Dagur - 17.03.1989, Blaðsíða 15

Dagur - 17.03.1989, Blaðsíða 15
Föstudagur 17. mars 1989 - DAGUF},r 15 1 íþróttir íþróttir helgarinnar: Skíði og vaxtarrækt - á Húsavík og Akureyri Hinn sterki 4. flokkur drengja í Þór í handknattleik keppir í úr- slitum á íslandsmótinu um helg- ina. Keppnin fer fram í Hafnar- firði og eiga norðanpiltarnir góða möguleika á að standa sig vel í þeirri keppni. Bláfjallagangan á skíðum fer fram um helgina fvrir sunnan. Gangan er hluti af íslandsgöng- unni og má búast við að þó nokkrir Norðlendingar bregði sér suður til að taka þátt í Bláfjalla- göngunni. Á Neskaupstað fer fram Visa- bikarmót í alpagreinum 13-14 ára. Stór hópur skíðamanna að norðan fer austur og keppir á þessu móti. Á Dalvík fer fram keppni yngri skíðakrakka frá Dalvík og Ákur- eyri. Skíði og vaxtarrækt er það sem ber hæst í íþróttalífinu um þessa helgi. Á Akureyri er Akureyrarmót í skíðagöngu. Á Húsavík er Visa-bikarmót í alpagreinum 15-16 ára og á Akureyri fer fram B-íslands- mótið í vaxtarrækt. Akureyrarmót í skíðagöngu fer fram á sunnudaginn. Það hefst kl. 14.00 við Skíðastaði og verður keppt í öllum flokkum, allt frá börnum upp í öðlinga- flokk. Keppt verður með hefð- bundinni aðferð. Á Stöllum við Húsavík fer fram Visa-bikarmót fyrir 15-16 ára. Búist er við um 60 keppend- um og þar má m.a. nefna Krist- inn Björnsson frá Ólafsfirði og Maríu Magnúsdóttur frá Akur- eyri. Keppt verður á laugardag og sunnudag og hefst keppnin kl. 10.00 báða dagana. Á Akureyri fer B-íslandsmót- ið í vaxtarrækt fram í Sjallan- um á laugardag kl. 14.00. Búist er við um tuttugu þátttakendum frá Akureyri og Reykjavík. Keppnin er undankeppni fyrir íslandsmótið sem fram fer í Reykjavík í byrjun apríl. KA-menn í blakinu halda suð- ur og keppa við Þrótt í Bikar- keppni BLÍ á laugardag. Þetta er í undanúrslitum og það lið sem vinnur keppir til úrslita við sigur- vegarann í leik HK og ÍS. Á Húsavík verður keppt í flokki 15-16 ára á Visa-bikarmótinu á skíðum. Mynd: TLV Skíðalandsmótið á Siglufirði: Undirbúningur gengur vel segir Kristján Möller mótsstjóri Dagskrá Skíöamóts íslands 1989 (Mótsstjóri áskilur sér rétt til aö breyta dagskrá og tímasetningu.) Miðvikudagur 22. mars: Mótssetning í Siglufjarðarkirkju kl. 20. Fararstjórafundur og útdráttur kl. 20.30. Blak: Kæru ÍS vísað frá - úrskurður dómarans endanlegur Kæru ÍS á hendur KA vegna dómgæslu í leik liðanna í blaki á Akureyri fyrr í vetur hefur verið vísað frá. I úrskurði dómsins segir að úrskurður dómarans sé endanlegur og ekki sé hægt að breyta honum. Reyndar hefur þessi dómur engin áhrif á lokaniðurstöðu deildarkeppninnar því KA var langefst og ekkert annað lið gat náð þeim á stigum. En þetta mál þurfti að fá út úr heiminum og því gott að niðurstaða sé komin, þótt fyrr hefði verið. 