Dagur - 12.11.1988, Side 16

Dagur - 12.11.1988, Side 16
16 - DAGUR - 12. nóvember 1988 Otrúlegur frami Kylie litlu Minogue - en hvernig á að bera nafn hennar fram? Hún Kylie Minogue, litla (152 cm!) tvítuga stelpan frá Astralíu er að gera allt vitlaust í Bretlandi þessa dagana. Eitthvað er hún nú að verða vinsæl hér á landi líka og hafa plötusnúðarnir á bullútvarps- stöðvunum rifist mikið um hvernig bera skuli nafn stúlkunnar fram en enginn hefur ennþá álpað nafninu rétt út úr sér. En vinsældir hennar hér nálgast lítið það æði sem gripið hefur um sig í Bretlandi. Þar eru les- endadálkar popptímaritanna upp- fullir af fyrirspurnum frá örvænt- ingarfullum ungmeyjum sem vilja fá að vita hvar Kylie hefur fengið jakk- ann sem hún var í þarna eða hvar hún hafi fengið skóna sem hún var í hérna o.s.frv. En frami Kylie litlu hefur verið ótrúlega skjótur og jafnvel eins og í lygasögu eins og sagt er. Þegar Kylie hafði lokið skyldu- námi, 15 ára gömul, var henni boðið hlutverk í framhaldsmyndaflokknum Nágrannar, sem þá var orðinn gam- all og lúinn. Einhverra hluta vegna varð umrædd sápa skyndilega vinsælasta sjónvarpsefni í Ástralíu frá upphafi. Síðan datt henni í hug að syngja lagið gamalkunna, Loco- motion, inn á smáskífu og öllum á óvart varð þessi skífa sú vinsælasta í Ástralíu síðan 1978. Enn eykst frægð telpunnar Nágrannar voru á dagskrá í Bret- landi og þegar að þeim punkti í seríunni kom, að Kylie birtist, varð þátturinn skyndilega sá 3. vinsæl- asti f bresku sjónvarpi. Síðan gaf hún út lög í Bretaveldi og fyrsta smáskífa hennar, I should be so lucky, komst í efsta sæti vinsælda- lista og næstu tvær náðu báðar öðru sæti. Þó ekki báðar i einu. Þar með var ísinn brotinn og Evrópa féll öll að fótum Kylie. Þessi skjóti frami er ótrúlegur, sérstaklega í Ijósi þess að Kylie er bara ósköp venjulegt telpukorn. Með miðlungs leikhæfileika, miðl- ungs sönghæfileika ... bara eins og önnur hver stelpa á þessum aldri. Og ábyggilega fullt af þeim sem hef- ur dreymt um að verða fræg leik- eða söngkona. Fáar hafa sjálfsagt trúað því að þetta sé hægt en Kylie hefur sýnt og sannað að þetta er hægt. Drffiði ykkur stelpur, þið gæt- uð orðið eins heppnar og Kylie. Því miður fyrir þá karlkyns les- endur, sem hefur dottið eitthvað saurugt í hug við að lesa þetta, þá er stúlkan „að öllum líkindum" á föstu. Kærastinn er Jason Donov- an, sem einnig er í poppbransan- um. Það sem meira er, hann leikur einnig kærasta Kylie í Nágrönnum. Vel á minnst, ég sagði áðan „að öll- um líkindum" um kærastann, vegna þess að þetta er ekki alveg á hreinu. Þau eru búin að þekkjast síðan þau voru 13 ára og það er ekki alveg víst að þau séu meira en vinir, þó að flest bendi til þess. Þetta mál er allt hið merkilegasta og þætti mér vænt um ef einhver mér fróðari gæti látið mig vita hvort Kylie eigi kær- asta eða ekki. (Ekki það að ég hafi verið að hugsa neitt saurugt!) Svona að lokum þá er hérna við hliðina (eða neðan við eða a.m.k. einhvers staðar í grenndinni) ýmis- Allt sem þig langaði að vila um Kylie Minogue Nafn: Kylie Minogue. Fædd: 28. maí 1968. Hvað var skemmtHegast í skúlanum? Allt, en ekki fyrr en það var búið. Hvað var leiðinlegast í skólanum? Leiðinlegast þegar maður hafði ekki lært heima. Fyrsta platan sem þú keyptir: Diskósafnplata. Síðasta platan sem þú keyptir: FSick Astley. Uppáhaldsplatan þín: Roll with it með Steve Winwood. Uppáhaldsbíómynd: Líf mitt sem hundur og Garpur. Uppáhaldsleikari: Robin Wiiliams og William Hurt. Uppáhaldsbók: Engin. Uppáhaldsmatur: Thailenskur matur, maís og súkkulaðibollur. Hvað óttastu mest?Aö vera óham- ingjusöm. Hvað elskarðu mest? Foreldra mína. Áttu gæludýr? Já, ég á hund, sem heitir Gabby. Hvaða persónu langar þig mest að hitta: Prince og Lisu Bonet. Áhugamál: Hestamennska og skíði. nonnsíðnn Seiðandi augnatillit Kylie litlu getur brætt hvern sem er. Takið líka eftir hárinu. legt persónulegt varðandi stúlkuna. Þetta eru svör hennar við áleitnum spurningum danska poppritsins MIX. Ég tek þetta traustataki í þeirri trú að Dagur sé ekki lesinn á ritstjórn þeirra mixara. Og ef hann er lesinn þar, vonandi er honum þá bara flett. Að lokum bendi ég á að önnur af eftirlætiskvikmyndum stúlkunnar er sænska