Dagur - 07.06.1989, Page 11

Dagur - 07.06.1989, Page 11
Miðvikudagur 7. júní 1989 - DAGUR - 11 Það var hart barist I leik Tindastóls og Völsungs í 2. fl. kvenna. Leiknum lauk með 4:1 sigri Völsungs. Mynd: -bjb íslandsmótið í knattspyrnu/2. fl. kvenna: Völsungur vann en jafíit hjá KA og Þór íslandsmótið í 2. flokki kvenna er hafíð og fjögur norðanlið; Þór, KA, TindastóII og Völs- ungur eru saman í riðli. I fyrstu leikjunum lagði Völsungur Tindastól 4:1 á Sauðárkróki og KA og Þór gerðu jafntefli 2:2. Þess má geta að KA er Islands- meistari í þessum flokki. Leikur KA og Þórs fór fram á KA-vellinum á mánudagskvöld- ið. Þetta var ágætur leikur og jafntefli sanngjörn úrslit. Mál- fríður Þórðardóttir náði forystu fyrir Þórsara en íris Thorleifs- dóttir jafnaði fyrir leikhlé. í síð- ari hálfleik skoraði Málfríður sitt annað mark og kom Þór aftur yfir. En KA gafst ekki upp og Tinna Guðmundsdóttir jafnaði 2:2 og þannig lauk leiknum. Eva Eyþórsdóttir fyrirliði Þórs var nokkuð ánægð með þessi úrslit: „Við erum með alveg nýtt Iið þannig að þetta eru góð úrslit fyrir okkur,“ sagði Eva. Arndís Ólafsdóttir fyrirliði KA var hins vegar ekkert of ánægð með þessi úrslit: „Við vorum frekar slakar í þessum leik, en það var þó gott að jafna leikinn tvisvar sinnum," sagði fyrirliði KA. Völsungsstúlkurnar voru mun sterkari en stöllur þeirra frá Sauðárkróki og unnu nokkuð örugglega 4:1. Mörk Völsunga gerðu Anna íris Sigurðardóttir 3 og Karolína Skaphéðinsdóttir 1. Mark Tindastóls setti Heba Guðmundsdóttir. Knattspyrna/Fullorðnir: Reynir og KS - í Ólafsfirði - TBA og Æskan á Akureyri Nokkrir leikir fara fram í deildakeppninni í kvöld kl. 20.00. Reynir keppir við KS í 3. deildinni á Olafsfírði (!), TBA og Æskan mætast á Þórs- vellinum á Akureyri í 4. deild- inni og svo keppa IBV og Leiftur í Vestmannaeyjum í 2. deildinni. Völlurinn hjá Reyni er ekki til- búinn í slaginn og nágrannar þeirra á Ólafsfirði hlupu undir bagga með þeim og lánuðu þeim völl. KS virðist í hörkuformi og niá því búast við hörkuleik á Ólafsfirði í kvöld. TBA og Æskan mætast kl. 20.00 á Þórsvellinum. TBA er nú efst í D-riðli 4. deildar og Æsku- menn eru sjálfsagt reiðubúnir að velta þeim úr því sæti. Leiftursmenn fljúga til Vest- manneyja og verða bæði lið að vinna þann leik til þess að halda sér í toppbaráttunni. Knattspyrna: Hver er réttur unglinga? - KA tapaði leik því meistaraflokkurinn þurfti völlinn Hætta varð leik á KA-vellinum milli KA og Þórs í 4. flokki B í Akureyrarmóti á föstudaginn því leiktíminn gekk inn á æfíngatíma meistaraflokks KA. Þjálfari meistaraflokks KA neitaði að gefa eftir hálf- tíma af sínum æfíngatíma á vellinum, þurftu því liðin að víkja af velli og var leikurinn síðan dæmdur KA tapaður. Eins og gefur að skilja eru menn ekki á sama máli um þessi málalok og hafði ungl- ingasíðan samband við for- ráðamenn leiksins út af þessu ináli. Þorsteinn Árnason dómari leiksins segir að framkoma þjálf- ara KA hafi verið svívirðileg í þessu máli. „Hann kemur þarna þegar leikurinn stendur yfir, fer beint í nokkra stjórnarmenn KA sem voru þar að horfa á strák- ana og heimtar að við förum af vellinum. Þeir koma til mín í leikhléi og biðja mig að stytta hálfleikinn niður í 15 mínútur sem ég hafnaði. Þá tilkynntu þeir mér