Dagur - 17.12.1988, Síða 13
17. desember 1988 - DAGUR - 13
poppsíðon
Ij Umsjón: Valur Sæmundsson.
Phil Collins 2. hluti:
Tmmmarí og leikarí en verður
hann einhvem tíma söngvari?
Góöan daginn kæri lesandi og vel-
kominn á fætur. Eins og flestum
mun vera kunnugt er laugardagur-
inn 17. desember 1988 dagurinn í
dag og er það vel aö margra mati en
miður aö sumra mati. (fyrrtalda
flokkinn koma þeir sem hafa unun
af því að fara í bæinn og versla í ró
og næöi langt, langt fram eftir
kvöldi. í hinn flokkinn má svo setja
þá sem þurfa aö standa hinum
megin viö búðarborðið jafnlangt
fram eftir kveldi. Menn skiptast þá
sumsé í tvo hópa hvaö þetta varðar
(og jafnvel fleiri, ég er ekki alveg
nógu kunnugur þessu en allar
ábendingar eru vel þegnar) sem í
sjálfu sér kemur efni þessarar grein-
ar lítið við nema síður væri.
Það er hins vegar meiningin að
halda áfram framhaldssögunni um
trommuleikarann, söngvarann,
lagasmiðinn og leikarann Phil Coll-
ins en í síðasta kafla skildum við við
kappann þar sem hann var orðinn
tólf vetra að aldri og lamdi húðir í
sífellu. En um það leyti hófst einnig
leikferill hans sem segja má að hafi
náð hámarki eða sé að ná hámarki
um þessar mundir með hlutverkinu í
Buster. En Phil byrjaði reyndar á
sviði, þegar hann lék eitt aðalhlut-
verkið í Oliver Twist. Hann sagði
fyrir nokkrum árum að þetta beina
samband við áhorfendur sem ein-
ungis næst á sviði, hafi orðið þess
valdandi að hann valdi trommuleik-
inn fram yfir kvikmyndir eða
Þarna er Phil með skegg. Myndin er tekin í hljóðveri því sem Phil hefur á heimili sínu í Surrey héraði í Englandi.
plötur í umræddum mánuði. En
enginn vildi bóka hljómsveitina á
tónleika, svo að smám saman leyst-
ist hún upp. í septembermánuði
1970 svaraði Phil svo auglýsingu
frá Genesis, ásamt fjöldamörgum
öðrum raunar. Fimmtán voru
prófaðir og Phil var ráðinn. Á þess-
um tíma var Genesis ekki ýkja
þekkt hljómsveit en það átti aldeilis
eftir að breytast á næstu árum.
Hljómsveitin hafði gefið út tvær til-
raunakenndar plötur áður en Colins
og gítarleikarinn Steve Hackett
komu til liðs við sveitina. Þá fór sól
sveitarinnar að rísa og náði hámarki
árið 1975 með útkomu plötunnar
The Lamb lies down on Broadway.
Seinna sama ár yfirgaf Peter
Gabriel hljómsveitina, en auk þess
að vera söngvari og textahöfundur
hennar, var hann og andlit hennar
út á við. Hver átti að taka við af
honum? Meira en 300 söngvarar
voru prófaðir en hver var svo
ráðinn? Svar við því fæst í næstu
viku.
sjónvarp. En það er aldrei að vita
nema að það breytist eitthvað eftir
hina rómuðu frammistöðu hans í
Buster.
Svo vikið sé aftur að tónlistarferlin-
um, þá var Phil meðlimur i ótal ungl-
ingahljómsveitum þegar hann var
táningur. Sú þekktasta er sennilega
Flaming Youth sem hann var í áður
en hann gekk til liðs við Genesis.
Flaming Youth gerði a.m.k. eina
afar velheppnaða plötu, sem meðal
annars var kosin besta plata mán-
aðarins í Melody Maker en þess má
geta að m.a. Led Zeppelin, Frank
Zappa og Janis Joplin sendu frá sér
Hljómsveitin Genesis um það leyti sem meistaraverkið Lamb lies down on Broadway var í smíðum. Frá vinstri: Phil
Collins, Mike Rutherford, Tony Banks, Steve Hackett og Peter Gabriel.
