Dagur - 12.11.1988, Page 13

Dagur - 12.11.1988, Page 13
barnasíðan tfetfHWfelKdM# - 1.4 i Umsjón: Stefán Sæmundsson. Barnasíðan og lesendur Barnasíöan birtist í Helgarblaðinu hálfsmánaöarlega. Viö viljum hvetja börn á öllum aldri til að senda okkur efni og biðjum foreldra að hjálpa yngstu börnunum. (fyrsta lagi þurfa þau að vita af þessum möguleika og þá geta þau hafist handa við að teikna myndir. í öðru lagi verða for- eldrarnir að senda okkur myndirnar og í þriðja lagi að sýna börnunum blaðið þegar myndirnar birtast. Efni barnasíðunnar er undir ykkur komið. Við viljum ekki bara fá teikn- ingar, heldur líka sögur, gátur, þraut- ir, brandara og hvað sem ykkur dett- ur í hug, börnin góð. Okkur finnst eðlilegast að börnin hafi sem mest áhrif á efni síðunnar. Spurningaleikur Hafa ekki allir gaman af spurninga- leikjum? Hér koma nokkrar spurn- ingar fyrir börn og unglinga. Reynið að svara þeim áður en þið skoðið svörin sem birtast hér á hvolfi. 1. Hvað hét landnámsmaður Eyjafjarðar? 2. Hvaða danski poppari syngur nú á Hótel íslandi? 3. Hvaða barnaleikrit ætlar Leik- félag Akureyrar að sýna um jólin? 4. Með hvaða liði leikur Alfreð Gíslason handknattleik? 5. Nefnið konu sem er sprettharð- ari en allir íslenskir karlmenn? 6. Hver er ritstjóri Dags? 7. Á hvaða vikudegi er aðfanga- dagur jóla í ár? 8. Hvaða lið er efst í 1. deild ensku knattspyrnunnar? 9. Tveir þingmenn á Norðurlandi eru konur. Hvað heita þær? 10. Hvar er eina vélfrysta skauta- svellið á landinu? Svör: uÁ0jn>|v y 'CH J!Uopsuj0AS jnQja6|EA 6o j|UopjBQjn6!S jnQjj^lui^iai ’6 LjOjAAJON g !6spjB6nE-| l uubuj6jss a iBbjs q •jsuÁop-L);!guo sousjou g U>f V !l|OL|j}B>! j HLua e ussjb-| LU!X z •u6blu !6|sh ' I. Litli grísinn Teitur Þorbjörn Þorbjörnsson sendi okkur ansi fjöruga sögu sem heitir Litli grísinn. Teitur er 9 ára gamall og býr að Sporði, Línakradal, (531 Hvammstangi). Við þökkum kærlega fyrir sendinguna og hér kemur sagan: Einu sinni var stór og feit gylta. Hún átti níu litla grísi. Eitt sinn var geltinum, pabba þeirra, hleypt inn í stíuna. Þá sparkaði einn grísinn í göltinn, þá trylltist hann og beit alla grísina nema einn. Grísirnir dóu, hinn hljóp heim til bæjar og lét eins og óður. Mennirnir náðu í göltinn og fóru með hann í sláturhús. Skyldi þetta vera sönn saga? Grísirnir í sögu Teits voru 9, en hvað skyldu vera margir á þessari mynd? Hver á hvaða hnykil? Það er allt komið í flækju hjá þessum pottormum, sannkallaða garnaflækju. Spurningin er, hver á hvaða hnykil? Á A hnykil númer 1,2, 3 eða 4? Reynið að fylgja garnspottunum eftir og greiða þannig úr flækjunni. Brandarar Jóhann var með mömmu sinni í dýragarðinum og voru þau að skoða apana. Jóhann: - Mamma, finnst þér apinn ekki líkur Sveini frænda? Mamma: - Uss, þetta máttu ekki segja drengur. Jóhann: - Það gerir ekkert til. Apinn skilur ekki hvað ég er að segja. - Þjónn! Súpan er ísköld. - Já, auðvitað. Við erum með kalt borð í dag. - Þjónn! Það er fluga í súpunni minni. - Æ, þetta er gömul lumma. - Nei, þetta er ung fluga. - Mér þykir þetta afskaplega leitt, frú Guðfinna. Ein af hænun- um mínum hefur sloppið inn í garðinn til þín og gert usla í blómabeðinu. - Það er allt í lagi núna. Köttur- inn minn át hana. - Skelfing er að vita hvernig fólk hagar sér í umferðinni. - Nú? - Já, ég var vitni að því að öku- maður ók á ofsahraða eftir hraðbrautinni. Það var rétt með naumindum að mér tókst að komast fram úr honum. - Þjónn! Það er fiskifluga í súp- unni minni. - Þetta er líka fiskisúpa. I

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.