Dagur - 07.06.1989, Page 1
Aðalfundur Sambandsins:
„Engin töfralausn til“
- á vanda Samvinnuhreyfmgarinnar
segir Guðjón B. Ólafsson
87. aðalfundi Sambands ís-
lenskra Samvinnufélaga lauk á
5. tímanum í gær en eins og
fram hefur komið var rúmlega
1150 milljóna króna halli á
rekstri Sambandsins á síðasta
ári.
í gær fór fram stjórnarkjör og
þá var gengið frá ályktun aðal-
Akureyri:
Hótel Norður-
land opnað
á fóstudag
Iðnaðarmenn leggja nú nótt
við dag að Ijúka breytingum
sem unnið er að á húsnæði
því sem áður var Hótel
Varðborg á Akureyri. Stefnt
er að því að Hótel Norður-
land hefji starfsemi næst-
komandi föstudag.
Bæjarfógetinn á Akueyri
sendi bæjarráði bréf þann 26.
máí sl. þar sem óskað var eftir
umsögn bæjarstjórnar um
umsókn Gísla Jónssonar f.h.
Hótels Norðurlands um leyfi
til að reka hótel í fyrrnefndu
húsnæði. Bæjarráð beindi því
til bæjarstjórnar að mæla með
leyfisveitingunni og á aðal-
fundi bæjarstjórnar í gær var
samþykkt að mæla með starfs-
leyfi fyrir hið nýja hótel. JÓH
Akureyri:
Nokkuð mikið
rusl undan
fundarins. Fjölmargir tóku til
máls á fundinum í gær og voru
umræður málefnalegar. Þær snér-
ust eðlilega að mestii um rekstra-
vanda Sambandsins og leiðir til
úrbóta.
Valur Arnþórsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Sambandsins,
Outti ýtarlega ræðu á fundinum
og rakti þar m.a. þá vinnu sem
stjórn Sambandsins innti af hendi
á síðasta ári við að skoða skipu-
lagsmál SÍS svo og störf þeirrar
nefndar sem skipuð var til að
skoða þau mál sérstaklega. Valur
sagði að samvinnumenn stæðu
frammi fyrir alvarlegum vanda-
málum og þyrftu nauðsynlega að
finna lausnir sem dygðu Sam-
vinnuhreyfingu framtíðarinnar.
Guðjóni B. Ólafssyni, for-
stjóra Sambandsins, var tíðrætt
um þann efnahagsvanda sem við
er að etja og sagði að sá vandi
yrði ekki leystur fyrr en stjórn-
völd tækju vísitölubindingu allra
hluta úr sambandi. Um rekstrar-
vanda Sambandsins sagði Guð-
jón að menn mættu ekki flýja
vandamálið með því að velja sér
nýjan og nýjan umræðugrund-
völl.
„Við verðum að minnka skuld-
irnar, því við ráðum ekki við
núverandi skuldastöðu en það er
engin töfralausn til á vanda Sam-
vinnuhreyfingarinnar,“ sagði
Guðjón B. Ólafsson. Hann sagði
að Samvinnumenn yrðu að nota
stærðina og styrkinn „til að
treysta samvinnustarfið en ekki
til að slíta það í sundur eins og
við höfum haft tilhneigingu til að
gera.“ BB
Sigurður J. Sigurðsson tók við embætti forscta bæjarstjórnar Akureyrar á aðalfundi bæjarstjórnar í gær. Hér
afbendir Gunnar Ragnars, fráfarandi forseti, honum fundarhamarinn. Mynd: jóh
Aðalfundur bæjarstjórnar Akureyrar í gær:
Sigurður J. tók við forseta-
embættinu af Gunnari Ragnars
A aðaifundi bæjarstjórnar
Akureyrar í gær tók Sigurður
J. Sigurðsson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, við embætti
forseta bæjarstjórnar af
Gunnari Ragnars sem setið
hefur í forsetastólnum síðast-
liðin þrjú ár. Freyr Ofeigsson
var kjörinn 1. varaforseti
bæjarstjórnar og Siguður
Jóhannesson 2. varaforseti.
Engin breyting var gerð á
aðalfulltrúum í bæjarráði þar
sem eiga sæti Sigurður J. Sig-
urðsson, Freyr Ófeigsson,
Björn Jósef Arnviðarsson,
Sigurður Jóhannesson og Sig-
ríður Stefánsdóttir.
Af einstökum málum sem
hlutu afgreiðslu bæjarstjórnar í
gær má nefna jafnréttisáætlun
en Akureyrarbær er fyrsta sveit-
arfélagið á Iandinu til að sam-
þykkja slíka áætlun. Þá
afgreiddi bæjarstjórn einnig
bciðni frá Golfklúbbi Akureyr-
ar um fjárstyrk vegna evrópu-
móts kvenna í golfi síðar í
sumar. Fram kom að klúbbur-
inn telur kostnað vegna mótsins
um 10 milljónir króna. í bréfi til
bæjarráðs telur klúbburinn að
um 7 milljónir hafi verið tryggð-
ar í formi styrkja og í framhaldi
af því samþykkti bæjarstjórn í
gær viðauka við afgreiðslu
bæjarráðs þess efnis að bæjar-
stjórn samþykkti að veita 3
milljónir í styrk til mótsins að
því tilskyldu að G.A. hafi þegar
tryggt sér 7 milljónir upp í
kostnað vegna mótsins. JÓH
Neikvæð afgreiðsla Fiskveiðasjóðs gagnvart Hraðfrystihúsi Ólafsíjarðar hf.:
Vilji og steftia ríkisstjómar
virðist ekki hafa neina þýðingu
- segir Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra
snjónum
Á Akureyri byrjaði ungl-
ingavinnan sl. mánudag.
