Dagur - 16.12.1988, Blaðsíða 6

Dagur - 16.12.1988, Blaðsíða 6
T - PSUOAG - 886 S iðdmeesb .8Í’ 6 - DAGUR - 16. desember A'RTOOTCTWWW VWJk’ * VKwrv* Lifani orð „Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. “ Matt. 6,10. Guð hefir opinberað vilja sinn á margvíslegan hátt, en fyrst og fremst í Heilagri ritn- ingu. Þar höfum við fullgildan mælikvarða á vilja hans. í Biblíunni er að finna þá viljayf- irlýsingu, sem Guð hefir gefið okkur mönnunum. Líf Jesú sýnir vilja Guðs í framkvæmd. í orðum hans og verkum, sjáum við hann fram- kvæma vilja Guðs. Hann sagði: „Minn matur er að gjöra vilja þess, sem sendi mig og fullkomna hans verk.“ Jóh. 4,34. Okkar vilji stangast oft á við vilja Guðs. Við höfum sterkan og eigingjarnan vilja. Samt höfum viö frjálsan vilja að velja og hafna. Það gerir ábyrgð mannsins mikla. En best er, þegar vilji Guðs fær að ráða. Hann veit fyrirfram hvaö er best; þess vegna þurf- um við að biðja í einlægni „verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni“. Á himni ræður hinn algóði vilji Guös og allt lýtur stjórn alvisku hans. Það er vilji Guðs, að allir menn eignist trúna. Að allir megi komast til „þekkingar á sannleikanum". 1. Tím. 2,4. Að menn gjöri iðrun, og læri að hlýða háleitum boðorðum hans. Það er köllun sérhvers kristins manns, að leitast við að framfylgja vilja Guðs hér á jörðu. Frá örófi alda, hefir gróflega verið brotið gegn vilja Guðs. En allt frá því að mannkynið féll í synd, vegna óhlýðni gegn Guði; hefir hann verið áð opna mönnunum hjálpræðisleið. Kærleiksríkur vilji Guðs birtist í Kristi og hjálpræðisverki hans. „Ef einhver er í Kristi, er hann skapaður á ný, hið gamla varð að engu, sjá, nýtt er orðið til.“ 2. Kor. 5,17. Að lokum vil ég setja hér þaö sem Páll postuli segir um vilja Guös: „Hegðið yður eigi eftir öld þessari, heldur takið háttaskipti með endurnýjung hugarfarsins, svo að þér fáið að reyna, hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna." Róm. 12,2. HEILRÆÐI Verkstjórar - verkamenn Notkun íýAlma við hvers Itonar störf hefur komiö 1 veg fyrir hina alvarlegustu höfuðáverka. Þvi er notkun þeirra qálfaögð. Ýdalir í Aðaldal: Frumsýmng á óperunni Amalognæturgestírnir Frumsýning á óperunni Amal og næturgestirnir eftir Gian Carlo Menotti verður að Ýdölum í Aðaldal laugardagskvöld kl. 21.00. Önnur sýning verður á sunnudag kl. 15.00 og þriðja og síðasta sýning fyrir jól verður mánudaginn 19. des. kl. 21.00. Óperuna flytja nemendur við Hafralækjarskóla og foreldrar þeirra, alls um 60 manns. Tónlist- arstjórar eru Robert og Juliet Faulkner en leikstjórar María Kristjánsdóttir og Sigurður Hall- marsson. Titilhlutverkið munu Valur Klemensson og Þórarinn Baldursson syngja til skiptis en aðrir einsöngvarar eru: Margrét Bóasdóttir, Baldur Kristjánsson, Baldur Baldvinsson, Baldvin Kr. Baldvinsson og Gunnlaugur Árnason. IM Bjöm Steinar spilar í Akureyrarklrkju Björn Steinar Sólbergsson organ- isti við Akureyrarkirkju heldur tónleika í Akureyrarkirkju næst- komandi sunnudagskvöld kl. 20.30. Á tónleikunum verða spiluð ýmis verk sem tengjast jólunum á einhvern hátt og má þá nefna verk eftir Bach, Daquin, Franck og Widor. