Dagur - 12.05.1989, Síða 2

Dagur - 12.05.1989, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 12. maí 1989 Ný gerð Skoda-bfla á markaðinn: Ingimar fékk fyrsta bflinn I vikunni var Ingimari Eydal tónlistarmanni á Akureyri, Skráning hafin - í Bikarkeppni Bridgesambands íslands Skráning í Bikarkeppni Bridge- sambands íslands er nú hafin á skrifstofu BSÍ. Stöö 2 mun greina frá úrslitum einstakra leikja í keppninni, auk þess sem sýnt verður beint frá undanúrslitum og úrslitum í haust. Núverandi bikarmeistari er sveit Pólaris. Sem fyrr segir er skráning í keppnina hafin og er tekið á móti skráningum í síma 91-689360. U.M.F. Skriðuhrepps: Kökubasar í göngugötunni Ungmennafélag Skriðuhrepps heldur kökubasar í göngugötunni í dag, föstudag, og hefst hann kl. 14.00. Þar verða á boðstóln- um ljúffengar hnallþórur og aðr- ar veitingar. Upplagt er að birgja sig upp af kökum fyrir hvítasunn- una hjá ungmennafélagsfólkinu. udicntur fyrsti bíllinn á íslandi, af nýrri gerð frá Skoda-verk- smiðjunum tékknesku. Bíllinn heitir Skoda Favorit 136, árgerð 1989. Hann er nokkuð öðruvísi en eldri gerðir Skoda og er hinn glæsilegasti að sjá. Bíllinn var afhentur hjá Skála- felli á Akureyri, sem er umboðs- aðili fyrir Skoda á Norðurlandi. Að sögn Sigurgeirs Sigurpálsson- ar hjá Skálafelli, var það löngu ákveðið að Ingimar fengi fyrstur íslendinga afhenta þessa nýju týpu, enda væri hann einn dygg- asti stuðningsmaður Skoda á ís- landi. -KK Haraldur Sigurðsson sölustjóri Jöfurs hf., afhendir Ingimari Eydal fyrsta eintakið af Skoda Favorit 136. Mynd: kl HofsÓS: Fjárhagsáætlun Qárhaldsstjórnar verður afgreidd í næstu viku Fjárhags- og framkvæmda- áætlun fyrir Hofsóshrepp, sem fjárhaldsstjórnin kynnti fyrir sveitarstjórn hreppsins fyrir nokkru, verður að öllum lík- greiðslustöðvun rennur út 18. maí nk. 18. maí nk. og þá mun fjár- indum endanlega afgreidd í næstu viku og samþykkt hjá sveitarstjórn Hofsóshrepps. Framlengd greiðslustöðvun fyrir Hofsóshrepp rennur út Vetrarvertíð senn að ljúka á Norðurlandi: Heldur minni afli borist á land miðað við sama tíma í fyrra í gær lauk formlegri vetrar- vertíð fyrir Suður- og Vestur- landi en samkvæmt upplýsing- um blaðsins, stendur vertíðin hér fyrir norðan fram undir næstu mánaðamót, alla vega á meðan eitthvað er að hafa. Aflabrögð fyrir Norðurlandi hafa verið nokkuð misjöfn í vetur en frá áramótum hafa borist á land 41.122 tonn á móti 47.630 tonnum á sama tímabili í fyrra, miðað við óslægðan fisk, samkvæmt töl- um frá starfsmanni Fiskifélags íslands á Norðurlandi. í aprílmánuði bárust á land 13.664 tonn af óslægðum fiski, til verstöðva frá Hvammstanga að Þórshöfn en á sama tíma í fyrra bárust 15.683 tonn til þessara sömu staða. Um er að ræða 17 löndun- arstaði og í 9 þeirra hefur orðið aukning á afla í apríl, miðað við sama tíma í fyrra. Þó má geta þess að þrír norðlenskir frysti- togarar lönduðu um 2000 tonnum í Hafnarfirði í síðasta mánuði. Mestur afli barst á land á Akureyri, 3.198 tonn, á Dalvík bárust á land 1.731 tonn, 1509 tonn til Ólafsfjarðar og 1403 tonn til Húsavíkur. Lang stærsti hluti aflans er togarafiskur. Rækjuveiði hefur einnig geng- ið mjög misjafnlega í vetur og mun minni afli hefur borist á land á Norðurlandi, fyrstu fjóra mán- uði ársins en á sama tíma í fyrra. Er það einnig vegna þess að færri skip stunda rækjuveiðar nú en í fyrra. Fyrstu fjóra mánuði ársins, bárust 1.560 tonn af rækju á land á Norðurlandi en 3.093 tonn á sama tfma í fyrra. Loðnuveiðinni lauk í síðasta mánuði en þá bárust 2.207 tonn til Krossanesverksmiðjunnar á Akureyri. í eftirfarandi töflu má sjá afla af óslægðum fiski og rækju í hverri verstöð á Norðurlandi í síðasta mánuði og einnig á sama tíma í fyrra. Einnig heildaraflann á svæðinu frá áramótum og á sama tíma í fyrra. -KK Afli í hverri verstöð á Norðurlandi, miðað við óslægðan físk 1989 1988 Hvammstangi lótonn 35 tonn Skagaströnd 821 tonn 1.906 tonn Sauðárkrókur 618 tonn 1.000 tonn Hofsós 71 