Dagur - 17.03.1989, Blaðsíða 3
Föstudagur 17. mars 1989 - DAGUR - 3
Svanbjörn Sigurðsson rafveitustjóri á Akureyri:
„Refsum ekki viðskiptavinum
okkar fyrir að kynda
hús sín með raforku“
„Við erum ekki að refsa nein-
um fyrir að hafa skipt við
okkur. Við sættum okkur vit-
anlega við ákvarðanir Stjórnar
veitustofnana en það er ekki
rétt að setja þetta þannig fram
að við séum að refsa viðskipta-
vinum okkar sem veitt hafa
okkur tekjur til sð byggja upp
þetta fyrirtæki,“ sagði Svan-
björn Sigurðsson, rafveitu-
stjóri á Akureyri.
Vegna fréttar sem birtist í Degi
9. mars undir fyrirsögninni „Raf-
veita Akureyrar sækir í sig veðrið
- refsitaxtinn Cll tekur gildi 1.
apríl,“ sagði Svanbjörn að það
væri ekki og hefði aldrei verið
stefna R.A. að refsa þeim við-
skiptavinum veitunnar sem hefðu
verið lifibrauð hennar um ára-
tugaskeið. Rafveitan væri því
ekki að sækja í sig veðrið með
því að hækka taxta til þeirra sem
hita hús sín með rafhituðu vatni
eftir 1. apríl.
Hitt væri nær sanni að R.A.
hefði gjarnan viljað halda í við-
skiptavini sína, sem margir hverj-
ir vildu gjarnan halda áfram að
nota rafupphitun.
Vissulega væri um þvingunar-
aðgerð að ræða þegar taxti til
slíkra aðila væri hækkaður um 20
prósent. Sú aðgerð byggðist ekki
á vilja R.A. heldur stæði Stjórn
veitustofnana að baki ákvörðun-
inni til að auka tekjur Hitaveitu
Akureyrar. „Það er ekki rétt að
kalla þetta refsitaxta því varla er
eðlilegt að refsa neinum fyrir að I ræða til að þvinga hóp fólks til að
nota rafmagnsupphitun. Hið skipta um húshitunarform,"
rétta er að hér er um taxta að sagði Svanbjörn. EHB
Nýja sundlaugin við Glerárskóia.
Mynd: TLV
Sundlaugin við Glerárskóla:
Vatni hleypt á innan
skamms til prófunar
Vinna við sundlaugina við
Glerárskóla hefur gengi ágæt-
lega að undanförnu. Hörður
Tulinius hjá Hibýli hf. segir að
fimmtán menn vinni við bygg-
inguna um þessar mundir og
innan skamms verður vatni
hleypt á laugina til að prófa
hana.
Skákþing íslands:
Keppni í áskorenda
flokki á Akureyri
íslandsmótið í áskorendaflokki
í skák verður haldið á Akur-
eyri og hefst keppni laugardag-
inn 18. mars í félagsheimili
Skákfélags Akureyrar. Tveir
efstu menn í áskorendaflokki
tryggja sér rétt til að tefla á
Skákþingi Islands í haust. Mót-
inu lýkur 27. mars.
Páll Hlöðvesson, formaðui
Skákfélags Akureyrar, sagði að
tefldar yrðu 9 umferðir eftir
Monrad kerfi. Keppni hefst yfir-
leitt kl. 14, en kl. 18 á mánudag
og miðvikudag. Biðskákir verða
tefldar á þriðjudag og verði ekki
um neinar biðskákir að ræða fá
keppendur frí. Þá verða biðskák-
ir, ef einhverjar verða, tefldar að
lokinni 9. umferð mánudaginn
27. mars.
Umhugsunartími á hvern
keppanda er 2 klukkustundir á 40
leiki og eftir það 1 klst. á 20 leiki.
Þátttökurétt hafa tveir efstu
menn úr opnum flokki 1988,
unglingameistari íslands 1988,
kvennameistari íslands 1988 og
þeir skákmenn sem náð hafa
1800 ELO-stigum.
Páll sagðist búast við um 30
þátttakendum, en erfitt væri að
segja til um fjölda þeirra því
skráningu lýkur ekki fyrr en
fimm mínútum áður en fyrsta
umferð hefst. Þátttökugjald er
kr. 1000 fyrir 18 ára og eldri, 750
kr. fyrir 15-17 ára og 400 kr. fyrir
14 ára og yngri. SS
Hægt var á framkvæmdum við
sundlaugina samkvæmt óskum
bæjaryfirvalda, að sögn Harðar,
og verður hún afhent fullbúin til
notkunar í september. Húsa-
smiðir eru að setja loftaplötur
neðan í þak hússins þessa dag-
ana. Vinnupallarnir innan í hús-
inu verða teknir niður þegar því
verki lýkur og vatni hleypt á laug-
ina í tilraunaskyni. Að því búnu
verður fari að flísaleggja sund-
laugina en það er allmikið verk.
Pípulagningamenn, blikksmið-
ir, rafvirkjar, trésmiðir, múrarar
og málarar hafa átt annríkt við
sundlaugarbygginguna undanfar-
ið enda að mörgu að hyggja þar
sem sundlaugabyggingar eru að
jafnaði nokkuð snúin verk. EHB
Skafti SK-3
með góðan afla
Togarinn Skafti SK-3 kom til
Sauðárkrókshafnar sl. miðviku-
dagsmorgunn með um 145
tonn af þorski. Skafti fékk
þennan afla á tæpri viku og
hefur gengið vel hjá skipinu
það sem af er árinu, ef frá er
talinn fyrsti túrinn. Að sögn
Sverris Kjartanssonar skip-
stjóra mun Skafti veiða fisk í
frystihúsin á næstunni og fer
ekki ekki í siglingar fyrr en í
haust.
Skafti fékk aflann að þessu
sinni ofarlega í Víkurálnum og á
Látragrunni. „Pað er búin að
vera ágætis veiði núna í mánuð,
bara vonandi að svo haldist
áfram,“ sagði Sverrir í samtali
við Dag. Skafti fer aftur á veiðar
á morgun, laugardag. . -bjb
Keppni í áskorendaflokki á Skákþingi íslands fer fram á Akureyri og hefst
um helgina.
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.