Dagur - 17.12.1988, Blaðsíða 20

Dagur - 17.12.1988, Blaðsíða 20
Rafgeymar í bílinn, bátinn, vinnuvélina ViÖhaldsfríir Veljiö rétt merki þÓRSHAMAR HF. Við Tryggvabraut ■ Akureyri ■ Sími 22700 Björgvin EA-311 kom til Akureyrar í gær og lagöist aftan við Mánaberg ÓF-42 frá Ólafsfirði en bæði skipin munu liggja við bryggju á Akureyri yfir hátíðarnar. Mynd: gb Útgerðarfélag Dalvíkinga hf.: Verður Björgvin EA-311 gerður að alfrystiskipi? - „menn vilja leita annarra leiða“ segir Valdimar Bragason Jólatré á Akureyri: Gegndarlaus peruþjófnaður Á einni viku hafa á annað hundrað ijósaperur horfið af jólatrjám á Ákureyri og er hér um tilfinnanlegt tjón að ræða. Ekki hafa perurnar verið mölvaðar, eins og stundum hafa verið brögð að, heldur er þeim hrcinlega stol- ið þrátt fyrir aðvaranir um þá hættu sem af þessum Ijósa- perum stafar. Þetta er vægast sagt ljótur leikur og óskiljanlegar hvatir sem liggja að baki hjá þeim sem þessu tjóni valda. Er þar ekki bara átt viö fjárhagslegt tjón því þessi iðja vekur upp ýmsar spurningar varðandi jólaskreyt- ingar á Akureyri og er ekki góð afspurnar. Garðræktin vill hvetja al- menning til að vera á veröi og sýna samstöðu um jólin. Það hljóta að vera vitni að þessum peruþjófnaöi í einhvcrjum til- fellum og er sjálfsagt að menn leggist á eitt til að sporna gegn þessari hvimleiðu óhæfu. SS Þrotabú Sæbliks hf.: Tilboðsfrestur rann út í gær Á hádegi í gær rann út frcstur tii að skila inn tilboðum í eignir þrotabús Sæbliks hf. á Kópaskcri. Örlygur Hnefill Jónsson, bústjóri þrotabús- ins, kvaðst í gær ekki vilja gefa upp hversu mörg tilboð hafi borist í eignirnar. Hann sagðist telja eðlilegt að hlut- aðeigandi aðilar skoðuðu málin áður en tilboðin yrðu kunngerð í fjölmiðlum. „Þeir sitja fyrir,“ sagði Örlygur. Þær eigur þrotabús Sæbliks hf. sem unt ræðir eru í fyrsta lagi rækjuverksmiðja fyrirtækis- ins á Kópaskeri, í öðru lagi verbúð Sæbliks hf. og í þriðja lagi 230 tonna skip, Árni á Bakka ÞH-380. Örlygur Hnefill segir að mönnum hafi verið frjálst að gera tilboð í allar eigur þrota- bús Sæbliks hf. á einu bretti eða hluta þeirra. óþh Loðnuveiðar: Súlan með 800 tonn Ágætt veður var á loðnumið- unum á fimmtudag en í gær var konún bræla og héldu skipin flest í land. Hjá loðnunefnd fengust þær upplýsingar að Súlan EA 300 væri á leið til Krossaness með 800 tonn, en aðeins fjögur skip höfðu tílkynnt um afla í gær- morgun. Skipin verða öll að vera komin í land í heimahöfn 19. desember og mega ekki fara út aftur fyrr en á miðnætti 2. janúar. EHB Komið hefur til tals að gera Björgvin EA-311 á Dalvík út á næsta ári sem alfrystiskip. Valdimar Bragason, útgerðar- stjóri Útgerðarfélags Dalvík- inga hf., segir að menn leiti ailtaf hagkvæmustu leiða í útgerð skipa iélagsins. Einn þeirra möguleika sem nefndir hafi verið sé að þorskur verði flakaður og frystur um borð í Björgvin. „Ekki hefur verið tekin ákvörðun um þetta. Menn vilja leita annarra leiða til þess að halda skipinu áfram á ísfiski,“ segir Valdimar. „Vegna tollalagabreytinga um síðustu áramót var rekstrar- grundvellinum kippt undan plastiðjunni með stjórnvalds- aðgerðum. Síðastliðið vor sáum við að dæmið gekk ekki upp fjárhagslega og þurftum við því að segja upp starfs- mönnum á verndaða vinnu- staðnum. Á þessu ári hefur þeim verið fækkað um tíu,“ sagði Tryggvi Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri Sjálfsbjarg- ar á Akureyri. Tryggvi sagði að viðræður hefðu farið fram við stjórnvöld undanfarna mánuði vegna fram- tíðar Plastiðjunnar. Rætt hefði verið um aðgerðir til að snúa dæminu við, t.d. með endurnýj- un á mótum og öðrum búnaði, aukinni vöruþróun og sölustarf- semi. í framhaldi af þessum við- ræðum hefur sú afstaða verið tek- in að halda rekstrinum ekki áfram nema að fullvissa fengist fyrir því að hann væri tryggður og jafnframt að ríkissjóður tæki þátt í þeim hallarekstri sem varð á Sem stendur er búnaður um borð í skipinu til heilfrystingar á karfa og grálúðu. Til að unnt sé að frysta þorsk og aðrar botnfisk- tegundir um borð þarf að festa kaup á ýmiss konar vélabúnaði, þ. á