Dagur - 21.03.1989, Blaðsíða 4

Dagur - 21.03.1989, Blaðsíða 4
$ - DAGUR - Þriöjudagur 2l.“mars‘Í989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 80 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (ípróttir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASIMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Á að taka upp nýtt húsnæðislánakerfi? Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur lagt fram á þingi frumvarp sem felur í sér að tekið verði upp svokallað húsbréfakerfi, sem sérstaka fjáröflunarleið í húsnæðismálum. Margt bendir til þess að frumvarp þetta verði samþykkt, þótt eflaust verði gerðar á því ein- hverjar breytingar í meðförum þingsins. Á núverandi kerfi eru nokkrir gallar, sem gera það að verkum að margir telja það ónothæft og vilja breytingar. Óumdeilt er að stærsti galli núverandi kerfis er langur biðtími eftir lánum. Vegna þess hve langur tími líður frá því sótt er um lán og þar til það er afgreitt hefur ýmis spákaupmennska með húsnæðislánin náð að festa rætur, svo sem sala lánsloforða til fjárfestingarfélaga með afföll- um. Því hefur verið haldið fram að núverandi kerfi sé sprungið og anni alls ekki eftirspurninni eftir húsnæðis- lánum. Sumir hafa jafnvel haldið þessu fram allt frá því núgildandi kerfi tók gildi árið 1986. Aðrir halda því fram að húsnæðislánakerfið sé óðum að komast í jafnvægi og svo geti farið að biðtími eftir lánum fari að styttast áður en langt um líður. Væntanlega mun Alþingi fara fram á óyggjandi upplýsingar um stöðu þessara mála áður en ákvörðun verður tekin um að leggja núverandi húsnæði- skerfi niður. Húsbréfakerfið hefur margt sér til ágætis en það er langt frá því að vera gallalaust. Því er fyrst og fremst ætl- að að auka innri fjármögnun fasteignamarkaðarins, þ.e. að fá seljendur til að lána stærri hluta kaupverðsins en nú er og til lengri tíma. Húskaupendur fengju þá hærri lán en nú og biðraðir myndu styttast. Þetta eru ótvíræðir kostir. Gallarnir eru á hinn bóginn nokkrir. Þeirra stærstir eru annars vegar mun hærri vextir en í núgildandi kerfi og hins vegar aukin þensla og samkeppni á lánsfjármark- aði, sem þó er ærin fyrir. íbúðarkaupendur munu strax þurfa að greiða miklu hærri vexti en nú eru á lánum Húsnæðisstofnunar, þótt þeir tekjulægri fái þá að ein- hverju leyti til baka í gegnum sérstakt vaxtabótakerfi. Óvissuþátturinn í kerfinu er sá að búast má við að hús- bréfin verði seld með verulegum afföllum á fjármagns- markaðinum, þótt þau verði bæði fasteignatryggð og ríkistryggð. Enginn veit hversu mikil affölhn verða en að öllu óbreyttu verða þau talsverð og þeim mun meiri sem bréfin eru til lengri tíma. Eftir því sem afföllin verða meiri, hækkar kostnaður íbúðarkaupandans. Og sam- keppnin á fjármagnsmarkaðnum eykst til mikilla muna, sem væntanlega leiðir til frekari raunvaxtahækkunar. Alþingi mun á næstu vikum taka húsnæðislánamálin til rækilegrar umfjöllunar. Þingmanna bíður það erfiða verkefni að meta kosti og galla hvors kerfis fyrir sig og taka í framhaldi af því ákvörðun um hvort leggja beri núverandi kerfi niður og taka upp nýtt. Þá ákvörðun má ekki byggja á óvissuþáttum eða tilfinningasemi. Hún verður að vera vel grunduð, því hér er sannarlega um stórmál að ræða. 3B. í DAGS-ljósinu Trausti Þorsteinsson, nýskipaður fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis eystra: Mun halda áfram á braut Sturlu - braut sjálfstæðis í fræðslumálum í síðustu viku skipaði Svavar Gestsson, menntamálaráð- herra, Trausta Þorsteinsson, skóiastjóra Grunnskólans á Dalvík, í stöðu fræðslustjóra Norðuriandsumdæmis eystra til eins árs frá og með 1. júní nk. Fræðsluráð umdæmisins hafði áður mælt eindregið með Trausta í fræðslustjóraembætt- ið, en auk hans sóttu fiórir um það. Margir líta svo á að með skip- an Trausta í stöðu fræðslustjóra hafi endi verið