Svanasöngur
draumsins
Svarthvítur draumur hefur undan-
farin ár verið ein allra fremsta rokk-
sveit íslendinga. Þess vegna er það
afar sorglegt að sveitin skuli vera
hætt starfsemi. Að vísu hefur aðal-
sþrauta (ef ég má nota það orð)
draumsins, Gunnar Hjálmarsson,
sett á fót nýja hljómsveit sem heitir
Bless. Út er einnig nýkomin, síðasta
plata draumsins og hún heitir líka
Bless. Skemmtileg tilviljun, og ég
vona bara að tónlist Bless verði
eitthvað í líkingu við tónlistina á
Bless, vegna þess að þessi síðasta
plata S.H. draums er alveg kynngi-
mögnuð. Því miður er hún einungis
fjögurra laga og eru allar tón- og
textasmíðar eftir Gunnar Hjálmars-
son og er alveg óhætt að segja að
honum hafi tekist vel upp. Lögin eru
öllsömul afar sterk, þó finnst mér
bragurinn um Græna frostpinna
hvað þekkilegastur.
Þessi plata er að mínu mati ein sú
allra besta sem ég hef eyrum barið
það sem af er þessu ári og nokkrum
þar á undan. Ég var að vísu ekkert
hrifinn af fyrstu plötu draumsins,
Bensínskrímslið skríður, en hljóm-
sveitin hefur svo sannarlega tekið
framförum. Þess vegna finnst
mér afar mikilll missir að S.H.
draumi þó að hinsta kveðjan sé
nokkur sárabót.
Sæti Vinsældalistar Hljóðbylgjan - vikuna 10/12-17/12 1988 Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (5) Harder I try Brother Beyond
2. (2.) (4) Wild wild west Escape Club
3. (7.) (3) Never trust a stranger Kim Wilde
4. (8.) (2) Þig bara þig Sálin hans Jóns
5. (13.) (5) He ain’t no competition Brother Beyond
6, (N) (1) Geta pabbar ekki grátið? Síðan skein sól
7. (16.) (2) Handle with care .. Traveling Wilburys
8. (21.) (2) Frostrós Greifarnir
9. (12.) (2) Gott Eyjólfur Kristjánsson
10. (10.) (2) Hólmfríður Júlíusdóttir Rás 2 - vikuna 9/12-16/12 1988 Nýdönsk
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (2.) (7) Handle with care ... Traveling Wilburys
2. (1.) (7) I’m gonna be (500 miles) The Proclaimers
3. (7.) (6) Two hearts Phil Collins
4. (3.) (12) De smukke unge mennesker Kim Larsen
5. (11.) (3) Þig bara þig Sálin hans Jóns míns
6. (4.) (6) Það er svo undarlegt með unga menn Bitlavinafélagið
7. (21.) (2) Gott Eyjólfur Kristjánsson
8. (6.) (8) Wildwildwest Escape Club
9. (25.) (2) Hólmfríður Júliusdóttir Nýdönsk
10. (19.) (3) Froðan Geiri Sæm & Hunangstunglið íslenski listinn - vikuna 10/12-16/12 1988
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (8.) (3) Þig bara þig Sálin hans Jóns míns
2. (2.) (5) Two hearts Phil Collins
3. (1.) (8) I'm gonna be 500 miles Proclaimers
4. (4.) (7) Wild, wild west Escape Club
5. (3.) (12) Kokomo Beach Boys
6. (7.) (4) Gott . Eyjólfur Kristjánsson
7. (5.) (6) Það er svo undarlegt Bítlavinafélagið
8. (12.) (2) Frostrós Greifarnir
9. (6.) (7) Girl you know its true Millie Vanillie
10. (17.) (4) Froðan Geiri Sæm og Hunangstunglið Óvinsældalisti Ólundar - vikuna 18. des. 1988
Sæt Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (8.) (4) Handel viþ ker Traveling Vilbörís
2. (4.) (6) Ver didd æ gó vrong Júbí fortí
3. (10.) (2) Tú harts Fii Kollins
4. (12.) (5) Æm gona bí Ðí Prókleimers
5. (1-) (5) Kókómó Ðe bíts bojs
6. (21.) (2) Frosthrós Greivardnir
7. (N) (1) Last Kristmas Vamm
8. (7.) (4) Með vottorð í leikfimi Bjartmar
9. 08.) (3) Æ dónt vont jor lof Djúran
10. (11.) (9) Dónt vörrí bí happí Bobbí Makkferrinn
k