Dagur - 04.01.1989, Blaðsíða 6
6\“ -RAftUB - % j^nú^r ,1989
Þrír Yölsungar voru heiðraðir með silfurmerki félagsins. Guðrún Ingólfsdóttir, Sigríður Helgadóttir og Védís Bjarna-
dóttir ásamt Sigurgeir Aðalgeirssyni formanni Völsungs.
Jólaskemmtun ÍFV:
íþróttamaður Húsavíkur og
Völsungur ársins heiðraðir
Iþróttafélagið Völsungur hélt
jólaskemmtun í íþróttahöll-
inni á Húsavík sl. miðviku-
dagskvöld. Nokkur hundruð
börn og unglingar mættu á
skemmtunina og þó nokkuð
margt fullorðið fólk. Fleiri
hefðu þó alveg mátt láta sjá sig
á áhorfendapöllunum og mátt
koma til að fylgjast með dag-
skránni. Það var ánægjuleg
kvöldstund sem Húsvíkingar
áttu í íþróttahöllinni og ekki
spillti glæsileg flugeldasýning
Kiwanismanna fyrir, en þeir
skutu upp blysum, sólum og
stjörnum af skólalóðinni, að
lokinni skemmtun í húsinu.
Ungt fólk sýndi fimleika á
skemmtuninni og komu þar frarn
nokkrir mjög efnilegir einstakl-
ingar, var þeim klappaö lof í lófa.
Að lokinni fimleikasýningu barn-
anna voru nokkrir foreldrar kall-
aöir upp og beðnir að leika sömu
listir á slá og dýnu og börnin
höfðu gert. Sýndu sumir þeirra
stórkostleg tilþrif við æfingarnar,
við geysilegan fögnuð áhorfenda.
Jóhannes Sigurjónsson, rit-
stjóri Víkurblaðsins, flutti íþrótta-
annál ársins sem varð bráðsmell-
inn pistill við meðhöndlun
höfundar. Samkomugestir sættu
sig endanlega við að Völsungar
hefðu fallið niður í aðra deild í
knattspynunni, þegar Jóhannes
gat barið það inn í hausinn á
þeim að þetta hefði verið von þar
sem svo margir leikmanna fyrstu-
deildarliðsins hefðu verið að
sunnan.
Sigurgeir Aðalgeirsson, for-
maður Völsungs lýsti kjöri
íþróttamanns Húsavíkur 1988.
Fyrir valinu varð Jónas Óskars-
son sundkappi. Sagði Sigurgeir
að Jónas væri vel að þessum
heiðri kominn og hefði sýnt það
Bjartmar Guðlaugsson kunni svo sannarlega lagið sem unga fólkið kunni að
meta.
og sannað með frábærum árangri
á Olympíuleikum fatlaðra í Seoul.
Þar náði hann öðru sæti í 100 m
baksundi og setti tvö íslandsmet,
í 400 m skriðsundi og 400 m fjór-
sundi. Hann hefði áður unnið til
verðlauna á Olympíuleikum fatl-
aðra og átt heimsmet í 100 m
baksundi. Þetta er í annað sinn
sem Jónas er útnefndur íþrótta-
maður Húsavíkur. Hann var ekki
viðstaddur til að taka við vegleg-
um farandbikar sem fylgir þessari
vegsemd, Lovísa Skarphéðins-
dóttir, eiginkona Jónasar fæddi
honum son kvöldið áður og þar
sem fjölskyldan býr í Reykjavík
var Jónas staddur þar til að bjóða
soninn velkominn í heiminn.
Foreldrar Jónasar, Alda Guð-
mundsdóttir og Óskar Guð-
mundsson tóku við bikarnum fyr-
ir hans hönd.
Völsungur ársins var valinn
íþróttamaður Húsavíkur 1988 heiðraður, foreldrar Jónasar, Alda Guð-
mundsdóttir og Óskar Guðmundsson, taka við bikarnum fyrir hans hönd.
Myndir: IM
Alda og Óskar, stoltir foreldrar Jónasar sundkappa, íþróttamanns Húsavík-
ur 1988.
Og svo vildu foreldrarnir líka fá að sýna færni sína.
Bjarnadóttir. „Völsungur þakkar
þeim fyrir góð störf og stuðning í
þágu félagsins,“ sagði Sigurgeir
m.a. við afhendinguna.
Nú ruddust jólasveinar í salinn
og sýndu mikil tilþrif í fótbolta-
leik við hóp fólks í skíðagöllum.
Leikur grunur á að dómari leiks-
ins hafi aldrei heyrt baun í bala
um reglur í innanhússknattspymu.
Að jólasveinaleiknum loknum
fengu áhorfendur að sjá alvöru-
handbolta hjá ungum Völsung-
um.
Þegar Ingólfur Freysson til-
kynnti komu Bjartmars Guð-
laugssonar á sviðið brutust út
mikil fagnaðarlæti. Allir sem
voru yngri en sex ára fengu að
koma og setjast við fætur uppá-
haldssöngvarans síns og þarna
var greinilega kominn maður
unga fólksins með lögin sem unga
fólkið vildi heyra, stemmningin
var meiriháttar. Og að söng
Bjartmars loknum varð stemmn-
ingin baksviðs eins og í gamalli
amerískri Prestleymynd, þegar
fjöldi af ungum húsvískum döm-
um flykktist að til að fá eigin-
handaráritun söngvarans. IM
Ungar dömur sýndu fimleika.
öðru sinni, hlýtur hann farand-
bikar sem íþróttasamband
íslands gaf til minningar um
Hallmar Frey Bjarnason, fyrrver-
andi formann Völsungs. Bikarinn
er veittur Völsungi á aldrinum
15-18 ára fyrir framúrskarandi
félagsstarf og ástundun í íþrótt-
um. Það var Róbert R. Skarp-
héðinsson sem hlaut bikarinn að
þessu sinni og afhenti Sigurgeir
hann.
Þrír Völsungar voru heiðraðir
með silfurmerki félagsins. Það
voru Guðrún Ingólfsdóttir, Sig-
ríður Helgadóttir og Védís