Dagur - 30.05.1989, Page 14
14-
* IJStiO' ■■ rn nt' •.( i n t
- Þriðjudagur 30.
f 1989
Aðalfundur
Dagsprents hf.
verður haldinn mánudaginn 12. júní n.k. kl. 17.30
að Strandgötu 31, Akureyri.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Breytingar á samþykktum.
Hlutafjáraukning.
Önnur mál.
Stjórn Dagsprents hf.
Útboð
Styrking og malarslitlög í
Húnavatnssýslu 1989
VEGAGERDIN
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í
ofangreint verk.
Magn 19.000 m3.
Verki skal lokið 29. ágúst 1989.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð
ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðal-
gjaldkera) frá og með 29. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir
kl. 14.00 þann 12. júní 1989.
Vegamálastjóri.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107,3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Draupnisgata 5 m Akureyri, þingl.
eigandi Gunnar Kristdórsson,
föstud. 2. júnf '89, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Einholt 3, n.h., Akureyri, þingl. eig-
andi Þorvaldur Einarsson, föstud. 2.
júní '89, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Gránufélagsgata 53, n.h. hl., þingl.
eigandi Gunnar Þórólfsson, föstud.
2. júní '89, kl. 15.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Veðdeild Landsbanka íslands.
Lerkilundur 9, Akureyri, þingl. eig-
andi Sveinbjörn Vigfússon, föstud.
2. júní ’89, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar, Gunnar
Sólnes hrl., Ásgeir Thoroddsen hdl.
og Kristinn Hallgrímsson hdl.
Skarðshlíð 22 e, Akureyri, þingl.
eigandi Jóhanna Valgeirsdóttir,
föstud. 2. júní '89, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Ólafur
Gústafsson hrl.
Skarðshlíð 36 b, Akureyri, þingl.
eigandi Steingrímur Friðriksson ofl.,
föstud. 2. júní '89, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Sunnuhlið 12 R-hluti, Akureyri,
þingl. eigandi Pétur Björnsson o.fl.,
föstud. 2. júní '89, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Víðimýri 4, Akureyri, þingl. eigandi
Sigurður Halldórsson, föstud. 2.
júní ’89, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Fjárheimtan hf.,
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjaröarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Arnarsíða 12 b, Akureyri, þingl. eig-
andi Sveinn Æ. Stefánsson, föstud.
2. júní '89, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Veðdeild Landsbanka íslands,
Gunnar Sólnes hrl. og Bæjarsjóður
Akureyrar.
Grenilundur 15, Akureyri, þingl. eig-
andi Haukur Adolfsson, föstud. 2.
júní ’89, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Innheimtumaður ríkissjóðs.
Grundargata 9, Dalvík, þingl. eig-
andi Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
föstud. 2. júní '89, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Björn Ólafur Hallgrímsson hdl.
Hafnargata 17, Grímsey, þingl. eig-
andi Gunnar Hjelm, föstud. 2. júní
’89, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Veðdeild Landsbanka íslands.
Háls, Öxnadalshreppi, þingl. eig-
andi Þórarinn Guðmundsson,
föstud. 2. júní '89, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Stofnlánadeild
landbúnaðarins og Benedikt Ólafs-
son hdl.
Vanabyggð 3 e.h., Akureyri, talinn
eigandi Einar Haraldsson, föstud. 2.
júní ’89, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Björn Jósef
Arnviðarson, hdl., Ingvar Björnsson
hdl., Gísli Gíslason hdl., Ólafur
Birgir Árnason hdl. og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík
Sýslumaöurinn í Eyjafjarðarsýslu.
ÝJón
Fæddur
Laugardaginn 29. apríl sl. andað-
ist að heimili sínu vinur minn og
mágur Jón Hjálmarsson, skó-
smiður, Hverfisgötu 15, Siglu-
firði.
Andlát hans kom óvænt,
a.m.k. okkur, sem ekki höfðum
fylgst með heilsufari hans þá að
undanförnu, en þau hjónin höfðu
dvalið í Reykjavík um tíma, en
þar voru þau við fermingu sonar-
dótturinnar, Sigríðar Erlu, um
miðjan apríl.
Jón varð áttatíu ára þann 27.
mars sl., honum þótti ævidagur
að kveldi kominn og var sáttur
við lífið og tilveruna. Þau voru
komin heim í litla húsið sitt, þau
höfðu verið viðstödd fermingu
Sirrýar, sem var þeirra uppáhald
og augasteinn, og notið samvista
við fjölskyldu hennar og vina-
fólk.
