Dagur - 27.04.1989, Síða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 27. apríl 1989
„Varnarsigur í erfiðri stöðu“:
„Útibú Útvegsbankans á Siglu-
firði vaiið „Utibú ársins 1988“
Útibú Útvegsbanka íslands hf.
á Siglufirði var valið „útibú
ársins 1988“ af yfirstjórn bank-
ans í Reykjavík. Fljótlega eftir
stofnun Útvegsbanka Isiands
hf var ákveðið að gera sérhvert
útibú að sjálfstæðri rekstarein-
ingu sem yrði að starfa innan
eigin ramma. Samhliða því var
ákveðið að verðlauna árlega
best rekna útibúið.
Fyrst þegar verðlaunin voru
veitt hlaut útibú bankans á ísa-
firði verðlaunin. Þegar Siglu-
fjarðarútibúið hreppti verðlaunin
sagði Guðmundur Hauksson,
aðalbankastjóri, að þau væru
veitt „fyrir varnarsigur í erfiðri
stöðu.“ Sigurður Hafliðason, úti-
bússtjóri, veitti verðlaununum
viðtöku fyrir hönd starfsfólks úti-
búsins.
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á afgreiðslutíma útibúa
Útvegsbankans í samræmi við þá
stefnu að draga úr kostnaði. Frá
og með 17. apríl sl. var síðdegis-
afgreiðsla á fimmtudögum felld
niður alls staðar nema á Siglu-
firði, í Vestmannaeyjum og á Isa-
firði. í þess stað verður haft opið
í þremur útibúum nærri verslun-
arkjörnum á Reykjavíkursvæð-
inu milli kl. 17.00 og 18.00, þ.e. á
Seltjarnarnesi, í Glæsibæ og í
Hamraborg í Kópavogi. Jafn-
framt hefur morgunafgreiðsla
verið lögð niður í tveimur litlum
útibúum.
Breytingarnar voru gerðar eftir
umfangsmikla könnun á þörfum
viðskiptavina bankans. í ljós
kom að síðdegisafgreiðslan á
fimmtudögum var lítið notuð og
meiri þörf virtist vera fyrir
bankaþjónustu þegar almenning-
ur gerir helgarinnkaup síðdegis á
föstudögum. Þá má ekki gleyma
hraðþjónustu Útvegsbankans
sem gerir viðskiptin auðveldari
fyrir marga. EHB
Guðmundur Hauksson, aðalbankastjóri, afhendir Sigurði Hafliðasyni viður-
kenningu fyrir best rekna útibú Útvegsbankans á árinu 1988.
Akureyri:
Fundur um möguleika fatlaðra
á þátttöku í atvinnulífinu
DAGUR
Revkjavík
S 91-17450
Norðlenskt dagblað
Á tímabilinu frá 20. maí og
fram í miðjan september í
haust, verður röð opinna stór-
móta í bridge. Það eru Brigde-
deild Skagfirðinga, Brigde-
samband Reykjavíkur og
Ferðaskrifstofa íslands, í sam-
vinnu við Forskot sf. sem að
þessum mótum standa og kall-
ast Alslemma ’89.
Alls eru mótin 8 talsins og fara
fram víðs vegar um landið.
Fyrsta mótið fer fram í Reykja-
vík en niðurröðunin er annars
þessi:
1. Reykjavík 20.-21. maí Gerðu-
berg.
2. Kirkjubæjarklaustur 10.-11.
júní Hótel Edda.
Síðastliðinn þriðjudag var
haldinn fundur um atvinnumál
fatlaðra á Akureyri og voru
fulltrúar ýmissa fyrirtækja í
bænum sérstaklega boðaðir á
fundinn. Magni Hjálmarsson
3. Hrafnagil v/Akureyri 24.-25.
júní Hótel Edda.
4. Reykholt Borgarfirði 8.-9. júlí
Hótel Edda.
5. ísafjörður 22.-23. júlí Hótel
Edda.
6. Húnavallaskóli 12.-13. ágúst
Hótel Edda.
7. Hallormsstaður 26.-27. ágúst
Hótel Edda.
8. Kópavogur 16.-17. sept.
Félagsheimilið.
Glæsileg verðlaun eru í boði
fyrir besta samanlagða árangur í
4 mótum. 1. verðlaun eru kr.
200.000,- pr. mann, samtals kr.
400.000.-. 2. verðlaun eru kr.
