Dagur - 21.03.1989, Page 9

Dagur - 21.03.1989, Page 9
Þriðjudagur 21. mars 1989 - DAGUR - 9 Enski bikarinn: Bíkarmeistarar Wimbledon úr leik Everton, Liverpool og Nottingham For. áfram Um helgina fór fram 6. umferð í FA-bikarnum á Englandi og mikið í húf! fyrir þau 8 lið sem þátt tóku í leikjunum. Það var enda hart barist og ekkert gef- ið eftir eins og menn fengu að Hörkutólið Terry Hurlock skoraði annað mark Millvall gegn Aston Villa. Staðan 1 . deild Arsenal 28 16- 7- 5 53:28 55 Norwich 27 15- 8- 4 40:28 53 Millwall 28 14- 7- 7 42:31 49 Liverpool 26 12- 9- 5 41:20 45 Nott.Forest. 26 10-12- 4 38:28 42 Coventry 28 11- 9- 8 36:28 42 Derby 27 12- 6- 9 31:25 42 Man.Utd. 26 10-10- 6 35:21 40 Wimbledon 2611- 5-10 32:31 38 Tottenham 29 10-10- 9 42:39 38 Everton 26 9- 9- 8 32:29 36 Middlesbro 28 8- 7-13 31:44 31 Aston Villa 28 7-11-10 35:44 31 QPR 27 7- 9-1126:25 30 Sheff.Wed. 28 7- 9-12 23:36 30 Luton 28 7- 8-13 28:39 29 Southampton 27 6-1M0 39:51 29 Charlton 28 6-10-12 31:43 28 Newcastle 26 5- 7-14 23:45 22 West Ham 25 4- 7-14 21:42 19 2. deild Chelsea 34 19-11- 4 70:36 68 Man.City 35 19- 9- 7 58:33 66 W.B.A. 35 15-13- 7 53:32 58 Blackburn 35 17- 7-11 57:50 58 Ipswich 35 17- 5-13 56:45 56 Watford 33 15- 8-10 48:36 53 Bournemouth 34 16- 5-13 43:42 53 Swindon 33 14-11- 8 50:40 53 Stoke 33 14-10- 9 43:47 52 Leeds Utd. 35 12-14- 9 46:39 50 C.Palace 32 13-10- 9 49:40 49 Barnsley 34 12-12-10 46:45 48 Portsmouth 35 12-10-13 43:43 46 Sunderland 34 11-11-12 43:45 44 Leicester 35 10-13-12 43:50 43 Oldham 35 9-14-12 59:57 41 l'lymouth 34 11- 8-15 39:48 41 Oxford 35 10-11-14 47:49 41 Bradford 35 9-13-13 36:45 40 Hull 34 10- 8-16 42:54 38 Brighton 35 10- 7-18 45:52 37 Shrewsbury 34 5-14-15 27:51 29 Birmingham 34 5- 9-20 20:55 24 Walsall 34 4-11-19 29:57 23 sjá í sjónvarpinu í beinni útsendingu frá leik Manchester Utd. og Nottingham For. á Old Trafford í Manchester. Þetta var hörkuleikur og einn sá besti sem sést hefur frá ensku knattspyrnunni lengi. Gífurleg barátta tveggja sterkra liða sem lögðu allt í sölurnar. Nottingham For. gerði sigur- mark sitt og eina mark leiksins 2 mín. fyrir lok fyrri hálfleiks. Þá lék hinn snjalli hægri útherji For- est Franz Carr hinn unga vinstri bakvörð Manchester Utd. Lee Sharpe sundur og saman á kant- inum, lék upp að endamörkum og sendi fyrir mark Utd. þar sem Gary Parker skoraði af stuttu færi. Leikmenn Manchester liðs- ins gerðu allt hvað þeir gátu til að jafna í síðari hálfleik, en þá gerð- ist umdeilt atvik er Gordon Strachan tók hornspyrnu frá hægri fyrir Utd. Paul McGrath skallaði að marki og Brian McClair klippti boltann áfram, en á marklínu Forest var Steve Hodge sem tókst að krækja í knöttinn og spyrna frá. Margir vildu halda því fram að boltinn hefði verið kominn innfyrir þegar Hodge náði til hans og svo virtist vera af þeim myndum sem sáust, en dómarinn var vel staðsettur og dæmdi ekki mark. Lið Utd. var óheppið að ná ekki jafntefli úr leiknum, en það hefði verið sanngjarnt, en Nott- ingham