bundinn á lang- vinnar deilur skólamanna á Norðurlandi eystra við ráðuneyti menntamála í kjölfar fyrirvara- lausrar brottvikningar Sturlu Kristjánssonar úr stóli fræðslu- stjóra snemma árs 1987. Þessu til stuðnings er nefnt að Trausti hafi verið eindreginn stuðningsmaður Sturlu og sem slíkur gagnrýnt framgöngu þáverandi mennta- málaráðherra, Sverris Her- mannssonar, í málinu. Aðrir líta svo á að með skipan Trausta í stöðu fræðslustjóra sé fyrri hálf- leik í Sturlumálinu lokið. Eftir sé seinni hálfleikurinn sem felist í því að færa sönnur á að þær sakir sem bornar voru á Sturlu Krist-i jánsson, fyrrverandi fræðslu- stjóra, hafi ekki verið á rökum reistar. „Mér finnst ég vera orðinn svo mikill Dalvíkingur að ég er ekki tilbúinn til að fara héðan strax,“ sagði Trausti þegar hann var inntur eftir því hvort hann hefði í hyggju að flytja frá Dalvík eftir að hann tekur við starfi fræðslu- stjóra. „Þetta er þannig starf að búseta skiptir ekki höfuðmáli. Það er að vísu ákvæði um það í erindisbréfi fræðslustjóra að hann skuli búa þar sem fræðslu- skrifstofan er staðsett, þ.e.a.s. á Akureyri, eða í næsta nágrenni. Segja má að næsta nágrenni sé nokkuð teygjanlegt. Milli Dal- víkur og Akureyrar er góður veg- ur lagður bundnu slitlagi og því tel ég ekki tiltökumál að sækja vinnu til Akureyrar. Það gera raunar margir nú þegar og minna má á að nokkrir nemendur frá Akureyri sækja daglega nám við skipstjórnarbraut Dalvíkurskóla. Milli þessara þéttbýlisstaða er rnikil dagleg umferð og á eftir að aukast í framtíðinni.“ Trausti hefur tekið virkan þátt í sveitarstjórnarmálum og í síð- ustu bæjarstjórnarkosningum á Dalvík skipaði hann efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokks og óháðra. Ásamt Alþýðubandalagi mynd- aði sá listi meirihluta í bæjar- stjórn og það kom í hlut Trausta að taka að sér embætti forseta bæjarstjórnar. „Ég er ákveðinn í því að ljúka yfirstandandi kjör- tímabili en á þessu stigi vil engu spá um framhaldið." Vildi helst kenna á Norðurlandi Þrátt fyrir harðan norðlenskan framburð er Trausti ekki Norð- lendingur að ætt og uppruna. Hans rætur eru á Selfossi en það- an lá leiðin í Kennaraskóla íslands, hvar prófi var lokið árið 1970. „Ég var mjög opinn fyrir því að kenna út á landi, ekki síst á Norðurlandi, og því tók ég strax boði skólastjóra Oddeyrar- skóla á Akureyri um kennslu við þann skóla. Ég kenndi þar í tvö ár en síðan hóf ég kennslu við Húsabakkaskóla í Svarfaðardal og var þar í þrjú ár. Mér þótti Svarfaðardalurinn afar merkilegt samfélag og mér hefur æ síðan þótt afar vænt um hann. Það sem mér þótti eftirtektarverðast var hversu náið þetta samfélag var. Hér þekktust allir og voru meira og minna skyldir. Það var alls ekki erfitt að koma ókunnugur inn í þetta samfélag. Mér var mjög vel tekið og fljótlega var ég eins og einn af fjölskyldunni." Trausti færði sig um set árið 1975 og hóf kennslu við Grunn- skólann á Dalvík. Tveimur árum síðar tók hann að sér starf skóla- stjóra. ÞegarTrausti líturtil baka yfir skólastjóraferilinn segir hann vissulega mega greina breytingar á skólastarfi. Hann segir allan brag á því hafa breyst og nemendur séu nú rólegri og við- ráðanlegri en áður. Þá nefnir Trausti að verulega hafi úr ræst með húsnæði Dalvíkurskóla á síðustu árum. Þrengsli háðu öllu skólastarfi verulega en með fyrsta áfanga nýrrar skólabygg- ingar var nokkuð bætt úr brýnni húsnæðisþörf. Ætlunin er að hefja framkvæmdir við annan áfanga (700 ferm.) næsta sumar en tíminn verður að leiða í ljós hvenær þriðji og síðasti áfanginn rís af grunni. Ekki leiður á kennslu Trausti nefnir að stofnun skip- stjórnarbrautar við Dalvíkur- skóla hafi verið eitt af merkilegri skrefum í skólastarfinu þann tíma sem hann hefur verið skóla- stjóri. Hann segir þessa braut hafa ótvírætt sannað tilverurétt sinn og hún njóti velvildar for- svarsmanna fyrirtækja á Dalvík t.d. í sambandi við verknám. Trausti segist ekki vera orðinn leiður á kennslu þrátt fyrir tæpra tveggja áratuga starf í skólastof- unum. Hann segist hins vegar telja að sinn tími hafi verið kom- inn sem skólastjóri. „Ég held því fram að regluleg endurnýjun í stjórnun sé hverri skólastofnun nauðsynleg. Það er alltaf hætta á því að gæti stöðnunar þegar sami maðurinn stendur of lengi í for- svari.