Dagur - 21.03.1989, Blaðsíða 16

Dagur - 21.03.1989, Blaðsíða 16
Hl TEKJUBRÉF• KJARABRÉF QJ> FJARMAL ÞIN - SÉRGREIN OKKAR Akureyri, þriðjudagur 21. mars 1989 ^FIÁRFESTINGARFÉIAGIÐ Ráðhustorgi 3, Akureyri Húsavík: Eldur laus í íbúð um hánótt flölskylda bjargaðist úr reykkófi Aðfaranótt sunnudags varð eldur laus í íbúð í fjölbýlishúsi að Grundargarði 13 á Húsavík. Hjón með tvö ung börn sváfu í íbúðinni en til allrar guðsmildi vaknaði fjölskyldufaðirinn og kom konu og börnum út úr íbuðinni áður en nokkurt þeirra sakaði. Töluvert tjón varð í íbúðinni, aðallega af sóti og reyk, auk þess sem eldhús- innrétting skemmdist af eldi. Norðurland vestra: Ekið yfir mann á Skagaströnd Helgin hjá lögreglumönnum á Norðurlandi vestra var með eindæmum róleg, enda veður hið fegursta og ákjósanlegt til útivistar. En það var svo í gær að til tíðinda tók að draga á Akureyri: 13 árekstrar á þrem dögum Óvenju margir árekstrar urðu á Akureyri um síðustu helgi. Frá föstudegi og fram að hádegi í gær voru alls 13 árekstrar skráðir í bækur lög- reglunnar. Hálka var mikil á götum, sérstaklega þegar líða tók á föstudaginn, og setti hún sitt mark á umferðina. Að öðru leyti var helgin með rólegra móti hjá lögreglunni á Akureyri. Einn ökumaður var tekinn grunaður um ölvun við akstur og þrír einstaklingar gistu fangageymslur lögreglunnar. í gær var leiðindaveður á Akureyri eins og víðast hvar en vegir sæmilega færir innanbæjar. SS nokkrum stöðum, svo ekki sé minnst á veðrið; hríðina og rokið sem byrjaði að dynja á Norðlendingum í gær. Með slíku veðri kom það ekki á óvart að rafmagnstruflanir voru víða, einkum á Hofsós- línu, frá Sauðárkróki til Hofsóss, en sú lína datt út yfir 20 sinnum í gær sökum veðurs. Á Skagaströnd varð það óhapp í gærmorgun að maður varð und- ir vörubíl. Manninum skrikaði fótur og lenti undir öðru aftur- hjóli vörubílsins, sem er 6 hjóla en var ekki með neitt á pallinum. Bíllinn fór alveg yfir manninn, en svo ótrúlega vildi til að hann slapp án nokkurra meiðsla, til allrar hamingju. Rafmagn datt út á Skagaströnd í gær, þar sem lín- an frá aðveitustöðinni í fjallinu fyrir ofan Skagaströnd slitnaði. Þá var smávægilegur árekstur á Hvammstanga í gær, eða „smá nudd“, eins og lögreglan komst að orði, engin meiðsl á fólki og litlar skemmdir á bílum. Hjá lög- reglunni á Sauðárkróki og Blöndu- ósi var helgin róleg, svo og gær- dagurinn síðast þegar að fréttist, nema hvað veðrið fór illa í menn eftir einmuna veðurblíðu síðustu daga. -bjb „Það var hryllilegt að vakna við þetta,“ sagði húsbóndinn, Steingrímur Kr. Sigurðsson, aðspurður um þessa lífsreynslu. Steingrímur er bakari og því van- ur að vakna snemma á morgn- ana. Hann gerir sér ekki grein fyrir hvort það var af vana sem hann vaknaði um kl. 4.30 um nóttina, eða hvort það var vegna óþæginda af reyk sem fyllti íbúð- ina. „Það var allt fullt af reyk og allt í björtu báli í eldhúsinu,“ sagði Steingrímur sem var fljótur að vekja konu sína og hlaupa út úr íbúðinni með drengina þeirra tvo, sem eru þriggja ára og sjö mánaða. Lögregla kom fyrst á vettvang og hafði að mestu ráðið niðurlög- um eldsins er slökkviliðið kom. Slökkviliðsmenn þurftu þó að rífa hluta elhúsinnréttingar til að komast að glæðum. Telja má mikla mildi að Stein- grímur skyldi vakna í tíma til að koma fjölskyldunni út úr reyk- kófinu, enda segist hann ánægður með hve vel þau hafi sloppið. IM Bókamarkaðurinn er kominn til Akureyrar og hér má sjá viðskiptavin glugga í bók Páls í Sclárdnl, Kennimark Kölska. Mynd: TLV Vonskuveður á Norðurlandi: Bílar lokuðnst