For. stefnir nú í sinn þriðja úrslitaleik á Wembley í vor. Liðið er þegar komið í úrslit Deildabikarsins þar sem það mætir Luton og liðið er einnig í úrslitum Simod bikarsins sem er bikarkeppni fyrstu og annarrar deildar liðanna. Þar verða mót- herjar Forest lið Everton. West Ham og Norwich gerðu markalaust jafntefli í leik sínum á heimavelli West Ham. Norwich átti mun meira í leiknum, en tókst ekki að koma boltanum f mark. West Ham fær því annað tækifæri á miðvikudaginn á heimavelli Norwich og mikið í húfi fyrir liðið að sigra því allt bendir til þess að West Ham muni falla í 2. deild í vor og bik- arkeppnin er því eina von liðsins um velgengni í vetur. 3. deildar lið Brentford hefur komið verulega á óvart í bikarn- um í vetur, en mætti ofjörlum sínum á Anfield leikvelli Liver- pool á laugardaginn. Sigur Liver- pool var þó ekki eins auðveldur og 4:0 markatalan gefur til kynna. Steve McMahon skoraði fyrsta markið fyrir Liverpool snemma í leiknum og það var ekki fyrr en á 65. mín., sem John Barnes skoraði annað mark liðs- ins. Peter Beardsley bætti síðan Liam Brady og félagar í West Ham fá annað tækifæri gegn Norwich. við tveimur mörkum fyrir Liver- pool undir lok leiksins og Liver- pool þykir nú ásamt Nottingham For. líklegast til sigurs í keppn- inni. Á sunnudaginn fór síðan fram leikur Everton á heimavelli gegn bikarmeisturum Wimbledon. Um 25.000 áhorfendur urðu vitni að þeim leik sem var hvorki fagur né drengilega leikinn, gífurleg harka á báða bóga og aðeins hugsað um að ná góðum úrslit- um. Deildakeppnin: Sheffleld W. færðist ofar - sigraði Luton óvænt Vegna bikarkeppninnar var lít- ið um að vera í 1. deild um helgina. Aðeins fjórir leikir fóru fram og mörkuðu þeir ekki djúp spor í stöðu deildar- innar, þó lið Sheffield Wéd. kæini skemmtilega á óvart og lagaði yerulega stöðu sína í fallbaráttunni. Coventry og Tottenham áttust við þar sem Gary Bannister náði forystu fyrir Coventry í fyrri hálf- leik. Chris Waddle náði að jafna leikinn fyrir Tottenham í þeim síðari og þar við sat. Sheffield Wed. náði óvæntum, en dýrmætum sigri á gervigrasinu í Luton. Eina mark leiksins skor- aði David Hirst fyrir Sheffield í síðari hálfleik og fallvindarnir blása nú ekki eins napurt um Sigurð Jónsson og félaga hans í Sheffield og áður. Millwall hefur komið verulega á óvart í vetur og liðið situr nú í 3. sæti 1. deildar. Millwall fékk Aston Villa í heimsókn á laugar- dag og sigraði 2:0. Kevin O’Call- aghan skoraði strax á 3. mín., en það var ekki fyrr en undir lok leiksins sem Terry Hurlock bætti síðara markinu við og gulltryggði sigur liðsins. Þá tókst Derby að leggja Middlesbrough að velli með einu marki gegn engu á útivelli. Ted McMinn skoraði mark Derby í fyrri hálfleik. 