Dagur - 27.04.1989, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 27. apríl 1989 - DAGUR - 11
íþróftir
Samhliðasvig í Hlíðarfjalli:
Kristiiin og Guðrún unnu
Keppt var í samhliðasvigi í
Hlíðarfjalli á sunnudaginn.
Sigurvegarar voru þau Kristinn
Björnsson frá Olafsfirði í
karlaflokki og Guðrún H.
Kristjánsdóttir frá Akureyri í
kvennatlokki. Verðlaunin
voru glæsileg, utanlandsferðir
með Flugleiðum.
Pessi keppni átti reyndar að
fara fram á annan í páskum en
var þá frestað vegna veðurs. En
nú skráðu sig tæplega 70 manns í
keppnina og var þó nokkur fjöldi
áhorfenda sem fylgdist með að
þessu sinni.
Einn af þeim fjölmörgu sem
tók þátt í keppninni að þessu
Kristinn Björnsson frá Óiafsfirði,
sigraði í karlaflokki.
sinni var gamli skíðajaxlinn,
Haukur Jóhannsson. „Þetta er
meiriháttar skemmtilegt keppnis-
form og það sýndi sig þarna að
þetta dregur að áhorfendur,"
sagði Haukur sveittur en ánægð-
ur eftir keppnina.
Haukur varð að láta í minni
pokann fyrir Ingólfi Gíslasyni
eftir mikla keppni. „Hann hlýt'ur
að vera rosalega góður fyrst hann
náði að sigra mig,“ sagði Haukur
og hló. „Hins vegar sigraði besti
maðurinn og það var skemmti-
legt að fylgjast með hvernig
Kristinn bar af í lendingunum og
það var það, öðru fremur, sem
tryggði honum sigurinn í karla-
flokki," bætti Haukur við.
Gainli baráttujaxlinn Haukur Jóhannsson tók þátt í samhliðasviginu og stóð
sig vel.
Arnar Snorrason og félagar hans í
Dalvíkurliðinu verða á íslenska
getraunaseðlinum í sumar.
Mynd: KK.
íslenskar getraunir:
Norðlensk líð í getraunum
- 1., 2. og 3. deildin í íslensku sumargetraununum
íslenskar getraunir ntunu
verða með starfsemi í sumar
öfugt við önnur ár. Þýski bolt-
inn og leikir úr íslensku knatt-
spyrnunni munu verða uppi-
staðan á flestum seðlunum í
sumar. Vegna þess hve leikj-
um í 1. deildinni er dreift á
marga daga verða leikir í 2. og
3. deildinni inn á mörgum seðl-
anna. Það þýðir að m.a. Akur-
eyringar, Húsvíkingar, Olafs-
Firðingar, Sauðkrækingar,
Dalvíkingar og Grenvíkingar
geta tippað á sín eigin lið.
Sem dæmi um athyglisverðan
seðil er 21. leikvikan, 27. maí
Sund:
Óðirni með
ráðstefiiu
- 35 þjálfarar mættu
Sundfélagið Óðinn hélt nýlega
ráðstefnu í Lundarskóla um
sundþjálfun yngri flokka. Ráð-
stefnuna sóttu 35 þjálfarar víðs
vegar af landinu og var gerður
góður rómur að þessu framtaki
Oðinsmanna.
Fyrirlesarar í Lundarskóla
voru fimm: Conrad Cawley, hinn
nýi landsliðsþjálfari íslendinga í
sundi, Jón Þór Sverrisson læknir
á FSA, Ingimar Guðmundsson
sjúkraþjálfari á Réykjalundi, Óli
Þór Gunnlaugsson, þjálfari
Vestra á ísafirði og Wolfgang
Sahr, þjálfari Óðins.
Það var Jóhann G. Möller sem
átti frumkvæðið að koma þessu
fræðslunámskeiði á hér fyrir
norðan og stjórnaði hann líka
ráðstefnuhaldinu. Var það álit
manna að slíkar ráðstefnur væru
nauðsynlegar til þess að bæta
unglingaþjálfun hér á landi og
stuðla þannig að betri árangri
íslenskra sundmanna á alþjóða-
vettvangi.
Það var nýstofnað foreldra-
félag Óðins sem sá um gistingu
og fæði fyrir ráðstefnugesti og
fórst þeim það mjög vel úr hendi.
næstkomandi, en þar eru ein-
göngu íslenskir leikir úr 1., 2. og
3. deild. Þar má t.d. net’na leiki
Fylkis og Þórs, Völsungs og
Selfoss, Stjörnunnar og Tinda-
stóls, Einherja og ÍR, Breiða-
bliks og Leifturs, Magna og
Austra og Dalvíkur og KS.
Það verður athyglisvert að
fylgjast með viðbrögðum
íslenskra tippara við þessum
sumargetraunum.
Borðtennis:
Stefán íslandsmeistari
Grenvíkingar standa sig vel
Grenvíkingar gera það ekki
endasleppt á borðtennissvið-
inu. Nýlega unnu krakkar frá
Grenivík glæsta sigra á grunn-
skólamótinu í borðtennis og nú
bættu þeir enn einni skraut-
fjöðrinni í hattinn á unglinga-
meistaramótinu sem nýlega
var haldið. Þar var Stefán
Gunnarsson fremstur í flokki
og varð hann tvöfaldur Is-
landsmeistari í flokki 13-15
ára.
Stefán sigraði í tvíliðaleik með
Ægi Jóhannssyni og í tvenndar-
leik með Margréti Hermanns-
dóttur. Ægir varö síðan í 3.-4.
sæti í tlokki 10-13 ára
Bestu bílakaupin í dag!
Vorum að fá sendingu af
FIAT bílum árgangi 1988
Conrad Cawley landsliösþjálfari Islendinga hélt fyrirlestur á ráðstefnunni.
Þessir bílar verða seldir
á sérstöku afsláttarverði.
Komið í sýningarsalinn okkar að Tryggvabraut 10 og ræðið við sölumenn okkar.
Hagstæö lán fylgja.
nnnn ttöldursf.
Fiat í framtíð við Skeifuna
Símar: 688850 & 685100
Söludeild
Símar: 27015 & 27385