milli snjoflóða í Múlanum - allir vegir ófærir í gær Tvö snjóflóð féllu í Ólafsfjarö- armúla sl. laugardagskvöld og lokuðust þrír bílar á milli þeirra, komust hvorki aftur á bak né áfram. Farþegar í bíl- unum komust aftur til byggða Tel mig lánsama að hafa búið svo lengi á Akureyri segir Bergljót Rafiiar, bæjarfuUtrúi I dag situr Bergljót Rafnar, bæjarfulltrúi á Akureyri, sinn síðasta bæjarstjórnarfund því hún og maður hennar, Bjarni Rafnar læknir, flytja úr bæn- um um næstu mánaðamót. Bergljót var í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 1986. Hún var varabæjarfulltrúi 1982-86. „Ég er lánsöm að hafa fæðst íslendingur og þaðan af lánsamari að hafa fengið að eyða svo miklum hluta ævinnar í besta bæ í heimi, Akureyri. Akureyri, þessi góði bær, á skilið að vera vel stjórnað og það er gert nú. Það er kannski nokkuð djúpt í árinni tekið að segja að Akureyri sé besti bær í heimi en það finnst mér þó, ekki síst með tilliti til stærðar bæjarins. Skólarnir bjóða Bergljót Rafnar. upp á að fólk getur haft börnin heima fram að tvítugu. Hér er því hægt að ala upp börn á áhyggjulítinn hátt, bærinn er af svo heppilegri stærð" sagði Bergljót, er hún var spurð þeirrar spurningar hvað hcnni væri efst í huga á þessum tímamótum. Bergljót sagði ennfremur að það hefði verið mjög ánægjulegt að fá að starfa með því ágæta fólki sem skipar Bæjarstjórn Akureyrar. Samstarfið innan bæjarstjórnarinnar væri gott og margs góðs væri þaðan að minnast. Hún ætti þá ósk til handa Akureyrarbæ að eiga ávallt góðar bæjarstjórnir, skipaðar fólki sem vildi hafa vað- ið fyrir neðan sig. Hjónin Bergljót og Bjarni Rafnar hafa búið á Akureyri í áratugi, Bjarni hefur starfað við FSA í nærfellt 40 ár, þar af sem yfirlæknir síðan um 1970. EHB með aðstoð lögreglunnar í Olafsfirði. Vegurinn í Múlan- um er því lokaður og í gær var þar slæmt veður og ekki hægt að ryðja. Samkvæmt upplýsingum hjá lögreglunni í Ólafsfirði gekk vel að koma fólkinu til byggða en snjóflóðahætta var mikil í Múlan- um. Að öðru leyti var helgin tíð- indalítil hjá lögreglunni en ölvun var nokkur í bænum og gisti einn fangageymslur. Á Siglufirði var leiðindaveður í gær en það olli engum vandræð- um. Menn vonuðust bara til að þessu hreti ýrði lokið fyrir skíða- landsmótið. Dalvíkingar höfðu svipaða sögu að segja. Þar var þungur og blautur snjór og ófært milli Dal- víkur og Akureyrar. Sævar Freyr Ingason lögregluþjónn sagði að helgin hefði verið róleg. Lögregl- an hefur fylgst vel með öku- mönnum en þeir virðast hafa lát- ið bjór og annað áfengi eiga sig. Hjá Vegagerð ríkisins á Akur- eyri fengust þær upplýsingar í gær að allir vegir á Norðurlandi væru ófærir, a.m.k. vegna veðurs. Vegagerðin reyndi að ryðja milli Akureyrar og Húsa- víkur og Akureyrar og Dalvíkur en snjóruðningstæki þurftu frá að hverfa í gærmorgun vegna vonsku- veðurs. Ekkert var hreyft við suðurleiðinni í gær og raunar ekkert hægt að gera fyrr en veðr- ið gengur niður. SS Gamli Lundur: Steingrímur fær góðar viðtökur Sýning Steingríms St. Th. Sig- urðssonar listmálara í Gamla Lundi á Akureyri hefur fengið mjög góðar viðtökur. í gær höfðu hátt í 400 manns séð sýninguna og 22 myndir voru seldar af þeim 34 sem voru til sölu, en alls sýnir Steingrímur 43 verk á sýningunni. Ýmsar uppákomur hafa verið í Gamla Lundi í tengslum við sýn- ingu Steingríms og má þar nefna ljóðalestur og tónlistarflutning. Áðspurður sagðist listamaðurinn vera mjög ánægður með viðtök- urnar, en sýningunni lýkur í kvöld kl. 23.30. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.