Dagur - 17.03.1989, Blaðsíða 1

Dagur - 17.03.1989, Blaðsíða 1
Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMKNR SiGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Eldsvoði á Siglufirði: Tveir bræður misstu öll sín veiðarfæri Áætlað er að tjón vegna eldsvoðans í verbúð við Hólgötu 9 á Siglufirði nenii um 700 þúsund krónum. Grásleppu- og þorsknet bræðranna Olafs og Péturs Guðmundssona urðu m.a. eldinum að bráð. Mynd: á.h. Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra, um skipamálin á Þórshöfn: Ber að leita leiða til að fá ísfisktogara í stað Stakfells - „væri skynsamleg aðgerð,“ segir Daníel Árnason, sveitarstjóri Verbúð og netageymsla í eigu tveggja bræðra á Siglufirði brann um klukkan 20.00 á miðvikudagskvöld. Talið er að tjónið nemi ekki undir 700 þúsund krónum en nálega öll grásleppu- og þorskanet bræðranna urðu eldinum að bráð. Bræðurnir Ólafur og Pétur Guðmundssynir gera út trilluna Farsæl SI en hún er átta tonn. Þeir eiga einnig verbúðina sem Fræðsluráð: Mælir með Trausta Fræðsluráð Norðurlandsum- dæmis eystra mælir með Trausta Þorsteinssyni, skóla- stjóra á Dalvík í stöðu fræðslu- stjóra umdæmisins. Þetta var niðurstaða fundar fræðsluráðs í vikunni og hefur hún verið send Svavari Gestssyni, mennta- málaráðherra, sem mun veita stöðuna. Svavar sagði í samtali við Dag að hann myndi taka ákvörðun um stöðuveitinguna einhvern næstu daga. Trausti Porsteinsson var einn fimm umsækjenda um stöðu fræðslustjóra. Tveir óskuðu nafn- leyndar en hinir tveir umsækj- endurnir voru Páll Bergsson, yfirkennari í Glerárskóla á Akur- eyri og Pórður Gunnar Valdimars- son, uppeldisfræðingur í Reykja- vík. Sigurður Hallmarsson hefur gegnt starfi fræðslustjóra Norðurlandsumdæmis eystra frá 1. september 1987 en nýr fræðslustjóri mun taka við stjórn- artaumunum þann 1. júní nk. óþh stendur við Hólagötu 9. Ólafur sagði í samtali við blaðamann að þeir bræður væru alveg gáttaðir á þessum eldsvoða. Hölluðust menn einna helst að því að elds- upptök mætti rekja til rafmagns. Frystiklefi í húsnæðinu skemmdist lítillega af völdum hita þegar hluti einangrunar á honum bráðnaði. Mesta tjónið varð þó á húsnæðinu og veiðar- færunum. Heita má að bræðurnir séu alveg veiðarfæralausir eftir að hafa misst 125 grásieppunet og 30 þorskanet, og er það auðvitað bagalegt í upphafi grásleppuver- tíðar. Slökkvistarf tók nokkra stund vegna þess að erfiðlega gekk að slökkva í netahrúgunum. Mikinn reyk lagði af brunastað og safn- aðist mannfjöldi saman til að fylgjast með slökkvistarfinu. EHB Guömundur Bjarnason, heil- brigðisráðherra og 1. þingmað- ur Norðurlandskjördæmis eystra, telur að í Ijósi þeirrar stöðu sem upp er komin í at- vinnumálum á Þórshöfn, beri að skoða þann möguleika gaumgæfilega að selja Stakfell, frystiskip Útgerðarfélags Norður-Þingeyinga, og kaupa í staöinn ísfisktogara til hráefn- isöflunar fyrir Hraðfrystistöð Þórshafnar. „Ég tel að reyna verði til þrautar að ná samkomulagi við Útgerðarfélag Norður-Þingeyinga um hvort Hraðfrystistöð Þórs- hafnar og Þórshafnarhreppur geti með einhverju móti komið frekar inn í það fyrirtæki og í framhaldi af því ber að leita leiða til að skipta út Stakfellinu fyrir ís- fisktogara. Petta væri í raun svip- að dæmi og á Sauðárkróki. Ég tek fram að á þessu stigi vil ég ekki spá fyrir um hvort þetta er raunhæfur möguleiki en ég tel tvímælalaust að menn verði að skoða hann mjög gaumgæfilega," segir Guðmundur. Hann bætir því við að hann óttist mjög að ÚNP verði um megn að gera út Stakfellið með áhvílandi skulda- byrði. Sá möguleiki sem Guðmundur nefnir hér hefur áður verið nefndur. Meðal annars var hann ræddur á fundi 6 þingmanna Norðurlandskjördæmis eystra með stjórnarmönnum ÚNÞ, sveitarstjóra Þórshafnarhrepps og fulltrúum Hraðfrystistöðvar Pórshafnar fyrr í vikunni. Heil- brigðisráðherra segir að þing- menn kjördæmisins séu vissulega fúsir til að styðja við öll skynsam- leg áform heimamanna um úr- lausn á þeim vanda sem við er að etja í atvinnumálum á Pórshöfn. „Við erum að sjálfsögðu fúsir, eftir því sem við getum, til að hafa jákvæð áhrif á málið og leggja því lið.