Dagur - 30.05.1989, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 30. maí 1989 - DAGUR - 9
r Birgisson og félagar í Þórsliðinu riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Fylkis-
Mynd: JÓH
Knattspyrna/3. deild:
KS vann Dalvík
- og Reynir lagði Kormák
KS sigraði Daivík 2:1 á Dalvík
og Reynismenn lögðu Kormák
á Hvammstanga 3:2. í 3. deild-
inni í knattspyrnu. Þar að auki
burstaði lið Þróttar N. lið
Valsmanna 5:0 á Norðfirði.
Leikur Dalvíkur og KS var
frekar slakur þegar á heildina var
litið. Leiðinlegt veður setti svip
sinn á leikinn á laugardaginn og
áttu leikmenn beggja liða í erfið-
lcikum að hemja knöttinn í mestu
hviðunum.
Dalvíkingurinn Guðmundur
Jónsson kom mikið við sögu í
þessum leik. Eftir markalausan
fyrri hálfleik fór að draga til tíð-
inda í þeim síðari. A 20. mínútu
fór boltinn í hendi Guðmundar
og skoraði Baldur Benonýsson
örugglega úr vítaspyrnunni fyrir
Siglfirðinga.
Rúmum tfu mínútum síðar var
hins vegar dæmt víti á KS og
Guðmundur skoraði með fallegu
skoti. En KS snéri vörn strax í
sókn og á sömu mínútu skoraði
Óli Agnarsson annað mark fyrir
gestina.
Tveimur mínútum fyrir leiks-
lok fengu Dalvíkingar aðra víta-
spyrnu en nú skaut hinn sami
Guðmundur hátt yfir mark KS.
Leiknum lauk því með sigri Sigl-
firðinga 2:1.
Dómari leiksins var Sigurður
Víglundsson og kom hann mikið
við sögu. Hann hóf strax í byrjun
mikinn flautukonsert og greini-
legt á öllu að hann ætlaði sér að
halda leiknum niðri. Það gerði
hann svo sannarlega með því að
stoppa leikinn hvað eftir annað
og trufla hvað eftir annað sóknir.
En dómgæsla hans bitnaði jafnt á
báðum liðum og réði vart úrslit-
um leiksins.
Reynir lagði Kormák
í miklu hvassviðri á Hvamms-
tanga mættust nýliðarnir í deild-
inni, Kormákur, og Reynir frá
Árskógsströnd. Heimamenn léku
með vindinn í bakið í fyrri hálf-
leik og náðu tveggja marka for-
skoti. Það voru þeir Bjarki
Gunnarsson og Grétar Eggerts-
son sem skoruðu mörkin. Reynd-
ar voru Reynismenn heppnir að
fá ekki fleiri mörk á sig því
Hvammstangapiltarnir fengu
ágæt tækifæri til þess að auka við
forskotið.
Síðari hálfleikur hófst með
miklum látum og endað með því
að dómari leiksins vísaði Alberti
Jónssyni úr Kormáki af leikvelli
og eftir það þyngdist sókn gest-
anna.
Þorvaldur Þorvaldsson þjálfari
þeirra braut ísinn með ágætu
marki af stuttu færi og þá var eins
og mesti móðurinn rynni af heima-
mönnum. Garðar Níelsson jafn-
aði síðan leikinn og Ágúst Sig-
urðsson tryggði Reynismönnum
sigurinn með marki skömmu fyrir
leikslok.
Þrátt fyrir að hafa tapað þess-
um leik geta Kormákspiltarnir
nokkuð vel við unað eftir þennan
fyrsta leik í deildinni. Þeir komu
upp úr 4. deild og það tekur alltaf
vissan tíma að átta sig á munin-
um á deildunum.
Reynir náði sér ekki á strik í
þessum leik, en sýndi þó styrk
sinn að skora þrjú mörk á tuttugu
mínútum.
Þorvaldur skoraði fyrsta mark
Reynis gegn Kormáki og Reynir
vann 3:2.
Enska knattspyrnan:
Arsenal meistari
- sigruðu Liverpool 2:0 á útivelli
fyrsta Englandsmeistaratitil síðan
1971 og þetta var stund sem hinir
fjölmörgu aðdáendur Arsenal út
um allan heim hafa beðið eftir
lengi.
Liðið var með örugga forystu á
tímabili í vetur en virist ætla að
klúðra titlinum á lokasprettinum.
En þessi glæsilegi sigur varð til
þess að bikarinn fer til Lundúna
þetta árið.
Úrslitin í leiknum voru áfall
fyrir Liverpool-liðið sem leikið
hefur frábæra knattspyrnu undan-
farnar vikur. En það er allur vet-
urinn sem gildir og liðið virkaði
ekki nógu sannfærandi fyrir jól. í
þessum leik virtust leikmennirnir
ekki trúa því að þeir gætu tapað
með tveggja marka mun og það
kom þeim í koíl. En liöið varð
Bikarmeistari og ætti að geta vel
við unað í sambandi við árangur
vetrarins.
Alan Smith
Arsenal.
skoraði fyrra mark
Knattspyrna/2. deild:
ÍR vann Einheria
Tryggvi skoraði öll mörkin u
Einherjamenn riðu ekki feit-
um hesti frá viðureign sinni við
IR-inga á gervigrasinu í Laug-
ardal. IR sigraði 3:1 og skoraði
Tryggvi Gunnarsson öll mörk
Reykjavíkurliðsins. Þrándur
Sigurðsson skoraði mark Ein-
herja úr vítaspyrnu.
