Dagur


Dagur - 04.01.1989, Qupperneq 1

Dagur - 04.01.1989, Qupperneq 1
72. árgangur Akureyri, miðvikudagur 4. janúar 1989 2. tölublað Filman þin á skiliö þaö besta! w Hrað- framköllun Nýja Filmuhúsið Hafnarstræti 106 Sími 27422 • Pósthólf 196 Opiö á laugardögum frá kl. 9-12. Páll Bergþórsson spáir í veðrið 1989: „Hafíss getur orðið vart í tvo mánuði“ - spáir hitastigi svipuðu og var á síðasta ári „Síðasta ár var almennt á land- inu í kaldara lagi sé miðað við hlýindaár á öldinni. Hins vegar held ég að segja megi að á landinu öllu hafi verið nær sami meðalhiti eins og frá upp- hafi mælinga í Stykkishóími sem byrjuðu 1846 og að því lcytinu til hafí það verið meðalár,“ segir Páll Bergþórs- son veðurfræðingur á Veður- stofu íslands um nýliðið ár. Páll spáir að hafíss geti orðið vart hér við land í allt að tvo mánuði á þessu ári. Hann segir að vissulega geti sá tími sem íss verður vart við landið orðið styttri en sýnilega verði hann ekki lengri en tveir mánuðir. Pessa hafísspá sína byggir Páll meðal annars á hitastigi við Jan Mayen á haustmánuðum. „Það er alls ekki hægt að búast við aftakaísári. En líklega verður hér heldur meiri ís en við höfum almennt séð og jafnframt þessu verður kuldi í sjónum sem er bending um að næsta árið verði hiti sjávar við landið heldur í lægra lagi. Sjávarhitinn ræður aftur á móti nokkru um hitastigið á landinu og því á ég von á að hitastigið á árinu í heild verði líkt og var á síðasta ári, jafnvel lítið eitt lægra,“ segir Páll. JÓH Á ellefta tímanum í fyrrakvöld komu tvær Fokker vélar Flugleiða til Ákureyrar, en er leið að flugtaki var Ijóst að Reykjavíkurflugvöllur var lokaður vegna snjókomu. Vélarnar urðu að hafa næturdvöl á Akureyrarflugvelli. Þessi mynd er tekin í gærmorgun en þá hafði þriðja vélin bæst í hópinn en hún hafði nýlega lent á Ak. á leið suður. Mynd: GB Raufarhöfn: Aflaverðmæti Rauðanúps ÞH 101 milljón - heildaraíli 3.100 tonn Togarinn Rauðinúpur ÞH-160, sem Jökull hf. á Raufarhöfn gerir út, veiddi tæplega 3.100 tonn á síðasta ári og var verð- mæti aflans í kringum 101 milljón króna, að sögn Hólm- steins Björnssonar fram- kvæmdastjóra. Hólmsteinn sagði að þessi afli væri í fullu samræmi við það sem kvótinn hefði gefið tilefni til, en Rauðinúpur var á sóknarmarki á síðasta ári. Hólmsteinn kvaðst bærilega ánægður með útgerðina á árinu, miðað við aðstæður, sem ekki voru hliðhollar sjávarútveg- inum. SS Fjármálaráðherra segir eftir 4% gengisfellingu í gær: Hagræðing í útflutningsgreinum áfram lykilþáttur að árangri í efiiahagsmálum - frekari efnahagsaðgerða að vænta á næstu dögum Ríkisstjórnin heimilaði Seðla- bankanum í gær að lækka gengi krónunnar um 4% frá því gengið var síðast skráð. Forsætisráðherra segir gengis- fellingu nú tilkomna vegna óróleika á gjaldeyrismörkuðum að undanförnu og vísar í því sambandi til falls dollarans um síðustu helgi. Hann segir að með gengisfellingunni verði lagfærð skekkja á gengi sem orðið hafi frá því stjórnin tók við í september og eftir gengis- fellinguna standi útflutnings- greinarnar í svipaðri stöðu og þær voru á þeim tíma. Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, segir að sú gengisfelling sem gerð var í haust hafi leitt til raunverulegrar geng- islækkunar án þess að koma fram Norðurlandsumdæmi eystra: Fræðslustjórastaðan verður auglýst laus til umsóknar Ákveðið hefur verið að aug- lýsa stöðu fræðslustjóra Norðurlandsumdæmis eystra lausa til umsóknar. Að sögn Guðrúnar Ágústsdóttur, aðstoðarmanns menntamála- ráðherra, hefur ekki verið tek- in ákvörðun um hvenær aug- Atvinnutryggingarsj óður: UndimeM skoðar umsókn ólfirsku fiystihúsanna Gunnar Hilmarsson, formaður stjórnar Atvinnutryggingar- sjóðs, segir að sameiginleg umsókn frystihúsanna í Olafs- firði verði að öllum líkindum