“ Daníel Árnason, sveitarstjóri Þórshafnarhrepps, segist geta tekið undir hugmyndir Guð- mundar Bjarnasonar um að selja Stakfellið og fá í staðinn ísfisk- skip. „Ég tel þetta geta verið skynsamlega aðgerð og beri að skoða hana vel. Það er reyndar langt síðan ég byrjaði að nefna þennan möguleika," sagði Daní- el. óþh Könnun Neytendasamtakanna á hakki og farsi: Kjötfars hjá KEA dæmt ósöluhæft - hakk í öllum tilfellum í lagi á Akureyri Samkvæmt niðurstöðum könnunar Neytcndasamtak- anna á gerlum í kjöthakki og -farsi, er kjötfars frá KEA ósöluhæft en söluhæft hjá Hagkaupi og Matvörumark- aðnum. Kjöthakk reyndist í öllum tilfellum í lagi. Alls voru 32 sýni í verslunum á landinu könnuð og reyndust 75% sýna af hakki söluhæf og 18% ósöluhæf. Þá reyndust 53% sýna af kjötfarsi söiuhæf og 31% ósöluhæf. Könnunin var framkvæmd þannig að keypt voru sýni í verslununum og þau send til gerlarannsóknar hjá Hollustu- vernd ríkisins. Mat samkvæmt gerlaíjölda við 30 gráður var að kjötfarsið reyndist fullnægjandi hjá Hagkaupi og Matvörumark- aðnum en ófullnægjandi í Hrísalundi og Höfðahlíð. Sömu niðurstöður voru varðandi kólí- gerlafjölda en samkvæmt kulda- kærum gerlum voru Hagkaup og Matvörumarkaðurinn á ný fullnægjandi, gallað hjá Höfða- hlíð og ófulinægjandi í Hrísa- lundi. Hagkaup og Matvöru- markaðurinn voru á ný full- nægjandi varðandi mat á saur- kólígerlum en KEA Hrísalundi og Höfðahlíö fengu niðurstöð- una gallað. Heildarniðurstöður voru þær að kjötfars frá KEA- verslununum Hrísalundi og Höfðahlíð reyndist ósöluhæft en söluhæft í Hagkaupi og Mat- vörumarkaðnum. Nákvæmlega sömu þættir voru rannsakaðir í nautahakki frá sömu aðilum og að ofan greinir. Par voru niðurstöður hins vegar á allt aðra leið því nautahakkið reyndist í öllum tiifellum standast kröfur, vera fullnægjandi og því söluhæft. Stefán Vilhjálmsson mat- vælafræðingur hjá Kjötiðnaðar- stöð KEA segir þá að sjálfsögðu ekki ánægða meö niðurstöðu könnunarinnar, en að þeir eigi enn eftir að sjá nákvæmari niðurstöður varðandi gerla- fjöldann. „Kjötfars er nijög við- kvæm vara og gerlafjöldi ræðst af því hvernig farið er mcð hrá- efnið, en mikilvægast er að halda kælingu cins órofinni og hægt er. Við vitum að sýnataka fór fram rétt fyrir lokun og fars- ið var rannsakað daginn eftir. Teljum við að kröfurnar sem gerðar eru gætu hafa staðist ef rannsóknin hefði verið fram- kvæmd á lögunardegi.“ Segir hann að hjá KEA sé kjötfars lagaö að morgni og selt þann dag og að morgni þess næsta, icn ekki lengur. Víða erlendis eru þær kröfur geröar til kjötfars að ekki sé eingöngu nægjanlegt að dagstimpla umbúðir, farið er fram á að þær séu klukkustimpl- aðar. Stefán segir að í gegnum tíð- ina hafi niðurstöður úr rann- sóknum á kjötfarsi verið breyti- legar hjá framleiðendum og að oft hafi verið erfiðleikum háð að halda gerlafjölda innan marka. Hann sagði jafnframt, að þó gerlafjöldinn fari yfir umrædd mörk, sé ekki mikil hætta á matareitrun þar sem farsið sé hrátt og eigi eftir að matreiðast með hitun. VG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.