Slæmt kvef og þyngsli fyrir
brjósti höfðu angrað Jón síðustu
dagana og að morgni laugardags
þyngdi honum nokkuð og ein-
kenni sjúkleika, sem í nokkur ár
hafði búið með honum, gerðu nú
vart við sig. Hann færði sig því af
svefnlofti og niður á hæðina og
lagðist fyrir á dívan, eins og hann
oft hafði gert þegar líkt stóð á.
En nú dugðu hjartatöflurnar ekki
til að lina takið, hann sofnaði í
rósemd og friði, og var liðinn um
það bil, sem læknirinn kom.
Slfkrar brottfarar af þessum
heimi hafði hann oft óskað sér,
að fara fljótt og þjáningalaust.
Útför Jóns var gerð frá Siglu-
fjarðarkirkju þ. 6. maí að við-
stöddu fjölmenni. Sr. Stína
Gísladóttir jarðsöng.
Jón Hjálmarsson var fæddur
27. mars árið 1909 að Stóra-Holti
í Fljótum. Foreldrar hans voru
Hjálmar Jónsson, bóndi þar og
Sólveig Jónsdóttir, ráðskona
hans. Hjá þeim var Jón til
tveggja ára aldurs, en var þá
komið í fóstur til Marsibilar Sig-
urðardóttur og Sigurðar Jónsson-
ar, sem gengu honum í foreldra
stað. Hjá þeim ólst hann upp.
Bernskuárin á Siglufirði urðu
honum oft umræðuefni, minning-
ar úr barnaskóla voru honum rík-
ar í huga sem og minningar ungl-
ingsáranna í vaxandi bæjarlífi
Siglufjarðar um og upp úr 1920.
Eins og aðrir unglingar fór hann
að vinna strax og getan leyfði.
Hugurinn stóð þó fljótt til þess að
læra eitthvað og skapa sér fastan
grundvöll til framtíðar.
Þegar aldur og aðstæður leyfðu
hóf Jón iðnnám, gerðist lærlingur
í skósmíðaiðn hjá Guðlaugi Sig-
urðssyni, skósmíðameistara,
Siglufirði. Og því námi lauk hann
Minning:
Hjálmarsson
skósmiður
27. mars 1909 - Dáinn 29.
með sveinsprófi og burtfararprófi
frá Iðnskóla Siglufjarðar.
Nokkru síðar veiktist hann af
berklum og varð næstu árin á eft-
ir að dveljast á Kristnesi í Eyja-
firði.
Dvölin á Kristnesi veitti Jóni
sæmilega heilsubót, en afleiðing-
ar berklaveikinnar fylgdu honum
þó til æviloka.
Með tilliti til heilsunnar hóf
Jón nám í húsasmíði, og var það
von hans að útivinna myndi eiga
betur við heilsufarið eins og því
var komið. Ekki varð þó langt í
því námi, heilsan þoldi ekki það
álag sem slíkri vinnu fylgdi. Og
sneri hann þá aftur að skósmíði,
flutti til Dalvíkur, stofnaði þar
vinnustofu í félagi við tvo vini
sína. Störfuðu þeir þar í nokkur
ár, en fluttu sig svo með vinnu-
stofuna til Siglufjarðar og unnu
þar saman í hart nær áratug. Jón
var svo síðast orðinn einn eftir,
og starfaði við iðn sína allt til árs-
ins 1982 að hann varð að hætta
vegna heilsubrests.
Skömmu eftir að Jón flutti frá
Dalvík til Siglufjarðar kynntist
hann systur minni, Sigríði, og
leiddu þau kynni til þess að þau
gengu í hjónaband árið 1948 og
stofnuðu heimili hér í bæ. Þeim
varð tveggja sona auðið, Hjálm-
ars og Magnúsar, sem báðir eru
efnis- og sæmdarmenn. Hjálmar
varð búfræðingur frá Hólaskóla,
síðar starfsmaður í álverinu í
Straumsvík um langt árabil og
seinna byggingaverkamaður hér í
bæ. Hann kvæntist Hólmfríði
Hafberg, þau eignuðust dóttur,
Sigríði Erlu, sem varð, svo sem
áður er sagt, yndi og augasteinn
afa og ömmu. Hjálmar og Hólm-
frfður slitu hjónabandi fyrir
nokkrum árum, og flutti hann þá
heim til foreldra og hefur búið
með þeim síðustu árin.
Magnús fetaði iðnbrautina,
príl 1989
lauk námi í rafvirkjaiðn á Akur-
eyri og hefur starfað þar að iðn
sinni. Hann er ókvæntur.