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir í kirkjuna á sunnudagskvöldið að hlýða á tón- leikana. Málverkasýning Amar Inga að Klettagerði 6 Örn Ingi opnaði fyrir skömmu myndlistar- og nytjalistarsýn- ingu í tilefni af opnun sýning- arsalar og vinnustofu að Klettagerði 6 á Akureyri. „Þessi sýning er líka jólagleði fyrir mig og þá sem koma,“ sagði Örn Ingi, en umrædd húsakynni gefa möguleika til margvíslegs námskeiðahalds og annarrar starfsemi sem tengist listum. Örn Ingi sýnir að þessu sinni um 60 verk, aðallega ný olíumál- verk, teikningar, pastelmyndir, skúlptúra, eftirprentanir, kort og nytjalistaverk úr tré. Sýning þessi er sölusýning og verður hún opin fram til jóla, frá klukkan 15.00 til 19.00 alla daga. Örn Ingi hefur margsinnis haldið málverkasýn- ingar og aðrar listasýningar á Akureyri, Reykjavík og víðar um land, bæði einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. EHB „Aukahéraðsfundur“ Skagaflarðarprófastdæmis: Leggst gegn því að Mælifells- prestakafl verði lagt niður - í stað komi aukin samvinna presta á milli Fyrir skömmu var haldinn nokkurs konar auka héraðs- fundur Skagafjarðarprófasts- dæmis á Löngumýri. Á fund- inn mættu prestar, sóknar- nefndarformenn og safnaðar- fulltrúar úr prófastsdæminu, alls um 40 manns. Tilefni fund- arins var frumvarpið sem sam- þykkt var á síðasta kirkjuþingi um skipan prestakálla og próf- astsdæma. Þar var m.a. lagt til að Mælifellsprestakall yrði iagt niður. Á fundinum var lagst gegn slíkum áformum og í ályktun sem samþykkt var samhljóða, segir m.a.: „Telur fundurinn að ýmis athyglisverð nýmæli sé að finna í frumvarpinu er til heilla horfi. Sérstaklega fagnar fundurinn ákvörðun um endurreisn hinna fornu biskupsstóla með föstu aðsetri vígslubiskupanna á Hól- um og í Skálholti um leið og starfssvið þeirra verði aukið. Fundurinn fagnar þeirri þróun, að prófastsdæmin verði í auknum mæli sérstakar starfsheildir og viðurkennir ákveðna þörf á breytingum bæði vegna búsetu- breytinga og vegna þess að prófastsdæmið leggur til hluta af prestsembætti til embættis vígslu- biskups Hólastiftis. Þar sem mannfjöldaspár gera ekki ráð fyrir að fólki fækki í Skagafjarðarprófastsdæmi mót- mælir fundurinn því að presta- köllum fækki eða núverandi prestssetur verði lögð niður, en prestum í fámennum prestaköll- um verði falin ákveðin viðbótar- störf í prófastsdæminu. Bendir fundurinn á að aukaþjónustu er • þörf í Hólaprestakalli vegna auk- inna starfa vígslubiskups. Þá er eðlilegt að aukin þjónusta komi til í Sauðárkróksprestakalli.“ Á fundinum kynnti sr. Hjálm- ar Jónsson prófastur þá hugmynd að skipta prófastsdæminu í tvær starfsheildir, vestan og austan Héraðsvatna. Vestan Héraðs- vatnanna yrði það þannig að sóknarprestur Mælifellspresta- kalls sinnti aðstoðarþjónustu í Sauðárkróksprestakalli og sókn- arprestur Glaumbæjarprestakalls tæki þar að sér afleysingaþjón- ustu. Austan vatna yrði létt undir með vígslubiskupi í Hólapresta- kalli með því að sóknarprestur Miklabæjarprestakalls tæki þar að sér aukaþjónustu og sérverk- efni og afleysingaþjónusta kæmi frá sóknarpresti Hofsóspresta- kalls. Með þessu yrði samvinna presta á milli aukin. Auk þess að leggja niður Mæli- fellsprestakall var lagt til í frum- varpinu að koma á embætti farprests, sem staðsettur yrði á Sauðárkróki, og myndi einnig aðstoða vígslubiskup Hólastiftis. Einnig var gert ráð fyrir að sá farprestur innti störf af hendi í Húnaþingi. Samþykkt fundarins var send kirkjuráði og mun það taka hana til umræðu, svo og allar aðrar ályktanir sem því berast. Frum- varpsdrögin verða líklega tekin fyrir á Alþingi á næstunni. Ljóst er að mikil andstaða er gegn því í Skagafjarðarprófastsdæmi að leggja Mælifellsprestakall niður og að sögn kunnugra er það eina leiðin til að bjarga því, að auka samvinnu presta á milli og sam- hæfa störf prestakallana í próf- astsdæminu. -bjb

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.