Dagur - 21.03.1989, Blaðsíða 8

Dagur - 21.03.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 21. mars 1989 B-íslandsmót í vaxtarrækt: íþróttir Vel hepnað Islandsmót - Norðlendingar stóðu sig vel Á laugardaginn var haldið B- íslandsmótið í vaxtarrækt í Sjallanum á Akureyri. Kepp- endur voru sextán frá Akur- eyri, Húsavík, Reykjavík og Kópavogi. Efstu menn í hverj- um flokki unnu sér rétt til að taka þátt í íslandsmótinu sem fram fer í Reykjavík um næstu helgi. Ársþing H.S.Þ.: Jónas íþróttamaður ársins hjá H.S.Þ. Jónas Öskarsson sundmaður úr Yölsungi var valinn íþrótta- maður HSÞ 1988. Þetta kom fram á ársþingi HSÞ sem hald- ið var á Grenivík um helgina. Þingið var vel sótt og þar var Jón Benónýsson kosinn nýr formaður í stað Ingólfs Freys- sonar sem ekki gaf kost á sér. Jónas Óskarsson náði mjög góðum árangri á Heimsleikum fatlaðra í Kóreu síðasta haust og var þar að auki í sundliði HSÞ sem sigraði í 2. deildinni í fyrra. Jónas var valinn íþróttamaður Húsavíkur árið 1980 og 1988 og íþróttamaður ársins hjá fötluðum árið 1984 þannig að hann er van- ur að fá slíkar viðurkenningar. Á ársþinginu fengu þau Hilmar Ágústsson sundmaður og Ágústa Pálsdóttir hlaupakona einnig viðurkenningu fyrir góðan árang- ur í íþrótt sinni. Jónas Óskarsson, nýkjörinn íþróttamaður ársins hjá H.S.Þ. Margir áhorfendur mættu í Sjallann og voru menn sammála um að mótið hefði heppnast mjög vel. Að vísu mættu einungis tvær stúlkur til leiks að þessu sinni en þær hafa oftast verið fleiri. Kynnir á mótinu var Konráð Jóhannsson og stóð hann sig vel í því hlutverki, eins og við mátti búast. Yfirdómari var Hjalti Gestsson en ásamt honum voru þau Kristín Alfreðsdóttir, Svanur Kristjánsson, Jón Knútsson og Þórhallur Jónsson í dómnefnd- inni. En lítum þá á úrslitin í ein- stökum flokkum. Unglingaflokkur -70 kg 1. Kristján Jónsson Kópavogi 2. Jóhann V. Gunnarsson Akureyri 3. Aðalsteinn Finnbogason Garðabæ Unglingar +80 kg 1. Magnús Bess Hafnarfirði 2. Jón Þorsteinsson Húsavík Fullorðnir -80 kg 1. Kjartan Guðbrandsson Reykjavík 2. Kristján Hjálmarsson Húsavík Fullorðnir -90 kg 1. Ingi J. Valsson Akureyri 2. Magnús Óskarsson Reykjavík 3. Jónas V. Sveinsson Akureyri Konur-52 kg 1. Lilja Hjartardóttir Akureyri Konur +57 kg 1. Lóa Jónsdóttir Hvolsvöllur !f Í jtl 'l) ■ '!* JitíiA/ i * . Kristján Hjálinarsson frá Húsavík sigraði í keppni í frjálsri aðferð. Mynd: ap Akureyrarmót í júdó 5-12 ára: Góð þátttaka í mótinu - yfir 60 keppendur Tilkynning frá Rafveitu Akureyrar Lokað verður eftir hádegi í dag vegna jarðar- farar. Rafveita Akureyrar. Akureyrarmót í júdó 5-12 ára var haldið í íþróttahöllinni á laugardaginn og var mjög góð þátttaka í mótinu. Keppnisfyrirkomulag var með þeim hætti að raðað var í flokka eftir þyngd, aldri og getu, þannig að í hverjum flokki voru alltaf 3- 4 sem voru svipaðir að styrkleika. Þetta gerir það að verkum að keppni í hverjum flokki er mjög jöfn. Brýnt er fyrir keppendum að ekki skipti máli hver vinni, aðeins að hver og einn geri sitt Síðasta blað fyrir páska kemur út á skírdag 23. mars. Fyrsta blað eftir páska kemur út miðvikudaginn 29. mars. Auglýsingar í skírdagsblaðið þurfa að hafa borist auglýsingadeild fyrir kl. 11.00 miðvikudaginn 22. mars, 3ja dálka auglýsingar eða stærri þurfa að berast auglýsingadeild fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 21. mars. auglýsingadeild sími 24222 J besta og vandi sig. Keppendur á mótinu voru að þessu sinni 61, bæði strákar og stelpur. Að vísu voru strákarnir fleiri en samt sem áður mættu þarna rúmlega tíu galvaskar stúlkur, flestar í yngri flokkun- um. Að sögn Jóns Óðins Óðinsson- ar, þjálfara, er mikill áhugi hjá þessum yngstu keppendum að taka þátt í mótum, en stefnan hjá júdódeild KA sé að kenna þess- um ungu júdómönnum að bera virðingu fyrir íþróttinni og and- stæðingunum. Ekki sé lagt mikið upp úr því að sigra heldur að vera með, enda komi sigurviljinn síðar. Blaðamaður getur vitnað um að krakkarnir stóðu sig öll mjög vel og var gaman að fylgjast með hve öguð þau voru í allri fram- komu. „Æ, þarftu endilcga að vera að taka mynd af mér núna, þegar ég ligg í gólf- inu,“ gæti þessi ungi júdómaður verið að hugsa, þegar ljósmyndarinn smellti mynd af lionum á Akureyrarmótinu á laugardaginn. Mynd: ap.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.