Dagur - 17.03.1989, Síða 5
Föstudagur 17. mars 1989 - DAGUR - 5
Um afstöðu Fjórðungs-
sambands Norðlendinga
- til frumvarpa um tekjustofna sveitarfélaga og um
breytta verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga
Kökubasar
Kvcnnadeild Léttis heldur kökubasar í Slysavarna-
félagshúsinu að Laxagötu 5, laugardaginn 18. mars
kl. 14.00.
Glæsilegt kökuúrval.
Komið og gerið góð kaup fyrir páskana.
Kvennadeild Léttis.
Enda þótt ályktanir síðasta
Fjórðungsþings Norðlendinga
sýni að vilji var fyrir hendi til rót-
tækra breytinga á fyrirliggj andi
tillögum, íeggur fjórðungsstjórn
til að frumvörpin fái endanlega
afgreiðslu á yfirstandandi Al-
þingi.
í umsögn fjórðungsstjórnar um
frumvarp til laga um tekjustofna
sveitarfélaga segir orðrétt:
„Fjórðungsstjórn fagnar því að
samhliða nýskipan verkefna á
milli ríkis og sveitarfélaga séu
sett lög um tekjustofna ríkisins,
sem í senn geri sveitarfélögum
mögulegt að sinna auknum verk-
efnum og auki á sjálfstæði þeirra
gagnvart ríkisvaldinu.“
I umsögn um frumvarp til laga
um breytta verkaskiptingu milli
ríkis og sveitarfélaga segir
orðrétt:
„Fjórðungsstjórn telur tíma-
bært að gengið verði frá lagasetn-
ingu um nýja verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga á því Alþingi,
sem nú situr.“
Viðurkennd megin-
sjónarmið Fjórðungs-
sambands Norðlendinga
Síðustu Fjórðungsþing Norð-
lendinga hafa sett þann fyrirvara
varðandi nýskipan verkefnatil-
færslu á milli ríkis og sveitarfé-
laga, að samhliða verkefnatil-
færslunni væru sett ný tekju-
stofnalög sveitarfélaga, sem
stuðli að aukinni tekjujöfnun á
milli sveitarfélaga, ásamt kostn-
aðarjöfnun vegna breyttrar
verkaskiptingar. Einnig var það
krafa fjórðungsþinganna að til
staðar væri fjárhagsleg úttekt á
áhrifum verkaskiptingarinnar á
fjárhag sveitarfélaga í landinu.
Þær nefndir, sem unnið hafa að
undirbúningi frumvarpanna, hafa
orðið við þessu að öllu leyti er
varðar framlagningu tekjustofna-
frumvarpsins og að sumu leyti er
varðar fjárhagslega úttekt á
stöðu norðlenskra sveitarfélaga.
Við hana hefur verið stuðst varð-
andi útreikning kostnaðaráhrifa,
verkaskiptingarinnar fyrir önnur
sveitarfélög í landinu.
Áhrif tillagna Fjórðungs-
sambands Norðlendinga
Á síðasta ári gerði Fjórðungs-
samband Norðlendinga heilstæð-
ar tillögur um tekjustofna sveit-
arfélaga, sérstaklega að því er
varðar Jöfnunarsjóð og um
. verkaskiptingu milli ríkis og
sveitarfélaga, sem miðast við að
stofnkostnaður og rekstur væri á
hendi sama aðila, og þar með
stjórnun og félagsleg ábyrgð.
Segja má að fram komi í frum-
vörpunum veigamikil áhrif frá til-
lögum sambandsins og má nefna
eftirfarandi:
1. Sjálfstæður tekjustofn Jöfnun-
arsjóðs sveitarfélaga til fram-
laga til tekjujöfnunar og
kostnaðarjöfnunar vegna
verkaskiptingarinnar, án
tengsla við tekjustofna ríkis-
sjóðs.
2. Saman fari aðhæfð tekju-
stofnalög markmiðum og til-
gangi verkefnatilfærslu milli
ríkis og sveitarfélaga.
3. Tilfærsla heilsugæslu til ríkis-
ins, þar sem um er að ræða
verkefni, sem sveitarfélög
geta ekki haft áhrif á f neinum
mæli.
4. Sérstök framlög úr Jöfnunar-
sjóði til að efla þjónustustig
sveitarfélaga og gera sveitar-
félögum kleift að mæta aukn-
ingu á félagslegri þjónustu
vegna verkefnatilfærslunnar.
Frávik frá
meginsjónarmiðum
verkefnaskiptingarinnar
Frávik er í töllögum þeirra
nefnda, sem undirbjuggu frum-
vörpin, frá áliti fyrri nefnda, sem
skiluðu áliti í apríl 1987. Mark-
mið eldri tillagna var að gera
verkaskiptinguna sem skýrasta
og einfaldasta, þannig að hver
málaflokkur falli undir einn og
sama aðila.
í frumvörpunum er vikið frá
þessu varðandi framhaldsskól-
ana, sjúkrahúsin og heilsugæsl-
una.
„Fjórðungs-
stjórn telur tíma-
bært að gengið
verði frá laga-
setningu um
nýja verkaskiptingu
ríkis og sveit-
arfélaga á því
Alþingi, sem nú
situr.“
Fjórðungsstjórn mótmælir
þessu og leggur til að greiðsla
stofnkostnaðar verði á sömu
hendi og reksturinn. Jafnframt
varar fjórðungsstjórn við fráviki
nefndarinnar frá upphaflegum
tillögum um framkvæmd málefna
aldraðra.
Hagnast ríkissjóður
á verkaskiptingunni?
