Dagur


Dagur - 04.01.1989, Qupperneq 4

Dagur - 04.01.1989, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 4. janúar 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 70 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDIS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Fækkum umferðarslysum! Nýliðið ár var mannskætt í umferðinni. Alls létust 33 íslendingar í umferðarslysum árið 1988 og eru það mun hærri tala en árið áður en þá létust 26 íslendingar í umferðarslysum. Þessi aukning er verulegt áhyggjuefni. Þótt bílum hafi fjölgað nokk- uð hér á landi frá árinu 1987 er ekki nema að litlu leyti hægt að rekja aukinn fjölda umferðarslysa til vaxandi umferðarþunga. Eftir sem áður eru orsakir flestra alvarlegustu umferðarslysanna of hraður akstur miðað við aðstæður, óaðgætni og tillitsleysi ökumanna og síðast en ekki síst ölvunarakstur. Það liggur því í augum uppi að hægt væri að fækka umferðarslysum hér á landi til mikilla muna með bættri umferðarmenningu. Það er hins vegar fátt sem bendir til þess að öku- menn hafi almennt strengt þess heit um áramótin að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að nýja árið verði þeim farsælt í umferðinni. Þegar hefur eitt banaslys orðið og mikið er um árekstra. Þá er það umhugsunarvert að á nýársdag voru hvorki fleiri né færri en 40 manns á landinu teknir fyrir meinta ölvun við akstur. Sú staðreynd að akstur og áfengi eiga enga samleið virðist ekki ljós miklum fjölda ökumanna og því brýnt að gripið verði til enn markvissari aðgerða en áður til að koma í veg fyrir ölvunarakstur. Þetta er enn brýnna með tilliti til þess að sala áfengs öl er heimil hér á landi frá 1. mars n.k. en reynsla nágrannaþjóðanna hefur sýnt að bjórneysla ýtir undir ölvunarakstur. Auka þarf áróður gegn ölvunarakstri og enn fremur verður lögregla að herða almennt eftirlit til mikilla muna. Þótt slíkt átak kunni að kosta talsvert fjármagn má fullyrða að það feli í sér sparnað fyrir þjóðina þegar allt kemur til alls. Dagur skýrði frá því í gær að sá einstæði atburð- ur hefði átt sér stað á Akureyri aðfaranótt gamlárs- dags að ekið var á gangandi vegfaranda á gang- braut og stungið af frá slysstað. Bílstjórinn stöðv- aði ekki einu sinni bílinn til að huga að hinum slas- aða heldur hélt leiðar sinnar eins og ekkert hefði í skorist. Sem betur fer er atvik þetta nánast eins- dæmi í sögu umferðarslysa í bænum, en nokkur hliðstæð tilvik hafa átt sér stað á höfuðborgar- svæðinu undanfarin ár. Þær fréttir sem borist hafa af umferðinni hér á landi á fyrstu dögum hins nýja árs, gefa ótvírætt til kynna að mikilvirkra aðgerða sé þörf til úrbóta. Það er alls ekkert lögmál að 20-40 manns láti lífið í umferðinni árlega, þótt það hafi gerst allan síðasta áratug. Það er á okkar valdi, allra vegfarenda í landinu, að minnka slysatíðnina í umferðinni til mikilla muna. Það er verðugt viðfangsefni á nýju ári - og auðvelt ef allir leggjast á eitt. BB. \ DAGS-ljósinu Sigurður G. Ringsted tók við forstjórastarfinu hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri um áramótin. Sigurður þekkir vel til hjá Slippstöðinni því þar hefur hann unnið í þrettán ár, eða frá árinu 1975. í tilefni af þessum tímamótum ræddi blaðamaður við hann um nýja starfið, fyrir- tækið