2. deild Það var leikin heil umferð í 2. deild um helgina þar sem barátt- an er mjög hörð. Chelsea og Manchester City hafa til skiptis verið í efsta sæt- inu, en liðin eru langefst í deild- inni og virðast örugg um að end- urheimta sæti sín í 1. deild. Þessi lið mættust í Manchester og hafði Chelsea betur í þeirri viðureign, sigraði 3:2 eftir að hafa komist í 3:0. Chelsea er því efst með 68 stig, tveimur stigum á undan Man. City. En aðalbaráttan stendur um næstu 4 sæti og þar með auka- keppni í vor þar sem eitt af þeim 4 liðum færist upp í 1. deild. Blackburn og W.B.A. hafa bæði 58 stig eftir sigra á laugar- dag, Blackburn sigraði Hull City 4:0 og W.B.A. lagði Brighton 1:0. Ipswich sigraði Shrewsbury 2:0 og hefur 56 stig. Önnur lið sem standa vel í baráttunni eru Watford, Bournemouth, Swind- on og Stoke City. Bournemouth hefur þó tapað tveimur síðustu leikjum sínum og Watford tapaði gegn Bradford á laugardag 2:1 eftir að hafa komist í 1:0. Swind- on sem lék í 3. deild í fyrra hefur sótt mjög á að undanförnu og með heppni gæti liðið leikið í 1. deild að ári. Barnsley og Leeds Utd. gerðu jafntefli 2:2 í leik sínum á sunnu- dag. Þ.L.A. Eina mark leiksins kom á 59. mín., eftir þunga sókn Everton þar sem boltinn hafði lengi þvælst í vítateig Wimbledon tókst Kevin Sheedy að senda til Stuart McCall sem sendi boltann í netið. Enginn varð markinu eins feginn og Graeme Sharp sem lát- ið hafði Hans Segers markvörð Wimbledon verja frá sér víta- spyrnu á 9. mín. leiksins, eftir að boltinn fór í hendi John Fashanu eftir sendingu Sheedy. Wimble- don sótti mjög eftir markið og leikmenn Everton drógu lið sitt í vörn, en þeim tókst að halda fengnum hlut og eru því komnir í undanúrslit, en bikarmeistarar Wimbledon eru úr leik. Þrátt fyr- ir að Everton hafi tekið bikarinn frá Wimbledon er ólíklegt að lið- inu takist að halda honum ef ekki verður breyting til batnaðar á leik liðsins. Þ.L.A. Úrslit FA-bikarinn 6. umferð Evcrtun-Wimbledun 1:0 Liverpoul-Brentfurd 4:0 Manchestcr Utd.-Nott. For. 0:1 West Ham-Norwich 0:0 1. deild Coventry-Tottenham 1:1 Luton-Shelfield Wed. 0:1 Middlesbrough-Derby 0:1 Millwall-Aston Villa 2:0 2. deild Barnsley-Leeds Utd. 2:2 Birmingham-Walsall 1:0 Blackbum-Hull City 4:0 Bournemouth-Swindon 2:3 Bradford-Watford 2:1 Crystal Palace-Sunderland 1:0 Ipswich-Shrewsbury 2:0 Manchester City-Chelsea 2:3 Oxford-Oldham 1:1 Piymouth-Leicester 1:1 Portsmouth-Stoke City 0:0 W.B.A.-Brighton 1:0 3. deild Aldershot-Chesterfield 2:0 Blackpool-Chester 1:1 Bolton-Southend 0:0 Bristol City-Notts County 0:4 Fullham-Cardiff City 2:0 Northampton-Mansfield 2:1 Port Vale-Preston 1:1 Sheffield Utd.-Reading 1:0 Wolvcs-Bury 4:0 Swansea-Giilingham 3:2 4. deild Crewe-Lincoln 2:0 Doncaster-Colchester 3:1 Grimsby-Scunthorpe 1:1 Hartlepool-Torquay 0:1 Hereford-Leyton Orient 1:1 Peterborough-Darlington 1:1 Rochdale-Scarborough 2:1 Wrexham-Rotherham 1:4 York City-Bumley 0:0 Úrslit í vikunni 1. deild Liverpool-Luton 5:0 Nottingham For.-Newcastle 1:1 2. deild Hull City-Leeds Utd. 1:2 Ipswich-Bourneinouth 3:1 Oldham-Portsmouth 5:3 Sundcrland-Manchester City 2:4 Bradford-Oxford 0:0 Brighton-Chelsea 0:1 Lcicester-Shrewsbury 1:1 W.B.A.-Blackburn 2:0

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.