tonn 179 tonn Siglufjörður 903 tonn 1.479 tonn Ólafsfjörður 1.509 tonn 1.411 tonn Grímsey 271tonn 206 tonn Hrísey 428 tonn 427 tonn Dalvííc 1.731 tonn 2.003 tonn Árskógsströnd 696 tonn 642 tonn Hjalteyri 107 tonn 4 tonn Akureyri 3.198 tonn 3.918 tonn Grenivík 345 tonn 216 tonn Húsavík 1.403 tonn 1.184 tonn Kópasker 63 tonn 31 tonn Raufarhöfn 582 tonn 597 tonn Þórshöfn 915 tonn 445 tonn Aflinn í apríl 13.664 tonn 15.683 tonn Aflinn jan-mars 27.458 tonn 31.947 tonn Aflinn frá áramótum 41.122 tonn 47.630 tonn Rækja Hvammstangi 71 tonn 55 tonn Blönduós 175 tonn 163 tonn Skagaströnd 85 tonn 21 tonn Sauðárkrókur 42 tonn 99tonn Siglufjörður Otonn 103 tonn Ólafsfjörður Otonn 28 tonn Dalvík 200 tonn 137 tonn Árskógsströnd 3 tonn 0 tonn Akureyri 59 tonn 166 tonn Húsavík 74 tonn 30 tonn Kópasker 0 tonn 43 tonn Aflinn í apríl 709 tonn 845 tonn Aflinn í jan-mars 851tonn 2.248 tonn Aflinn frá áramótum 1.560 tonn 3.093 tonn Loðna Akureyri 2.207 tonn haldsstjórnin skila af sér, um leið og reikningar fyrir síðasta ár verða lagðir fram. Að sögn Björns Níelssonar sveitarstjóra á Hofsósi hafa verið gerðar breytingar á fjárhagsáætlun- inni, frá því hún var kynnt fyrst. „Næsita ár verða menn að halda sér innan ákveðins ramma, það verður lítið um framkvæmdir á vegum hreppsins,“ sagði Björn. Björn sagði að helst yrðu smá- vegis framkvæmdir í kringum höfnina og vatnsveituna, en að öðru leyti yrði lítið gert. „Við erum það vel sett með götur og annað, þurfum ekkert að hugsa um það núna. Svo er auðvitað alltaf þetta eðlilega viðhald,“ sagði Björn ennfremur. Greiðsluplan hefur verið gert til 3ja-4ra ára, en eiginleg fjár- hagsáætlun, eins og aðrar sveita- stjórnir gera, er til eins árs. Aðspurður sagði Björn að atvinnuástand á Hofósi færi batn- andi, eftir mjög bágt ástand í vetur. Næg vinna er nú í frysti- húsinu, þar sem 50-60 manns starfa. „Þetta er að glæðast. Það fiskast alltaf meira á sumrin, það hefur verið reynslan þau ár sem ég hef fylgst með þessu," sagði Björn að lokum. -bjb Fjárhagsáætlun Þórshafnarhrepps í burðarliðnum: Gatnagerð og bygging par- húsa stóru verkefiiin í ár Þessa dagana er verið að ganga frá fjárhagsáætlun Þórshafnar- hrepps. I kvöld verður borg- arafundur á vegum hreppsfé- lagsins um fjárhags- og fram- kvæmdaáætlun sveitarfélags- ins og að honum loknum mun hreppsnefnd afgreiða hana endanlega. Að sögn Daníels Árnasonar er síður en svo uppgjöf í mönnum þótt síðustu mánuðir og ár hafi verið um margt byggðarlaginu erfiðir, Verkefnum sem byrjað var á á sl. ári verður fram haldið í ár og nefnir Daníel í því sam- bandi gatnagerð og byggingu tveggja parhúsa með fjórum íbúðum í kaupleigu- og leigu- kerfi. Þá er stefnt að því að gera endurbætur á hreppsskrifstofum og umtalsverðum fjármunum verður varið til íþrótta og æskulýðsmála. Til dæmis var í vetur fest kaup á skíðatogbraut og ætlunin er í sumar að ganga frá heitum pottum við sundlaug- ina. Þá verður aðstaða frjáls- íþróttamanna á íþróttavellinum lagfærð, t.d. kasthringir og stökkgryfjur. óþh Raufarhöfn: Góðar atvimuihorfiir Þó verður stefnt að því að ljúka lagningu slitlags á götur á staðnum sem byrjað var á á sl. ári. Þá verður að öllum líkindum farið í skólplagnir á sumrinu. í ár og á sl. ári hafa verið byggð 6 hús á Raufarhöfn og það eitt gefur vísbendingu um að atvinnulíf sé í góðu lagi á staðnum. Atvinnuhorfur eru góðar á Raufarhöfn í sumar. Jöfn og góð atvinna hefur verið þar að undanförnu og á því verða fyrirsjáanlega engar breytingar á næstunni. Að sögn Sigur- bjargar Jónsdóttur, sveitar- stjóra Raufarhafnarhrepps, mun sveitarfélagið ekki ráðast í stórframkvæmdir á þessu sumri. Ekki hefur verið gengið frá fjárhagsáætlun hrepps- félagsins en Sigurbjörg segir að ekki verði stórar upphæðir aflögu til framkvæmda. Að sögn Sigurbjargar er ennþá gífurlegur snjór á Raufarhöfn og þarf verulega sterka sólargeisla og sunnanvinda til að bræða hann allan. óþh

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.