og framtíð þess. V Framtíðarstefiia er nauðsynleg fyrir innlendan skipasmíðaiðnað - segir Sigurður G. Ringsted forstjóri Slippstöðvarinnar hf. Sigurður sinnti almennum verkfræðistörfum hjá Slippstöð- inni til að byrja með en fór síðan út í sérhæfðari störf. Hann var t.d. verkefnisstjóri við fram- kvæmdir Slippstöðvarinnar hjá Kröfluvirkjun 1976-78. „Við unnum mikið starf þarna við röra- og pípulagnir og ýmislegt fleira. Arið 1980 tók ég við starfi yfirverkfræðings og var í því starfi til síðustu áramóta. Pað er ekki auðvelt að lýsa því nákvæmlega hvað felst í forstjóra- starfinu. Pað felst m.a. í því að sjá um daglegan rekstur, afla verkefna sem henta fyrirtækinu, vinna að framtíðarmálum og aðlaga reksturinn að aðstæðum hverju sinni. Slippstöðin hefur einnig ákveðið forystuhlutverk í skipasmíðum og þjónustu við útgerðina sem lang stærsta fyrir- tækið sinnar tegundar á landinu og hefur þar af leiðandi talsverð áhrif á framtíð þess iðnaðar hér- lendis," sagði Sigurður, þegar hann var spurður um eðli starfsins. Voru ekki spurðir um verð - Mikið hefur verið rætt um sam- keppnisaðstöðu íslensks skipa- smíðaiðnaðar og margir útgerð- armenn hafa sagt að þeir hefðu ekki ráð á að láta smíða skip hérlendis vegna kostnaðar. Nýjasta dæmið er samningur Samherja hf. við skipasmíðastöð á Spáni um nýjan togara sem þeir hafa hug á að láta smíða. „Það er staðreynd að skipa- smíðaiðnaðurinn er niðurgreidd- ur víða um heim, t.d. í Noregi, Svíþjóð, Spáni, Portúgal, Frakk- landi og víðar, og við slíkar nið- urgreiðslur getur Slippstöðin ekki keppt. Hins vegar vorum við ekki inni í myndinni þegar Sam- herji var að leita tilboða í smíð- ina og forsvarsmenn þess fyrir- tækis vita því ekki hvað smíðin hefði kostað hjá okkur. Ég er fullviss um að verðmunurinn er minni en þeir telja. Við erum alltaf að smíða eitt og eitt skip í einu og aldrei tvö eins. Það næst því ekki sama hagkvæmnin hjá okkur og skipasmíðastöðvum erlendis sem smíða kannski fimm til tíu eins skip. Síðan bera menn saman okkar verð og verð á erlendum raðsmíðaskipum sem auk þess eru niðurgreidd. Auk þess getur verið gæða- munur á skipum eftir fram- leiðslulöndum. Ég er auðvitað ekki hlutlaus þegar ég ræði þessi mál en þó tel ég að það hafi stundum háð okkur hversu mikið við höfum vandað til smíði skip- anna gegnum árin. Pau verða óneitanlega dýrari fyrir vikið. Það er álit fleiri aðila að hér séu smíðuð skip í hæsta gæðaflokki." Á móti beinum ríkis- styrkjum til skipaiðnaðar - Finnst þér koma til greina að hið opinbera beiti sér fyrir ein- hverjum aðgerðum til að bæta samkeppnisaðstöðu íslensks skipasmíðaiðnaðar, t.d. með því að styrkja iðnaðinn með fjár- framlögum eða niðurgreiðslu? „Ég hef sagt það áður að mér finnast beinir ríkisstyrkir ekki vera af hinu góða í þessu efni. Ég hef líka sagt áður að útgerðar- menn eigi að láta smíða skipin þar sem það er hagstæðast. Það er ekki hægt að ætlast til að útgerðin greiði þann verðmismun sem er á milli innlendrar og erlendrar framleiðslu, vegna niðurgreiðslna. Það er mál iðnað- arins sjálfs og stjórnvalda að skapa þau skilyrði að það verði hagstætt að láta smíða skip á íslandi. Þessu má m.a. ná með markvissri stefnumörkun fyrir þennan iðnað þannig að hægt sé að vinna að hagræðingu og skipu- lagningu fyrirtækjanna í sam- ræmi við framtíðarstefnu og fá þannig fram lækkun framleiðslu- kostnaðar. Mér finnst að oft hafi ekki verið horft nægilega mikið til framtíðar að þessu leyti.