ÍR-ingar voru mun sprækari í
leiknum og sóttu stíft fyrri hálf-
leikinn. En vörn Einherja varðist
vel þar til rétt fyrir leikhlé að hún
opnaðist og Tryggvi skaust inn
Golf á Sauðárkróki:
Heimamenn sigruðu
- „Slipparana“ frá Akureyri
Fyrsta golfmót sumarsins á
Hlíðarendavelli Golfklúbbs
Sauðárkróks var haldið sl.
sunnudag, þegar starfsmenn
Slippstöðvarinnar á Akureyri
komu í heimsókn og léku við
heimamenn. Mótið, sem orð-
inn er árlegur viðburður, geng-
ur undir nafninu „Slipp-
Krókur“, og það var Slipp-
stöðin sem gaf öll verðlaun.
AIIs mættu 27 kylfíngar til
leiks, 10 frá Slippnum og 17 frá
Golfklúbbi Sauðárkróks.
Hlíðarendavöllur bauð ekki
upp á það að allar holurnar yrðu
leiknar, heldur var leikið á 6
brautum og farnir 3 hringir til að
ná 18 holu keppni. Ágætis skor
náðist, þrátt fyrir leiðindaveður
og vorbrag á kylfingum.
Árangur átta fyrstu manna lið-
anna var talinn, þegar búið var
að draga forgjöfina frá. Það kom
þannig út að heimamenn sigruðu
með 573 högg, á móti 626 högg-
um „Slipparanna". Fyrir vikið
fengu heimamenn glæsilegan
bikar. Þá voru veitt aukaverð-
laun fyrir að fara næst holu. Á 3.
braut var Örn Sölvi Halldórsson,
GSS, næst því, eða 10,55 m frá
holu! Magnús Rögnvaldsson GSS
var 1,26 m frá því að setja niður í
fyrsta höggi á 6. braut.
Árangur einstaklinga var eftir-
farandi:
Með forgjöf. högg
1. Hjörtur Geirmundsson GSS 68
2. Örn Sölvi Halldórsson GSS 69
3. Brynjólfur Tryggvason Slipp. 71
Án forgjafar. högg
1. Örn Sölvi Halldórsson GSS 80
2. Sigurður G. Ringsted Slipp. 82
3. Magnús Rögnvaldsson GSS 85
fyrir og skoraði fyrsta mark leiks-
ins.
I síðari hálfleik bætti Tryggvi
við öðru marki sínu beint úr
aukaspyrnu og var það mark sér-
staklega glæsilegt. En þá var
komið að Vopnfirðingum að
sækja. Þeir komust í ágætt færi
en einum sóknarmanni þeirra var
hrint og Friðgeir Hallgrímsson
dómari dæmdi umsvifalaust víta-
spyrnu. Reyndar voru ekki allir
sáttir við þann dóm en Þrándur
Sigurðsson skoraði örugglega úr
spyrnunni fram hjá Þorsteini í
marki ÍR.
En þar með var eins og allur
vindur væri úr gestunum og sóttu
IR-ingar stíft það sem eftir var
leiksins. Þeir uppskáru þó aðeins
eitt mark og var þar Tryggvi
Gunnarsson enn einu sinni á
ferðinni með ágætt mark.
ÍR-liðið virkaði frískt og má
sjálfsagt búast við miklu af þeim í
sumar. Ekki er hægt að dæma
Einherjaliðið af þessunt leik.
Gervigrasið á greinilega ekki við
þá og náðu Vopnfirðingarnir sér
ekki á strik í leiknum.
Verðlaunahafar á „Slipp-Krókur“ mótinu á Hlíðarendavelli. Frá vinstri:
Magnús Rögnvaldsson GSS, Hjörtur Geirmundsson GSS, Örn Sölvi Hall-
dórsson GSS, Brynjólfur Tryggvason, frá Stippstöðinni, Steinar Skarphéð-
insson, formaður GSS með verðlaunabikarinn, og Sigurður G. Ringsted,
forstjóri Slippstöðvarinnar. Mynd: -bjb
bekknum. Arsenal náði strax
frumkvæðinu en náði ekki að
skora í fyrri hálfleik. Greinilegt
var að Dalglish framkvæmda-
stjóri var ekki ánægður með gang
mála og kippti hann Rush út af
og setti Beardsley inn á. En allt
kom fyrir ekki því Arsenal hélt
áfram að stjórna gangi mála.
í síðari hálfleik náði Arsenal
forystu með skallamarki Alan
Smith, en Liverpool-menn mót-
mæltu ákaft og töldu hafa verið
brotið á Staunton bakverði
liðsins. Dómarinn ráðfærði sig
við línuvörðinn og benti síðan
ákveðið á miðjuna, mark!
Lokamínúturnar voru æsi-
spennandi og á síðustu mínút-
unni komst Michael Thomas inn
fyrir vörnina, lagði knöttinn fyrir
sig og sendi hann örugglega í
markið hjá Grobbelar. Þar með
hafði Arsenal tryggt sér sinn
Arsenal tryggöi sér enska
meistaratitilinn á eftirminnileg-
an hátt í beinni útsendingu á
föstudagskvöld. Liðiö gerði sér
lítið fyrir og sigraði Liverpool
á útivelli 2:0 og eru 15 ár síöan
Liverpool tapaði með tveggja
marka mun á Anfield Road.
Það var einkum baráttuvilji og
einbeitni sem skóp sigur Lund-
únaliðsins. Liverpool-leik-
mennirnir virtust hálf-sofandi og
náðu aldrei almennilega að kom-
ast inn í leikinn.
Það kom á óvart að Rush og
Aldridge voru báðir látnir byrja
en Peter Beardsley látinn sitja á