myndin Líf mitt sem hundur og í viðtali við hana í MIX segir hún aðspurð að þessi mynd sé það eina sem hún viti um Norðurlöndin. Þetta er ábyggilega töluvert meiri vitneskja um okkur en margir Ástralir búa yfir. Að hafa séð sænska bíómynd og fundist hún góð, mynd sem heitir í ofanálag Líf mitt sem hundur, er ekki bara afar óvenjuleg vitneskja heldur líka ofboðslega fyndið. Þannig er nú það. Vinsældalistar Hljóðbylgjan - vikuna 5/11-12/11 1988 Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi 1. (N) (1) l’m gonna be The Prodaimers 2. (L) (5) When it’s love Van Halen 3. (N) d) Cocomo Beach Boys 4. (9.) (3) Where did I go wrong UB-40 5. (3.) (3) De smukke unge mennesker Kim Larsen 6. (17.) (2) Domino dancing Pet Shop Boys 7. (4.) (3) Pípan Sjöund 8. (N) (1) Je ne sais pas pourqoui Kylie Minogue 9. (12.) (2) Desire U2 10. (13.) (3) One moment in time .... Whitney Houston Rás 2 -vikuna 4/11-11/11 1988 Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi 1. (1.) (9) Groovy kind of love 2. (9.) (2) I'm gonna be 3. (2.) (6) Don’t worry, be happy Bobby McFerrin 4. (5.) (7) De smukke unge mennesker Kim Larsen 5. (4.) (9) Cocomo 6. (7.) (6) Where did I go wrong UB-40 7. (6.) (4) Desire 8. (15.) (2) The harder I try 9. (3.) (14) Foxtrot 10. (28.) (2) Handle with care . Traveling Wilburys íslenski listinn - vikuna 5/11-11/11 1988 Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi 1. (2.) (7) Cocomo Beach Boys 2. (1-) (8) Dont worry be happy Bobby McFerrin 3. (12.) (3) I’m gonna be 500 miles Prodaimers 4. (4.) (8) Where did i go wrong UB-40 5. (3.) (5) Desiree U2 6. (9.) (8) Groovy kind of love Phil Collins 7. (8.) (6) Push it Salt’n’peppa 8. (7.) (8) One moment in time ... Whitney Houston 9. (11.) (3) The harder I try Brother Beyond 10. (13) (5) Working in a goldmine Aztec Camera Molar og mylsna Ég er að hugsa um það hvort ég ætti að efna loforðið sem ég gaf sl. laugardag um að minnast á nýút- komnar og væntanlegar plötur úr hinum harða heimi hevímetalsins. Eftir langa íhugun hef ég enga ástæðu rekist á sem réttlætir að ég geri það ekki. Þannig að ég ætla núna að ausa því litla út sem ég hef hlerað af tíðindum úr þunga- rokki. Ef ég mætti byrja á að minnast á plötur sem eru rétt nýlega komnar, þá mætti t.d. nefna plötu með þeim félögum í Motörhead, og jafn- vel einnig State of Euphoria með Anthrax. Kanarnir í Testament voru iika að senda frá sér plötu. Sú heitir Live in Eindhoven og er eins og nafnið bendir til, hljómleika- plata, tekin upp í Hollandi. Ein þungarokkshljómsveit enn sem var rétt í þessu að gefa út plötu, heitir Great White og man ég ekki eftir að hafa heyrt minnst á þessa hljómsveit en það er kannski ekki að marka þar sem ég er nú enginn bárujárnsblesi. En engu að síður hef ég heyrt slatta af plöt- unni og get fullvissað þá sem þekkja ekki til sveitarinnar að þarna er grenjandi þungarokk á ferðinni. Þá er best að fara að snúa sér að efni sem ekki ennþá hefur litið dagsins Ijós, a.m.k. ekki ennþá komið til norðlægari héraða íslands. Fyrst ber að nefna nýja plötu frá Ratten þeir eru orðnir eitt af stærstu númerunum í þunga- rokkinu. Þá er ekki úr vegi að minnast á fyrstu þlötu hljómsveitar sem kallar sig Private Life en það var enginn annar en Eddie Van Halen sem uppgötvaði sveitina og stjórnaði einnig upptökum á plöt- unni. Fyrrum Van Halen söngvarinn David Lee Roth sló í gegn á Don- ington í sumar og í framhaldi af þvf var ákveðið að gefa plötu hans Skyscraper út aftur og bæta inn á hana lögunum Just A Gigolo og Californian Girls. Núna er plássið að verða búið svo best er að fara fljótt yfir sögu. Barndaríska hljómsveitin Dokken er að gefa út nýja plötu, sú heitir Beast fram the East og innihaldið er að sjálfsögðu grjóthart rokk. Þá eru QuietRiotenn á lifi og plata er á leiðinni. Að lokum er vert að minnast á sólóplötu eins besta hljómborðsleikara þungarokksins, Don Airey, sem m.a. var í Rainbow. Platan hans heitir Tales of triumpf and tragedy. Þá er þetta nokkurn veginn búið en það verður framhald síðar. Þið bíðið bara. m&k David Lee Roth gaf út plötuná,, Skyscraper ekki alls fyrir löngu. Sú plata er nú að koma út aftur, í breyttri mynd.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.