Dagur - 26.05.1989, Page 9

Dagur - 26.05.1989, Page 9
 Föstudagur 26. maí 1989 - DAGUR - 9 Hér eru 9 af 12 eldri listmálurum sem sýna verk sín í Gamla Lundi. Myndic: kl Gamli Lundur: Héraðssýning kynbótahrossa Héraðssýning kynbótahrossa á starfssvæði Hrossaræktarsambands Eyfirðinga og Þing- eyinga verður haldin á Melgerðismelum í Eyjafirði sunnudaginn 18. júní n.k. Forskoðun hrossanna fer fram sem her segir: Mánudagur 12. júní Þriðjudagur 13. júní Miðvikudagur 14. júní Fimmtudagur 15. júní Föstudagur 16. júní Húsavík. Flötutungur í Svarfaðardal. Melgerðismelar. Melgerðismelar. Melgerðismelar. Skráning fer fram á þessum stöðum: Hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar Óseyri 2 Akur- eyri, Rafni Arnbjörnssyni Öldugötu 3 Dalvík og Stefáni Skaftasyni Straumnesi Aðaldal. Skráningu skal lokið ekki síðar en mánudaginn 5. júní. Skráningargjald er kr. 900,- og greiðist það við afhendingu gagna. Búnaðarsamböndin í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Sýning eldri listmálara Hópur eldri listmálara sýnir verk sín í Gamla Lundi 27. maí til 4. júní. Þetta eru 12 ein- staklingar sem sótt hafa nám- skeið á vegum félagsstarfs aldraðra undir handleiðslu Kristins G. Jóhannssonar list- málara. Afraksturinn er um 50 olíumálverk. Blaðamenn Dags brugðu sér í Gamla Lund í gær og var þá búið að hengja upp verkin. Þar voru staddir níu eldri listmálarar kváð- ust þeir allir hafa haft mikla ánægju af námskeiðum Kristins, en myndirnar eru frá tveimur námskeiðum. Þegar litið er yfir sýninguna má sjá að náttúran heillar listmálar- ana og eru landslagsmyndir í anda natúralismans mest áber- andi. Einnig uppstillingar (still life), mannamyndir, naívismi og jafnvel abstrakt. Aðspurðir sögð- ust listamennirnir hafa málað landslagsmyndirnar eftir ljós- myndum eða öðrum fyrirmynd- um en ímyndunaraflið hefur líka ráðið ferðinni í verkunum. Fæstir listmálaranna sögðust hafa málað áður en nokkrir hafa teiknað, t.d. Elísabet Jóhanna Sigurðardóttir, sem sýnir tvær myndir teiknaðar með svartkrít, auk málverka. Aðrir sýnendur eru Ingimar Friðgeirsson, Ólöf Baldvinsdóttir, Finnur Daníels- son, Konráð Ásgrímsson, Sigurður Kristjánsson, Páll Þórð- arson, Katrín Jósepsdóttir, Magna Sæmundsdóttir, Jóhann Sigurðsson, Þórhalla Svanholt og Aðalsteinn Óskarsson. Ástæða er til að hvetja eldri sem yngri borgara til að sjá sýn- inguna í Gamla Lundi. Hún verður opin kl. 14-20 um helgar og kl. 16-20 virka daga. SS Elísabet Jóhanna Sigurðardóttir við verk sín. Finnur Daníelsson við verk sín. HIUUX 4 jWóttahö«^a Toyota Hilux hefur nú veriö endurhannaöur, aö innan sem utan, meö þarfir fjölskyldunnar í huga. Hann er nú hljóðlátari, nýtískulegri og kraftmeiri en áöur. Þú situr hátt í Hilux sem er í senn léttur, sparneytinn og mjög öflugur. Útvarp og vökvastýri fylgja öllum þremur geröunum. Toyota Hilux er ekki lengur bara „pick-up“ bíll - heldur kjöriö tækifæri til aö gera drauminn um jeppa aö veruleika! Verðum í iþrottahöllinni um helgina 27. og 28. maí Reynsluakstur og sýning á Toyota bílum 4x4 Hilux Double Cab Ath. sérstakt sýningartilbod á tveimur tegundum Toyota gildir frá 27. maí tii 31. maí. | M V r)T A Bílasalan Stórholt •*&*** f* Hjalteyrargötu 2, símar 23300 og 25484. R i I í

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.