Dagur - 17.12.1988, Blaðsíða 5

Dagur - 17.12.1988, Blaðsíða 5
17. desember 1988 - DAGUR - 5 þessu tímabili. Rösklega 2000 munu vera á lífi hérlendis en um 60 búa erlendis. 24. júní 1989 verður haldið upp á aldarafmælið á Hvanneyri með veglegri hátíð á skólastaðn- um. Skipaður var í júní sl. 6 manna undirbúningshópur fyrir hátíðahaldið og 20. ágúst sl. hitt- ust rúmlega 60 fyrrverandi nemendur úr flestum árgöngum skólans. Ákveðið var að efna til fjársöfnunar meðal nemenda og velunnara skólans til að færa Hvanneyrarskóla sundlaug að gjöf á 100 ára afmælinu. Undirbúningshópurinn leitar hér með eftir stuðningi við að hafa uppi á gömlum Hvanneyr- ingum til að gefa þeim kost á að vera með í fjársöfnun og koma til afmælishaldsins. Send hafa verið bréf eins víða og unnt er sam- kvæmt nemendaskrám. Hins veg- ar er ljóst að ýmsir verða útund- Tímaritið Útvörður komið út Út er komið 2. tölublað tíma- ritsins „Útvörður“, sem gefið er út af Samtökum um jafnrétti milli landshluta. I blaðinu er fjöldi greina um landsbyggðarmál í víðustu merk- ingu, enda berjast samtökin fyrir jafnvægi í byggð landsins. Meðal greinarhöfunda má nefna Jó- hönnu Sigurðardóttur, félags- málaráðherra, 'sem skrifar um eflingu sveitarfélaga og verka- skiptingu ríkisins og þeirra, Bjarni Einarsson, aðstoðarfor- stjóri Byggðastofnunar, ritar grein um orsakir byggðavandans og afleiðingarnar af áframhald- andi byggðaröskun, Málmfríður Sigurðardóttir, alþingismaður, ræðir atvinnumöguleika kvenna í dreifbýli, Einar Oddur Kristjáns- son, útgerðarmaður, skrifar um stöðu atvinnuveganna og pólit- íska stjórnun þeirra á síðustu árum og Áskell Einarsson, fram- kvæmdastjóri Fjórðungssam- bands Norðlendinga, skrifar um þjóðfélagslegt hlutskipti byggða- stefnu á íslandi. Pá er í Útverði viðtal við Steingrím J. Sigfússon, landbún- aðar- og samgönguráðherra, þar sem hann lýsir skoðunum sínum á þeim málaflokkum báðum og setur fram hugmyndir að vinnu- brögðum og stefnum í ýmsum málum, sem undir hann heyra. Loks má nefna athyglisverðar greinar eftir fólk, sem hefur látið landsbyggðarmál til sín taka við ýmis tækifæri, s.s. Halldór Her- mannsson, ísafirði, Jónu Val- gerði Kristjónsdóttur, Hnífsdal, Sigurð Helgason, Seyðisfirði og Ágústu Þorkelsdóttur, Vopna- firði, svo nokkrir séu nefndir. Bókaflokkur bandaríska metsöluhöfundarlns Jean M. Auel um Börn Jarðar hefur fyrir löngu öðlast frægð og fádæma vinsældir um allan heim. Mammútaþjóðin er þriðja bókin sem kemur út á íslandi. Sögusviðið er sem fyrr Jörðin eins og hún var byggð fyrir 35.000 árum síðan. Söguhetjan Ayla tekst á við lífið sem fuliþroska kona í hörðu samfélagi Mammútaveiðimanna og enn tekst höfundinum einstakiega vel að skapa andrúm fortíðar og glæða forfeður okkar lífl og tilfinningum. Mammútaþjóðin er sjáifstætt framhald bókanna Dalur hestanna og Þjóð bjarnarins mikla. Þar var rakin uppvaxtar- og reynsiusaga Aylu, m.a. hjá Neanderdaismönnum og lesendum veitt óvenju næm og skýr innsýn í þennan horfna heim, sem nánast ekkert hefur verið skrifað um til þessa. Mammútaþjóðin er spennandi framhald þessara stórkostlegu skáldsagna um 100 ára afmæli Hvanneyrarskóla 1989: Leitað að fýrri nemendum og starfsfólki Bændaskólans Um þessar mundir er reynt að hafa uppi á öllum fyrrverandi nemendum, kennurum og öðru starfsfólki Bændaskólans á Hvanneyri í tilefni af 100 ára afmæli skólans á næsta ári. Fyrir tæpri öld, eða árið 1889, hófst skólastarf við Bændaskól- ann á Hvanneyri í Borgarfirði. Starfsemi skólans hefur haft mikla þýðingu fyrir íslenskt sam- félag, því auk bænda hefur fjöldi fólks á öðrum starfsvettvangi hlotið þar skólanám sitt að hluta eða öllu leyti. Um 3000 nemend- ur hafa útskrifast frá skólanum á an með þeim hætti. Sérstaklega eru það þrír hópar sem leitað er að: 1. Fyrrverandi starfsmenn og kennarar, því ekki eru til skrár yfir þá. 2. Aldraðir nemendur sem hafa haft búferlaskipti nýlega. 3. Nemendur sem búa erlendis. Undirbúningshópurinn biður þá að bregðast skjótt við sem geta bent á fyrrverandi Hvann- eyringa í þessum hópum, eða aðra þá sem af einhverjum orsök- um hafa ekki fengið bréf um undirbúning hátíðahaldsins. Söfnun fjár til aldarafmælis- gjafar til Hvanneyrarskóla hefur stofnað bankareikning nr. 960 í Melaútibúi Búnaðarbanka íslands, Reykjavík. Allar nánari upplýsingar veita Gunnar Guð- bjartsson og Gísli Karlsson hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins, sími 91-28288. III Opið hús í Hafnarstræti 90, laugard. 17. desemberfrá kl. 15-18. Akureyringar og nágrannar! Lítið inn og fáið ykkur hressingu. FRAMSÓKNARFÉLAG AKUREYRAR.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.