Dagur - 18.04.1989, Síða 6

Dagur - 18.04.1989, Síða 6
\~ -63] ö'A\áUR?J-B'f>'ri6ícMaáfdr"'1’8.Raptf)itS89 Kaupfélag Skagfirðinga er 100 ára á þessu ári, en það var stofnað 23. apríl 1889 af 11 bændum úr Skagafirði og einum bónda úr A-Húna- vatnssýslu, sem komu sam- an á Sauðárkróki. Kaupfélag Skagfirðinga er þriðja elsta kaupfélag á landinu, aðeins Kaupfélag Eyfirðinga og Kaupfélag Pingeyinga eru eldri. Nú eru félagsmenn kaupfélagsins 1727 í 14 fé- lagsdeildum. Afmælisins verður minnst nk. sunnudag, 23. apríl, með hátíðardag- skrá í Iþróttahúsinu á Sauð- árkróki. Búist er við hundr- uðum gesta á hátíðina og verður dagskrá fjölbreytt. Höfudstödvar Kaupfclags Skagfíröinga á Sauöárkróki við Ártorg. Kaupfélag Skagfirðinga 100 ára - Mikið um dýrðir nk. sunnudag - Afmælisins minnst með ýmsum hætti Afmælisnefnd Kaupfclags Skagfíröinga að störfum á skrifstofu kaupfélagsins við Artorg. Frá vinstri: Magnús Sig- urjónsson, Konráö Gíslason, Guðbrandur Forkell Guöbrandsson, Ásta Hansen, Erla Einarsdóttir og Inga Valdís Tómasdóttir. Á myndina vantar formann nefndarinnar, Þórólf Gíslason kaupfélagsstjóra. Mynd: EinhL-rji/öþ Undirbúningur að 100 ára afmæli Kaupfélags Skagfirðinga hófst í raun fyrir 5 árum, þegar aðalfundur K.S. ákvað að skipuð yrði sérstök afmælisnefnd til að undirbúa afmælið. Hennar fyrsti fundur var svo í nóvember 1986 og síðan hafa fundirnir verið all margir. Mikill undirbúningur að afmælinu Frá stofnun nefndarinnar hafa kaupfélagstjórar verið formenn hennar, fyrst Ólafur Friðriksson, og núna Þórólfur Gíslason. Aðrir í nefndinni eru Ásta Hansen, Svaðastöðum og Erla Einarsdótt- ir, Sauðárkróki, báðar kjörnar af aðalfundi, Inga Valdís Tómas- dóttir, Sauðárkróki, kjörin af Starfsmannafélagi K.S. og Kon- ráð Gíslason, Varmahlíð, kjör- inn af stjórn. Frá upphafi hefur Guðbrandur Þorkell Guðbrands- son verið sérstakur ritari og ráð- gjafi nefndarinnar. Síðan réð nefndin sér framkvæmdastjóra, Magnús H. Sigurjónsson. sem byrjaði í fullu starfi sem slíkur um mánaðarmótin janúar-febrú- ar. Að sögn Magnúsar hefur verið í nógu að snúast að undirbúa afmælið og sagði hann að raunar hafi hann mátt byrja fyrr á því, því það væri svo margt sem þyrfti að huga að. Magnús sagði að mestur tími hafi farið í útgáfu- málin, m.a. hafi hann séð um að skrifa brot úr sögu félagsins til Afmælismerkið sem gert var í tilcfni 100 ára afmælisins. Það var Kavanagh hjá Auglýsingastofu Sambandsins sem þaö hannaði. birtingar í Glóðafeyki og unnið efni í kvikmynd sem kaupfélagið lætur gera í tilefni 100 ára afmæl- isins. Saga kaupfélagins kemur út í tveim bindum Kaupfélag Skagfirðinga ætlar að minnast tímamótanna á margan hátt. Hæst ber þar ritun á sögu kaupfélagins, sem Gísli Magnús- son frá Frostastöðum tók að sér að rita. Upphaflega var stefnt að því að koma ritinu út fyrir afmæl- ið, en þaö tókst ekki þar sem verkið var mun yfirgripsmeira en ætlað var í fyrstu. Nú hefur verið ákveðið að hafa söguna í tveim bindum og mun fyrra bindið koma út að öllum líkindum síðar á þessu ári. Þá mun Glóðafeykir, félagsrit