Dagur - 19.05.1989, Síða 15

Dagur - 19.05.1989, Síða 15
Föstudagur 19. maí 1989 - QAGUR - 15 - íþróttir Knattspyrna: Þórsarar falla í 2. deild - samkvæmt spá fyrirliða, þjálfara og forsvarsmanna 1. deildarfélaga Keppnin í 1. deildinni í knatt- spyrnu hefst um þessa helgi. Þórsarar leika gegn Víkingum á Þórsvelli á sunnudaginn kl. 14.00 og KA leikur gegn FH á æfingagrasvelli Hafnfirðing- anna í Kaplakrikanum. A blaðamannafundi með félög- unum í gær var kynnt spá for- ráðamanna 1. deildarfélag- anna og þar var Frömurum spáð Islandsmeistaratitlinum og Þórsurum og Keflvíkingum falli. Fundurinn fór fram í Reykja- vík en símalínur voru opnar til Akureyrar. Þar kom fram að Málningarverksmiðjan Harpa styður við mótið að þessu sinni og verður það því nefnt Hörpu- mótið í knattspyrnu. í máli Stefáns Gunnlaugssonar formanns knattspyrnudeildar KA kom fram að það er frágengið að Ormarr Örlygsson kemur til landsins frá V-Þýskalandi til að leika nokkra leiki með KA-liðinu í júnímánuði, áður en hann kem- ur alkominn til landsins í lok þess Hlynur Birgisson og félagar hans í Þórsliðinu eru staðráðnir í því að afsanna spána um fall í 2. deild og byrja á leikn- um gegn Víkingum á sunnudaginn. „Förum ekki meö beyg í bijósti“ - segir Guðjón Þórðarson þjálfari KA um FH-leikinn „Leikurinn leggst vel í mig, þakka þér fyrir,“ sagði Guðjón Þórðarson þjálfari KA í knatt- spyrnunni er hann var inntur eftir því hvernig honum liði vegna leiksins við FH á sunnu- daginn. „Við förum ekki með beyg í brjósti til þessa leiks því allir leik- menn eru heilir og við erum staðráðnir í þvf að standa okkur í þessum fyrsta leik,“ sagði þjálfar- inn. Samkvæmt spám í fjölmiðlum að undanförnu virðast flestir hafa trú á því að KA-liðið eigi eftir að 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 Samvinnuslagur Jón Sigurðarson forstjóri Álafoss virðist vera einn slungnasti tipparinn sem tekið hefur þátt í getraunaleiknum í vetur. Hann var með 7 rétta í síðustu viku, sem er eitt það hæsta sem náðst hefur, og bar þannig sigurorð af Aðalsteini Helgasyni aðstoðar- forstjóra fyrirtækisins. Jón segir að varla sé nokkur eftir innan fyrirtækisins til að etja kappi við og hann ætli því að skora á Magnús Gauta Gautason forstjóra KEA. Magnús Gauti stóð í marki KA í handboltanum í mörg ár og víkur sér ekki undan slíkri áskorun. Þetta er því sannkallaður samvinnuslagur og verður gaman að sjá hvernig til tekst í þessari fyrstu viku sumargetrauna. Jón: Everton-Liverpool 2 Celtic-Rangers x Keflavík-Valur 2 FH-KA 1 Þór-Víkingur 1 KR-Akranes x HSV-Stuttgart 1 Hannover-Köln 2 Bayern M.-St. Pauli 1 B. Leverkusen-Frankfurt 1 B’gladbac-Bochum 1 B. Dortmund-B. Uerdingen 1 Magnús Gauti: Everton-Liverpool 2 Celtic-Rangers 2 Keflavík-Valur x FH-KA 2 Þór-Víkingur 1 KR-Akranes 1 HSV-Stuttgart 1 Hannover-Köln x Bayern M.-St. Pauli 1 B. Leverkusen-Frankfurt 1 B’gladbac-Bochum 1 B. Dortmund-B. Uerdingen 1 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2 Guðjón Þórðarson. verða ofarlega í ár og jafnvel berjast um Evrópusæti við Skagamenn og KR-inga. Guðjón segist nú ekki taka of mikið mark á spádómum svona fyrir tímabil- ið og varar við of miklum vænt- ingum. „Of miklar væntingar eru hættulegar og ég bið því fólk að stilla sínum kröfum til liðsins í hóf,“ sagði þjálfarinn. Guðjón segir það næsta víst að Fram, Valur og e.t.v. KR muni berjast um íslandsmeistaratitil- inn. ÍA muni líklegast sigla lygn- an sjó en öll hin liðin, hann vildi að vísu ekki staðsetja KA í þess- ari spá, muni berjast haröri bar- áttu og hver einasti leikur verði jafn og spennandi. „Þetta verða miklu jafnari leikir en fólk yfir- leitt býst við,“ sagði Guðjón Þórðarson þjálfari KA. mánaðar. Það