Dagur - 17.03.1989, Blaðsíða 16

Dagur - 17.03.1989, Blaðsíða 16
wmm Akureyri, föstudagur 17. mars 1989 Leikhústilboð Gratineruð humarsúpa, innbakaðar lambalundir með wiskysósu. Kaffi og konfekt. Verð 1.390,- Fjórðungssamband Norðlendinga: Tillögur sambandsins fóru inn í frumvörp Tillögur Fjóröungssambands Norðlendinga varðandi tekju- stofna sveitarféiaga, einkum hvað snertir Jöfnunarsjóð og verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga, hafa að mörgu leyti hlotið hljómgrunn í verka- skiptingarfrumvörpum sem nú liggja fyrir Alþingi. Eitt meg- inatriði tillagnanna er að stofn- kostnaður og rekstur sé á hendi sama aðila innan stjórn- kerfisins, til að hindra aðskiln- að milli stjórnunar og fjár- hagslegrar ábyrgðar. I fréttatilkynningu frá Fjórð- ungssambandi Norðlendinga seg- ir að veigamikil áhrif frá tillögum sambandsins birtist í mörgum þátt- um frumvarpanna. Má benda á sjálfstæðan tekjustofn Jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga í því sam- bandi. Þessi tekjustofn verði óháður tekjustofnum ríkisins og sé varið til tekju- og kostnaðar- jöfnunar milli sveitarfélaga. Lögð er áhersla á að lög um tekju- stofna aðhæfist verkaskipting- unni. Þá má sjá greinileg áhrif til- lagna sveitarstjórnarmanna varð- andi tilfærslu heilsugæslunnar til ríkisins, einnig sérstök framlög úr Jöfnunarsjóði til að efla þjón- ustustig sveitarfélaganna og félagslega þjónustu vegna verk- efnatilfærslunnar. Fjórðungsstjórn mótmælir því fráviki frá fyrri verkefnaskipting- artillögum að hluti stofnkostnað- ar við sjúkrahús, heilsugæslu og framhaldsskóla færist til sveitar- félaganna. Fjórðungsstjórn telur að stofnkostnaður og rekstur eigi að vera á hendi sama aðila sem er meginatriði bættrar verkefna- skiptingar milli ríkis og sveitar- félaga. Hingað til hafa hugmyndir flestra sveitarstjórnarmanna ver- ið á þann veg að með verkaskipt- ingunni fengjust sem gleggst skil milli verkaskiptingar ríkis og sveitarfélaga, þar sem saman færu á einni hendi stjórnun og ábyrgð. EHB Sjá nánar á bls. 5 Þessa hressu nemendur úr Stórutjarnarskóla hitti blaðamaður Dags nú í vikunni í göngutúr með vélritunarkennar- anum Svanfríði Birgisdóttur og börnunum hennar. En vegna þess hversu sólin skein glatt inn um gluggann á kennslustofunni, var ákveðið að leggja ritvélunum og fara þess í stað i gönguferð í blíðunni. Mynd: kk Bæjarstjórinn í Ólafsfirði gagnrýnir seinagang Húsnæðisstofnunar við afgreiðslu umsókna um kaupleiguíbúðir: Áttar sig ekki á því að við búum við norðurhjaraaðstæður Bjarni Kr. Grímsson, bæjar- stjóri í Ólafsfirði, telur að fyrirkomulag á afgreiðslu Húsnæðisstofnunar ríkisins á Snjómokstur á götum Sauðárkróks það sem af er þessu ári: Kostnaður orðinn um hálf önnur milljón - rúmlega tvöfalt meira en á öllu síðasta ári Snjómokstur, það sem af er þessu ári, hefur kostað Sauðár- króksbæ um það bil hálfa aðra Tryggingasjóður fiskeldislána: Fyrstu umsóknir komnar milljón króna, sem er rúmlega tvöfalt meira en kostaði að moka götur bæjarins á öllu síð- asta ári. Þá kostaði snjómokst- ur 662 þúsund krónur. Fyrir fyrstu tvo mánuði þessa árs liggja fyrir reikningar upp á eina milljón króna, en að sögn Snorra Björns Sigurðssonar bæjarstjóra má búast við að ekki séu öll kurl komin til graf- ar þar, þ.e.a.s. að allir reikning- ar fyrir það tímabil séu komnir í hús. fjármagni til byggingar kaup- leiguíbúða mismuni gróflega sveitarfélögum úti á landi og á suðvesturhorninu. Bjarni segir að miðað við núverandi skipan mála fáist ekki afgreiddar umsóknir sveitarfé- laga hér Norðanlands fyrr en síðla sumars eða í haust. Hann segir að það sjái hver heilvita maður að slíkt geti ekki gengið vegna þess einfaldlega að fram- kvæmdatíminn í snjóþungum byggðarlögum á Norðurlandi sé vart nema 3-4 mánuðir á ári, frá júní-september. Á sl. ári fengu Ólafsfirðingar úthlutað 5 kaupleiguíbúðum og afgreiðsla Húsnæðisstofnunar á þeim lá ekki fyrir fyrr en í ágúst sl. sumar. Þetta gerði heima- mönnum mjög erfitt fyrir en að sögn Bjarna björguðust mál þannig að samið var við öflugan verktaka sem réðst í byggingu íbúðanna í miklu snarhasti. Nú liggur