Þau Jón og Sigríður hafa allan
sinn búskap átt hlýlegt og vina-
legt heimili. Lengst hafa þau búið
í litla húsinu sínu á Hverfisgötu
15, þar hefur snyrtimennska og
hirðusemi ráðið ríkjum utan dyra
sem innan og voru þau mjög sam-
hent í því sem öðru.
Jón Hjálmarsson var félags-
lyndur maður. Hann tók veruleg-
an þátt í félagslífi bæjarins, og þá
helst því, sem höfðaði til áhuga-
mála hans. Hann var virkur í
starfi Iðnaðarmannafélags Siglu-
fjarðar meðan það var starfandi.
Hann hafði róttækar skoðanir á
þjóðamálum og starfaði í sósíal-
istasamtökum bæjarins. Hann
var einn af stofnendum Kvæða-
manna- og hagyrðingafélagsins
Braga, sem starfaði allvel í nokk-
ur ár. Og síðustu ár hefur Jón
verið virkur félagi í Félagi eldri
borgara og að auki tekið ríkuleg-
an þátt ásamt konu sinni í tóm-
stundastarfi eldra fólksins.
Jón var fróðleiksfús og las mik-
ið fræðandi bækur, enda átti
hann orðið gott bókasafn, Hann
var með afbrigðum Ijóðelskur
maður, átti auðvelt með að læra
ljóð utanað og hafði ótrúlega gott
minni á ljóð og vísur til hins síð-
asta. Hann kunni feiknin öll af
lausavísum og var minnugur á
tilefni vísna. Hann var „hafsjór“
af vísum, eins og kunningjarnir
sögðu og hafði gaman af að fara
með vísur og kveðskap. Eigin
hagmælsku flíkaði hann lítt, en
gat vel kastað fram stöku, ef svo
bar undir.
Þegar ég lít til liðinna ára og
sambands okkar systkinanna við
mág okkar, Jón, þá verður efst í
huga minningin um það hve
elskulegt og traust samband hans
var við foreldra okkar, meðan
bæði lifðu, og við föður okkar
meðan hann lifði til hárrar elli.
Jón varð strax sem eitt af systkin-
unum. Og þau okkar sem fjarri
bjuggu, mátu hann ekki síður en
við, sem höfðum nánara sam-
neyti við þau hjónin. Hann var
sem einn bróðirinn í systkina-
hópnum.
Hans er því sárt saknað nú,
þegar hann er ekki lengur með á
vegferð lífsins. En minningin um
góðan og elskuríkan samferða-
mann og lífsförunaut, föður og
afa, mun lifa og sefa söknuð og
trega okkar, sem áfram höldum á
lífsins göngu.
Blessuð sé minning Jóns
Hjálmarssonar.
Einar M. Albertsson.
j, Minning:
T Þóra Jónsdóttir
Þverá, Öngulsstaðahreppi, Eyjafirði
Þann 18. maí sl. andaðist á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, Þóra Jónsdóttir frá Þverá í
Öngulsstaðahreppi.
Þóra giftist árið 1919 Árna
Jóhannessyni, síðar oddvita og
hreppstjóra, og hófu þau búskap
sama ár að Þverá í Eyjafirði.
Þeim varð átta barna auðið og
eru sjö þeirra á lífi. Hlutskipti
Þóru var allt frá fyrstu tíð störf
húsfreyjunnar.
Þetta er hinn ytri rammi um
lífsmynd þessarar látnu konu, en
hann segir auðvitað lítið, og
kannski segja sumir, að lítið sé
hægt að skrifa um konu sem vinn-
ur hin þöglu störf húsfreyjunnar
og sinnti lítið um félagsmál, utan
það sem þjóðfélagið lagði henni á
herðar. En heimilið er grund-
völlurinn undir þjóðfélögunum.
Hver og einn sem þekkti Þóru
hefur sínar minningar um hana.
Ég minnist ömmu minnar sem
hjartahlýrrar konu, sem ætíð gaf
sér tíma til að leysa vandamál
barnæskunnar. Síðar á lífsleið-
inni varð mér ljós rík kímnigáfa
hennar. En umfram allt minnist
ég hennar sem starfsamrar konu.
Eftir langa lífdaga mun henni
nú sælt að hvílast.
Fyrir hönd aðstandenda Þóru
Jónsdóttur vil ég þakka starfs-
fólki Fjórðungssjúkrahússins fyr-
ir umönnun þeirra.
Ólafur Ólafsson.