Dagur - 26.05.1989, Blaðsíða 3
Föstudagur 26. maí 1989 - DAGUR - 3
Ágúst Sigurðsson, bóndi á Geitaskarði, fer ótroðnar slóðir:
Ræktar iðandi skota til
að fanga stórhvelin
Ágúst bóndi Sigurðsson á
Geitaskarði í Engihlíðarhreppi
í A-Húnavatnssýslu er ekki af
baki dottinn. I sumar hefur
hann hug á að þreifa sig áfram
með nýja og sérstaka búgrein,
ánamaðkarækt.
Ágúst ætlar að rækta ána-
maðka sem agn fyrir lax og önnur
stórhveli og selja veiðimönnum.
Vegna kaldra vinda á Fróni er
nauðsynlegt að hafa maðkarækt-
unina undir þaki. Ágúst segist
hafa tiltækt húsnæði og því sé
ekkert til fyrirstöðu að byrja.
Til að byrja með verður ána-
maðkaræktunin í smáum stíl á
Geitaskarði. Ágúst segist ætla að
byrja smátt og komast að raun
um hvort ræktunin geti verið
ábatasöm. Fengnir verða nokkur
hundruð skoskir ánamaðkar og
þeim fyrir komið í kössunt úr ein-
angrunarplasti. í kössunum er
ætlunin að setja lirossatað,
mykju, sauðatað og gróft og úr
sér sprottið hey. Ágúst segist
hafa kynnt sér ánamaðkaræktun í
Danmörku og það sem þar hafi
borið fyrir augu verði fyrirmynd
maðkaræktunar á Geitaskarði.
Ánamaðkaræktun er ekki með
öllu óþekkt fyrirbrigði á landi
hér. Á Stórólfsvöllum á Rangár-
M-hátíð Egilsstöðum:
Tókst glimrandi vel
Aðsókn á M-hátíð á Egilsstöð-
um á dögunum var glimrandi
góð að sögn heimamanna, á 3.
þúsund manns sóttu þau dag-
skráratriði sem í boði voru og
var fullt hús á þeim öllum. Þá
voru flytjendur ánægðir og
þóttu þeim viðtökur og skipu-
lag allt hið besta.
Fyrir utan auglýst dagskrár-
atriði, var mjög góð aðsókn að
listsýningum sem í boði voru.
„Þetta var kærkomin tilbreyting
og við sem stóðum að þessu erurn
mjög ánægð,“ sagði Sigurður
Símonarson bæjarstjóri á Egils-
stöðum. „Allur flutningur og
skipulag var með ágætum. List-
sýningarnar voru líka frábærar,
en sýning Listasafns íslands er sú
stærsta sem safnið hefur farið
með út á land. Sýningin nýtur sín
líka vel í íþróttahúsinu, þar eru
öll 83 verkin í stórum og rúmgóð-
um sal, en sýningin stendur fram
á sunnudagskvöld."
Auk sýningar Listasafns ís-
lands, stendur sýning austfirskra
listamanna enn. Far eru sýnd 50-
60 verk eftir 19 listamenn víða af
Austfjörðum. Sú sýning stendur
til 25. júní nk. VG
völlum er maðkaræktun til fram-
leiðslu gróðurmoldar. Ágústi er
hins vegar ekki kunnugt um rækt-
un „veiðimaðka" hér á landi.
I samtali við Dag sagði Ágúst
að hann gerði sér engar hug-
myndir um hversu langan tíma
ræktunin tæki. „Það ntun vera
mjög breytiiegt eftir maðkastofn-
um hversu mikið og títt maðk-
arnir fjölga sér. Þetta getur tekið
frá nokkrum vikum og upp í ár,"
sagði Ágúst.
En hvaðan er hugmyndin að
maðkaræktuninni komin? Ágúst
svarar því til að fyrir nokkrum
árum hafi Stéttarsamband bænda
gefið út bæklinga þar sem m.a.
var bent á ánamaðkarækt sem
mögulega hliðatbúgrein. Bækl-
ingunum var almennt heldur illa
tekið og bændur gerðu gys að
þeim. Ágúst segir hins vegar að
þessi hugmynd hafi strax náð
sinni athygli og honum liafi þótt
upplagt að prófa hana. „Bændur
voru að andskotast út í þessa
bæklinga, en staðreyndin er sú að
þeir voru fyrsta gáfulega viðleitni
Stéttarsambandsins til að gera
eitthvað," sagði Ágúst Sigurðs-
son. óþh
Karlakórinn Geysir
Samsöngur
kórsins verður í íþróttaskemmunni á Oddeyri,
föstudagskvöldið 26. maí kl. 20.30.
Stjórnin.
