Dagur - 27.04.1989, Page 1
Verkfall framhaldsskólakennara:
Höfuðnauðsyn á
langtímasanuiingí
- samstaðan styrkist með hverjum
deginum sem líður
„Við fínnum að samstaðan er
góð og hún styrkist ef eitthvað
er,“ sagði Benedikt Bragason
framhaldsskólakennari á
Akureyri sem sæti á í fulltrúa-
ráði HÍK að afloknum félags-
fundi BHMR á Akureyri fyrr í
vikunni. „Fundurinn staðfesti
að félagsmenn standa við bak
samninganefndarinnar í einu
og öllu. Það verður t.d. örugg-
lega ekki gengist inn á samn-
inga á borð við þá sem BSRB
menn fengu og við ætlum ekki
að láta plata okkur með lof-
orðum um rannsóknir sem
ekki er farið eftir. Þá erum við
komnir yfír þau mörk að gefast
upp, því við gerum okkur grein
fyrir því að ef þetta tekst ekki
núna, veit enginn hvenær ann-
að tækifæri gefst.“
Benendikt og Jónas Helgason
menntaskólakennari sögðu í
samtali við Dag í gær, að ef sam-
ið yrði á BSRB nótum stæðu
kennarar aftur í sömu sporum
næsta vetur og ekki væru
nemendur bættari með það. „Pað
er okkur höfuðnauðsyn að semja
til lengri tíma svo friður náist í
skólastarfinu."
Megin kröfur BHMR er að
samið verði til þriggja ára. Rætt
er um ýmis réttindamál varðandi
menntun, ábyrgð og fleira, en
varðandi launin sjálf er þess kraf-
ist að staðið verði við fyrirheit úr
síðasta kjarasamningi þar sem
stendur orðrétt, „að ríkisstarfs-
menn njóti sambærilegra kjara
og þeir menn með svipaða
menntun, sérhæfni og ábyrgð
sem vinna hliðstæð störf bjá öðr-
um en ríkinu." Meðallaun
kennara í HÍK í dag eru rúmlega
64 þúsund krónur á mánuði.
Tæknifræðingar, sem hafa mjög
sambærilega menntun eru með
108 þúsund í föst laun á mánuði á
almennum vinnumarkaði og nú
er þess krafist að laun kennara
fari í 88 þúsund krónur strax og
nái markaðnum á þremur árum.
„Um leið og við fáum það
bókfest, að okkur verði tryggð
markaðslaun eftir 3 ár, erum við
tilbúin til þess að ræða frekar
um hver byrjunarhækkun skuli
vera.“
Um átta hundruð félagsmenn í
HÍK hafa þegar fengið úthlutað
úr verkfallssjóði HÍK. Sem kunn-
ugt er, hafa sjóðnum borist gjaf-
ir úr verkfallssjóði KÍ og víðar
að. VG
Tómas Lárus Ijósmyndari Dags hitti Grétar Óla um daginn. Þá var hinn
síðarnefndi að hjálpa mömmu sinni að moka út úr hesthúsunum, enda vorið
í nánd . ..
Sauðárkrókur:
Heitu pott-
amir opnaðir
á niorgun
Unnendur heitra potta á Sauð-
árkróki geta nú endanlega tek-
ið gleði sína, því í fyrramálið
verða heitu pottarnir tveir við
Sundlaug Sauðárkróks opnað-
ir. Morgunhanar geta mætt í
pottana kl. 7 í fyrramálið, um
leið og laugin verður opnuð. í
tilefni dagsins verður aðgangur
ókeypis í laugina á morgun,
föstudag.
Um 10 dagar eru síðan vinnu-
skúr1 var rifin utan af pottunum,
sem var yfir þeim í vetur. Síðustu
daga hefur verið unnið sleitulaust
við að ganga frá raflögnum, pípu-
lögnum og öðrum lögnum, þann-
ig að sundlaugargestir geti notið
þægindanna á morgun. Með opn-
um pottanna er langri hönnunar-
og byggingarsögu þeirra lokið,
sem ekki verður rakin hér.
Sem fyrr sagði verður ókeypis í
laugina á morgun, en opnunar-
tími verður frá kl. 7.00-9.30 og
13.00-21.00. Um næstu helgi
verður opið á laugardag og sunnu-
dag frá kl. 10 til 15 og er ekki að
efa að Sauðkrækingar og nær-
sveitamenn munu fjölmenna í
langþráðu pottana, sér í lagi ef
veðurguðir verða í góðu skapi.