Nóg var að gera fyrir ungl-
ingana við að hreinsa til í
bænum en nokkuð mikið
rusl mun hafa komið undan
sjónum að sögn Þorsteins
Þorsteinssonar í umhverfis-
málanefnd Akureyrar.
Ekki mun þó vera um sér-
stakt hreinsunarátak að ræða
heldur hefðbundin vorstörf
hjá unglingum á Akureyri.
„Nú eru hundruðir unglinga
að vinna við fegrun, gróður-
setningu og öllu því sem þessu
fylgir“, sagði Þorsteinn. „Það
er því allt í fullum gangi við að
fegra bæinn.“
Óvenju mikill snjór var á
Akureyri í vetur og því kom
óvenju mikið rusl undan
honum. Þorsteinn sagði fólk
hafa verið hvatt til að fara út
og tína rusl í kringum garða
sína nú fyrr í vor því mikið
hefði fokið að girðingum.
„Þetta hafði sitt að segja því
að unglingavinnan var ekki
byrjuð og eiga þeir þakkir
skyldar sem tóku til hend-
inni,“ sagði Þorsteinn Þor-
steinsson. KR
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra, segir að neikvæð
afgreiðsla stjórnar Fiskveiða-
sjóðs á kaupum á hlutdeildar-
Hörmulegt slys varð á Akur-
eyri síðastliðið mánudagskvöld
er sjö ára gamall drengur féll í
Glerá og beið bana. Atvikið
var tilkynnt um kl. 21 og fannst
lík drengsins klukkan 00.35 um
nóttina.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Akureyri var
drengurinn að leika sér með
tveimur félögum sínum, 10 og 11
ára, á hitaveituröri sem liggur
skirleinum í Hlutafjársjóði til
framlagningar hlutafjár í
Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar hf.
hafi komið sér mjög á óvart og
hún kalli á umræðu um stöðu
yfir Glerárgljúfur í grennd við
gömlu Malar- og steypustöðina
er hann féll niður í ána.
Hjálparsveit skáta var fyrst til-
kynnt um atburðinn, síðan lög-
reglunni, og var leit fyrirskipuð
strax. Brátt voru allar björgunar-
sveitir á Akureyri kallaðar til svo
og kafarar og fannst drengurinn
látinn um klukkan hálf eitt.
Ekki er unnt að greina frá
nafni litla drengsins að svo
stöddu. SS
og hlutverk sjóðs sem Fisk-
veiðasjóðs og hvernig stjórnun
hans sé háttað.
Ríkisstjórnin fjallaði um þetta
mál á fundi sínum í gær og þar
var ákveðið að formenn stjórn-
arflokkanna muni fyrir ríkis-
stjórnarfund í fyrramálið ræða
við forsvarsmenn Atvinnutrygg-
ingasjóðs, Hlutafjársjóðs og
Byggðasjóðs um þá stöðu sem
upp er komin. í ljósi neikvæðrar
afgreiðslu stjórnar Fiskveiða-
sjóðs á H.Ó.-dæminu þykir sýnt
að Ieita verður nýrra leiða og
verður sá möguleiki kannaður til
hlítar að ' Landsbankinn og
Byggðasjóður taki á sig þann
hluta sem Hlutafjársjóður fór
fram á að Fiskveiðasjóður tæki á
sig og hann hefur nú hafnað. Fyr-
ir liggur jákvæð samþykkt stjórn-
ar Byggðasjóðs um kaup á hlut-
deildarskírteinum í Hlutafjár-
sjóði til skuldbreytingar í H.Ó.
hf. en þá er spurningin hvað
stjórn Landsbankans gerir á
fundi sínum í dag.
„Ef Fiskveiðasjóður telur sig
geta látið hrein viðskiptasjón-
armið ráða alfarið í afgreiðslu
þessa máls er ljóst að taka verður
það upp frá grunni. Telji Fisk-
veiðasjóður sig geta leyft sér að
vera svo algjörlega einangraður í
eigin hagsmunum og láta almanna
hagsmuni og þá hugsun að verið
sé að endurskipuleggja atvinnu-
lífið, fram hjá sér fara, þá lítum
við það mjög alvarlegum augum.
Það er eðlilegt að menn velti þvi
fyrir sér hvernig stjórnun sjóðs
eins og Fiskveiðasjóðs eigi að
vera háttað og hvort það sé virki-
lega svo að vilji og stefna ríkis-
stjórnar hafi enga þýðingu fyrir
þá menn sem valist hafa þar til
forystu. Ég leyfi mér að setja
forráðamenn ríkisbankanna und-
ir sama hatt,“ segir Guðmundur
Bjarnason. óþh
Akureyri:
Banaslys í Glerá
- sjö ára gamall drengur féll í ána