Dagur - 27.04.1989, Page 10
10 - ÖÁöUR - Fimmtudagur 27. apríl 1989
f/ myndasögur dags 1
ÁRLAND
Ekki?! Æ, æ, ég var'hræddur um þetta ...
Hvað er að? ... hræðsla við einkunnir? Van-
hæfni í samskiptum við skólafélagana? Þú
getur sagt mér allt Daddi.
# Nöldurpólitík
Það er ekki ofsögum sagt að
pólitík sé skrítin tik. Tíkin sú
arna hefur löngum verið undar-
leg úr hófi fram, en samt er það
nú svo að menn láta stöðugt
glepjast og gera hana að ævi-
starfi. Pólitík felst í stórum
dráttum í því að hafa áhrif,
koma fram með mál og fylgja
þeim eftir í hvívetna. Sumir
pólitíkusar hafa hins vegar
gjörsamlega misskilið eðli
pólitíkur og telja að í henni fel-
ist að vera á móti öllum
sköpuðum hlutum. Þetta eru
svokallaðir nöldrarar eða póli-
tikusar með öfugum formerkj-
um.
# Neikvæða
tríóið
Þetta kom upp i huga umsjón-
armanns S&S á dögunum þeg-
ar greint var frá þvi í fréttum að
fram væri komið frumvarp á Al-
þingi um úreldingu fiskiskipa.
Hér er um að ræða frumvarp
sem ráðherra sjávarútvegs-
máia og hans menn i Sjávarút-
vegsráðuneyti, svo og tals-
menn hinna ýmsu hagsmuna-
hópa i sjávarútvegi, hafa náð
nokkuð breiðri samstöðu um.
Frumvarpið hafði ekki verið
fyrr lagt fram á Alþingi en nei-
kvæða tríóið í allri sjávarút-
vegsumræðu þingsins, Karvel,
Sighvatur og Skúli Alexanders-
son risu upp og kölluðu úlfur,
úlfur. Það er reyndar ekki nýtt
hjá þeim ágætu mönnum að
vera á móti. Þeir hafa sí og æ
lagst hart gegn öllum málum
sem sjávarútvegsráðherra hef-
ur lagt fram. Hvað Sighvat og
Karvel áhrærir kann skýringin
að vera sú að vegna gamalla
erja út af kvótakerfi (sem Vest-
firðingar voru brjálaðir á móti)
sjái þeir sig knúna að vera
einnig á móti nú. Nærtækasta
skýringin með Skúla er auðvit-
að sú að vegna eigin málaferla
gegn sjávarútvegsráðherra,
fyrir hönd Sjávarútvegsráðu-
neytis, komi ekki annað til
greina en að vera á móti.
# Alexander
a la móti
En það eru fleiri dæmi um nei-
kvæða þingmenn á háttvirtu Al-
þingi. Húsbréfin margfrægu
hafa verið mikið í umræðunni
að undanförnu og sýnist sitt
hverjum. Jóhanna leggur ráð-
herrastólinn að veði en and-
stæðingar húsbréfanna láta sér
fátt um finnast. Alexander Stef-
ánsson tætti þetta kerfi niður,
rauður af skelfingu, í ræðustól
á Alþingi. Kom kannski varla á
óvart, því hann var fyrrverandi
félagsmálaráðherra og þarmeð
einn af ábyrgðarmönnum nú-
verandi gjaldþrota hús-
næðislánakerfis. Guðmundur
Árni Stefánsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði og toppkrati, orðaði
það svo á Dagskrá á Rás 2 á
dögunum, að andstaða Alex-
anders kæmi nú ekkert á óvart.
Það væri alveg sama hvaða mál
Jóhanna Sig. bæri á borð fyrir
þingheim, Alexander yrði alltaf
á móti!
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Fimmtudagur 27. apríl
17.50 Heiða (44).
18.15 Þytur í laufi.
(Wind in the Willows.)
Breskur brúðumyndaflokkur, framhald
fyrri flokka um Móla moldvörpu, Fúsa
frosk og félaga þeirra.
18.45 Táknmálsfréttir.
18.55 Hver á að ráða?
(Who’s the Boss?)
19.20 Ambátt.
(Escrava Isaura.)
Annar þáttur.
19.54 Ævintýri Tinna.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva 1989.
Lögin í úrslitakeppninni kynnt.
20.45 Úr fylgsnum fortíðar.
2. þáttur - Grundarstóllinn.
Litið inn á Þjóðminjasafnið undir leiðsögn
Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar.
20.55 Fremstur í flokki.
Níundi þáttur.
21.45 ísland og umheimurinn.
Þriðji þáttur - Að selja uppskeruna.
Hver eru efnahagsleg einkenni smáríkja?
í þessum þætti er sýnt fram á hve íslend-
ingar eru háðir umheiminum vegna við-
skipta. M.a. er fjallað um þátttöku og af-
stöðu íslendinga til EFTA.
22.30 íþróttasyrpa.
í þættinum verða sýndar svipmyndir frá
leik Islendinga og Dana á Norðurlanda-
Imótinu í körfuknattleik.
23.00 Ellefufréttir.
23.10 íþróttasyrpa - framhald.
23.35 Dagskrárlok.
Sjónvarp Akureyri
Fimmtudagur 27. apríl
15.45 Santa Barbara.
16.30 Með afa.
18.05 Bylmingur.
19.00 Myndrokk.
19.19 19.19.
20.30 Morðgáta.
(Murder She Wrote.)
21.25 Forskot á Pepsí popp.
21.35 Þríeykið.
(Rude Health.)