-bjb
Aðalfundur SAFF og Sjávarafurðadeildar SÍS:
Meira en helmingur frystihúsa
landsins með neikvæðan höfuðstól
Aðalfundur Félags Sambands-
fískframleiðenda og Sjávaraf-
Tryggvi Finnsson, stjórnarformaður SAFF:
Þolum ekki bullandi tap-
rekstur eitt ár enn
„Þetta ár hefur verið ár mikill-
ar varnarbaráttu. Við höfum
átt í vök að verjast á mörkuð-
um erlendis en ekki síður átt
undir högg að sækja á heima-
vígstöðvum. Við verðum að
vona að framundan séu betri
tímar. Að aftur verði skilning-
ur meðal ráðamanna á íslandi
á að grundvöliur góðra lífs-
kjara er öflug fískvinnsla og
fjárhagslega sterk fyrirtæki í
sjávarútvegi,“ sagði Tryggvi
Finnsson, formaður Félags
Sambandsfískframleiðenda á
aðalfundi félagsins í gær.
„Á árinu 1988 sátu tvær ríkis-
stjórnir á íslandi. Hvorugri þess-
ara ríkisstjórna tókst að skapa
sjávarútveginum og raunar allri
atvinnustarfsemi í landinu, að
bönkum og verðbréfafyrirtækj-
um einum undanskildum, eðli-
legan rekstrargrundvöll.
Eitt ár í viðbót með bullandi
taprekstri þolum við ekki.
Afleiðingarnar yrðu stórkostlegt
hrun í fiskvinnslu áður en þessu
ári lýkur,“ sagði Tryggvi. JÓH
urðadeildar SÍS var haldinn á
Hótel Sögu í gær. Óhætt er að
segja að þar hafí hljóðið verið
þungt í mönnum enda kom
fram í ræðu framkvæmda-
stjóra SAFF að síðastliðið ár
liafí verið versta ár í sögu hrað-
frystingar á Islandi frá því hún
komst sæmilega á legg fyrir
fímmtíu árum. Samkvæmt
bráðabirgðatölum sem nú
liggja fyrir bendir allt til að
rekstrarhalli frystiiðnaðarins
hafí verið 10-12% á árinu
1988.
„í heild er frystiiðnaðurinn því
sem næst eignalaus, þrátt fyrir að
eignir hafi verið uppskrifaðar
langt umfram það sem eðlilegt er.
Það er varla ofmælt að atvinnu-
grein sem þannig er stödd sé
gjaldþrota þó að ennþá megi
finna fyrirtæki sem geta hjarað
enn um sinn,“ sagði Árni
Benediktsson, framkvæmdastjóri
SAFF í skýrslu sinni á fundinum í
gær.
Árni sagði að af þeim 100 fyrir-
tækjum sem telja megi til frysti-
húsa sé meira en helmingurinn
með neikvæðan höfuðstól, nokk-
ur geti talist réttu megin við strik-
ið og geti þraukað í nokkur ár til
viðbótar að óbreyttu en aðeins 6-
10 frystihús hafi ef til vill mögu-
leika til langlífis.
Á fundinum kom fram að út-
flutningur Sjávarafurðadeildar
SIS á frystum afurðum var á síð-
asta ári 12% minni en árið 1987.
Framleiðsla framleiðenda deild-
arinnar var hins vegar tæpum 6%
minni en árið 1987 eðas 51.490
tonn. Útflutningur annarra
afurða en frystra nam 10.030
tonnum árið 1988 á móti 13.550
tonnum árið áður. Hér er um að
ræða skreið, mjöl, lýsi, söltuð
hrogn og ferskan lax. Heildar-
verðmæti útflutnings deildarinn-
ar var röskir 7 milljaðar, eða
5,4% minni en árið 1987. JÓH
Árni Benediktsson, framkvæmdastjóri SAFF:
Fráleitt að fiskverkendur geti hækkað kostnað
„Það er best að segja það
hreint út: Fiskverkendur eru
ekki með hugann við nýja
kjarasamninga. Ahyggjur
þeirra eru um hvort og hve
lengi takist að standa við þær
skuldbindingar, sem á þeim
hvíla nú þegar. Þeir telja að
fráleitt sé að láta sér detta í
hug að hækka nokkurn
kostnað. Ahyggjur þeirra eru
um líf eða dauða fyrirtækj-
anna,“ sagði Arni Benedikts-
son, framkvæmdastjóri SAFF
á aðalfundinum í gær.
Árni segir að verði gengið að
kröfum ASI um sömu launa-
hækkanir og BSRB samdi um
ykist halli frystingarinnar um
3,4% að lámarki nriðað við
samningslok. Mat Þjóðhagsstofn-
unar sé að frysting sé rekin með
2% halla urn þessar mundir en
ekki sé ólíklegt að 4% munur sé
á gjaldamati stofnunarinnar og
raunverulegum gjöldum. Búast
megi því við að raunverulegur
halli sé 6%.
„í dag bendir flest til þess að
verðbólgan sé komin á lokastig.
Við séum komnir að hruninu.
Spurningin í dag er því aðeins
hvort við eigum að bíða róleg eft-
ir því, halda áfram á sömu braut
eða hvort við eigum sjálf að gera
síðustu tilraun til að stöðva okk-
ur áður en farið er fram af brún-
inni.“ JÓH