-
amans til að umbreyta línólsýru í GLA.
Skammtur af Magna-kvöldvorrósar-
olíu tryggir líkamanum hæfilegt magn
af línólsýru og GLA til að hann geti
starfað eðlilega.
Magna-kvöldvorrósarolían
kemur líkama þínum í jafnvægi!