að þeir vildu slíta leiknum sem þýddi auðvitað að KA tapaði leiknum. Þetta finnst mér algjört Hvað er framundan Á þessari síðu í framtíðinni verðum við með ramma þar sem skýrt verður frá helstu íþróttaviðburðum hjá ungling- um í vikunni framundan. Við skorum því á forráðamenn félaga að hafa samband við okkur til þess að láta vita hvað er á dagskránni. Á morgun fimmtudag leika Hvöt og KA í Bikarkeppni 2. flokks á Blönduósi. Á sunnudag verða síðan leikir í 2., 3., 4., og 5. flokki á Akureyri, Blönduósi, Siglufirði, Sauðárkróki og Húsa- vík og svo á þriðjudag er leikið í 2. flokki á Akureyri og á Húsa- vík. virðingarleysi við þessa ungu knattspyrnumenn sem eiga jafn- an rétt og þeir eldri að spila sína leiki,“ sagði Þorsteinn Árnason dómari leiksins. Pétur Ólafsson þjálfari 4. flokks KA vildi ekki tjá sig um þetta mál og vísaði alfarið á stjórn knattspyrnudeildar. Stefán Gunnlaugsson formaður knatt- spyrnudeildar sagði að þarna hefðu átt sér stað mistök sem skrifuðust alfarið á stjórn KA. Þegar leikurinn í 4. flokki var settur á hefðu KA og Þór í meist- araflokki átt að leika utn kvöldið en þegar það breyttist hefði auð- vitað átt að taka tillit til þess í sambandi við þennan leik. „Ég vil því biðja strákana í 4. flokki í báðum liðum, auk annarra starfsmanna leiksins, afsökunar og vona að slíkt komi ekki fyrir aftur." Frjálsar íþróttir: Bændadagshlaupið heppnaðist ágætiega - hjá UMSE A sunnudaginn fór fram á Dal- vík svonefnt Bændadagshlaup UMSE sem hefur veriö árviss atburður mörg undanfarin ár. Keppt var í fjórum flokkum, stúlkna og drengja, og var þátttaka mjög góð. Næsta íþróttamót á vegum UMSE verður víðavangshlaup á Melgerðismelum fimmtudaginn 15. júní. En það er heiimikið annað um að vera hjá ungmenna- félögunum; nú er nýhafið friðar- hlaup og hreinsunarátak ung- mennafélaganna verður um næstu helgi og eru allir hvattir til þess að leggja þessu þjóðþrifa- máli lið. En Iítum á úrslitin í Bændadagshlaupinu: 10 ára og yngri hnátur (ca. 1.100 m): 1. Berglind Gunnarsdóttir, Sv, 2. Sigurlaug Níelsdóttir, F. 3. Sigríður Ragna Gylfadóttir, Sv. 10 ára og yngri hnokkar (ca. 1.100 m): 1. Benjamín Örn Davíðsson, V. 2. Logi Sigurjónsson, Sv. 3. Einar Logi Vilhjálmsson, Sv. 11-12 ára stelpur (ca. 1.100 m): 1. Eva Bragadóttir, Sv. 2. Vala Björt Harðardóttir, V. 3. Gunnur Ýr Stefánsdóttir, Á. 11-12 ára strákar (ca. 1.100 m): 1. Anton Ingvason, Sv. 2. Örlygur Helgason, Á. 3. Karl Leifsson, Á. 13-15 ára telpur (ca. 1.100 m): 1. Kolbrún Sigurlásdóttir, Á. 2. Guðný Jóhannesdóttir, Á. 3. Maríanna Hansen, Æ. 13-15 ára piltar (ca. 2.200 m): 1. Brynjar Már Ottósson, Sv. 2. Sigurbjörn Hreiðarsson, Sv. 3. Jóhannes Gísli Pálmason, Á. 16 ára og eldri konur (ca. 2.200 m): 1. Sigríður Gunnarsdóttir, Á. 2. Elísa Rán Ingvarsdóttir, Sv. 16 ára og eldri karlar (ca. 3.300 m): 1. Eggert Ólafsson, Æ. 2. Indriði Kristjánsson, V. 3. Kristján Þorsteinsson, Þ.Sv. Urslit Stig út Stig til úr móti Sjóvábikars 1. Umf. Svarfdæla 58 34 2. Umf. Árroðinn 44 24 3. Umf. Vorboðinn 22 18 4. Umf. Æskan 12 12 5. Umf. ÞorsteinnSv. 10 8 6. Umf. Framtíð 8 4 7. Umf. Reynir 3 8. Umf. Skriðuhr. 0 Strákarnir bíða spenntir eftir ræsinum í Bændadagshlaupinu á Dalvík á sunnudaginn.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.