Stór bflasýning á
Akureyri um helgina
Undirbúningur vegna bílasýn-
ingarinnar sem veröur í
Iþróttahöllinni á Akureyri um
næstu helgi er nú á lokastigi.
Sýning sem þessi var í fyrsta
skipti haldin fyrir um ári síðan
og þótti takast ákaflega vel.
Á sýningunni munu öll helstu
bílaumboð landsins sýna það
nýjasta sem hver og einn hefur
Póstur og sími Akureyri:
Búnaður fyrir svokallað boð-
kerfi settur upp í sumar
I sumar verður settur upp á
Akureyri búnaður fyrir svo-
kallað boðkerfi. Margir hafa
beðið lengi eftir þessu skila-
boðkerfi, sem verður gagnlegt
fyrir ýmsa aðila svo sem
læknaþjónustu, slökkvilið,
lögreglu og fyrir starfsmenn í
fyrirtækjum sem vinna á
dreifðum svæðum svo eitthvað
sé nefnt.
Þá er einnig hafin uppsetning á
stafrænni langlínustöð fyrir sjálf-
virka símakerfið og mun því
verki væntanlega verða lokið á
miðju sumri. Nýja langlínustöðin
mun bæta mjög úr afgreiðslugetu
í símaumferð til annarra lands-
hluta. Þetta kemur m.a. fram í
síðasta hefti Póst- og símafrétta.
Póstur og sími hefur unt nokk-
urt skeið áætlað að hefja rekstur
þráðlauss boðkerfis og hefur
nauðsynlegur búnaður þegar ver-
ið pantaður. Þörf fyrir slíka þjón-
ustu virðist vera mikil hjá fyrir-
tækjuin af ýmsum stærðum og í
ólíkum atvinnugreinum og reikn-
að er með töluverðri einkanotk-
un þjónustunnar.
Með boðkerfum má senda boð
frá venjulegum símtækjum -
hljóðmerki eða tölustafi - til
smárra boðtækja, sent hafa má í
vasa. Boðþjónusta Pósts og síma
verður eins konar útvíkkun á
kerfum sem nú eru notuð t.d. á
sjúkrahúsum og ýmsum öðrum
stofnunum og fyrirtækjum.
Útvíkkunin felst í því að öllum
gefst kostur á að nýta þjónstuna,
kerfið mun ná til fleiri og stærri
svæða en nokkurt núverandi
svæða og gefinn verður kostur á
mörgum þjónstutegundum. Tæk-
in verða af tveim aðalgerðum -
tónboðtæki og talnaboðtæki.
Hverjum notanda verður úthlut-
að 8 stafa boðkallsnúmeri.
Nokkrar þjónustutegundir verða
veittar og verða þær helstu
þessar: Tónboðkall, talnaboð-
kall, talhólfaþjónusta, hópkall og
endurtekning.
Ætla má að ódýrustu tónboð-
tækin muni kosta innan við 15
þúsund krónur, miðað við
óbreytt innflutningsgjöld og sölu-
skatt. Talnaboðtækin verða tölu-
vert dýrari, m.a. vegna hærri inn-
flutningsgjalda. Áætlað er að
hefja þessa þjónustu á hausti
komanda.
uppá að bjóða. Bílarnir verða til
sýnis bæði innanhúss og utan auk
þess sem fyrirtæki á Akureyri
munu sýna suntarvörur.
Pá verður ýmislegt gert til
skemmtunar, t.d. efnt til hluta-
veltu og kaffisölu. Sýningin verð-
ur opin á laugardag og sunnudag.
VG
„Sýning ársins"
'89 bílar
í íþróttahöllinni á Akureyri
sýna helstu bílaumboð landsins
besta úrval nýrra bíla
laugardaginn 27. maí kl. 13.00-18.00 og
sunnudaginn 28. maí kl. 13.00-17.00.
Bílasýning
Og
sumarvörusýning
Ýmis fyrirtæki á Akureyri
sýna einstakar vörur s.s.
Reiðhjól af öllum stærðum og gerðum.
Úrval af húsgögnum í garðinn,
borðstofusett og sófasett.
Garðyrkjuáhöld og blóm.
Hlutavelta meÖ 2.000 vinningum.
Foreldrafélag KA er með veitingasölu báða dagana.
Lúðrasveit Tónlistarskólans
leikur kl. 13.15 á sunnudag,
Harmonikufélagið kl. 14.00 á
laugardag og sunnudag.
Lúðrasveit Akureyrar leikur kl. 15.15 báða dagana.
Knattspyrnufélag Akureyrar.
MÖL & SANDUR HF
V/Súluveg • Pósthólf 618 • 602 Akureyri • Sími 96-21255