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2 Jafnt hjá KA og Þór KA-maðurinn Sigurpáll Vilhjálmsson og Þórsarinn Kristján Torfason skildu jafnir í síðustu viku, báðir með fimm rétta. Þeir mætast því aftur í þessari viku þegar átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar eru leikin. Við fáum að sjá toppleik í sjónvarpinu er Man. Utd. og Nott- ingham Forest mætast á Old Trafford í Manchester á morgun. Bæði liðin eru í efri hluta 1. deildarinnar án þess þó að eiga raunhæfa möguleika á titlinum. Þau leggja því bæði ríka áherslu á að komast áfram í bikarnum þannig að þetta verður hörkuleikur sem við fáum að fylgjast með. Sigurpáll: Liverpool-Brentford 1 Man. Utd.-Nott. For. 1 West Ham-Norwich 2 Coventry-Tottenham x Luton-Sheff. Wed. 1 Middlesbro-Derby x Millwall-Aston Villa 1 Bournemouth-Swindon 1 Bradford-Watford 2 Crystal Palace-Sunderland 1 Man. City-Chelsea x Portsmouth-Stoke 1 Kristján: Liverpool-Brentford 1 Man. Utd.-Nott. For. 1 West Ham-Norwich x Coventry-Tottenham x Luton-Sheff. Wed. 2 Middlesbro-Derby 1 Millwall-Aston Villa 1 Bournemouth-Swindon 2 Bradford-Watford 2 Crystal Palace-Sunderland 1 Man. City-Chelsea x Portsmouth-Stoke 2 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2 Dansleikur að Hótel Höfn kl. 23.-03. Skriðjöklar leika. Aldurstakmark 16 ára. Fimmtudagur 23. mars: Svig kvenna, ff. kl. 10.30, sf. kl. 12.30. Stórsvig karla, ff. kl. 11.00, sf, kl. 13.30. Ganga: Karlar 30 km. H. kl. 14.00. Konur 7,5 km. H. Piltar 15 km. H. Fararstjórafundur kl. 18.00. Megasarkvöld K.S. kl. 21.00 að Hótel Höfn. Föstudagur 24. mars: Ganga-norræn tvík. 10 km. H. kl. 11.00. Stökk kl. 16.00. Fararstjórafundur kl. 18.00. Laugardagur 25. mars: Svig karla, ff. kl. 10.30, sf. kl. 12.30. Stórsvig kvenna, ff. kl. 11.15, sf. kl. 13.15. Ganga: Karlar 15 km. F. kl. 14.00. Konur 5 km. F. Piltar 10 km. F. Fararstjórafundur kl. 18.00. Sunnudagur 26. mars: Samhliðasvig karla kl. 13.00. Samhliðasvig kvenna. Boðganga karla 3x10 km. F. kl. 14.00. Boðganga kvenna 3 x 3,5 km. F. Verðlaunaafhending og mótsslit kl. 20.30. Lokadansleikur að Hótel Höfn kl. 00-04. Gautar leika. Aldurstakmark 16 ára. Borðtennis: Grenivíkurskóli hlutskarpastur - Sigrún og Hólmfríður Islandsmeistarar Nýlega lauk grunnskólamóti í borðtennis á Norðurlandi eystra. Keppt var í fjórum flokkum, tveimur flokkum pilta og tveimur flokkum stúlkna, og sigraði Grenivíkur- skóli í öllum flokkum. Mótið var undankeppni fyrir allt landið og keppa Grenvíking- arnir við sigurvegarana frá hin- um landsfjórðungunum í Reykjavík 7. og 8. apríl. í undankeppninni á Norður- landi eystra kepptu 18 lið frá 9 skólum. Reyndar áttu 28 lið að taka þátt í keppninni, en sökum ófærðar komust ekki allir á keppnisstað. Keppt var í tveimur aldurs- flokkum, 4., 5. og 6. bekkur sam- an og síðan 7., 8., og 9. bekkur. í allt fara sem sagt tuttugu krakkar úr Grenivíkurskóla til að keppa í úrslitunum í Reykjavík í byrjun apríl. En þetta er ekki eina afrek Grenvíkinganna á borðtennis- sviðinu. Nýlega tóku fjórir krakkar þátt í flokkakeppni Borðtennissambands íslands og gerðu þær Sigrún Þorsteinsdóttir og Hólmfríður Björnsdóttir, báð- ar 