stóð jafnvel til að hann kæmi í fyrsta heimaleikinn gegn Fram, en nú er það dottið upp fyrir og líklegt að fyrsti leik- ur Ormars verði gegn KR 9. júní. Nokkur umræða varð um dóm- aramál á fundinum og þar kom fram að dómarar hafa ákveðið að taka mun harðar á grófum brot- um leikmanna og reyna að koma í veg fyrir að menn séu sparkaðir niður hvað eftir annað. Á móti bentu félögin á að spjalda ætti menn sem væru að leika að vera mikið meiddir þegar eðlilegir pústrar ættu sér stað á leikvelli. En lítum á spá fyrirliða, þjálf- ara og forsvarsmanna I. deildar- félaganna: Stig 1. Fram 287 2. Valur 261 3. KR 228 4. ÍA 199 5. KA 198 6. Víkingur 124 7. FH 114 8. Fylkir 92 9. Þór 82 10. ÍBK 65 Þess má svo geta hér til gamans að undanfarin ár hefur spáin allt- af verið rétt í sambandi við meist- araliðið og svo hefur ætíð a.m.k. annað liðið sem spáð er falli hlot- ið þau örlög. „Höfum heimavöUiiuf - segir Sigurður Arnórsson formaður knattspyrnudeildar Þórs Siguröur Arnórsson formaöur knattspyrnudeildar Þórs er hvergi banginn er hann var spuröur hvernig leikurinn við Víkinga á sunnudaginn legðist í hann. „Þór og Víkingur hafa misst marga leikmenn og eru því bæði óskrifaö blað. Við höfum hins vegar heimavöllinn með okkur og vonandi fjöl- menna Akureyringar á leikinn til þess að styðja við bakið á okkur. Ef það gerist þurfum við engu að kvíða,“ sagði formaðurinn. Það kostar mikið að reka eina deild, eins og knattspyrnudeild- ina. Sigurður segir að áætluð velta á árinu verði á milli 8-9 miljónir. Þar munar mestu um ferðakostnaðinn, en hann er áætlaður rúmar 2 miljónir. Til að ná niður kostnaði mun meistara- flokkur karla keyra í fjóra úti- leiki sem fram fara um helgar. Sigurður segir að honum lítist vel á 1. deildarkeppnina í ár. Að vísu sé það fyrirsjáanlegt að Framarar og Valsarar berjist um toppinn en flest önnur liðanna séu spurningarmerki. „Við Þórs- arar höfum að vísu misst marga menn frá því í fyrra, en það er góður kjarni eftir og með blöndu af 2. flokks strákum, aðkomu- leikmönnum og toppþjálfara, þá eigum við eftir að ná okkur á strik í sumar,“ sagði Sigurður Arnórsson formaður knatt- spyrnudeildar Þórs. Að lokum vildi Sigurður hvetja alla knattspyrnuáhugamenn að fjölmenna á Þórsvöllinn á sunnu- daginn kl. 14.00 og hvetja þá rauðklæddu til sigurs. Allir Þórs- arar væru heilir og væru þeir staðráðnir í því að afsanna spána hjá forráðamönnum 1. deildar félaganna en það yrði ekki gert nema með góðum stuöningi áhorfenda. Sigurður Arnórsson formaður knattspyrnudeildar Þórs. Nordurlandsmót í badmmton - á Húsavík Norðurlandsmót í badminton verður haldið á Húsavík um helgina. Búast má við kepp- endum alls staðar af Noröur- landi og er því líklegt að keppnin verði hörð. Ákureyrarmótið í badminton var haldið um síðustu helgi og gaf það góðar vonir að keppnin verði ekki síður spennandi á Húsavík. Handknattleikur: Erlingur ráðinn - líklegt að Páll komi Eins og sagt var frá í Degi í gær stóðu yfir viðræður um að Er- lingur Kristjánsson tæki við meistaraflokki KA í hand- knattleik. Nú hefur verið geng- ið frá samningum og það liggur því Ijóst fyrir að Erlingur þjálf- ar meistaraflokkinn næsta vetur. „Leikmenn eru mjög ánægðir með þessa ráðningu," sagði Pétur Bjarnason hinn knái handknatt- leiksspilari í KA þegar hann frétti af ráðningu Erlings. „Við berum allir mikla virðingu fyrir Erlingi, bæði sem þjálfara, leik- manni og einstaklingi og hlökk- um til að takast á við verkefni næsta vetrar undir hans stjórn,“ sagði Pétur í samtali við Dag. Þess má einnig geta að líkur benda til að Páll Ólafsson lands- liðsmaður úr KR muni koma norður og leika með KA næsta vetur.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.