Með frumvarpi um tekjustofna
sveitarfélaga er lagt til að ríkis-
sjóður hætti greiðslum til Jöfnun-
arsjós sveitarfélaga, sem njóti
tekna af sérstökum skatti og af
landsútsvörum. Almenn framlög
úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélaga
voru 1988 alls 892 millj. kr. Þessi
framlög falla niður samkvæmt
frumvarpinu. Á móti þessu eiga
sveitarfélögin að njóta hagnaðar
af verkefnatilfærslunni, sem áætl-
aður er á verðlagi 1988 kr. 630
millj. kr. Verði þetta niðurstaðan
er beint tekjutap sveitarfélaga
um 262 millj. kr. Þennan mun
leggur fjórðungsstjórn til að
verði jafnaður með aukinni til-
færslu kostnaðarliða til ríkisins.
Þaö verður að teljast sanngirn-
ismál að sveitarfélögin fái bættan
upp missi íbúaframlaganna úr
Jöfnunarsjóði með verkefnatil-
færslunni.
í þessu sambandi bendir fjórð-
ungsstjórn á:
1. Yfirfærslu stofnkostnaðar til
ríkisins, þar sem ríkið hefur
rekstrarlega forsjá, s.s. fram-
haldsskóli, sjúkrahús og
heilsugæsla.
2. Sömu reglur gildi um kostnað-
argreiðslur vegna tónlistar-
skóla og grunnskóla.
3. Kvótastörf við grunnskóla,
sem tengd eru kennslu og
skólastjórn verði greidd af
ríkinu.
4. Felldar verði niður greiðslur
úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
til Tryggingastofnunar ríkisins
vegna vangoldinna barnsmeð-
laga, þar sem um er að ræða
tryggingarútgjöld, sem ekki
eru á valdi sveitarstjórna að
ákveða um.
Með þessari tilfærslu næðist í
senn jöfnuður, þannig að sveitar-
félögum verði að fullu bætt
niðurfelling íbúaframlaganna og
að verkaskiptingin verði, sem
hreinust eftir málaflokkum.
Jákvæð afstaða
norðlenskra
sveitarstjórnarmanna
Kynningarfundir um frumvörp
um tekjustofna sveitarfélaga og
um breytta verkaskiptingu voru
haldnir dagana 7. og 8. mars sl. á
fjórum stöðum á Norðurlandi.
Framsöguerindi héldu: Hún-
bogi Þorsteinsson, skrifstofu-
stjóri, Ingimundur Sigurpálsson,
bæjarstjóri. Auk þeirra skýrði
Pórður Skúlason, sveitarstjóri
afstöðu stjórnar Sambands ísl.
sveitarfélaga og framkvæmda-
stjóri sambandsins, skýrði
umsögn fjórðungsstjórnar.
Fundi þessa sóttu tæplega 90
fulltrúar í sveitarstjórnuin. Marg-
ir tóku til máls. Allir voru sam-
dóma um að ljúka þurfi af-
greiðslu frumvarpanna á því
Alþingi, sem nú situr, þrátt fyrir
það var almennt talið nauðsyn-
legt að sníða af frumvörpunum
ýmsa ágalla, sem koma fram m.a.
í ábendingum Fjórðungssam-
bands Norðlendinga til þing-
nefndar. Þess er vænst að þrátt
fyrir nauðsynlegar leiðréttingar
verði frumvörpin ekki stöðvuð á
þessu Alþingi.
Það var almenn skoðun að
nauðsynlegt sé, að fyrir liggi við
afgreiðslu frumvarpanna, reglu-
gerðarhugmyndir um úthlutun
kostnaðarframlaga og jöfnunar-
framlaga, þannig að mönnum
verði ljós í megindráttum fram-
kvæmd hinna nýju laga. Fram-
kvæmd ákvæða um Jöfnunarsjóð
sveitarfélaga felast að mestu í
reglugerðarákvæðum. Reglu-
gerðarákvæðin eru prófsteinn á
hvort tilgangi nýrra tekjustofna-
laga, ásamt breyttri verkefna-
skipan, verði náð á réttlátan hátt
fyrir sveitarfélögin í landinu.
luJ ÁNHITA luJ
★ Hreinlætistæki
★ Blöndunartæki
★ Sturtuklefar
★ Sturtuhurðir
★ Baðinnréttingar
Sérverslun
Draupnisgötu 2 - Sími (96)22360
Akureyri
Allt efni til pípulagna jafnan fyrirliggjandi.
SainlokaÆ»g Mlx eða/repsi kr. U
Langloka og Mix eða Pepsi kryélð. -
Pið/veljið sjálLa samlokiujta og vlð y
joðum ykloir kaíltsona á eftir.
Tilvalið í hAdeg
eða á kýoldin
Isþú
Kaupvangsst etl
Opið frá ld.
09.00-23.30.
BrniiiimiumuaimLiJmnmuímiiimiminmmiimimmmiriiimmniiiMiTmnimiMiijHmmHnw
\ \ \ \ ^\\ \
irisiissis fir j||j||||||j||j||||||!jj||^ :S ! :I:I : 1:1 •
★ Ávöxtun 12-13% umfram verðbólgu
★ Örugg ávöxtunarleið
★ Alltaf laus til útborgunar
★ Fæst fyrir hvaða upphæð sem er
Gengi Einingabréfa 1 7. mars 1989
Einingabréf 1 ... . 3.639,-
Einingabréf 2 ... . 2.038,-
Einingabréf 3 ... . 2.378,-
Lífeyrisbréf . 1.829,-
Skammtímabréf . 1,258
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 Akureyri Sími 96-24700
Einingabréf
er eign sem ber arð.