“ - Hvað er að frétta af nýsmíða- verkefnum hér? „Við skiluðum síðasta skipinu í mars 1987. Nú er verið að vinna við skip sem er langt komið í skemmunni, það er annað tveggja skipa sem við höfum leyfi til að smíða. Stærð þess er svipuð og Oddeyrarinnar EA, 250 til 260 rúmlestir. Ég er bjartsýnn á að geta selt þessi skip því verðið er sambærilegt við nýsmíðaverð skipa sem hingað til lands hafa komið á undanförnum mánuð- um.“ - Hafa útgerðarmenn þá almennt ekki leitað tilboða hjá ykkur eða kynnt sér verð á ný- smíði innlendra skipa? „Ég get fullyrt að enginn þeirra aðila sem hafa verið að kaupa ný skip erlendis frá, bæði hingað á Eyjafjarðarsvæðið og víðar, hafa talað við okkur um verð eða annað. Það ríkir auðvitað ákveð- in óánægja með þetta hér í fyrir- tækinu." Framtíðarhlutverk Slippstöðvarinnar Á árunum fyrir 1975 var rað- smíðaverkefni í gangi hérna sem gafst mjög vel, þetta voru 105 til 150 t bátar. Þetta sýndi okkur að raðsm.íði minnkar kostnað veru- lega. Síðan þetta var hefur engin raðsmíði verið í gangi hér nema ef vera skyldu þessi tvö skip sem við smíðuðum á fimm árum en það var ekki eiginleg raðsmíði heldur kom þetta til af verkefna- leysi og var alls ekki hagkvæmt. Kanadatogararnir fimm, sem breytt var hérna, sýndu einnig fram á hagkvæmni raðsmíða því frá 1. til 5. skips lækkuðu vinnu- stundir um 30%. í sambandi við þetta vil ég segja að það er mat okkar að jafnvel þótt allar innlendar skipa- smíðastöðvar væru stanslaust í nýsmíði þá tækist þeim ekki að halda í við eðlilega endurnýjun fiskiskipastólsins þegar litið er til langs tíma.“ - Hvernig sérð þú hlutverk Slippstöðvarinnar í framtíðinni? „Á næstu árum er fyrirsjáan- legt að nýsmíðar verða í lágmarki og því verður þjónustuhlutverk stöðvarinnar við útgerðina meira áberandi. Þeir munu koma með skip til viðhalds og endurbóta eins og verið hefur. Varðandi hlutverk fyrirtækisins almennt þá er það einn af stærstu vinnu- stöðunum á Akureyri og gegnir mikilvægu hlutverki í bæjarlífinu sem slíkur. Það væri slæmt, að mínu mati, ef samdráttur yrði meiri en orðið er. Starfsmönn- um hefur fækkað úr liðlega 300 manns niður í 200 á fimm árum. Það er hægt að reka Slipp- stöðina á minni mannskap, kannski 100 til 150 manns, en æskileg og hagkvæm stærð er ekki innan við 250 manns.“ Við látum þessu spjalli við Sigurð G. Ringsted lokið og ósk- um honum heilla í nýju starfi á nýbyrjuðu ári. EHB Nafn: Sigurður Gísli Ringsted. Fæddur: 1. mars 1949 Starf: Forstjóri Slippstöðvar- innar hf. Menntun: Stúdent frá M.A. 1969, fyrri hluta próf í verk- fræði frá Háskóla íslands árið 1972, próf í skipaverkfræði frá Danmarks Tekniske Höjskole í Kaupmannahöfn árið 1975. Foreldrar: Sigurður Ringsted, fyrrv. bankaútibússtjóri Iðnað- arbankans á Akureyri og Hulda Haraldsdóttir. Maki: Sigrún Skarphéðinsdótt- ir, dóttir Skarphéðins Halldórs- sonar sparisjóðsstjóra og konu hans Kristínar Sigurbjörnsdótt- ur. Börn: Hulda Sigríður, f. 1967, og Sigurður Jóhann, f. 1978. Áhugamál: Golf og stangveiði.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.