Dagur


Dagur - 21.03.1989, Qupperneq 2

Dagur - 21.03.1989, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudaaur 21. mars 1989 Slökkviliðið á Akureyrarflugvelli hefur tekið í notkun nýja og fullkomna slökkvihifreið. Þessi mynd var tekin við afhendingu bílsins. Frá vinstri: Erlingur Hclgason frá Krafti hf. sem flutti bílinn til landsins, Rúnar H. Sigmundsson, umdæmisstjóri Flugmálastjórnar, Guðmundur Guðmundsson, yfirslökkviliðsstjóri Flugmálastjórnar og Erik Lettn, fulltrúi frá Nielsen verksmiðjunum sem sáu um yfirbyggingu bílsins. Mynd: tlv Kaupfélag Norður-Pingeyinga: Greiðslustöðvun framlengd Vélsmiðjan Vík á Grenivík: Barði blæs af krafti - þrír snjóblásarar í smíðum Vélsmiðjan Vík hf. á Grenivík er nú með þrjá snjóblásara í smíðum sem verða tilbúnir til afgreiðslu næsta haust. Fyrsti blásarinn, Barði, leit dagsins Ijós þann 21. febrúar og óhætt er að segja að hann hafi haft úr nægum verkefnum að moða eins og tíðarfarið hefur verið. Barði hefur reynst mjög vel. „Já, hann hefur reynst ágæt- lega. t>að er búið að nota hann mikið, enda gerði mikinn snjó rétt eftir að hann var tekinn í notkun og mér sýnist hann hafa næg verkefni hér á Grenivík áfram,“ sagði Jakob Þórðarson, framkvæmdastjóri Víkur hf. er Dagur hafði samband við hann í páskahretinu á mánudag. Þá hafði snjóað í öll göng sem áður var búið að moka. Jakob sagði að Vík væri með þrjá snjóblásara í smíðum, þ.e. starfsmenn smíða stykki í þrjá blásara sem eiga að verða tilbúnir fyrir næsta haust. Það langt er liðið á þennan vetur að ekki verður lögð áhersla á að Ijúka viö annan snjóblásara að sinni, enda hafa engar formlegar pantanir borist. „Hins vegar hafa fjölmargar fyrirspurnir borist, en það erekki hægt að búast við pöntunum nú þar sem veturinn er að verða búinn. Við þurfum líka að panta hluti erlendis frá og það tekur býsna langan tíma og ekki raun- hæft að gera það núna. Við vild- um einnig sjá hvernig Barði reyndist og sú reynsla lofar góðu,“ sagði Jakob að lokum. SS í gær lauk þriggja mánaða greiðslustöðvun Kaupfélags Norður-Þingeyinga. Að ósk forráðamanna Kaupfélagsins framlengdi sýslumaðurinn á Þremur umferðum er nú lokið í Sjóvá/Almennar-sveitahrað- keppni Bridgefélags Akureyrar. Staða efstu sveita er þcssi: Stig 1. Sveit Arnar Einarssonar 852 2. Sveit Kristjáns Guðjónss. 845 3. Sveit Grettis Frímannssonar 844 Húsavík greiðslustöðvunina um einn mánuð, til 20. aprfl nk. Eysteinn Sigurðsson, kaupfé- lagsstjóri, segir að á næstu fjór- 4. Sveit Gylfa Pálssonar 843 5. Sveit Gunnlaugs Guðmundss. 836 6. Sveit Hellusteypunnar 827 Fjórða og síðasta umferð verð- ur spiluð nk. þriðjudag, 21. mars, í Félagsborg og hefst spila- mennskan kl. 19.30. um vikum verði unnið ötullega í málinu og reynt að finna grund- völl að samningum. „Þetta fjög- urra mánaða greiðslustöðvunar- tímabil hefur gengið nokkuð vel. Við þurfum hins vegar meiri tíma og staðreyndin er sú að við liöf- um átt erfitt með að athafna ökk- ur við þessi mál að undanförnu vegna tíðarfarsins. Við vonuð- umst til þess í upphafi að þriggja mánaða greiðslustöðvun nægði en reyndin hefur orðið önnur.