Dagur - 21.03.1989, Blaðsíða 6

Dagur - 21.03.1989, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriöjudagur 21. mars 1.989 Sauðárkrókur: Heimkoma Drangejjar og Skagfirðings Nýju togarar Útgerðarfélags Skagfirðinga og Fiskiðju Sauð- árkróks, Drangey SK-1 og Skagfirðingur SK-4, komu í fyrsta skiptið til heimahafnar sl. fimmtudag, eftir að hafa verið í slipp í Bretlandi. Eins og sagt var frá í blaðinu sl. föstudag var fjölmenni saman- komið á hafnarbakkanum á Sauðárkróki að taka á móti skipunum og sannkölluð hátíð- arstemmning ríkti. Það var líka ástæða fyrir Skagfirðinga að vera í hátíðarskapi, því með tilkomu þessara tveggja ísfisk- togara er verið að stuðla að stöðugra og öflugra atvinnulífi við fjörðinn. Núna eru því fjórir togarar í eigu Skagfirð- inga, þrír í eigu ÚS og einn í eigu Fiskiðju Sauðárkróks, en ÚS mun reka þá alla fjóra. Það er flestum kunnugt hvern- ig það gekk fyrir sig að fá þessa tvo togara í skiptum fyrir hálf- frystiskipið Drangey á sínum tíma og ullu skipaskiptin miklu fjaðrafoki hjá þeim syðra. En þetta hafðist í gegn og skipin eru flutti ávarp við móttökuathöfnina. komin. Drangey SK-1 er í eigu Útgerðarfélags Skagfirðinga hf. Skipstjóri er Björn Jónasson, 1. stýrimaður er Jón Guðmundsson og yfirvélstjóri Aron Árnason. Skipið var áður í eigu Hraðfrysti- húss Keflavíkur hf. og hét þá Aðalvík JCE-95. Það var smíðað á Spáni 1974. Drangey er 451 brúttó smálestir, 47,55 m langt með 1700 hp. Man-Basan aðal- vél. Skipið er búið helstu siglinga og fiskileitartækjum, sem algeng- ust eru í skuttogurum af þessari stærð. Skipið fór eina veiðiferð í byrjun árs, undir merkjum nýrra eigenda, og seldi afla sinn í Eng- landi, áður en það fór í slipp til viðhalds og endurbóta í Hull í byrjun febrúar sl. Áætlaður við- gerðartími varð rúmlega einni viku lengri, heldur en gert var ráð fyrir, en áætlaður kostnaður stóðst. Áður en skipið heldur á veiðar, verða gerðar lagfæringar á aðstöðu á millidekki. Sú fram- kvæmd hefur verið undirbúin af viðhaldsverkstæði ÚS, sem mun sjá um verkið. Stefnt er að þvf að Drangey haldi á veiðar eftir páska. Skagfirðingur SK-4 er í eigu Eins og sjá má var fjölmenni samankomið á bryggjunni að fagna nýju tog- urunum og hér eru þeir báðir lagstir að. Að lokinni móttökuathöfn á bryggjunni var öllu starfsfólki Útgerðarfélags Skagfirðinga og Fiskiðju Sauðárkróks boðið í kaflí í Naustinu. Drangey SK-1 leggst að bryggju í Sauðárkrókshöfn í fyrsta skiptið. Skagfirðingur SK-4 siglir inn í Sauðárkrókshöfn í fyrsta skiptið, fánum prýddur og nýmálaður. Frá Kyörbúðiim fCfEA, Til páskanna á ti I boðsverði Súkkulaði- og vanilluskafís frá Emmess Fransman franskar 2Vi kg í poka Ger/ð góð kaup Fiskiðju Sauðárkróks hf. Skip- stjóri er Kristján Helgason, Þor- móður Birgisson er 1. stýrimaður og yfirvélstjóri er Ómar Har- aldsson. Sem kunnugt er var skipið áður í eigu Hraðfrysti- húss Keflavíkur og hét þá Berg- vík KE-22. Það er smíðað 1972 í Noregi fyrir Isfirðinga og hét þá Júlíus Geirmundsson ÍS. Skag- firðingur er 407 brúttó rúmlestir að stærð, 46,56 m langur og með 1750 hp. Wickmann aðalvél. Skipið er búið öllum nauðsynleg- um siglinga- og fiskileitartækjum og er tilbúið til veiða. Það var afhent um áramót og fór stutta veiðiferð og landaði á fiskmarkað syðra. Síðan fór Skagfirðingur í veiðiferð með karfa á Þýska- landsmarkað, sem skilaði ein- hverju hæsta einingaverði sem þar hefur fengist. Skagfirðingur var í slipp á sama stað í Hull og Drangey, hjá skipsmíðastöðinni Globe Engin- eering. Leitað var sameiginlegra tilboða vegna skipanna tveggja hjá skipasmíðastöðvum hér á landi og í þrem öðrum löndum. Tilboði Globe var tekið, þar sem það reyndist hagstæðast, bæði hvað varðaði verð og viðgerðar- tíma. Skipatækni hf. í Reykjavík aðstoðaði við áætlanir og útboð. Kvótar skipanna fjögurra, miðað við aflamark, eru samtals 10.250 tonn, sem eru 7.893 þorskígildi. Hegranes og Skáfti verða á sóknarmarki, en Drang- ey og Skagfirðingur á aflamarki. Aflamark er valið til þess að nýta hagstæðari skiptingu eftir teg- undum hjá þessum nýju skipum, heldur en orðið hefði ef Norður- landskvóti hefði gilt og ennfrem- ur eru möguleikar að bæta við kvóta frá öðrum, þegar um afla- mark er að ræða. Húftryggingarverð skipanna er nú um 650 milljónir króna. Áætl- un um heildar söluverðmæti afla 1989 er 470 milljónir króna og útflutningsverð framleiðslu fisk- vinnslustöðvanna á árinu, á þeim fiski sem kemur til vinnslu hjá þeim, er um 650 milljónir króna. Sem fyrr segir kemst Drangey ekki á veiðar fyrr en eftir páska, en Skagfirðingur hélt á veiðar í gærkvöldi og mun veiða yfir páskahátíðina, sömuleiðis Skafti SK-3. -bjb

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.