“ Starfsmaður sveitarfélaga „Fræð'slustjórastarfið er að hluta til svipað og skólastjórastarfið nema að umdæmi fræðslustjóra er miklu vfðfeðmara. Gróft séð má segja að í því felist hverskon- ar umsjón með fræðslustarfsemi í umdæminu. Starf fræðslustjóra er nokkuð tvíbent. Hann er að hluta til starfsmaður sveit- arfélaga en jafnframt starfs- maður ríkisins. Vegna þessa fyrirkomulags hafa orðið árekstr- ar sem að mínu mati er mjög bagalegt. Ég geri mér vonir um að með breytingum á verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga verði tekin ákvörðun um hvoru megin hryggjar fræðslustjóri lendir. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að hann eigi að vera starfsmaður sveitarfélaga að sama skapi og ég tel að sveitarfélögin eigi alfarið að taka yfir rekstur grunnskóla. Ég geri mér þó grein fyrir því að það verður ekki gert nema að tryggja sveitarfélögum tekjur og þá um leið að tryggja möguleika minni sveitarfélaganna til að standa undir þessu. Þetta er að mínu viti hægt að gera með Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hann er til að jafna aðstöðu sveitarfélagana." Með því að færa fræðsluskrif- stofu og starf fræðslustjóra yfir til sveitarfélaganna segir Trausti að hann yrði starfsmaður fræðslu- ráðs. Þannig kæmi það í hlut fræðsluráðs f umboði sveitar- félaganna að víkja honum úr starfi ef upp kæmi verulegur ágreiningur, en ekki menntamála- ráðherra eins og þegar Sturlu Kristjánssyni var fyrirvaralaust vikið úr starfi árið 1987. Afram á sjálfstæðisbraut Öðrum þræði má segja að mál Sturlu Kristjánssonar, fyrrver- andi fræðslustjóra, hafi snúist um sjálfstæði Norðurlandsumdæmis eystra til að reka sína skóla- stefnu. Trausti segist vera ákveð- inn í að standa þéttingsfast í ístöðin gagnvart ráðuneyti menntamála til eflingar sjálfstæð- is umdæmisins í stjórnun fræðslu- mála. „Þegar Sturlu Kristjánssyni var vikið úr starfi taldi ég það vera aðför að þeirri skólastefnu sem hér hefur verið rekin. Að sjálfsögðu er okkur treystandi til að sjá um fræðslumálin og stjórna þeim hér heima í héraði. Við getum síðan sent Mennta- málaráðuneytinu allar þær skýrsl- ur og öll þau gögn sem það þarf um fræðslustarfsemina í umdæm- inu. Ég lít svo á að stjórnmála- mannanna sé að setja þær leik- reglur sem okkar ber að fara eftir. Heimamanna er að fram- fylgja þessum leikreglum en ekki starfsmanna ráðuneytis. Ég vil halda áfram á þeirri braut sjálfstæðis í fræðslumálum sem Sturla Kristjánsson var byrj- aður að feta. Ég hef litið upp til hans sem skólamanns og held raunar að það skarð, sem hann skildi eftir, verði vandfyllt. Hann hefur verið og er mjög mikill skólamaður. Ég mun alla tíð verða ósáttur við það hvernig með hans mál var farið.“ Kúrsinum haldið Trausti segist ekki hafa mótað sína stefnu sem fræðslustjóri í smáatriðum. Hann telur að á undanförnum árum hafi verið rekin skynsamleg stefna í fræðslumálum umdæmisins og þeirri stefnu muni hann kapp- kosta að fylgja í meginatriðum, „halda kúrsinum," eins og hann orðar það. í umræðum um fræðslumál á síðustu misserum hefur oft verið nefnt að beri að fella niður skóla- skyldu nemenda í grunnskólum. Kennarar virðast skiptast í tvær fylkingar, ekki ósvipaðar að* stærð, f afstöðunni til skólaskyld- unnar. Verðandi fræðslustjóri var inntur eftir hans afstöðu til þessa umdeilda máls. „Ég er ekki

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.