Dagur - 12.05.1989, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 12. maí 1989
Hvað er að gerast
Leikfélag Akureyrar:
Lesið úr Kaj Munk
í Húsavíkurkirkju
- á annan hvítasunnudag
Lcikfélag Akureyrar mun
flytja dagskrá um skáldprest-
inn Kaj Munk í Húsavíkur-
kirkju annan hvítasunnudag
kl. 16. Þessi dagskrá var flutt á
kirkjulistaviku á Akureyri
þann 19. apríl og vakti verð-
skuldaða athygli. Það er LA
og Menningarsamtök Norð-
lendinga sem standa fyrir
dagskránni.
Um er að ræða leiklestur úr
verki Guðrúnar Ásmundsdóttur,
leikkonu, „Kaj Munk“. Það leik-
verk er byggt á ævisögu skáldsins
og ræðum hans, sem þýddar eru
af Sigurbirni Einarssyni, biskup.
En hver var þessi Kaj Munk?
Hann var prestur í Vedersö, litlu
sveitaþorpi á Jótlandi. Hann var
kunnur ræðumaður, ljóðskáld og
leikritahöfundur. Þá var hann
kunnur af andstöðu sinni við yfir-
gang nasista í Danmörku á árum
seinni heimsstyrjaldar. Sú and-
staða varð honum að aldurtila
því nasistar sóttu hann heim 4.
janúar 1944 og leiddu hann til
aftöku rétt utan við Silkeborg á
Jótlandi.
Með hlutverk Kajs Munks fer
Þráinn Karlsson en aðrir leikend-
ur eru Sunna Borg, Sigurveig
Jónsdóttir, Theodór Júlíusson og
Jón Kristinsson. Ragnheiður
Tryggvadóttir stjórnar leiklestr-
inum en Björn Steinar Sólbergs-
son, organisti í Akureyrarkirju,
annast orgelleik.
Iistkyrniing í
Alþýðubankanum
Alþýðubankinn hf. og Menn-
ingarsamtök Norðlendinga,
MENOR, kynna myndlistar-
manninn Jónas Viðar Sveinsson.
Jónas er fæddur á Akureyri
1962, hann lauk námi í Málunar-
deild Myndlistarskólans á Akur-
eyri 1987. Hann hefur haldið eina
einkasýningu í Gamla Lundi
1989, auk þess hefur Jónas tekið
þátt í samsýningum svo sem,
Listahátíð Unga Fólksins að
Kjarvalsstöðum 1986, Opnun,
samsýning í Glugganum gallerí á
Akureyri 1987.
Á listkynningunni eru 6 verk
öll unnin í akryl á striga á árun-
um 1987-1989.
Listkynningin er í afgreiðslusal
Alþýðubankans á Akureyri,
Skipagötu 14 og er opin á
afgreiðslutíma bankans.
Kynningunni lýkur 30. júní.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Vegna þeirrar umræöu sem verið hefur um
ísland og Efnahagsbandalagið
gengst Noröurlandsdeild FVH fyrir
HÁDEGISVERÐARFUNDI
á Hótel KEA, þriöjudaginn 16. maí 1989
kl. 12.15 stundvíslega.
Fyrirlesari veröur Ólafur Davíösson
framkvæmdastjóri FÍI.
Hádegisveröur (kr. 1200) ásamt fróðlegu tækifæri
til skoöanaskipta.
Látiö vita um fyrirhugaða þátttöku í síma 21210 í
síðasta lagi 12. maí.
Skorað er á félagsmenn að mæta og
taka með sér gesti.
Stjórnin.
----------------------------------------- - s
AKUREYRARBÆR
Dagvistin Síðusel
auglýsir eftir forstöðumanni frá 1.
ágúst 1989.
Dagvistin er 3ja deilda dagvist, leikskóli og dag-
heimili.
Umsóknir er tilgreina menntun og fyrri störf legg-
ist inn á dagvistardeild, Eiösvallagötu 18, fyrir 15.
júní.