fyrir umsókn frá Ólafsfirði um byggingu 8 kaup- leiguíbúða, fimm almennra íbúða og þriggja félagslegra. Bjarni segir engin teikn á lofti um að Húsnæðisstofnun afgreiði umsóknina það tímanlega að hægt verði að hefja framkvæmdir á „kristilegum" tíma f vor. „Kerf- ið verður að átta sig á því að hér á norðurhjara búum við við þær aðstæður að framkvæmdatími við jarðvegsvinnu er frá júní og til með september. Það er alveg sérstakt árferði ef hægt er að vinna slík verk fram í október, að ég tali ekki um nóvember,“ sagði Bjarni. Hann segir að vissulega hafi menn syðra uppi góð orð um breytingar á skipan mála en „það er sama hversu góða meiningu menn hafa um þessi mál, niður- staðan verður alltaf sú að hlutirn- ir dragast á langinn. Ég vek athygli á því að á suðvesturhorn- inu er hægt að byggja á nánast hvaða tíma árs sem er og því kemur seinvirk afgreiðsla Hús- næðisstofnunar ekki eins við sveitarfélög þar,“ segir Bjarni Kr. Grímsson. óþh Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar, svarar Bjarna Kr. Grímssyni: Borgum ekki út lán eftir hentugleika hvers og eins í síðustu viku var sett reglu- gerð um Tryggingasjóð fisk- eldislána en stjórn hans var skipuð í febrúarmánuði síðast- liðnum og er Álfheiður Inga- dóttir formaður hennar. Steingrímur J. Sigfússon, land- búnaðarráðherra, segir að mikil vinna hafi verið lögð í undirbún- ing að starfsemi sjóðsins og hafi væntanlegum umsækjendum ver- ið send umsóknareyðublöð. Landbúnaðarráðherra segir að fyrstu umsóknir séu nú þegar komnar til sjóðsstjórnar. Aðspurður um afgreiðslu á umsóknum segist hann vonast til að fyrstu umsóknir verði afgreiddar innan mjög skamms tífna. JÓH Það sem af er þessum mánuði hefur nokkrum sinnum þurft að moka, þannig að í raun má búast við að snjómokstur stefni í að vera þrefalt dýrari en á síðasta ári fyrir Sauðárkróksbæ. Kostnaður við snjómokstur hefur ekki farið yfir milljón tvö síðustu ár á Sauð- árkróki, sem fyrr segir var hann 662 á síðasta ári og 1987 var hann rúmar 800 þúsund krónur. Á fjárhagsáætlun fyrir þetta ár var gert ráð fyrir rúmri milljón í snjómokstur. Sú áætlun er komin lönd og leið og að sögn Snorra Björns verður sú tala væntanlega hækkuð fyrir síðari umræðu um fjárhagsáætlunina og sett í 2 milljónir. -bjb Vegna orða Bjarna Kr. Grhns- sonar um seinagang Húsnæðis- stofnunar við afgreiðslu fjár- magns til byggingar kaupleigu- íbúða, segir Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Húsnæðisstofnunar, að það sé ekki í valdi stofnunar- innar að afgreiða lán og borga þau út í samræmi við hentug- leika hvers og eins, sveitarfé- laga, einstaklinga eða sjálfs- eignarstofnana. Sigurður bendir á að tekju- streymi til stofnunarinnar sé nokkuð jafnt allt árið og lán séu afgreidd í samræmi við það. Hann segir þó að tekjur séu ívið meiri síðari hluta árs sem aftur þýði að Húsnæðisstofnun eigi auðveldara með að greiða þá út lán. „Það er reglan að lán til byggingar kaupleiguíbúða séu greidd út jafnt og þétt í samræmi við framlagða samþykkta reikn- inga á fyrirfram ákveðnum byggingartíma. En aðilar, eins og bæjarstjórnir, sem hafa gert samninga um framkvæmdalán frá Húsnæðisstofnun, hafa öll tök á að nota sér samningana til efnis- öflunar og sömuleiðis til samn- ingsgerðar við verktaka þó að útborgun samkvæmt þeim sé ekki hafin,“ segir Sigurður. Hann segir að bankar og sparisjóðir hafi alltaf tekið fullt mark á slík- um samningum og gjarnan greitt fyrir því að unnt sé að hefja bygg- ingarframkvæmdir. „Vitanlega gæti banki, hvort sem væri á Akureyri eða Ólafsfirði, samið við bæjarstjórn, eftir að samning- ur við Húsnæðisstofnun hefur verið lagður fram, um að lána 3, 4 eða 5 mánuði fyrirfram. Banka- stofnanir myndu með öðrum orð- um lána út á samninginn til þess að hefja framkvæmdir á komandi sumri og gera húsið þá e.t.v. fokhelt. Síðan fengi bæjarstjórn greitt út frá Húsnæðisstofun að hausti og gerði upp við banka- stofnunina og héldi áfram vinnu við innréttingar hússins. Svona á að mínu viti að standa að málum og hefur raunar margoft verið gert“ segir Sigurður E. Guð- mundsson. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.