100.000.- pr. mann, 3. verðlaun
kr. 50.000,- pr. mann og 4. verð-
frá Starfsskólanum Löngumýri
15, Sunneva Filippusdóttir frá
Starfsdeildinni Löngumýri 9 og
Inga Magnúsdóttir starfsmað-
ur Atvinnleitar fatlaðra fluttu
framsöguerindi svo og Jón
laun kr. 25.000.- pr. mann.
Keppnisgjald pr. spilara er kr.
4000.-. Keppendur njóta 35%
afsláttar af flugi með Flugleiðum.
I hverju móti eru síðan sérstök
verðlaun fyrir 3 efstu sætin, að
jafnaði um 100 þús. kr. samtals.
Spilað verður um silfurstig í öll-
um mótunum. Keppnistjórar og
útreikningsmeistarar verða þeir
Ólafur Lárusson, Jakob Kristins-
son, Hermann Lárusson, Krist-
ján Hauksson og Margrét Þórð-
ardóttir. (m.fv.)
Ferðaskrifstofa íslands býður
sérstaka ferðapakka samfara
mótunum en allar nánari upplýs-
ingar um mótin eru veittar á
skrifstofu Forskots sf. í síma 91-
623326.
Björnsson félagsmálastjóri.
Starfsskólinn Löngumýri 15 er
í rauninni framhald af grunn-
skóla. Þar eru fatlaðir unglingar
búnir undir atvinnulífið og hefst
atvinnuleitin þegar viðkomandi
telst tilbúinn. í máli Magna kom
fram að á undanförnum 4 árum
hafa 13 nemendur skólans farið
út á vinnumarkaðinn, en 6
nemendur stunda nám við skól-
ann ár hvert.
Starfsdeild fyrir fullorðna er
starfrækt að Löngumýri 9 og
sagði Sunneva að markmið henn-
ar væri að þjálfa einstaklingana
til sjálfstæðrar búsetu og þátt-
töku á almennum vinnumarkaði.
Inga Magnúsdóttir hjá
Atvinnuleit fatlaðra lagði áherslu
á samstarf þeirra aðila sem vinna
að því að koma fötluðum út á
vinnumarkaðinn. Hún sagði hlut-
verk sitt vera það að finna þessu
fólki störf við hæfi og hún sagði
jafnframt að fatlaðir þyrftu ekki
að vera síðri starfsmenn en heil-
brigt fólk.
Fram kom að atvinnurekendur
hafa tekið fötluðu fólki vel á
undanförnum árum en sl. vetur
hefur ástandið hins vegar
versnað, enda atvinnuleysi
almennt vaxandi.
Á fundinum tóku líka til máls
fulltrúar þriggja fyrirtækja sem
hafa fatlað fólk, nánar tiltekið
andlega vanheilt, í vinnu. Þau
Brynleifur Hallsson frá Mjólk-
ursamlagi KEA, Þórhalla Þór-
hallsdóttir frá Hagkaupum og
Óskar Erlendsson frá Kjötiðnað-
arstöð KEA lýstu á jákvæðan
hátt þeirri reynslu að hafa fatlað
fólk í vinnu, vinnu við hæfi, og í
umræðum undir lok fundarins
tóku fleiri fulltrúar úr atvinnulíf-
inu til máls. Við munum greina
nánar frá þessum fundi í næstu
viku. SS
Þrotabú Sævers hf.:
Fyrsta uppboðið
- á eignum 9. maí nk.
Fyrsta uppboð á eignum þrota-
bús Sævers hf. í Ólafsfirði hef-
ur verið ákveðið þann 9. maí
nk. að sögn Erlings Óskarsson-
ar, bæjarfógeta á Siglufirði,
sem einnijg gegnir stöðu bæjar-
fógeta í Olafsfirði.
Fyrsti skiptafundur þrotabúsins
verður hins vegar þann 18. maí.
Nú þegar hefur eitt tilboð borist í
eignir þrotabúsins, sem er fyrst
og fremst húseign að Strandgötu
22 í Ólafsfirði. Ekki fæst uppgef-
ið hverjir standa að því tilboði
eða hversu hátt það er. Hallgrím-
ur Ólafsson, viðskiptafræðingur,
verður bústjóri þrotabús Sævers
hf. og mun hann reyna að ná
samningum við þá aðila sem boð-
ið hafa í eignirnar. óþh
Alslemma ’89:
Röð opinna stórmóta í
bridge sumarið 1989
- glæsileg verðlaun í boði fyrir besta
samanlagðan árangur í 4 mótum