Allar nánari upplýsingar veita hverfisfóstra í síma
24620 og dagvistarfulltrúi í síma 24600 alla virka
daga frá 10.00-12.00.
Dagvistarfulltrúi.
mmmmmmm—mmmmmmmmm—mmi^^^^mmi^
Yngstu nemendur sem taka þátt í sýningunni eru aðeins fjögurra ára gamlir.
Nemendasýning hjá
Dansstúdíói Mce
Þeir sem gaman hafa af dansi
ættu að bregða sér í Iþróttahöllina
mánudaginn, annan í hvíta-
sunnu, því þar ætla börn sem
stundað hafa dansnám hjá Dans-
síúdíói Alice að bregða sér í
dansskóna og sýna færni sína í
því sem þau hafa verið að læra í
vetur.
Yngstu nemendurnir sem taka
þátt í sýningunni eru aðeins
fjögurra ára gamlir og eru þeir
því að stíga sín fyrstu skref á
dansgólfinu, en allir nemendur
sem lært hafa dans hjá Alice
koma fram á sýningunni.
Dansatriðin sem sýnd verða
eru hin fjölbreytilegustu og ættu
því allir að hafa gaman af að
koma og fylgjast með. Sýningin
verður í íþróttahöllinni á Akur-
eyri og hefst hún kl. 16.00. Þang-
að eru allir velkomnir og er fólk
hvatt til að mæta.
„Myndhópurinn“ á Akureyri
heldur hvítasunnusýningu sína í
Gamla Lundi, og hefst sýningin
kl. 14 á laugardag.
Á sýningunni verða um 45
verk, vatnslitamyndir, olíumál-
verk og pastelmyndir. Myndirnar
eru flestar til sölu.
Þeir sem taka þátt í sýningunni
eru Aðalsteinn Vestmann, Alice
Fundur hjá
Stóma-
samtökunum
Á morgun verður haldinn
fundur hjá Stómasamtökunum
á Norðurlandi. Fundurinn
hefst kl. 16.00 og verður hald-
inn í húsi Sontaklúbbsins að
Aðalstræti 54 á Akureyri.
Gestur fundarins verður for-
maður Stómasamtakanna í
Reykjavík. Hann hyggst segja frá
starfsemi samtakanna í Reykja-
vík og því helsta sem þar er á
döfinni. Þá verða almennar
umræður meðal fundargesta. All-
ir eru velkomnir á fundinn, jafnt
stómasjúklingar sem og áhuga-
menn.
Sigurðsson, Bernharð Stein-
grímsson, Gréta Berg, Gunnar
Dúi, Hörður Jörundsson, Iðunn
Ágústsdóttir og Ruth Hansen.
Iðunn sýnir einnig modelnælur á
sýningunni.
Sem fyrr sagði hefst sýningin
kl. 14 á laugardag. Hún verður
opin daglega kl. 14-22 og lýkur á
2. dag hvítasunnu.
„Myndhópurinn“
í Gamla Lundi
Jón Jónsson, Fremstafélli:
Sumardaguriim fyrsti 1989
- með þeim Sigurbjörgu og Bjarna á Fosshóli
Það var hvítt og hreint land sem
við ókum um með snjóruðning-
um á báðar hendur, sumardagur-
inn fyrsti og Ljósvetningabúð
með hlaðið borð um sig miðja en
dúkuð borð með dýru postulíni
með öllum veggjum. Hinn gamli
Ljósavatnshreppur sem verið
hafði frá Skjálfandaflóa og fram
til efstu byggða var þó klipptur
um þvert árið 1907 og gjörðir af
tveir hreppar Bárðdæla- og Ljósa-
vatnshreppur sem varað hefir
síðan, en hurfu til stuttrar sam-
einingar og samverustundar
þennan glaðbjarta sólskinsdag í
eitt sinni að vori. Það voru eins
konar andmæli gegn gervilífi fjöl-
miðlafaraldurs þess sem tíðast
bregður nú skyttu sinni við þann
Mídasar vefnað, sem í ævintýrum
gerðist en nú innan fuglafóta og
hcitir þá „Sólarferð".