22.00 Dauðagildran.#
(Deathtrap.)
í myndinni glímir Michael Cain við hlut*
verk rithöfundar sem má muna fífil sinn
fegurri.
Hann verður fyrir sárum vonbrigðum
þegar nýjasta leikrit hans hlýtur enga
náð fyrir augum gagnrýnenda og áhorf-
enda. Eiginkona rithöfundarins reynir að
hughreysta hann og telur hann á að hefj-
ast handa að nýju. En skáldagáfan, sem í
eina tíð lék við hann, virðist nú á bak og
burt. Rithöfundurinn kemst um þessar
mundir yfir leikrit sem ungur og óþekktur
maður hefur ritað. Hann fyllist öfund
vegna þess hversu leikritið er gott og sér
í hendi sér að það eigi eftir að slá í gegn.
í örvæntingu sinni afræður rithöfundur-
inn að.ráða leikritaskáldið af dögum og
fær eiginkonu sína með sér í spilið. Upp-
hefst nú leikurinn en söguþráðurinn er í
senn slunginn, margbrotinn og snilldar-
legur.
Aðalhlutverk: Michael Cane, Christopher
Reeve, Dyan Cannon og Irene Worth.
Ekki við hæfi barna.
23.55 Apaplánetan unnin.
(Conquest of the Planet of Apes.)
Munaðarlausi apinn Cesar hyggst bjarga
hinum öpunum frá því að vera þrælar
mannkynsins.
Aðalhlutverk: Roddy McDowall, Don
Murray og Ricardo Montalban.
01.25 Dagskrárlok.
Rás 1
Fimmtudagur 27. apríl
6.45 Veðurfregnir - Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Randveri Þorlákssyni.
Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að
loknu fréttayfirhti kl. 8.30.
Sigurður G. Tómasson talar um daglegt
mál laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn.
- Sagan af Hildi góðu stjúpu.
Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson les úr Þjóð-
sögum Jóns Arnasonar.
Seinni hluti.
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Staldraðu við!
Jón Gunnar Grjetarsson sér um neyt-
endaþátt.
9.40 Landpósturinn - Frá Norðurlandi.
Umsjón: Karl E. Pálsson á Siglufirði.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn - Alþingi.
13.35 Miðdegissagan: „Brotið úr töfra-
speglinum" eftir Sigrid Undset.
Þórunn Magnea Magnúsdóttir les (2).
14.00 Fréttir • Tilkynningar.
14.05 Jarðlög.
- Snorri Guðvarðarson. (Frá Akureyri).
15.00 Fréttir.
15.03 Leikrit vikunnar: „Fé og ást“ eftir
Jón Ólafsson.
15.45 Þingfréttir.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Debussy, Ravel
og Vieuxtemps.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.20 Staldraðu við!
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Daglegt mál.
19.37 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Tónlistarkvöld Útvarpsins.
21.30 „Faðmlag dauðans.
22.00 Fréttir ■ Dagskrá morgundagsins •
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Giott framan í gleymskuna.
Friðrik Rafnsson fjallar um mið-evrópskar
bókmenntir.
Þriðji þáttur.
23.10 Fimmtudagsumræðan.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Fimmtudagur 27. apríl
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun.
Eva Ásrún Albertsdóttir.
11.03 Stefnumót.
Jóhanna Harðardóttir tekur fyrir það sem
neytendur varðar.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu.
Gestur Einar Jónasson leikur þraut-
reynda gullaldartónlist.
14.05 Milli mála.
Óskar Páll Sveinsson á útkíkki.
16.03 Dagskrá.
18.03 Þjóðarsálin.
- Daglegt mál.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.00 Hátt og snjallt.
Enskukennsla á vegum Fjarkennslu-
nefndar og Málaskólans Mímis.
Sjöundi þáttur endurtekinn frá þriðju-
degi.
20.30 Útvarp unga fólksins.
21.30 Hátt og snjallt.
Áttundi þáttur enskukennslu.
22.07 Sperrið eyrun.
- Anna Björk Birgisdóttir leikur þunga-
rokk á ellefta tímanum.
01.10 Vökulögin.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 1.00 og
4.30.
Fréttir eru sagðar kl. 2, 4, 7, 7.30, 8, 8.30,
9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19,
22 og 24.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Fimmtudagur 27. apríl
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Fimmtudagur 27. apríl
07.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor-
steinsson
með morgunþátt fullan af fróðleik, frétt-
um og ýmsum gagnlegum upplýsingum
fyrir hlustendur, í bland við góða morgun-
tónlist.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Valdís er með hlutina á hreinu og leikur
góða blöndu af þægilegri og skemmtilegri
tónhst eins og henni einni er lagið.
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Óskalögin, kveðjurnar, nýjustu lögin,
gömlu góðu lögin - allt á sínum stað.
Bjarni Ólafur stendur alltaf fyrir sínu.
18.10 Reykjavík síðdegis - Hvað finnst
þór?
Hvað er efst á baugi? Þú getur tekið þátt
í umræðunni og lagt þitt til málanna í
síma 611111. Þáttur sem dregur ekkert
undan og menn koma til dyranna eins og
þeir eru klæddir þá stundina.
' Steingrímur Ólafsson stýrir umræðunum.
Fréttir kl. 8, 10, 12, 14, 16 og 18.
Fréttayfirlit kl. 9, 11, 13, 15 og 17.
19.00 Freymóður T. Sigurðsson.
Meiri tónhst - minna mas.
20.00 Sigursteinn Másson.
Ný - og góð tónlist, kveðjur og óskalög.
24.00 Næturdagskrá.