rædd á stjórnarfundi þann 10. eða 11. janúar næstkomandi. Að undanförnu hefur svoköll- uð undirnefnd, sem yfirfer allar umsóknir um fyrirgreiðslu úr Atvinnutryggingarsjóði, kannað ýmis atriði er lúta að frystihúsun- um í Ólafsfirði. Gunnar segir að áður en til endanlegrar afgreiðslu sjóðsins komi þurfi að liggja fyrir allar niðurstöður úr athugun undirnefndar. í henni eiga m.a. sæti fulltrúar Fiskveiðisjóðs, Landsbanka íslands og Byggða- stofnunar en hugsanleg samein- ingin frystihúsanna snertir allar þessar þrjár stofnanir með einum eða öðrum hætti. óþh lýsingin verður birt. Hún taldi þó líklegt að það yrði gert innan tíðar. Við það er miðað að Sigurður Hallmarsson gegni starfi fræðslu- stjóra til loka maí 1989 en eins og kunnugt er hefur hann gegnt því starfi um skeið. Guðrún Ágústsdóttir segir að menn telji eðlilegast að nýr fræðslustjóri taki við þegar skóla lýkur í vor. Undir það tekur Þrá- inn Þórisson, formaður fræðslu- ráðs Norðurlandsumdæmis eystra. Hann segir fræðsluráð hafa á fundi sínum síðari hluta desem- bermánaðar ákveðið að mæla með því við menntamálaráðherra að auglýsa stöðu fræðslustjóra. Sú niðurstaða hafi verið kynnt ráðherra bréflega. „Ég vonast til að Sigurður gegni stöðu fræðslu- stjóra þar til annar maður hefur verið settur í stöðuna,“ sagði Þráinn. óþh í verðlagi. Hann segir að svipuð leið sé farin nú og geti hún skilað lireytingu á raungengi án þess að skila sér að fullu út í verðlagið. Aðgerðir til hagsbóta verslun- inni, s.s. samræming á uppgjörs- dögum söluskatts og greiðslu- korta og ný heimild til innflytj- enda til að notfæra sér greiðslu- fresti erlendis, eigi að gera hana betur í stakk búna að taka á sig hluta gengisbreytingarinnar. „Við höfðum þann möguleika að fara stóra gengisfellingarkoll- steypuleið eins og sumir hafa óskað eftir. í stað þess var haldið áfram á sömu braut og við leggj- um ríka áherslu á að hagræðing og skipulagsbreytingar í útflutn- ingsgreinunum verði lykilþáttur til að ná árangri í efnahagsmál- um. Þannig á þessi aðgerð að stuðla áfram að áframhaldandi skipulagsbreytingum og stöðug- leika í atvinnulífinu," segir Ólaf- ur Ragnar. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, segir að vissu- lega hafi gengisfellingin áhrif á slæma skuldastöðu margra fyrir- tækja. „Við erum nú með aðgerðir sem breyta þessari skuldastöðu, þ.e. atvinnutrygg- ingasjóðurinn, og ennfremur erum við með víðtækari aðgerðir í skoðun sem ætlað er að bæta skuldastöðu fyrirtækja,“ segir Steingrímur. Jaframt heimild til lækkunar gengis var Seðlabankanum veitt heimild til að skrá daglegt gengi krónunnar innan marka sem eru 1,25% upp eða niður frá hinu ákveðna meðalgengi. Þessu svig- rúmi er ætlað að jafna sveiflur á raungengi krónunnar vegna óvæntra beytinga á gengi helstu gjaldmiðla. JÓH Ráðgj afadeild félagsmálastofnunar: Uggur í mörgum en ekki bein neyð Þrátt fyrir krepputal, uppsagn- ir og samdrátt aö undanförnu hefur beiðnum um fjárhagsaö- stoð til Félagsmálastofnunar á Akureyri ekki fjölgað að ráði. „Það hefur áður verið meiri sveifla en var í ár. í jólamánuðin- um er alltaf aukning, en við höf- um gjarnan þurft að fá aukafjár- veitingu sem við þurftum ekki núna,“ sagði Jón Björnsson félagsmálastjóri í samtali við Dag. „Það er þó ekki endilega mælikvarði á ástandið, en okkur gekk a.m.k. betur að áætla nú en áður.“ Guðrún Sigurðardóttir á ráð- gjafadeild sagðist sömuleiðis ekki finna merkjanlegan mun. „Hjá okkur hefur a.m.k. ekki komið fram bein neyð, en við finnum hins vegar fyrir ótta hjá fólki. Sumir hafa uppsagnir yfir höfð- inu og vita af samdrætti hjá fyrir- tækjum auk alls krepputalsins svo það er uggur í mörgum, sér- staklega þar sem ekkert má útaf bera,“ sagði hún. VG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.