K.S., koma út í kringum afmælis- hátíðina og verður hann í sér- stökum hátíöarbúningi í tilefni afmælisins. Einnig ætlar kaupfé- lagið að gefa út myndband með myndum úr sögu télagsins allt frá upphafi, með texta eftir Gísla Magnússon, í flutningi Hauks Þorsteinssonar. Meiningin er síð- an að dreifa þessu myndbandi í skóla, til fræðslu og kynningar fyrir nemendur. Fleira verður gert í útgáfumálum. Gömul kvik- mynd frá 1949, sem gerð var í tilefni 60 ára afmælis K.S., verð- ur unnin á myndband og þá ætlar kaupfélagið að gera kvikmynd í tilefni 100 ára afmælisins. Þar verður stiklað á stóru í sögu félagsins, sýndar myndú frá afmælishátíðinni og viðtöl tekin við starfsmenn sem unnið hafa lengi hjá K.S. Sérstakt afmælis- merki hannað í tengslum við afmælið lét kaup- félagið hanna sérstakt afmælis- merki. Um það sá Stevens Kavanagh, auglýsingateiknari hjá Auglýsingastofu Sambands- ins. Merkið hefur birtst víða, m.a. á plastpokum, pennum, öllum- bréfsefnum, á sérhönnuðum fánum o.m.fl. Því verður semsagt haldið víða á lofti út þetta afmælisár. Þá verða ársreikningar prentaðir í sérstöku hátíðarformi, en aðal- fundur félagsins í byrjun maí verður með sérstöku hátíðarsniði í tilefni 100 ára afmælisins. Fjölbreytt dagskrá á afmælishátíðinni Ef við víkjum að hátíðardag- skránni sunnudaginn 23. apríl nk. í íþróttahúsinu, þá liefst hún á því að Þórólfur Gíslason, kaup- félagsstjóri, setur hátíðina. Stef- án Gestsson, stjórnarformaður kaupfélagsins, llytur hátíðar- ræðu. Helgistund verður í umsjá sr. Hjálmars Jónssonar prófasts. Því næst syngur Jóhann Már Jóhannsson einsöng við undirleik Sigurðar Daníelssonar. Þá verða ávörp nokkurra gesta, m.a. Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra SÍS. Eftir ávörpin verður 32 starfsmönnum kaupfélagsins sem hafa 25 ára starfsaldur eða meiri, veitt viðurkenning. Sá sem hefur elstan starfsaldur hjá K.S. er Guðmundur Valdimarsson bif- vélavirki, sem unnið hefur í 53 ár hjá kaupfélaginu, allt frá 16 ára aldri. Að loknum viðurkenningunum flytja félagar úr Leikfélagi Sauð- árkróks annálsbrot úr sögu kaup- félagsins, sem Hjalti Pálsson tók saman. Síðasta atriði á dag- skránni verður Karlakórinn Heimir, sem mun syngja nokkur lög undir stjórn Stefáns Gíslason- ar. Veitingar verða fram bornar að dagskrá lokinni, og á boðstól- um verður m.a. 12 metra löng af- mælisterta. Allir Skagfirðingar, heima og að heiman, svo og aðrir velunnarar félagsins, eru vel- komnir til þessarar hátíðar. Að kveldi sunnudagsins 23. apríl verður unglingadansleikur í Félagsheimilinu Bifröst og mun hljómsveit Geirmundar Valtýs- sonar leika fyrir dansi frá kl. 21.00 til 1.00 e.m. Aldurstak- mark verður 12 til 18 ár. Aðgang- ur að þessum dansleik er að sjálf- sögðu ókeypis og verður reynt að auðvelda unglingum úr sveitinni að sækja hann. Af öllu ofansögðu er það ljóst að mikið verður um dýrðir nk. sunnudag. Kaupfélagsmenn búast við a.m.k. 500 gestum á hátíðina í íþróttahúsinu og ekki kæmi það á óvart að sú tala verði hærri. -bjb

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.