Dagur - 30.05.1989, Blaðsíða 5

Dagur - 30.05.1989, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 30. maí 1989 - DAGUR - 5 Haraldur Ásgeirsson, sigurvegari í flokki sérútbúinna jeppa. Glerárdalur: Spennandi torfærukeppni Torfærukeppni var haldin í malarnámunum við Glerá fyrir ofan Akureyri á laugardaginn, en Bílaklúbbur Akureyrar stendur fyrir keppninni sem er um leið Iiður í keppni um Islandsmeistaratitil í torfæru- akstri. Fjölmargir komu til að fylgjast með keppninni þrátt fyrir kuldalegt veður, því áhugi almennings virðist vera mikill á torfærukeppnum. í götubílaflokki fóru leikar þannig að efstur varð Stefán Sig- urðsson frá Egilsstöðum. Hann sigraði á Willys CJ 5, árg. 1955, með Buick 350 vél, sjálfskiptum. Annar varð Magnús Ástráðsson, Egilsstöðum, á Willys CJ 5, árg. ’55, með 6 cyl. Chevrolet-vél, beinskiptum og þriðji varð Stefán Gunnarsson, Reykjavík, á Willys, árg. 1966, CJ 5, með Chevrolet 307 tommu vél, bein- skiptum. I flokki sérútbúinna bíla sigr- aði Haraldur Ásgeirsson frá Reykjavík á beinskiptum Jeep- ster, árgerð óviss, með 350 tommu Chevrolet-vél. Annar varð Gunnar Guðjónsson, Reykja- vík, á Willys CJ 5, árg. ’66, með 350 tommu Chevrolet-vél, og þriðji Ásmundur Guðnason, Reykjavík, á Ford jeppa, árg. 1942, með Chrysler 318 tommu vél, beinskiptum. Fordinn er „nýsmíði“ og þótti Ásmundi ganga vonum framar þar sem þetta er hans fyrsta reynsla af keppni. Kjartan Kristinsson, Akureyri, hlaut tilþrifabikarinn. Hann var á Blazer grind, með 454 Chevrolet vél, beinskiptur. Pað háði keppendum nokkuð hversu svæðið var forarblautt og einhverjum áhorfendum hefur e.t.v. orðið kalt, en torfæru- keppni er ckki haldin á hverjum degi „í grúsunuin“ við Glerá. Vonandi verða menn heppnari með veður næst. EHB Gunnar Guðjónsson var eini keppandinn sem fór upp þessa hindrun en hann „affelgaði" eitt dekk efst á brúninni. Myndir: KL ACO Húðhirða Tilfinning og skynsemi Nú er verið að kynna nýja húð- hirðulínu í apótekunum - ACO Húðhirðu. Tvennt er mikil- vægt við val á húðhirðuvörum: Þær þurfa að vera þægilegar í notkun og þær mega ekki valda húðertingum eða ofnæmi. Þeg- ar þú kaupir ACO húðhirðu- vörurnar færðu góðar vörur sem eru gerðar úr bestu fáan- legum hráefnum. ACO Roll On, áhrifaríkur en samt mildur svitalyktarevöir. Minnkar svitaútstreymi og vinnur gegn óþœgilegri svita- lykt. Inniheldur ekkert húðert- andi spritt. 50 ml verð ca. 233 kr. ACO Mild Tvál er sérstaklega mild sápa. Bæðifyrir almennan líkams- þvott og hreinsun viðkvæmrar húðar. 250 m! verðca. 220 kr. TILBOÐ: ÞEGAR MJ KAUP- IR ACO HÚÐHIRÐUVÖRU AÐ EIGIN VALI, FÆRÐU ACO MILD TVÁL 125 ML í KAUPBÆTI. TILBOÐIÐ STENDUR Á MEÐAN BIRGÐIRENDAST. ACO Húðhirða Aðeins í apótekinu! FYRIRTAK hf. sími 91-3 20 70

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.