m. flökunarvél. Valdimar áætlar að þessar vélar muni kosta á bilinu 10-15 milljónir króna. Upphaflega var gert ráð fyrir að Björgvin yrði á heilfrystingu og ísfiski, annað hvort til skiptis eða samtímis. Vegna lágs verðs á karfa undanfarið þykir ekki góð- ur kostur að heilfrysta hann um borð. Valdimar bendir á að ákvörðun um að gera Björgvin út síðasta ári. „Staðan er sú í dag að félags- málaráðuneytið hefur málefni plastiðjunnar til umfjöllunar. Þá verður sótt um framlag til Fram- kvæmdasjóðs fatlaðra vegna nýframkvæmda en Sjálfsbjörg á Akureyri fékk ekkert fé úr sjóðn- um á þessu ári. Málefni plastiðj- unnar eru á tímamótum því „Þaö veröa sömu umhleyping- arnir áfram,“ sagði Guðmund- ur Hafsteinsson veðurfræðing- ur um helgarveðrið á Norður- landi, „og þið eruð sem sé ekki búin að fá jólasnjóinn.“ Gert var ráð fyrir að í dag hlýnaði og færi að rigna. Á morg- un snýst í vestanátt, e.t.v. nokk- uð hvassa og éljagang vestan til. Á mánudag kólnar aftur með sem alfrystitogara snerti bæjar- félagið í heild. Ekki megi gleyma því að skipið hafi aflað hráefnis fyrir fiskvinnsluna á Dalvík og haldið þannig uppi atvinnu. Síð- an megi ekki gleyma margfeldis- áhrifum af vinnslu afla í landi. Ætla má að ársverðmæti frystra afurða Björgvins, miðað við frystingu þorsks um borð, yrðu á bilinu 200-250 milljónir króna. Á næsta ári eru afborganir og vaxtagreiðslur af Björgvin áætlaðar upp á um 30 milljónir króna, miðað við núverandi verðlag og vaxtastig. óþh Sjálfsbjörg treystir sér ekki til að reka þennan verndaða vinnustað að óbreyttu ástandi,“ sagði Tryggvi. I lögum um málefni fatlaðra segir að ríkinu sé skylt að greiða niður halla sem verður vegna rekstrar verndaðra vinnustaða. Að sögn Tryggva Sveinbjörns- sonar eru vonir bundnar við að fé norðanátt og á þriðjudag hlýnar á ný. „Þetta er eilífur hringlandi,“ sagði Guðmundur. Hann sagði hitastigið verða upp og niður sitt hvorum megin við frostmarkið. Hjá Vegaeftirlitinu fengust þær upplýsingar að allir vegir væru færir, en eins og veðurspáin gefur til kynna, borgar sig að kynna sér færð á vegum áður en lagt er af stað í langferðir. VG Loðnubræðslur á Þórshöfn og Raufarhöfn: Unnið á vöktum allan sólarhringinn Mikið er um að vera hjá loðnu- bræðslunum á Raufarhöfn og Þórshöfn og er unnið á vöktum allan sólarhringinn á báðum stöðunum. Á Raufarhöfn hef- ur nú verið tekið á móti 25 þús- und tonnum af loðnu en 14.500 tonnum á Þórshöfn frá því í október. Árni Sörensson, verksmiðju- stjóri hjá SR á Raufarhöfn, sagði að afkastageta verksmiðjunhar væri um 800 tonn af hráefni á dag. Keflvíkingur, Höfrungur, Svanur, Harpa, Dagfari, Guð- mundur Ólafur og Erling eru meðal þeirra skipa sem oftast hafa landað hjá verksmiðjunni. „Verksmiðjan hefur aldrei verið eins afkastamikil og núna, við tókum í notkun ný soðkjarnatæki sem breyttu miklu. Þróarrými verksmiðjunnar er um tíú þúsund tonn, hérna vinna 22 menn á tví- skiptum vöktum en 35 starfs- menn eru hér á launaskrá,“ sagði Árni Sörensson. „Þetta gengur vel hjá okkur,“ sagði Hilmar Þór Hilmarsson hjá loðnubræðslunni á Þórshöfn. Verksmiðjan hefur tekið á móti 14500 tonnum af loðnu frá upp- hafi vertíðarinnar. Björg Jóns- dóttir frá Húsavík hefur landað mestu af afla sínum á Þórshöfn, einnig hafa Þórshamar, Gullberg og Víkurberg landað miklu á Þórshöfn. Afkastageta verksmiðj- unnar á Þórshöfn er 500 til 550 tonn af fiskeldisfóðri á sólar- hring, þróarrými er 2700 tonn. „Við viljum fá ferskt hráefni, helst annan hvern dag, því við eru að framleiða gæðamjöl fyrir fiskeldismarkaðinn," sagði Hilmar. EHB fáist úr Framkvæmdasjóði fatl- aðra. Mótakaup fyrir plastiðjuna eru dýr fjárfesting en um leið nauðsynleg andlitslyfting á fram- leiðslunni. Þó er fyrirsjáanlegt að sú fjárfesting mun ekki auka söluna það mikið að hún standi undir stofnkostnaði að öllu leyti og verður því að sækja um styrk vegna kaupanna. EHB Plastiðjan Bjarg á Akureyri: Tíu starfsmöunum sagt upp á árínu Helgarveðrið: „Eilífiir hringlandi“ - segir Guðmundur Hafsteinsson

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.