15 ára ganrlar, sér lítið fyrir og urðu íslandsmeistarar í sínum aldursflokki. Þær kepptu við tvö lið frá Víkingi og tvö lið frá UMSB og sigruöu í öllum viður- eignunum. Stefán Gunnarsson og Axel Eyfjörð frá Grenivík kepptu við 14 önnur lið. Þeir töpuðu aðeins fyr- ir einu þeirra-A-liði Stjörnunnar sem sigraði á mótinu. Strákarnir lentu síðan í 3. sæti þrátt fyrir að sigra A-lið KR sem varð í öðru sæti á mótinu. Handbolti/3. flokkur: Úrslitin á Akureyri - bæði Þór og KA með Bæði KA og Þór hafa tryggt sér sæti I úrslitum í 3. flokki karla og fara úrslitin fram á Akureyri dagana 7., 8. og 9. aprfl. Bæði Þór og KA léku í 2. deildinni á síðasta fjölliðamóti. Þór sigraði og KA lenti í öðru sæti og tryggðu sér þar með sæti í úrslitunum. En lítum þá á úrslit í leikjum Akureyrarliðanna: Þór-UBK 17:17 Þór-Stjarnan 17:18 Þór-Þróttur 27:15 Þór-KR 17:13 Þór-KA 23:20 KA-KR 22:16 KA-Þróttur 24:20 KA-UBK 16:18 KA-Stjarnan 22:20 Lokastaðan: 1. Þór 2. KA 3. UBK 4. Stjarnan 5. Þróttur 6. KR Markahæstu menn Þórsara voru þeir Ásmundur Arnarsson með 37 mörk og Rúnar Sigtryggs- son með 29 mörk. Hjá KA skor- aði Karl M. Karlsson flest mörk eða 37 að tölu. í umfjöllun um yngri flokkana í blaðinu á miðvikudaginn gleymdist að geta þess að 5. flokkur KA komst í úrslit og á því félagið þrjá flokka í úrslitum en ekki tvo, eins og sagt var. Framhaldsskólamót KKÍ: Sauðárkrókur í öðru sætl - tapaði fyrir Flensborg Framhaldsskólamót KKÍ var lialdið á Sauðárkróki um síð- ustu helgi. Aðeins 6 lið skráðu sig til keppni, þar af tvö lið frá Fjölbrautaskólanum á Sauðár- króki, og verður þetta að telj- ast með eindæmum léleg þátt- taka. Auk tveggja liða F.á S. voru lið frá MA, VÍ, Flensborg og Menntaskólanum við Sund. Það er skemmst frá því að segja að Flensborg vann mótið eftir hörku úrslitaleik við a-lið F.á S., 35:29. Liðunum 6 var skipt í tvo riðla og fór mótið fram í íþróttahúsi Sauðárkróks á föstudagskvöld og laugardagsmorgun. Sem fyrr seg- ir voru það Hafnfirðingarnir sem unnu mótið, a-lið Fjölbrautaskól- ans á Sauðárkróki í öðru sæti. í þriðja sæti varð lið Menntaskól- ans við Sund, sem vann Mennta- skólann á Akureyri 52:29 í leik um bronsið. Um 5.-6. sætið kepptu svo Verslunarskóli íslands og b-lið F.á S. og unnu „Versló-menn" nokkuð örugg- lega, með 48 stigum gegn 21. -bjb íslenskar getraunir: Þórsarar efstir - KA að missa fiugið? Getraunapotturinn verður þre- faldur þessa vikuna og má búast við metupphæð að þessu sinni, eða allt að 7 milijónum. Af Norðurlandsliðum er það helst að frétta að KA hefur dregist aftur úr í sölunni síð- ustu þrjár vikur og hafa Þórs- arar vermt toppsætið allan þennan tíma. Þór var sjötta söluhæsta félagið yfir landið í síðustu viku en KA lyftir sér úr því tólfta í það tíunda. Dalvíkingar eru síðan þriðja söluhæsta félagið á Norðurlandi. Golfklúbbur Akureyrar hefut nú hellt sér út f getraunasölu og númerið hjá þeim er 598. i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.