Það var brotið blað í sögu
Fosshóls við Goðafoss frá þess-
um degi að telja. Frá því 1930 að
Sigurður Lúther Vigfússon frá
Úlfsbæ byggði sér nýbýlið á
hraunhól þeim sem áður hét og
varð úr bændabýlið Fosshóll og
með skjótum hætti þjónustumið-
stöð í héraði og þó með árunum
miklu stærri hrings en eitt sýslu-
félag rúmi. Hér reis af grunni og
varð frægur staður í landslagi og
umferð: Símstöð, pósthús,
olíusala, ferðaþjónusta með
greiðasölu og þó ekki minna
fyrirgreiðslugjöfum og urðu
Sigurður Lúther og Hólmfríður
móðir hans af staðnum fræg og
staðurinn afþeim. Stóð svo lengi.
Árið 1951 hófst Kaupfélag
Svalbarðseyrar handa og byggði
verslunarhús nærri gljúfurbarmi
Skjálfandafljóts og rak þar versl-
un fram til síðustu tíma að Kaup-
félag Þingeyinga tók við þessu
verki og sinnir því nú.
Við fráfall Sigurðar Lúthers
1958 hljóðnaði nokkuð um stað
um stund, en menn koma oftast í
manna stað. Árið 1960 keyptu
þau Fosshól og fluttu þangað Sig-
urbjörg Magnúsdóttir og Bjarni
Pétursson með þingeysku og
reykvísku bændablóði og því til
staðfestu dvöldu þau nokkur ár í
Ameríku við landbúnað, naut-
griparækt og akuryrkju í félags-
búskap.
Sigurbjörg og Bjarni hafa síð-
an um þrjátíu ár borið þessa
sömu reisn Fosshóls á herðum sér
með alla upptalda þjónustuþætti
í hendi, þangað til hin miklu
umsvif og skipulagshæfni vorrar
stjórnsýslu og ráðgjafar, hefir
nærri fullmalað í sinni stóru
kornmyllu og gert af góða
máltíð. Einhverjum kann að sýn-
ast að Fosshóll sé á líðandi stund
rúinn þeim mannaverkum sem
talin voru staðnum mest til gildis,
jafnvel hið græna tún á erfitt að
vaxa upp úr sinni eigin sinu. Það
var líka mikill óróleiki um byggð
þegar hinn fágæti Þóroddur lækn-
ir á Breiðumýri talaði um nýskip-
un heilsugæslu og þjónustu við
bágindafólk. Nú finnur nærri
hver maður sinn óróleika best
kominn þar sem hið almenna
athvarf fer hendi um.
Enn er Fosshóll á sínum kross-
götum héraðs, þar sem örlaga-
leiðir liggja um og straumar tím-
ans falla framhjá. Innra með mér
í barmi, á ég ofurlítið skrín. Það
er frá þeim oddvitatíma Bjarna
Péturssonar um tólf ára skeið,
sem stendur mér nokkuð nærri
þegar borað var eftir heita vatn-
inu og Stórutjarnaskóli byggður
og hnotabit manna ekki einu
sinni ör á hörundi nýrrar bernsku-
tíðar.
Við kvöddum þau Sigurbjörgu
og Bjarna í tæru sólskini en á
svölu vori sem ætti að vera hlýtt.
En fölskvalaust er þakklæti sem
þau áttu í verki sínu á öld þeirrar
þjóðlífshungurvöku sem gefur
orðum nýja merkingu en gerir
önnur merkingarlaus. Einnig þá
munu spretta nýir menn fyrir
norðan þó reynsluríkt fólk flytji
suður þangað sem alltaf vantar
úrræði og forsjá.
Ég bið þeim vinum mínum
góðs gengis hvar sem þeim velst
verustaður.
25. apríl 1989
Jón Jónsson
Fremstafelli.