“ Eysteinn segist vongóður um takist að ráða bót á fjárhags- vanda Kaupfélagsins. „En það er á þessu stigi best að vera ekki með stórar yfirlýsingar," segir Eysteinn Sigurðsson. óþh Sjóvá/Almennar-sveitahraðkeppni B.A.: Sveit Amar enn efst Niðurskurðurinn í heilbrigðisgeiranum: Með ólíkinduni ef ekki er hægt að ná fram neinrnn spamaði í rekstri - segir Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra Guðmundur Bjarnason, heil- brigðisráðherra, segir það Ijóst að sjúkrastofnanir séu misvel í stakk búnar til þess að skera niður útgjöld á þessu ári. „Sumar stofnanir hafa sýnt fram á þær geta staðið við áætlun ráðuneytis um 4% niðurskurð, og að hann bitni ekki á þjónustu. Forsvarsmenn annarra stofnana hafa hins vegar gefið í skyn að ekki sé unnt að skera niður nema því aðeins að það komi harkalega niður á þjónustu. Slíkt er ekki samkvæmt þeim tillögum sem ég lagði upp með. Ég lagði á það áherslu að skert þjónusta væri algjör neyðarlausn,“ segir hcilbrigðisráðherra. Tillögur um niðurskurð útgjalda einstakra sjúkrastofnana eru nú að berást ráðuneytinu. Guðmundur segir að í sumum til- fellum sé tekið mjög skynsam- lega á málum en hins vegar séu tillögur nokkurra aðila „heldur billegar". „Mér finnst það með óltkindum ef sjúkrastofnanir eru það vel reknar að forsvarsmenn þeirra telja sig ekki geta náð fram sparnaði í rekstri með öðrum hætti en að loka þeim að hluta.“ Málið í athugun á Húsavík Eins og fram kom í Degi í fyrri viku er nú unnið að áætlun um niðurskurð á útgjöldum FSA á Akureyri. Þar blasir jafnvel við að þurfi að loka deildum tíma- bundið. Þær upplýsingar fengust hjá Ólafi Erlendssyni, fram- kvæmdastjóra Sjúkrahússins á Húsavík, að þessa dagana leituðu menn allra leiða til að ná fram sparnaði í rekstri. Hann segir ekki ljóst á þessu stigi hvaða niðurskurðartillögur verði ofan á, en augu beinist fyrst og fremst að yfirvinnu. „Það er verið að Guðmundur Bjarnason. skoða yfirvinnuna en þar er aug- ljóslega ekki um að ræða upp- hæðir sem skipta höfuðmáli. Við myndum hins vegar spara umtals- verðar upphæðir ef sumarafleys- ingafólki yrði fækkað verulega,“ segir Ólafur. Á sjúkrahúsinu eru nú 91 stöðugildi og laun og launa- tengd gjöld á síðasta ári námu 136 milljónum króna. Þessi tala er um 70% af heildarútgjöldum Sjúkrahússins. Miðað við 4% niðurskurð á launaútgjöldum þyrfti að klípa um 5 milljónir af þeim útgjaldalið. Ólafur segir að sá möguleiki hafi verið nefndur að loka deild- um til skamms tíma í sumar en það hljóti að vera algjör neyðar- lausn. Að hans sögn mun stjórn Sjúkrahússsins taka afstöðu til niðurskurðartillagna einhvern næstu daga. Hægt að vera innan fjárlaga „í fyrra náðum við mjög góðum árangri í sparnaði og ég hygg að ef við stígum aðeins fastar á bremsurnar á þessu ári þurfi ekki að skerða þjónustu," segir Jón Sigurbjörnsson, framkvæmda- stjóri Sjúkrahússins á Siglufirði, aðspurður um niðurskurðartil- lögur heilbrigðisráðherra. Hann segir að góður árangur hafi náðst í að skera niður rekstrarútgjöld, einkum launaútgjöld. Stöðugildi við Sjúkrahúsið eru 53 og launaútgjöld á síðasta ári námu 60 milljónum króna. Heilbrigðisráðherra lét svo ummælt í samtali við Dag að forráðamenn Sjúkrahússins á Siglufirði hafi tekið með miklum myndarskap á niðurskurði í rekstri, án þess að það hafi á nokkurn hátt komið niður á þjónustu. Um þessi ummæli ráð- herra segir Jón Sigurbjörnsson að vissulega hafi menn lagt sig mjög fram um að spara. „Það þýðir ekkert að segja að hitt og þetta sé ekki hægt. Menn geta alltaf verið innan ramma fjárlaga ef menn halda utan um hverja einustu krónu.