Dagur - 16.12.1988, Side 18
Gl' - RUiDACl - aiíer igdfnaeeb .ar
18 - DAGUR - 16. desember 1988
• •
SfltPSSiP *
. , ,, i ,'' , ’
TT
handa þér, ef þú híttír
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki
vanta í þetta sinn!
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
Slys gera ekki^3>-
■ $t r m r m Okum eins og menni
boo a undan ser! ««-
Að draga úr áfengisneyslu
- er besta og fljótvirkasta framkvæmdin í heilbrigðismálum
segir í ályktun Landssambandsins gegn áfengisbölinu
18. þing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu, haldið í
Templarahöll Reykjavíkur 29.
nóv. 1988, beinir þeim tilmæl-
um til stjórnvalda aö taka á
áfengismálum af festu og fram-
fylgja virkri áfengismálastefnu
sem miðar aö því að dregið sé
úr neyslu áfengis.
Á þinginu var samþykkt eftir-
farandi ályktun:
„Aukinni áfengisneyslu fylgir
aukið álag á heilbrigðiskerfið.
Viðurkennd eru tengsl heildar-
neyslu áfengis og þess tjóns sem
af henni hlýst. Þingið bendir á til-
mæli Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar um að dregið
verði úr áfengisneyslu svo að
heilbrigði eflist.
Hve miklu
bætir bjórinn við?
í frumvarpi til fjárlaga 1989 er
áætlað að bjórneysla það ár nemi
6,2 millj. lítra og þar með gert
ráð fyrir því sem margir óttuðust
að bjórinn yki heildarneyslu
áfengis. Ef miðað er við að styrk-
leiki bjórsins sé á bilinu 3-5% af
rúmmáli þýðir þetta magn 19-
33% aukningu á áfengisneyslu á
einu ári og er þá gert ráð fyrir að
neysla á öðru áfengi en bjór
minnki um 3% eins og fram kem-
ur í frumvarpinu. Ekki er tekið
tillit til þess möguleika að neysla
drykkja, s.s. pilsners, minnki.
Þótt hér sé aðeins um tilbúið
fjárhagsdæmi að ræða úr fjár-
málaráðuneytinu er full ástæða til
að taka það alvarlega því að áður
hefur verið bent á að líklega auk-
ist heildarneysla áfengis með til-
komu bjórsins þótt sumir áköf-
ustu talsmenn hans hafi haldið
hinu gagnstæða fram.
Hærra verð
Til að freista þess að sporna gegn
því að neysla aukist vegna bjórs-
ins þarf að endurskoða verðlagn-
ingu áfengis. Á síðustu árum hef-
ur verið á áfengi ekki hækkað í
samræmi við ýmsar neysluvörur
og skemmri tíma tekur að vinna
fyrir áfengi en áður. Verð á
áfengi þarf því að hækka veru-
lega frá því sem nú er til þess að
hindra að almenn áfengisneysla
aukist vegna bjórsins.
Auglýsingabann
Auglýsingar á vöru ýta undir og
hvetja til neyslu. Hið sama gildir
um auglýsingar á áfengi. Fram-
fylgja þarf af alvöru gildandi
auglýsingabanni á áfengi og láta
það einnig ná yfir vörumerki
þannig að sé á markaði áfengi
undir tilteknu vörumerki verði
óheimilt að auglýsa aðra vöru
undir sama merki, s.s. drykki
með minna vínandamagn en
2,25% af rúmmáli.
Hagsmunir
Gæta verður að því að einstakl-
ingar og fyrirtæki hafi sem
minnstra hagsmuna að gæta við
framleiðslu, sölu og dreifingu
áfengis. Fái markaðs- og gróðaöfl
að leika lausum hala í áfengis-
málum verður allt varnarstarf
erfitt því að þá verður við fjár-
hagslegt ofurefli að etja.“
Formaður Landssambandsins,
Páll V. Daníelsson, baðst undan
endurkjöri en hann hafði gegnt
því starfi í rúma tvo áratugi. For-
maður var einróma kosinn Helgi
Seljan fyrrv. alþingismaður.
Gestur þingsins og aðalræðu-
maður var Ólafur Ragnar Gríms-
son fjármálaráðherra. Hann
ræddi um breytt viðhorf í áfengis-
málum víða um heim en þau
rniða yfirleitt að því að draga úr
áfengisneyslu.
Kjörmarkaður KEA Hrísalundi 5
Þá erum við komin í jólaskap
Hjá okkur fáið þið
jóíamatinn í ár
T.d. Aliönd, kalkún, hamborgarhrygg, bajoneskinku,
svínakamb og reykt grísalæri.
Þetta er aðeins lítið brot af því
sem við bjóðum upp á fyrir jólin.
KomiÖ og kynniö
ykkur úrvaiiö
hjá okkur.
Við veitum faglegar ráðleggingar um jólasteikina í ár.
\/
ATH!
Nýtt kortatímabil.
W
Velkomin
s
I
Hrísalund
VISA
Hrísalundur