Dagur - 16.12.1988, Blaðsíða 8

Dagur - 16.12.1988, Blaðsíða 8
HAGKAUP Akureyri 8 - DAGUR - 16. desember 1988 ty a o f? <*> ♦> ^ .i ,-v v í Fhigmannatal er komið út í bókinni er auk flugmannatals, saga F.Í.A. og myndir úr flugsögu íslendinga. Bókin fæst í Bókabúð Eddu, Akureyrí. Jólin nálgast! Á laugardag eftir'kl. 16.00 koma eldhressir jólasveinar í heimsókn til okkar. Verið velkomin. Þórólfur Sveinsson: Opið bréf til Útvarpsráðs Útvarpshúsið að Efstalciti 1 í Reykjavík. í sjónvarpsþættinum „Maður vik- unnar“ sem var á dagskrá Ríkis- sjónvarpsins laugardagskvöldið 3. desember 1988, var nokkuð fjallað um hugsanlega gróður- eyðingu af völdum beitar, eink- um sauðfjárbeitar. Þegar sauðféð bar á góma var brugðið upp myndum af jarðýtu að urða kjötskrokka eða af sauð- kind við rofabarð. Myndir þessar hafa sést áður í Sjónvarpinu, en notkun þeirra umrætt kvöld virt- ist hafa þann tilgang að lýsa sauð- kindinni sem allsherjar gróður- níðingi, nánast moldarætu, og sauðfjárrækt sem fáránlegri starf- semi er endaði í því að fram- leiðslan væri urðuð með jarðýtu. Hvað fyrra atriðið varðar eru skiptar skoðanir um þátt beitar í gróðureyðingu. Ljóst er þó að hann er nokkur og einnig hitt að ofbeit lands er á sama hátt og smáfiskadráp og ránýrkja á fiski- miðum, óverjandi í okkar menn- ingarsamfélagi. Jafnframt er augljóst að mestur hluti kinda- kjötsins er framleiddur á hóflega beittu landi þar sem engin hætta er á uppblæstri lands. Sauðkindin við rofabarðið er því undantekn- ing - ekki regla. Um kjötið á sorphaugunum er það að segja að sumarið 1987 var 112 tonnum af gömlu kindakjöti fleygt á haugana. Sama ár var innanlandsneysla kindakjöts 9.060 tonn sem var 54% af allri kjötneyslu íslendinga það ár. Víst var það óviðeigandi að fleygja kjötinu á haugana með þessum hætti en það sem fór var gölluð vara, aðeins 1,2% af innanlandsneyslu og því mynd- ræn lygi að sýna það sem einu afdrif kjötsins. Öllum geta orðið á mistök, slíkt verður oft fréttaefni. Ljóst er að stundarmistök annarra stétta sem fengu mikla umfjöllun í fréttum þegar þau gerðust, hafa verið fyrirgefin og eru ekki talin einkenna stéttina. Þannig hefur handleggsbrotinn maður ekki orðið einkennismerki lögregl- unnar, þjóðkirkjunni var fyrir- gefin óreiða hjá Hjálparstofnun- inni, læknastéttin nýtur almennr- ar virðingar og tiltrúar þrátt fyrir að þar hafi orðið mistök og vænt- anlega verður flaskan ekki gerð að merki Hæstaréttar, svo mætti áfram telja. í sama hátt þurfa sauðfjár- bændur að njóta sannmælis og urhfjöllun um starfsgrein þeirra að byggjast á staðreyndum. Stundarmistök eins og ofbeit og haugakjöt eiga ekki að vera stimpill á því fólki sem hefur atvinnu sína af framleiðslu sauð- fjárafurða. Með hliðsjón af framansögðu er þess óskað að allir hópar þjóð- félagsins njóti sömu mannrétt- inda þegar um mál þeirra er fjallað. Haldi Ríkissjónvarpið áfram á sömu braut og umrætt laugar- dagskvöld er athugandi að nafni þáttarins verði breytt í „Lastar- inn“ með hliðsjón af vísunni þar sem segir: Lastaranum ei líkar neitt lætur hann ganga róginn. Finni hann laufblað fölnað eitt fordæmir hann skóginn. Þórólfur Sveinsson, varaformaður Stéttarsambands bænda. 100AV200. "ærö 50,17 rr.A.590.- Svef S\33KKan\e Dýnur Svampdýnur í kojur kr. 2.590.- Springdýnur í miklu úrvali Verð allt frá kr. 5.900.- Handklæði Venjuleg 10 stk. kr. 990 Baðhandkiæði 5 stk. kr. 990.- Óseyrí 4 • Akureyri • Sími96-26662

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.