“ Jón segist telja sjálfsagt að þau Sjúkrahús, sem hafa náð góðum árangri með niðurskurð- arhnífinn, hljóti fyrir það umbun, en gjaldi þess ekki. „Það finnst öllum eðlilegt að svo sé, en þegar á reynir segja menn; „þú hefur komist af með þetta litla fjármagn og hlýtur að komast af með aðeins minna næst.“ En málið er það að ekki er endalaust hægt að skera niður þjónustu á sama tíma og aðrir komast upp með það ár eftir ár að fara langt fram úr fjárlögum.“ óþh Akureyri: Bæjar- mála- punktar ■ Á fundi bæjarráðs nýlega, voru lagðir fram til kynningar ársreikningar Sjúkrasamlags Akureyrar 1988. Samkvæmt efnahagsreikningi nemur skuld Akureyrarbæjar 31. des. 1988 kr. 10.663.222. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að veita Foreldrafélagi Blás- arasveitar Tónlistarskólans fjárstuðning úr Bæjarsjóði, að upphæð kr. 800.000. Er það gert til að standa straum af kostnaði við þátttöku sveitar- innar í móti blásarasveita, World Music Contest, sem halda á í borginni Kerkrade í Hollandi í sumar. ■ Hafnarstjórn hefur sam- þykkt að þjónustugjöld Akur- eyrarhafnar hækki um 21,6% frá og með 1. apríl næstkom- andi. ■ Rafveitustjóri kynnti á fundi stjórnar veitustofnana fyrir skömmu, tilboð sem bor- ist hefur frá Efacec, Oporto, Portugal, í stýrikerfi fyrir Raf- veitu Akureyrar. Stjórnin samþykkir að samið verði við Efacec um kaup á þessum búnaði. ■ Á fundi skólanefndar nýlega, vakti skölastjóri Barnaskóla Akureyrar athygli á ummælum aðstoðaryfirlög- regluþjónsins á Akureyri um „að skólakerfið bregðist börn- unum og okkur í umferðar- fræðslunni", í riti umferðar- ráðs. Fram kom í umræðum unt málið að fundarmenn töldu gagnrýni aðstoðaryfir- lögregluþjónsins ekki sann- gjarna. ■ Á fundi félagsmálaráðs fyr- ir skömmu, var rætt um bygg- ingu dagvistar en á fjárhágs- áætlun fyrir árið 1989 er veitt kr. 15.000 þús. til þessa verk- efnis. Félagsmálaráð sam- þykkir að vegna þessa verk- efnis verði skipuð bygginga- nefnd, sem í sitji dagvistarfull- trúi, yfirverkfræðingur tækni- deildar Guðmundur Guð- laugsson og formaður félags- málaráð. ■ Félagsmálaráð hefur lagt til að vistgjöld á dagvistum hækki um 20% frá 1. apríl eins og forsendur fjárhagsáætlunar gera ráð fyrir. Jafnframt legg- ur ráðið til að aðgangseyrir að leikvöllum hækki úr 30 kr. í 40 kr. frá sama tíma og kort með 25 miðum úr 300 kr. í 400 kr. ■ Atvinnumálanefnd hefur borist bréf frá Vinnumiðlun- arskrifstofu Akureyrar dags. 3. mars 1989, þar sem fram kemur að þann 28. feb. sl. voru 199 skráðir atvinnulausir á Akureyri, 111 karlar og 88 konur. Á sama tfma í fyrra voru 70 á skrá. ■ Stjórn Strætisvagna Akur- eyrar hefur samþykkt að hækka fargjöld sín og verða þau nú sem hér segir: Einstök fargjöld fullorðina kr. 50 og einstök fargjöld barna kr. 12. Kort fullorðina (20 stk.) kr. 750, kort barna (20 stk.) kr. 200 og kort aldraðra (20 stk.) kr. 375. ■ Öldrunarráð hefur sam- þykkt að mæla með Helgu Tryggvadóttur í stöðu hjúkr- unarforstjóra við Hlíð en hún var eini umsækjandinn um starfið.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.